Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Page 3
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989.
Fréttir
Rafiönaðarmenn:
Enginn fund-
ur fyrr en á
miðvikudag
í gærmorgun var haldinn stuttur
fundur með rafiðnaðarmönnum hjá
ríkinu og viðsemjendum þeirra hjá
ríkissáttasemjara. Þar urðu menn
sammála um að halda ekki annan
sáttafund fyrr en á miðvikudag í
næstu viku. Á miðnætti daginn eftir,
þann 28. september, hefst verkfall
rafiðnaðarmanna hafi samningar
ekki tékist fyrir þpnn tíma.
Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara eru ágreiningsat-
riðin í þessari deilu þaulrædd milli
deiluaðila.
Eins og áður hefur verið skýrt frá
í DV er um að ræða að rafiðnaðar-
menn í þjónustu ríkisins frusu inni
með samningar sína þegar lög, er
bönnuðu kjarasamninga, voru sett
1988. Þeir hafa því dregist aftur úr
öðrum rafiðnaðarmönnum og vilja
fá leiðréttingu þar á. Ríkið hefur ekki
verið til viðtals um þessa leiðréttingu
ogáþvístrandar. -S.dór
Jón Loftsson
skógræktar-
stjóri
Að tillögu landbúnaðarráðherra
hefur forseti íslands skipað Jón
Loftsson í embætti skógræktarstjóra
frá 1. janúar að telja. Jön er skógar-
vörður á Haliormsstað. Samkvæmt
lögum, sem samþykkt voru á síðasta
þingi, flytjast höfuðstöðvar skóg-
ræktarinnarnúausturáHérað. -hlh
Norðurlandaráð:
Ráðstefna um
mengun hafsins
Norðurlandaráð gengst fyrir al-
þjóðlegri ráðstefnu um mengun hafs-
ins sem haldin verður í Kaupmanna-
höfn dagana 16.-18. október.
Tilgangur ráðstefnunnar er meðal
annars að gera átak í baráttunni við
mengun hafsins og vekja athygli á
þeirri mengun en hún ógnar hfl
manna æ meira. Verður leitast við
að fá stjórnmálamenn til að gera
meiri og strangari kröfur varðandi
verndun hafsins. Þá verður stofnað-
ur sjóður sem auka á möguleikana á
því að ákvarðanir varðandi verndun
hafsins nái fram að ganga og jafna
kostnað við umhverfisvemd milli
þátttökulandanna.
Tuttugu stjómmálamenn frá Evr-
ópulöndunum munu taka þátt í ráð-
stefnunni ásamt tíu fulltrúum frá
alþjóðlegum samtökum. -hlh
Landgræðsluslj óri:
Lítál uppskera
á hálendinu
í sumar
- fé vænt af fjalli
„Það má segja að lítil uppskera
hafi verið á hálendinu í sumar en
gróður hafi staðið lengi. Fé kemur
væntanlega heldur vænt af fjalli en
oft er það þannig að þegar grær seint
eins og núna er fé frekar vænt,“ sagði
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri en hann hefur undanfarna
daga dvalist á heiðunum við Mývatn.
Var hann því spurður um gróður-
ástandið.
Sveinn sagði að bændur hefðu rek-
ið fé seinna á fjall nú en oft áður og
þá fór færa upp á afrétt.
- En hvað segir hann um þau svæði
sem eru verst úthtandi - hefur
ástand þeirra breyst?
„Ef ég nota slæmt orð má segja að
þetta hafi slampast og ekkert nýtt
hefur komið á gjörgæslulistann. Sem
betur fer því það er nóg þar fyrir.“
-SMJ
FJÓFHJÓLADRIFSVEISLA
ARGERÐ
1990
Laugardag og sunnudag kl. 14-17
HVERGI MEIRA OG BETRA ÚRVAL FJÓRHJÓLADRIFINNA
TORFÆRUTÆKJA EN FRÁ
Níssan Patrol GR, 2,8, turbo, dísíí * Nissan Patroí, hígh roof, 3,3, ttirbo, dísíl.
Nissan Pathfinder með original aukahlutum.
Nissan Pathfmder, 3,0, V6, bensín.
NíssanTerrano, 2,4, bensin, með beinni ínnspýtíngu.
Nissan Terrano, 2,7, turbo, disil.
Nissan King Cab með original aukahlutum.
Níssan King Cab
Nissan Double Cab
Lánakjör-. t.d. 75% lánað tíl þríggja ára á venjulegum lánakjörum banka
réttur bíll á
réttum stað
Ingvar
HeBff ason M
Sævarhöfða 2
sími 91-674000