Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Page 12
12
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989.
Útlönd
Boris Jeltsin heimsótti bandarisku geimvísíndastöðina NASA um helg-
ina. Símamynd Reuter
Sovéski stjómmálamaðurinn Boris Jeltsin hefur pantað bandarískar
sprautunálar fyrir andvirði hundrað þúsund dollara. Nálamar ætiar
hann að nota í baráttunni við eyðni í Sovétríkjunum.
Jeltsin, sem nú hefur lokið vikulangri heimsókn sinni í Bandaríkjun-
um, undirritaði kaupsamninginn rétt áður en hann steig upp í flugvél þá
er flutti hann heim til Sovétríkjanna.
Jeltsin kvaðst fara með góða mynd af Bandaríkjunum í huga sér. Hann
vildiþó ekki taka svo sterkt til orða að hann væri oröinn kapítalisti eftir
áttadagadvölíBandaríkjunum. Reuter
Pólskr kommúnistar þinga
Leiötogar pólska kommúnistaflokksins leita nú leiöa tii aö endurvinna
traust gamalla flokksmeölíma og vinna nýja stuöningsmenn til að geta
borið sigur úr býtum í næstu kosningum.
Miðstjóm flokksins kemur saman í dag til aö íhuga til hvaða ráða eigi
að gripa eftir ósigurinn í kosningunum fyrir Samstöðu. Reut«r
Betur fór en á horfðist
Eldur leikur um annað olíuskipanna sem lentu I árekstri úti fyrir austur
strönd Bretlands um helgina. Símamynd Reuter
Stórtækar hreinsunaraðgerðir og hliðhollir vindguðir virðast hafa kom-
ið í veg fyrir að olíubrák vegna árekstrar tveggja ohuskipa úti fyrir strönd
Bretlands um helgina mengi austurströnd landsins.
Helsta hráohubrákin var í gærkvöldi um tuttugu mílna löng og sjö
mílna breið, að sögn breskra strandgæslumanna. Hefur hún þegar byijað
að berast suður. Björgunarmenn vom að í allan gærdag og notuöu sex
þyrlur tii að úða efni er deifir ohubrák af sjó. Ekki hafa neinar fregnir
borist af því aö olia hafi borist á land.
Olíuskipin tvö rákust á á sunnudag. Um borð í öðru þeirra voru 56
þúsund tonn af hráolíu, en úr því lak í sjóinn, en í hinu rúmlega 46 þús-
und tonn af bensínolíu. Eftir áreksturinn kviknaði eldur um borö f báðum
skipum en engan sakaöi. Nú hafa eldarnir verið slökktir.
Skyndiárásir á stöðvar ETA á Spáni
I þessari tlutningablfreið fann spánska lögreglan tvo grunaða meðlimi
ETA, aðskilnaðarhreyfingar Baska. Simamynd Reuter
Spánska stjómin vann sigur gegn aðskilnaðarhreyfmgu Baska á Spáni,
ETA, um helgina en þá voru rúmlega tuttugu grunaöir meðlimir hennar
handteknir í skyndiárás lögreglu. Tveir gmnaöir ETA-mennlétust í árás-
inni.
Araba-samtök ETA, sem íögregla segir hættulegan hóp ræningja, vom
leyst upp um helgina í skyndiárásum lögreglu viðs vegar um Iandið að,
sögn talsmanns lögreglunnar. Mikið magn vopna fannst og um 300 kfló
af sprengiefhi.
Hægri menn» Noregi funda
Miðjuflokkurinn, Hægri flokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn í
Noregi koma saman tfl fundar í dag um stjómarmyndun, Skiptar skoðan-
ir um hin ýmsu málefni em þó taldar verða erfið hindrun.
Allir flokkamir hafa neitað að leyfa Carli I. Hagen og flokki hans, Fram-
faraílokknum, að taka þátt í viðræðunum þótt þeir þurö á stuðningi hans
að halda.
Hagen vifl hins vegar ekki heita þeim stuðningi sínum nema þeir taki
hann með í stjómarsamstarfið. Hann segist þó líklega munu styðja borg-
aralegu flokkana við að fella Brundtland forsætásráðherra þegar þing-
störf hefjast í október. NTB
Jettsin kaupir nálar
Rabin til Kaíró
Yitzhak Rabin, vamarmálaráð-
herra ísraels, kemur til Kaíró í
Egyptalandi í dag tfl viðræðna við
egypska leiðtoga um kosningar á
herteknu svæðunum. Hosni Mubar-
ak Egyptalandsforseti bauð Rabin í
heimsókn til þess að reyna að ræða
um samkomulagsleið milli ísraela og
Palestínumanna varðandi kosning-
amar.
Mubarak hefur lagt fram tillögur
um tíu atriði til viðbótar kosninga-
áætlun ísraela sem gerir ráð fyrir að
Palestínumenn kjósi fulltrúa til
samningaviðræðna um bráðabirgða-
sjálfstjórn á vesturbakkanum og
Gazasvæðinu.
Hægri menn í ríkisstjórn ísraels
em andvígir för Rabins til Egypta-
lands þar sem þeir eru ekki sáttir við
tfllögur Mubaraks. Þær fela í sér að
ísraelar láti land af hendi í skiptum
fyrir frið og að landnámi ísraela á
herteknu svæðunum verði hætt.
Verkamannaílokkurinn, flokkur
Rabins, styður aftur á móti friðartil-
raunir Mubaraks.
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissam-
taka Palestínumanna, PLO, sneri aft-
ur til Kaíró í gær eftir viðræður í
síðustu viku við egypska ráðamenn.
Borgarstjóri Betlehem, Elias Freij,
kvaðst í gær hafa hitt Arafat nokkr-
um sinnum í Túnis og hvatt hann til
að samþykkja kosningaáætlunina.
ísraelum og Palestínumönnum á
herteknu svæðunum er bannað að
hafa samskipti við PLO. Hafa ísrael-
ar lýst samtökin ólögleg.
ísraelski herinn setti á útgöngu-
bann í átta flóttamannabúðum á her-
teknu svæðunum í gær þar sem Pa-
lestínumenn efndu til verkfalla til að
mótmæla fjöldamorðum á Palestínu-
mönnum árið 1982. Átök urðu í gær
milli hermanna og araba og særðust
tólf Palestínumenn. Meðal þeirra
sem skotið var á var sjö ára drengur
og annar tólf ára.
Reuter
Varnarmálaráðherra ísraels, Yitzhak Rabin.
Simamynd Reuter
Indverjar heita
brottflutningi herja
sinna frá Sri Lanka
Indversk yfírvöld hétu því í
morgun að draga tfl baka herliö
sitt frá Sri Lanka fyrir árslok. Alls
eru rúmlega fjörutiu þúsund ind-
verskir hermenn á eyjunni sem þá
verða á brott fyrir 3L desember
næstkomandi
„Ríkisstjóra Indlands hefúr hett-
ið því aö unniö verði aö því aö
brottflutningi þeim sem gerö var
áætlun um 29. júlí 1989 verði lokiö
fyrir 31. desember 1989,“ sagöi i
sameiginlegri yfiriýsingu ríkjanna
beggja.
Frá og með miðvikudegi munu
indverskir hermenn hafa í heiðri
vopnahlé í baráttu þeirra gegn
skæruliðum samkvæmt samningi
ríkjanna sem undirritaöur vár á
mánudag, segir og i yfirlýsingunni.
Stjórnvöld á Sri Lanka hafa heitiö
skæruliðum vernd og öryggi ef þeir
taki þátt í friöarráðstefnu. Tilboð
stjóravalda kemur í kjölfar einnar
blóðugustu helgar i sögu eyjarinn-
ar. Taliö er að 350 hafi fallið síð-
ustu daga og kveikt var 1 tvö hundr-
uö bvggineum.
Stjórnvöld Vilja fá Friðarhreyf-
ingu alþýöunnar tfl viöræðna en
hreyfmgin hefur hafnað öllu slíku.
Reuter
Milljóna dollara gullf undur
Starfsmenn björgunarfyrirtækis-
ins Columbus-America Discovery
Group eru byrjaðir að flytja hluta-
farms flaks bandaríska póstskipsins
SS Central America frá sjávarbotni
upp á yfirborðið. Talið er að í flaki
skipsins, sem strandaði úti fyrir suð-
austurströnd Bandaríkjanna árið
1857, sé gullfarmur, mflljónir dollara
að verðmæti, milijarðar dollara að
mati sumra. Björgunarmenn segja
þetta verðmætasta fund í sögu
Bandaríkjanna.
SS Central America fórst í skað-
ræðisveðri þann 12. september 1857.
Af 578 farþegum og áhöfn létust 425.
Um borð í skipinu var mikill gull-
farmur, alls þrjú tonn. Miðað við
þyngd er verðmæti gullsins um 28
milljónir doflara en að sögn tals-
manns björgunarleiöangursins er
mikill hluti þess m.a. í formi gullpen-
inga. Þannig hefur það mun meira
verðgildi fyrir safnara, sagöi tals-
maðurinn.
Flakið, sem fannst sumarið 1986,
liggur á um tveggja og hálfs kíló-
metra dýpi úti fyrir suðausturströnd
Bandaríkjanna. Það var fyrst í júlí-
mánuði að björgunarmönnum tókst
að smíða tölvustýrðan kafbát sem
gagnast gæti við björgun farmsins.
Deilur um eignarrétt og réttinn til
björgunar farms skipsins töfðu mjög
fyrir björgunaraðgerðum. Dómstóll í
Virginíu-fylki felldi þann úrskurð að
Columbus-America björgunarfyrir-
tækið ætti rétt á að bjarga farmi
skipsins þrátt fyrir að menn þar hafi
aðeins séð skipið og snert það með
aðstoð fjarstýringar.
Reuter
Þessi gullpeningur var einn þúsunda sem björgunarmenn segjast hafa fund-
ið við leit í flaki bandaríska póstskipsins SS Central America sem strand-
aöi tvö hundruö sjómílur úti fyrir strönd Karólínu i Bandaríkjunum fyrir
rúmri Öld. Símamynd Reuter