Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Side 2
LAUGARDAGUR 23. SBPTEMBER 1989.
Fréttir
Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva:
Kjarasamningar verði
framlengdir óbreyttir
og hagsmunaaðilar taki yfir stjóm á ísfiskútflutningi
„Eg segi það ekki að sú afstaða
lánastofnana til fiskvinnslunnar,
sem kom fram hjá til að mynda Guð-
mundi Haukssyni, bankastjóra Út-
vegsbankans, hafi komið á óvart. En
talsmenn lánastofnana, sem töluðu
hér á fundinum boðuðu mun meira
aðhald en verið hefur í lánveitingum
tií fiskvinnslunnar sem annarra.
Auk þess sögðu þeir okkur að tími
skuldbreytinga væri liðinn,“ sagði
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, í samtali
við DV að loknum aðalfundi samtak-
anna sem haldinn var í Vestmanna-
eyjum í gær.
Á aðalfundinum var samþykkt
samhljóða allharðorð ályktun. Þar
segir meðal annars að brýnasta verk-
efnið næstu misserin sé aö draga úr
verðbólgunni og ná jöfnuði í sam-
skiptum við útlönd. Fyrirtækin geti
ekki lifað við verðbólguna og lífs-
kjaraskerðing almennings sé óhjá-
kvæmileg við þessar aðstæður.
Þá segir að samdráttur þjóðartekna
þriðja áriö í röð krefjist þess að sam-
neyslan dragist saman eins og einka-
neysla og fjárfestingar. Ríkisvaldiö
getur ekki afgreitt fjárlög með halla
og ná ekki tökum á sírum fjármál-
um. Og síðan segir orðrétt:
„SF telur skynsamlegast að núgild-
andi kjarasamningar verði fram-
lengdir um að minnsta kosti eitt ár,
án allra launahækkanna. Kaup-
hækkanir nú eru aðeins ávísun á
meiri verðbólgu og lakari lífskjör til
lengri tíma. SF hafna efnahags-
stefnu, sem keyrt hefur fjölda fisk-
vinnslufyrirtækja í uppgjöf og gjald-
þrot. Efnahagsstjómin verður að
miðast við að með almennum að-
gerðum skili vel rekin fyrirtæki góð-
um hagnaði. Sértækar lausnir, svo
sem hlutafjársjóður, hindra að
rekstrarskilyrðin verði viðun-
andi...“
Þá segir ennfremiu-:
„SF átelur harðlega það fyrir-
komulag í gámaútflutningi sem nú
er við lýði, þar sem spillingu er boð-
iö heim og ekki virt sjónarmið ís-
lenskrar fiskvinnslu. Vitað er að
umtalsverur hluti þess fisks er unnin
í fiskvinnslustöðvum erlendis, sem
síðan selja afurðir sínar í beinni sam-
keppni við íslenskar fiskvinnslu-
stöðvar. Fundurinn telur brýnt og
það þjónar heildarhagsmunum ís-
lensks sjávarútvegs best að þessi út-
flutningur sé aðeins að því marki,
sem nægir til að fullnægja eftirspum
á ferskum neyslufiski erlendis.
Stjómun á útflutningi á ferskum
fiski á að vera í höndum hagsmuna-
aðila... segir í ályktun aðalfundar
Samtaka fiskvinnslustöðva.
S.dór
Áframhaldandi beit á eyðimerkursvæöum:
„Gróðurfar er víða
ömurlegt á Reykjanesi‘
- segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri
„Það verður að segjast eins og er
að gróðurfar er víða ömurlegt á
Reykjanesskaganum. Þar sem sveit-
arstjómir og Landgræðslan hafa
hins vegar náð að friða svæði, eins
og vestan við Grindavíkurveginn,
hefur tekist að gjörbreyta gíóðurfar-
inu. Við viljum leggja áherslu á að
auka þá landvinninga eins og kostur
er,“ sagði Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri en á Reykjanesinu er
Landgræðslan nú í landvinninga-
stríði við frístundabændur og
nokkra bændur með fullvirðisrétt.
Vegna samkomulags, sem gert var
að frumkvæði landbúnaðarráöu-
neytisins, verða stór svæði, sem em
mjög illa farin, áfram beitt þegar
girðingaframkvæmdir hefjast á
næsta ári.
- Er Landgræðslan of lin í stríði
sínu?
„Við fómm eins langt og við mögu-
lega getum miðað viö aðstæður. Ég
lít hins vegar svo á að sveitarstjómir
á Suðumesjum eigi næsta leik ef þær
þora. Þær hafa heimild til að banna
lausagöngu búfjár ef þeim sýnist svo.
Landgræðslan gengur eins langt og
lög leyfa okkur. Það er ljóst að þessi
mál vinnast ekki nema með sam-
komulagi. Við fórum ekki í vald-
boðsaðgerðir nema í ítmstu neyð.“
Á næsta ári er fyrirhugað að loka
svæði frá Hafnarfirði niður til
Krýsuvíkur. Verða beitarhólf þar
inni. Er talað að það þurfi að girða
um 50 km sem kosti hátt í 25 milljón-
ir til að geta haft þama kindur á
beit. Hefur formaður Náttúmvemd-
arráðs lýst yfir efasemdum sínum
vegna þess hér í DV. Sagði Sveinn
að miklum vafa væri undirorpið
hvort tækist að fá fiármagn fyrir því
en ráðgert væri að Vegagerð ríkisins
og Skógrækt ríkisins stæðu undir
þeim kostpaði ásamt Landgræðsl-
unni.
„Bændur á Reykjanesinu hafa heil-
mikinn fullvirðisrétt í framleiðslu
sauðfiárafurða en verða ekki stjóm-
völd að fara að átta sig á því hvar
eigi að framleiða það sauðfé sem
markaður er fyrir,“ sagði land-
græðslustjóri.
-SMJ
Fínull í samstarf
með Kínverjum
Fulltrúar Fínullar hf. og kín-
verska fyrirtækisins Zhejiang Ani-
mal By-Products undirrituðu sam-
starfssamning í gær. Tilgangurinn
er að stórauika framleiðslu á fiðu-
fatnaði í báðum löndum. Fyrirtæk-
in munu hafa samstarf i fram-
leiöslu og sölu fatnaðar úr kaninu-
ull um allan heim. Samkvæmt
samningnum mun Fínull veita kín-
verska fyrirtækinu ákveðna tækn-
iaðstoð við uppbyggingu pijóna- og
saumaverksmiðju og kínverska
fyrirtækiö mun kaupa fiðugarn af
Finull. Einnig er gert ráð fyrir mjög
nánu samstarfi fyrirtækjanna í
vöruþróun og í markaðssetningu
og fyllilega er tryggt að ekki verði
um samkeppni að ræða á milli
þeirra. Samstarfið á ekki að hafa
nein áhrif á þaö hlutverk Fínullar
að tryggja íslenskum kanínubænd-
um vaxandi markað fyrir fiðu né
mun það draga úr firamleiðslu á
fiöufatnaði hér á landi.
Þetta er fyrsti samstarfssamning-
ur íslensks og kinversks iðnfyrir-
tækis til langs tíma og möguleikar
eru á slíku samstarfi fyrir öeiri
aðila. -JJ
Kvíga drapst í bílslysi
Ekið var á kvígu í Tungunum í Lögreglan í Ámessýslu tók í gær
gærdag. Kvígan drapst og bíllinn ökumann á 129 kílómetra hraða á
lenti ofan í skuröi. Ekki urðu slys á Eyrarbakkavegi. Hætt er við að öku-
fólki en bíllinn er talsvert skemmd- maðurinn verði að sjá á eftir öku-
UFi skírteininufyrirvikið. -sme
Styttist í að loðnu-
veiðarnar hef jist
Davíð Oddsson borgarstjóri klippti í gærdag á borða og opnaði þar með hina nýju brú yfir Bústaðaveg við Miklatorg.
I fyrstu verður aðeins hægt að aka yfir brúna og einhver bið verður á því að hægt verði að aka undir hana.
DV-mynd GVA
- verið að gera nokkra báta klára
„Ég veit til þess að verið er að gera
nokkra báta klára til loðnuveiða.
Hinn mikli hafis, sem verið hefur
norður af landinu, er nú á undan-
haldi og þá er möguleiki á að menn
fari að finna loðnu,“ sagði Ástráður
Ingvarsson, starfsmaður Loðnu-
nefndar, í samtali við DV.
Ástráður sagðist vita til þess að.
Harpa RE, Börkur NK, Hilmir SU og
Skarðsvík SH væru um það bil að
verða tilbúin til loðnuveiða. Hann
sagðist aftur á móti ekki eiga von á
því að neinn kraftur kæmist í veið-
amar fyrr en í október.
Allmiklar breytingar verða á starf-
semi Loönunefndar í vetur. Engin
vakt verður á kvöldin og ekki heldur
um helgar eins og verið hefur frá
upphafi. Ástæðan er fyrst og fremst
spamaður. Annars sagði Astráöur
að ekki væri jafnmikil þörf á vakt
hjá Loðnunefnd allan sólarhringinn
eftir að loðnuverðið var gefið frjálst.
Áður þurfti starfsmaður nefndarinn-
ar að stýra bátunum til löndunar en
nú er það að verða algilt að bátar séu
í föstum viðskiptum við verksmiðj-
urnar. Þar af leiðir að ekki er þörf á
jafnmiklu starfi hjá loðnunefndar-
mönnum og áður var.
-S.dór
Ársþing Evrópusvæðis WHO:
Hætta á alnæmissmiti við
blóðgjöf horfin í Evrópu
Á nýliönu ársþingi Evrópusvæðis
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar,
sem Guðmundur Bjamason heil-
brigðisráðherra sat, kom fram að
hætta vegna alnæmissmits við blóð-
gjöf er ekki lengur fyrir hendi í Evr-
ópu.
í nýlegri skýrslu, sem birt var á
þinginu, (sem var reyndar frá því
maí), kom fram að 22.235 tilfelli al-
næmissmitaðra höfðu fundist í Evr-
ópu. Er það 12% af öllum skráöum
tilfellum í heiminum sem em 178.000.
Þá kom fram að ný tilfelli meðal kyn-
hverfra aukast nú mjög lítið og var
aukning síðasta árs fyrst og fremst
meðal fíkniefnaneytenda sem
sprauta sig.
Þá kom fram á þinginu aö útrým-
ing mænusóttar í Evrópu gengur
betur en áætlað var þegar evrópsk
heilbrigðismarkmið voru sett árið
1984. I stað þess að útrýma mænu-
sótt fyrir árið 2000 er nú gert ráð
fyrir að útrýma henni fyrir áriö 1995.
-SMJ