Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989. 37 Skákogbridge Stórmótið í Tilburg: Kasparov efstur en Jóhann vinnur og tapar - Karl siglir hraðbyri á íslandsmeistaratitil Jóhann Hjartarson teflir af mik- illi hörku á stórmótinu í Tilburg í Hollandi og annaðhvort vefur hann andstæðingum sínum upp í fáum leikjúm ellegar hlýtur sömu örlög sjálfur. Að loknum sex umferðum hafði hann 3 vinninga og deildi þriðja sæti. Kasparov var einn efst- ur með 5 vinninga og gamli refur- inn Kortsnoj i 2. sæti. í gærkvöldi átti að tefla sjöundu umferð og þá síðustu í fyrri hrinu en áttunda umferð verður tefld á morgun, sunnudag. Þá mætir Jóhann Kortsnoj og hefur nú hvítt en fyrri skák þeirra félaga lyktaði með til- tölulega auðfengnum sigri Kortsnojs. Mótið er geysilega vel skipað, skríður í 16. styrkleikaflokk FIDE. Einna athyglisverðast er að Kasp- arov, heimsmeistarinn, og Ivant- sjúk, líklegur framtíðaráskorandi, eru báðir meðal þátttakenda. Ivantsjúk hefur verið í miklum sig- urham að undanförnu og er skemmst að minnast sigurs hans í Linares í febrúar, þar sem hann varð fyrir ofan sjálfan Anatoly Karpov. Hann hefur áreiðanlega áhuga á því að skjóta Kasparov einnig aftur fyrir sig en er heims- meistarinn er í slíkum ham gæti þaö reynst erfitt. Kasparov tefldi í Tilburg árið 1981 en átti erfitt uppdráttar. Varð í 6. - 8. sæti ásamt Spassky og Anders- son. Hann kenndi þvi um að hann hefði leikið vinningsstöðunum niö- ur - fengið aðeins hálfan vinning úr fjórum vænlegum toflum. En mótið var afskaplega sterkt og ár- angur Kasparovs var því engin hneisa. Nú veit hann að hverju hann gengur. í fyrstu skákum sín- um með hvítu lék hann kóngspeð- inu fram í fyrsta leik, sem hann gerir sjaldan í seinni tíð. Hann vann Hollendinginn Piket, sem beitti drekaafbrigði Sikileyjarvarn- ar, og Sax sá aldrei til sólar í Sche- veningen - afbrigöi sömu byrjunar. En síðan hefur Kasparov aftur snú- ið sér að drottningarpeðinu, bæði gegn Ivantsjúk, en skák þeirra lauk með jafntefli, og síðan gegn Jó- hanni í sjöttu umferð. Þar kom Kasparov með nýjung gegn Vínar- afhrigði drottningarbragðs, fórnaði manni og vann í 25 leikjum. Þetta er sömuleiðis í annað skipt- ið sem Jóhann teflir í Tilburg en hann stóð sig afar vel þar í fyrra, hreppti 3 - 5. sæti, á eftir Karpov og Short. Ekki blés byrlega fyrir honum í fyrstu er hann tapaði fyr- ir Kortsnoj. Hollendinginn unga, Jóhann sigraði Ljubojevic glæsilega. Jeroen Piket, vann Jóhann síðan í 2. umferð, þá auðvelt jafntefli með svörtu gegn Ivantsjúk og í 4. um- 8 ferð geröi Jóhann sér htið fyrir og 7 fór létt með Ljubojevic, eftir aðeins tveggja tíma taflmennsku. Síðan 6 jafntefli gegn Agdestein, sem verð- ur að telja vel af sér vikið gegn 4 Skák Jón L. Arnason norska íslendingabananum. En í sjöttu umferð kom skellurinn gegn heimsmeistaranum. Jóhann þurfti ekki að hafa mikið fyrir sigrinum gegn Ljubojevic í 4. umferð. Þeir endurtóku skák sem Jusupov og Nogueiras tefldu á áskorendamótinu í Montepellier 1985. Jusupov vann þá skák auð- veldlega en Júgóslavinn sókndjarfi ætlaði sér að endurbæta tafl- mennsku Nogueiras. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Ljubomir Ljubojevic Drottningarbragð 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. Bg5 Rbd7 5. cxd5 exd5 6. e3 c6 7. Bd3 Bd6?! 8. Rf3 Rf8 9. Re5! Db6 10. 0-0 Bxe5 11. dxe5 Rg4 12. Da4 Dxb2? 13. Hacl a5 I A #41 I A AAA A A Á & ÉL # m A A W A A A 2 2* Þótt ótrúlegt sé er Ljubojevic með síðasta leik sínum að reyna að end- urbæta taflmennsku svarts í þessu afbrigði. Skákin Jusupov - Nogu- eiras tefldist 13. - Bd714. Dd4!! (hót- ar allskyns riddaraleikjum og máta síðan á d6 eða c7) f6 15. exf6 gxfB 16. Bxf6 Hg8 17. Rb5! Dxb5 (eða 17. - Dxd4 18. Rd6 mát) 18. Bxb5 Re6 19. Db2 cxb5 20. Bh4 og Nogueiras gafst upp. Eftir textaleikinn hefur Ljubojevic e.t.v. aðeins reiknaö með 14. Rxd5 Dxe5 með máthótun á h2 eða 14. Dd4 Db4 í peðsvaldi. En næsti leikur Jóhanns setur strik í reikninginn. 14. Rb5! Vinningsleikur. Ekki gengur 14. - cxb5 15. Hxc8 + ! Hxc8 16. Bxb5+ og vinnur og nú má svara 14. - Dxe5 meö 15. Bf4. Svartur er glatað- ur. 14. - Re6 15. Rd6+ Kf8 16. Dxg4 Dxe5 17. Rxc8 h5 18. Rb6! hxg4 19. Rd7+ Ke8 20. Rxe5 Rxg5 21. Hbl Re6 22. Hxb7 Hh5 23. Rxf7 Rc5 24. Bg6! Og Ljubojevic gafst upp. Karl á sigurbraut Ekkert lát virðist vera á sigur- göngu Karls Þorsteins á Skákþingi Islands sem lýkur á morgun, sunnudag. Er tvær umferðir voru til loka hafði hann örugga forystu og er þetta birtist er hugsanlegt aö hann hafi þegar tryggt sér sæmdar- heitið „Skákmeistari íslands 1989“. Eftir níu umferöir af ellefu hafði Karl aöeins leyft tvö jafntefli og haföi hálfs annars vinnings forskot á næsta mann. Þannig var staðan: 1. Karl Þorsteins 8 v. 2. Jón L. Árnason 6,5 v. 3. -4. Björgvin Jónsson og Þröstur Þórhallsson 5,5 v. 5. Hannes Hlífar Stefánsson 5 v. 6. Tómas Björnsson 4 v. 7. Ágúst Sindri Karlsson 3,5 v. og biðskák 8. -9. Rúnar Sigurpálsson og Þröst- ur Ámason 3,5 v. 10. Guðmundur Gíslason 3 v. 11. Jón G. Viðarsson 2,5 v. og bið- skák 12. Sigurður Daði Sigfússon 2,5 v. Tíundu umferð átti aö tefla í gær- kvöldi en ellefta og síðasta umferð hefst kl. 15 í dag í húsakynnum Útsýnar í Mjódd. Karl hefur tefit leikandi létt á mótinu til þessa og haft tiltölulega lítið fyrir sigrunum. Þó hafði hann heppnina með sér gegn Þresti Þór- hallssyni er hann lenti í miklum erfiðleikum en tókst að klóra í bakkann og vinna síðan skákina er Þröstur lék af sér drottningunni i jafnteflisstöðu. Lítið á hvernig Karl tefldi gegn Hannesi í 8. umferð. Eftir mistök Hannesar hefur Karl stórsókn sem reynist óviðráðanleg. Hvítt: Karl Þorsteins Svart: Hannes Hlífar Stefánsson Nimzoindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 d5 5. cxd5 exd5 6. Bg5 h6 7. Bh4 0-0 8. e3 c6 9. Bd3 He8 10. Rge2 a5 11. h3 Ra6 12. a3 Be7 Hægfara áætlun svarts er e.t.v. í lagi ef hvítur svarar í sömu mynt en Karl notar tækifærið og blæs til sóknar á kóngsvæng. Riddari svarts er utangátta á a6. 13. g4! b5 14. Hgl Bd7? Eftir þennan máttlausa leik verð- ur ekki lengur við neitt ráðið. 15. g5 Rh5 16. Bh7+ KÍ8 8 1 7 iii A ÉL o* A 5 A A A A Á 4 A ÉL 3 A & A A a* A 1 s & a A B C D E F G H 17. Bg6! hxg5 Ef 17. - fxg6 þá 18. Dxg6 og riddar- inn á h5 á sér ekki undankomu auðið, þar eð 18. - hxg5 19. Dxh5 gxh4 strandar á 20. Dh8+ og mát í næsta leik. 18. Bxh5 b4 Ef 18. - gxh4 þá 19. Bxf7! og 19. - Kxf7 20. Dg6+ verður mát. Svartur er ekki öfundsverður af stöðunni en leikurinn í skákinni þjónar þó einungis hagsmunum hvíts. 19. Ra4 bxa3 20. bxa3 g6 21. Bxg6 Bf6 Ekki 21. - fxg6 22. Dxg6 og vinnur. 22. Bh5 gxh4 23. Dh7 Be6 24. Rf4 Dd6 25. Hg8+ og svartur gafst upp vegna af- brigðisins 25. - Ke7 26. Rg6+ Kd7 27. Rb6 + og vinnur. -JLÁ Bikarkeppni Bridgesambands íslands: Urslit ráðast um helgi á Hótel Loftleiðuin Úrshtaleikurinn í bikarkeppni Bridgesambands íslands fer fram um helgina á Hótel Loftleiðum og það eru sveitir Modern Iceland og Braga Haukssonar sem eigast við. Sveit Braga er með höfuðleður tveggja bestu sveita landsins undir beltinu, sveita Flugleiöa og Pólaris, en hún vann þær báðar með litlum mun. Modem Iceland hefir hins veg- ar þurft að hafa minna fyrir hlutun- um. Þá syeit skipa bræðurnir Her- mann og Ólafur Lárussynir, Magnús Ólafsson, Páll Valdimarsson og Jak- ob Kristinsson, en sveit Braga skipa auk hans Sigtryggur Sigurðsson, Ásmundur Pálsson, Guðmundur Pétursson, Ásgeir Ásbjörnsson og Hrólfur Hjaltason. Allt stefnir í spennandi úrslitaleik og fyrirhugað er að sýna hluta leiks- ins í beinni útsendingu á Stöö 2. Sveit Modern Iceland vann Skrap- sveitina nokkuð öragglega í undan- úrslitum, meðan sveit Braga marði sveit Flugleiða með 3 impa mun. Sömu spil voru spiluð í báðum leikj- um. Við skulum skoða eitt þeirra. N|í° ♦9876432 ¥ 3 ♦ K 8 + 754 ♦ Á 10 ¥ G 9 8 2 ♦ Á G 6 5 2 + 10 2 N V A S ♦ 5 ¥ Á K 6 ♦ D 10 9 4 + ÁKG63 ♦ KD G ¥ D 10 7 5 4 ♦ 73 ♦ D 9 8 1 leik Flugleiða og Braga voru spiluð þijú grönd á báðum borðum sem unnust þegar spaðarnir skiptust 7-3. Reyndar unnust fiögur grönd á báð- um boröum því suður lendir í óverj- andi kastþröng í hjarta og laufi. í hinum leiknum milli Modem Ice- land og Skrapsveitarinnar var allt annað upp á teningnum. Þar sátu í opna salnum n-s Páh Valdimarsson og Magnús Ólafsson, en v-a Jacqui McGreal og Hjördís Eyþórsdóttir. Þar gengu sagnir á þessa leið: Norður Austur Suður Vestur pass llauf pass lhjarta! 2 spaðar 4 hjörtu pass pass Ekki verri samningur en þrjú grönd, þótt legan sé engan vegin eins hag- stæð. Páh taldi spihð nokkuð sterkt og því þyrfti að grípa til örþrifaráða. Hann spilaði því út tígulkóng. Varla gat sagnhafi vænst betra útspfis og þess vegna var sorglegt að hún skyldi tapa spilinu. Hún drap útspilið með ás, tók tvo hæstu í trompi og fékk vondu fréttimar. Síðan spilaði hún spaðaás og trompaði spaða. Einfalt er nú að vinna spihð með því að taka tvo hæstu í laufi, trompa lauf, spila tígli á drottningu og meira laufi. Tí- undi slagurinn kemur þá með fram- hjáhlaupi á trompgosann. Með spaðalegunni gengur sú leið líka að spila tígh og gefa þar með aðeins þrjá slagi á tromp. Jacqui fór hins vegar aðra leið og fór einn niður. A hinu borðinu sátu n-s Krisfián Már_og Rúnar, en a-v Hermann og Ólafur. Bræðumir komust fljótt og örugg- lega í slemmuna : Norður Austur Suður Vestur pass llauf lhjarta 2tíglar 3spaöar 4grönd pass Shjörtu pass 5grönd pass 61auf pass 6tíglar pass pass pass Norður sphaöi út hjartaþristi og Ól- afur drap með kóng og svínaði trompinu. Norður drap á kónginn og spilaði meira trompi. Ólafur tók nú tvo hæstu í laufi og trompaði lauf. Þegar drottningin kom var slemman upplögð og reyndar vinnst slemman líka þótt drottningin komi önnur. Ágæt slemma og aukabónus af hinu borðinu þegar geimið tapaðist. Stefán Guðjohnsen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.