Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Blaðsíða 44
44
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989.
í f iski
Alþýðuleikhúsið sýnir í Iðnó:
ÍSAÐAR GELLUR
Höfundur: Frederick Harrison
Þýðing: Guðrún Bachmann
Lýsing: Sveinn Benediktsson
Framkvæmdastjóri: Erla B. Skúladóttir
Leikmynd og búningar: Gerla
Leikstjórn: Hávar Sigurjónsson.
Alþýöuleikhúsið hefur fengið
inni í Iðnó með fyrstu sýningu
haustsins og sýnir þar ísaðar gell-
ur. Þetta er leikrit eftir breskan
höfund, Frederick Harrison, og
Guðrún Bachmann hefur þýtt þaö
á líflegt talmál eins og efni standa
tu.
Leikfélag Reykjavíkur hefur ný-
verið kvatt húsið og er að koma sér
fyrir inni í Kringlumýri þar sem
Borgarieikhúsið verður bráðum
vígt. Það er ennþá óráðið hvað
verður um Iðnó en óneitanlega er
það fýsilegur kostur að þarna verði
rekið leikhús áfram.
Alþýðuleikhúsið hefur fyrir
löngu náð að festa sig í sessi og
samfelld saga þess er orðin æði
löng. Engu að síður hefur leikhúsið
verið eins og farandverkafólkið,
sem fjallað er um í ísuðum gellum,
rótlaust og stöðugt á flækingi á
milli staða.
Stundum hafa sýningar leik-
hússins goldið illilega fyrir að-
stöðuleysið en oftar hefur þó verið
lögð öll áhersla á að sigra erfiðleik-
ana með athyghsverðum árangri.
ísaðar gellur er eitt þeirra leikrita
sem eru samansett af mörgum
stuttum atriðum og lýsir fremur
afmörkuðum atburðum. Það er
ekki langt skref frá verkinu eins
og það kemur fyrir á sviðinu í Iðnó
til þess sem hægt væri að hugsa sér
það fest á filmu, t.d. sjónvarpsgerð
þess, enda mun hafa komið til tals
aö vinna það fyrir sjónvarp.
Skiptingar á mill atriða ganga
nokkuð vel og þar hjálpar leik-
mynd Gerlu til. Bárujárnsklæddir
Leiklist
Auður Eydal
flekar gefa hugmynd um kuldalega
og ópersónulega verbúð, sviðs-
myndir eru fáar og gegna ýmsum
hlutverkum.
í verkinu er lýst ferð þriggja
stúlkna frá Hull til íslands, komu
þeirra til landsins, fyrstu viðbrögð-
um og samskiptum þeirra við ís-
lendinga (einkum einn). Það er
nánast tilviljun að þær lenda á hér,
þær eru fyrst og fremst að flýja
atvinnuleysi og heimilisástæður
heima fyrir.
Aðahnntak verksins er þannig
ekki bundið stað né stund. Stúlk-
urnar þrjár eru í og með í leit að
sjálfum sér. Þær þurfa að una nánu
sambýli hver við aðra og það veld-
ur árekstrum. Tvær þeirra þekkj-
ast fyrir, erú æskuvinkonur, en sú
þriðja bætist í hópinn og upp kem-
ur togstreita á mihi þeirra.
Það loðir alltaf við okkur íslend-
inga að vera mjög uppveðruð yfir
því hvað útlendingar segja og
skrifa um land og þjóð. í þessari
léttu úttekt á kjörum og viðhorfum
farandverkafólks til okkar kemur
fram einn fulltrúi landsmanna og
hann ekkert sérstaklega aðlaðandi.
Höfundurinn gæti alveg eins ver-
ið íslendingur eins og Breti þegar
hann er að senda pillur á landann
með lýsingunni á þessum hrútleiö-
inlega verkstjóra.
Halldór Bjömsson leikur Pétur
þennan og fer ágætlega með hlut-
verkið. Kunnuglegt sambland af
heimóttarskap og drýldni kemst
vel til skila og þegar á reynir sýnir
sig að maðurinn er lítilmenni að
auki. Halldór fer hófsamlega með
hlutverkið og byggir upp sannfær-
andi mynd af verkstjóranum. .
Vinkonumar tvær em hressar
og fiörugar, bæði þegar þær ráðast
til atlögu við hringorminn og eins
þegar þær gera sitt besta til þess
að láta frítímann hða og hressa upp
á fábreytileikann á staðnum. En
það dregur mjög snarlega af ann-
arri þeirra, sem bæði glímir við ill-
læknanlega ástarsorg og einnig
pirring út í þriðju konuna, De-
borah.
Ingrid Jónsdóttir leikur Jenny og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir Tracey.
Ingrid er snögg upp á lagið og má
gæta sín að leika ekki í gusum.
Ólafía gerir Tracey ágæt skh og
persónan verður býsna trúverðug,
lífleg og alítaf með óvæntar uppá-
komur.
Ása Hlín Svavarsdóttir leikur
Deborah, sem er af öðru sauða-
húsi. Ása leikur líka á öðrum nót-
um og mótar persónuna skýrum
dráttum.
Hávar Sigurjónsson er leikstjóri
og vinnur ágætlega úr efniviðnum
en ísaðar gellur er eins og fyrr seg-
ir létt úttekt á lífi farandverkafólks
hér á landi og samskiptum stúlkn-
anna þriggja, bæði innbyrðis og
eins við verkstjórann, Pétur. Það
tekst mætavel að sýna hvernig þær
komast hver um sig hænufeti nær
því að þekkja sjálfa sig við dvölina
og fara reynslunni ríkari heim.
AE
Námskeið
Söngnámskeið
i vetur mun söngskóh Ágústu Ágústs-
dóttur starfa með breyttu sniði. Kennsla
fer fram í formi námskeiða, þrjá eftirmið-
daga í senn frá kl. 17-21. Síðasta dag hvers
námskeiðs verður kennslan opin og gefst
fólki þá kostur á að fylgjast með kennsl-
unni samkvæmt nánara umtaii. Þá verð-
ur stefnt að því að halda tónleika í lok
hverrar annar en hver önn samanstend-
ur af þremur námskeiöum. Fyrirmyndin
að þessu formi kennslunnar er sótt til
Alþjóðlega tónlistamámskeiðsins í
Weimar í Austur-Þýskalandi og kennslan
byggð á söngtækni prófessors Hanne-
Lore Kuhse í Berlín. Píanóundirleikur
stendur þátttakendum til boða. Fyrsta
námskeiðið verður í Laugamesskólanum
í Reykjavík dagana 19. til 21. september
nk. kl. 17-21 og em þátttakendur beðnir
að hafa samband við Ágústu Ágústsdótt-
ur í sima 94-8260 eða 94-7672.
Fundir
Fundur DC Appollo
DC Appollo, félagsskapur fólks af Dale
Camegie námskeiðum, heldur fund
þriðjudaginn 19. september 1989 í Far-
fuglaheimilinu við Sundlaugarveg 34
stundvíslega kl. 20.30. Gestur: Guðfmna
Eydal sálfræðingur. Fjölmennum.
Tilkyimingar
Nýrtónlistarskóli
Nú í október tekur til starfa nýr tónhstar-
skóli, Tónskóli Eddu Borg, og er hann
ætlaður bömum frá fimm ára aldri.
Kennsla verður eingöngu bundin við svo-
kallaða forskóladeild fyrst um sinn, þ.e.
undirbúningur fyrir hljóðfæranám.
Kennt verður á blokkflautu og Orff hljóð-
færi auk þess sem farið verður í nótur
og annað sem flokkast undir tónmennt
ahnennt. Kennsla fer fram fyrir hádegi í
safnaðarsölum Seljakirkju, Kleifarseh 8.
Innritun hefst mánudaginn 18. september
kl. 10 í síma 73452.
Andlát
Stefanía Gissurardóttir frá Hraun-
gerði, Ártúni 2, Selfossi, lést 13. sept-
ember.
-Ingi Friðrik Axelsson arkitekt lést á
sjúkrahúsi í Karlsruhe í Þýskalandi
14. september sl.
Gunnar Tómasson verkfræðingur
andaðist í St. Jósefsspítala, Hafnar-
firði, fimmtudaginn 14. september.
Elías Jón Guðjónsson skókaup-
maður, Staðarfelh, Akranesi, andað-
ist á heimili sínu 14. september.
Jardarfarir
Haraldur Steingrímssonrafvirki lést
8. september sl. Hann fæddist í
Reykjavík 7. september 1923. For-
eldrar hans voru hjónin Vilborg Vig-
fúsdóttir og Steingrímur Magnússon.
Haraldur starfaði lengst af í Áburð-
arverksmiðjunni. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Þyrí Gísladóttir. Þau
hjónin eignuðust þrjú börn og eru tvö
á lífi. Fyrir hjónaband eignaðist Har-
aldur eina dóttur. Útfór hans verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Guðrún Jónina Guðmundsdóttir,
Háaleitisbraut 51, Reykjavík, andað-
ist í Hvidorve sjúkrahúsinu í Kaup-
mannahöfn miðvikudaginn 6. sept-
ember sl. Útfórin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Friðberg Kristjánsson frá Hellis-
sandi, verður jarðsunginn frá Að-
ventkirkjunni í Reykjavík i dag, 18.
september, kl. 13.30.
Margrét Björgólfsdóttir, Sólvalla-
götu 45, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 19. septemb-
er kl. 13.30.
Þorsteinn Steinberg Árelíusson,
Skarðshlíð 16, Akureyri, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju þriöju-
daginn 19. september kl. 13.30.
Þóranna Rósa Sigurðardóttir, Drop-
laugarstööum, verður jarðsungin
þriðjudaginn 19. september kl. 10.30
frá Fossvogskirkju.
Jón Sædal Sigurðsson, Rauðarárstíg
32, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 19. september
kl. 13.30.
Friðbjörg Hannesdóttir, Alfheimum
66, lést í Landspítalanum 8. septemb-
er sl. Útfór hennar fer fram miðviku-
daginn 20. september kl. 15 frá Foss-
vogskirkju.
Útför Helgu Jónsdóttur, Týsgötu 4b,
verður gerð frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 19. september kl. 15.
Guðni Bjarnason fyrrverandi verk-
stjóri, Öldugötu 33, verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni í dag, 18. sept-
ember, kl. 13.30.
Björn Kjartansson frá Seli, Gríms-
nesi, til heimilis að Efstasundi 31,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Áskirkju þriðjudaginn 19. september
kl. 15.
Karl Steinar Karlsson bifreiðarstjóri,
Asparfelli 6, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 20. september kl. 13.30.
Guðmundur Þorleifsson bóndi, Bæ í
Súgandafirði, sem andaðist 12. sept-
ember sl., verður jarðsunginn frá.
Suðureyrarkirkju þriðjudaginn 19.
september kl. 14.
Æfingatafla handknattleiksdeildar Fram 1989-1990
Mfl.ka. mánudaga kl. 18.50
þriðjudaga fimmtudaga kl. 18.00 kl. 19.35 Höllin
föstudaga kl. 21.45 Hölhn
mfl.kv. mánudaga þriðjudaga fimmtudaga kl. 20.30 kl. 18.00 kl. 18.20 Höhin
föstudaga kl. 20.30 Höhin
2.fl.ka. mánudaga kl. 20.05
f. ’71-’72 / föstudaga kl. 17.35
3. fl.ka. þriðjudaga kl. 19.15
f. ’73—’74 fimmtudaga sunnudaga kl. 21.50 kl. 12.35
3. fl. kv. mánudaga kl. 21.55
f. ’73-’74 þriöjudaga föstudaga kl. 21.45 kl. 18.50
4. fl. ka. þriðjudaga kl. 20.30
f. ’75-’76 fimmtudaga kl. 20.50
laugardaga kl. 15.30
4.11. kv. mánudaga kl. 20.55
f. ’75-’76 - föstudaga laugardaga kl. 20.05 kl. 14.40
5. fl. ka. mánudaga kl. 18.00
f. ’77-’78 laugardaga sunnudaga kl. 16.20 kl. 11.20
5. fl. kv. fimmtudaga kl. 17.35
f.’77- laugardaga kl.18.00
6. fl. ka. mánudaga kl. 17.10 4
f. '79— laugardaga kl. 17.10 | lí |
Allar æfingar eru í íþróttahúsi Álta-
mýraskóla fram. nema annað sé tekið
Allir velkomnir.
Handknattleiksdeild Fram.
Meiming
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ingrid Jónsdóttir í hlutverkim sínum I „ísaðar gellur".
yUMFERÐAR
RÁÐ
ERT PÚ VIÐBÚIN(N)
ÓVÆNTUM „GESTI“
AF
Á