Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Page 9
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER Í989.
Vegfarendur í Bogota virða fyrir sér skemmdir eftir sprengjutilræði.
Simamynd Reuter
Kólumbía:
Arás á
bandaríska
sendiráðið
Eldflaug var skotið að bandaríska
sendiráðinu í Bogota í gærkvöldi en
tilræöiö mistókst, að því er verðir
við sendiráðið sögðu. Smávegis
hrundi úr húsveggnum en engin
sprenging varð.
Var þetta fyrsta árásin á stöðvar
Bandaríkjamanna í Kólumbíu síðan
Bandaríkjamenn lofuðu aðstoð sinni
við Kólumbíumenn í stríðinu gegn
eiturlyfjasölum.
Tvær sprengjur sprungu í við-
skiptahverfi í miðborg Bogota í gær-
kvöldi og þijár sprungu í Cali þar
sem eru bækistöðvar eiturlyfja-
hrings. Sprengjumar í Bogota
sprungu samtímis og slasaðist einn
maður við tilræðin.
í Cali eru bækistöðvar samtaka eit-
urlyfjasala sem eru keppinautur
Medellinhringsins. Að sögn embætt-
ismanna framleiða hringir þessir
áttatíu prósent alls kókaíns sem
neytt er íBandaríkjunum.
Við sprengjutilræðin í Bogota urðu
miklar skemmdir og brotnuðu rúður
í nálægum húsum. Frá því á föstu-
daginn hafa sjö sprengjur sprungið
við banka í Bogota. Alls hafa fimmtíu
sprengjur sprungið, flestar í Medell-
in, síðan yfirvöld lýstu yfir stríði á
hendur eiturlyfjabarónum.
Að flestra áliti eru það eiturlyfja-
salar sem standa á bak við sprengju-
tilræðin í því skyni að fá yfirvöld til
að nema úr gildi lög þau er heimila
framsal eiturlyíjabaróna. Em þeir
sagðir óttast réttarhöld í Bandaríkj-
unum meir en allt annað.
Á laugardaginn var blaðamaður
skotinn til bana í Buenaventura.
Ekki er vitað um tilefni morðsins en
eiturlyfjasalar hafa stöðugt hótað
blaðamönnumlífláti. Reuter
Hundrað þúsund
mótmæla í Úkraínu
Að minnsta kosti hundrað þúsund
manns gengu í gegnum Lvov í Úkra-
ínu í gær til að krefjast þess að ka-
þólska kirkjan yrði lögleidd. Starf-
semi hennar hefur verið bönnuð frá
1946 er Stalin innlimaði hana í rúss-
nesku réttrúnaðarkirkjuna. Sovésk-
ir fjölmiðlar greindu lítillega frá fjöl-
dagöngunni.
Göngumenn hvöttu Gorbatsjov til
að lögleiða kirkjuna og báðu hann
jafnframt fyrir skilaboð til páfa.
Búist er við að málið verði á dagskrá
þegar Gorbatsjov hittir páfa að máli
í nóvember.
í gærkvöldi komu einnig þrjátíu
þúsund manns saman í miðborg
Lvov til að minnast þess þegar so-
véskir hermenn gerðu innrás i vest-
urhluta Úkraínu fyrir fimmtíu árum.
Svæðið, sem var hluti af Póllandi,
var innlimað í Sovétríkin samkvæmt
samningi sem gerður var við nasista.
Samtöki, sem stóðu á bak við mót-
mælafundinn í gærkvöldi, hvöttu
fólk til að slökkva fjósin hjá sér eftir
klukkan 22 og kveikja á kertaljósum
í staðinn.
í Armeníu samþykkti þingið í gær
ályktun þar sem kveðið er á um að-
geröir til að aflétta umsátri um lýð-
veldið og héraðið Nagomo-Karabakh
vegna verkfallsins í Azerbajdzhan.
Þingið sendi einnig yfirlýsingu til
æðsta ráðs sovéska þingsins. í henni
Vesturhluti Úkraínu var áður hluti
af Póllandi.
sagði að friður kæmist á með sam-
komulagi og tilslökunum en ekki
með fyrirskipunum. Kommúnista-
flokkurinn í Azerbajdzhan hvatti
einnig til samkomulags í sjónvarps-
viðtali.
Síðastliðna átján mánuði hafa
hundrað og tuttugu manns látið lífið
í átökum í Armeníu og Azerbajdzhan
vegna deilna um héraðið Nagomo-
Karabakh.
9
Útlönd
Fellibylurinn Hugo á leið sinni til Puerto Rico í gær.
Símamynd Reuter
' JAMAICA
ILAJTI
KARtBAHAF
DúminíluiRska
Pucrto Rico
Guadeloupe
OVJRJ
Gvfurleg
eyðilegging
Bandaríkin
Ftórida
NORÐUR-
ATLANTSHAF
BAHAMAVJAR
FcUibylurínn
stefnir nú á
Puerto Rico
Fellibylurinn Hugo skildi eftir slóð
eyðileggingar á austurhluta Karíba-
hafs í gær. Fimm manns létu lífið og
þúsundir urðu heimihslausar á
Gaudelope áður en feflibylurinn hélt
í átt til Jómfrúreyja og Puerto Rico.
Hugo, sem er mesti fellibylur sem
gengið hefur yfir norðausturhluta
Karíbahafs í áratug, olti mestum
skemmdum á eyjunni Guadeloupe
en miklar skemmdir urðu einnig
Dominica, Antigua, Montserrat,
St.Martin og St. Kitts.
Hugo æddi yfir Guadeloupe með
225 kílómetra hraða á klukkustund
og rifnuðu þök af húsum, flugtimi
þaut um koll og um 70 prósent allra
vega á eyjunni urðu ófærir í kjölfar
veðurofsans.
Búist var við að Hugo kæmi til
Puerto Rico í dag. í gærkvöldi höfðu
að minnsta kosti fimm þúsund íbúar
við strendumar flúið heimili sín.
Stjómvöld hafa lokaö alþjóðaflug-
velflnum þar og flestöll hótefln lok-
uðu spilavítum sínum fyrir nóttina.
íbúar i San Juan í Puerto Rico birgðu sig upp af drykkjarvatni á flöskum
samfimis því sem fellibylurinn Hugo nálgaðist eyjuna. Símamynd Reuter
Ekkert símasamband var frá Gu-
adelope og nálægum eyjum við um-
heiminn og fyrstu fregnimar af eyði-
leggingunni bámst frá radíóáhuga-
mönnum. Franskir embættismenn
segja að íjögur þúsund manns séu
heimiflslaus.
Reuter
eftir fellibyl
Veiðimenn
- nú er tækifærið
Opnum á morgun hina árlegu haustútsölu okkar á
veiðifatnaði, þar á meðal jökkum, vestum, kuldafatnaði,
regnfatnaði, peysum, íþróttagöllum o.m.fl.
20-50% afsláttur
Hausttilboð
Bjóðum viðskiptavinum vorum
15% staðgreiðsluafslátt á ölluzn
veiðivörum verslunarinnar með>
an á útsölunni stendur.
Verslunin
éiöiv<
Langholtsvegi 111
104 Reykjavík 0) 6870*90
Reuter