Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Page 29
MÁNtJDAGUR 18. SEPTBMBER 1989. Stóra-Laxá í Hreppum: Fjórir stórir í Spegl- inum og 160 a land „Það var gaman að veiöa þennan áin var tær og vatnsmagn eðiilegt 19 punda lax á Hólraabreiðunni á þegar hann veiddist,“ sagði Björg- maðk, annar stórlax beit á bjá mér vin ennfremur. en fór af eftir stutta viðureign. Við Eftir bestu fréttum sem við höf- fengum einn flögurra punda iíka um eru komnir um 70 laxar á efsta þarna,“ sagði Björgvin Björgvins- svæði, 10-15 laxar á svæði þrjú og son, veiðimaður úr Hafnarfiröi, en svæði eitt og tvö hefúr gefið um 65 hann lenti fyrir fáum dögum 1 laxar. Þetta þýöir að Stóra-Laxá í skemmtilegri veiði í Stóru-Laxá i Hreppum er með eitthvað í kring- Hreppum. „Bóndinn í Laxárdal var um 150-160 laxa og veiðimenn hafa við veiðar í ánni fyrir skömmu og sagt að reytingur sé af laxi í ánni. sá víöa væna laxa, eins og í Speglin- Kannski kemur gott skot í lokin? um, þar lágu einir flórir stórlaxar Veiðitiminn er ekki búinn. en þeir fengust ekki til að taka. En G.Bender • Björgvln Björgvlnsson úr Hafnarfirði ásamt daatrum sínum með 19 og 4 punda iaxa sem Björgvin landaði með góðri aðstoð Ólafs Guð- mundssonar. DV-mynd Ölafur • Þorgeír Danielsson meö 20 punda hænginn við Ármólin nokkrum mfnútum eftir baráttuna, stærsta laxinn úr Svartá í sumar. Svartá í Húnavatnssýslu: Laxamir 118 og sá stærsti 20 punda „Viö vorum aö koma heim eftir Torfustaðahyl og Brúnahyl, svo aö hafa lokað Svartá og laxarnir einn i Síkinu. Ekki eru margir lax- voru 118. Stærsti laxinn var 20 ar í ánni. Það var Sigurður Gunn- punda og svo 19 punda,“ sagði steinsson sera veiddi þann næst- Grettir Gunnlaugsson, formaður stærsta,19pundafiskíSikinu,fyrr árnefhdar Svartár i Húnvatnssýslu í sumar og svo veiddi Þorgeir Danf • í gærdag, en veiöi lauk í ánni á elsson fyrir fáum dögura í Ármót- fóstudaginn. ura 20 punda hæng og hann tók „Það lágu þrír laxar í lokaferö- Þingeying, túbusagði Grettir i inni, tvo fengura viö inni á dal, í lokin. -G.Bender Iþróttir Marteinn hættur með Fylki Marteinn Geirsson sflórnaði Fylkismönnum í síðasta skipti þeg- ar þeir báru sigurorð af FH-ingum í lokaumferð 1. deildarinnar á laug- ardaginn. Hann hefur þjáifaö Ár- bæjarliðið í flögur ár og undir hans stjórn fór það úr 3. deildinni í þá fyrstu og var óheppið að halda ekki sæti sínu þar. n „Það er kominn tími til að skipta um, bæði fyrir mig og Fylkismenn. Þetta eru búin að vera góð flögur ár og það er öruggt að ég mun hafa taugar til Fylkis um ókomna tíð,“ sagði Marteiiyi í samtali við DV eftir FH-leikinn. „Fylkismenn eiga framtíðina fyr- ir sér, starf þeirra í yngri flokkun- um er til fyrirmyndar og þeir þurfa engu að kvíða. Ég var með þrjá stráka á fyrsta ári í 2. flokki í liðinu í síðustu leikjunum og í 2. flokkn- um eru 3-4 aðrir sem gefa þeim lít- ið eftir.“ Rosalegt að falla eftir svona sigurleik „Það er rosalegt að vinna svona leik og falla samt í 2. deild. Það var kominn fiðringur í mig um að þetta ætlaði að takast en þegar flautað var til leiksloka máttum við hengja haus. Þessi leikur var góður hjá okkur en við follum á því að hafa misst af einu til tveimur jafnteflum fyrr í sumar. Það er ótrúlegt að fara niður með 17 stig, á óhag- stæðri markatölu. Þórsarar voru með slakasta liðið í deildinni í sum- ar en það lá samt alltaf í loftinu að þeir gætu sigrað Skagamenn og bjargað sér,“ sagði Marteinn. Evrópuleikur í Kaplakrika „Það er reglulega sárt að sjá á efdr Islandsmeistaratitlinum þegar við áttum alla möguleika á honum. Þetta var ekki okkar dagur, við byrjuðum mjög vel en það var ekki nóg,“ sagði HaUdór Halldórsson, markvörður og fyrirliði FH-inga. „En við verðum að reyna að vera ánægðir með annað sætið, það er langbesti árangur sem FH hefur náð og næsta haust bjóðum við upp á Evrópuleik í Kaplakrikanum. Við hljótum að halda áfram ótrauðir og mæta tvíefldir til leiks næsta sumar," sagði Halldór. -VS Allir gengu óánægðir af velli í Hafnarfirði - Fylkismenn gerðu meistaravon FH að engu en féllu sjálfir í 2. deild Það var lítið um fognuð í Hafnar- firðinum á laugardaginn. íslands- meistaratitillinn, sem blasti við FH- ingum, rann þeim úr greipum þegar ákveðnir Fylkismenn sigruðu þá sanngjamt, 1-2. Árbæingar féllust í faðma um leið og flautað var til leiks- loka, en í næstu andrá fengu þeir þær sorgarfregnir að þessi frækni sigur þeirra hefði ekki dugað til - sigur Þórsara á ÍA á Akureyri gerði þaö að verkum að Fylkir féll í 2. deild eftir eins árs veru í þeirri fyrstu. Og miðað við leikinn í Kaplakrika var það óverðskuldað fall. Fylkir var mun betri aðilinn og FH-ingar hefðu ekkert getað sagt við því þótt ósigur þeirra hefði orðið stærri. Samt fengu Hafnfirðingarnir þá glæsilegustu byriun sem þeir gátu beðið um - eft- ir aðeins tvær minútur skoraði Guð- mundur Valur Sigurðsson beint úr aukaspymu úr vítateigsboganum, 1-0. Fylkir tók völdin En það vom Fylkismenn sem smám saman tóku öll völd á vellinum og jöfnuðu sanngjamt á 16. mínútu. Baldur Bjamason lék upp hægri vænginn og gaf fallega yfir til vinstri á Öm Valdimarsson. Hann var þar með kominn einn gegn Halldóri Hall- dórssyni markverði og Erni urðu ekki á nein mistök, hann renndi bolt- anum af öryggi í markið, 1-1. Fylkismenn voru oft nálægt því að ná fbrystunni í leiknum og tókst það loksins þegar 11 mínútur voru til leiksloka. Kristinn Tómasson, 17 ára piltur, hafði ekki verið nema sex mínútur með í leiknum þegar hann fékk boltann á vítateigslínu FH-inga. Á snilldarlegan hátt lyfti hann bolt- anum yfir vamarmann FH, komst með þvi einn upp að markinu og skoraði eins og ekkert væri auðveld- ara, 1-2. Þrátt fyrir þunga pressu síðustu 10 mínúturnar varð FH-ingum ekkert ágengt og Fylkir var rétt búinn að skora þriðja markið þegar Baldur Bjarnason komst einn upp að FH- markinu en Halldór bjargaði vel með úthlaupi. Óverðskuldað fall Fylkismenn léku nflög vel og náðu fljótt völdum á miðjunni. Þar var Hilmar Sighvatsson í aðalhlutverki, og traustum varnarleik liðsins sflórnaði Gústaf Vífilsson. Þórhallur Jóhannsson, Valur Ragnarsson og Pétur Óskarsson komust líka mjög vel frá leiknum og í heild var Fylkis- liðið sterkt og verðskuidar engan veginn fall í 2. deild miðað við þessa frammistöðu. FH-ingar misstu af einstöku tæk- ifæri með þessum ósigri og þeir voru ekki svipur hjá sjón miðað við flesta leiki þeirra í sumar. Ailir hafa leikið betur, Magnús Pálsson komst einna best frá leiknum og Ólafur Jóhannes- son var drjúgur í vöminni að vanda. Dómari var Ólafur Sveinsson og stóð sig með mikilli prýði. Hann verðskuldar fyllilega allar 3 sflörn- umar. Maður leiksins: Gústaf Vífilsson, Fylki. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.