Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989.
Utlönd
Friðaráætlun samþykkt
Michel Aoun, yfirmaöur herafla
kristiima í Líbanon, kvaðst í gær
hafa samþykkt áætlun Araba-
bandalagsins um aö binda enda á
borgarastríðið þar. Kvaðs Aoun
hafa samþykkt friðaráætlunina
þar sem honum hefði verið veitt
trygging fyrir því að erlendir herir
færu frá Líbanon, þar á meðal 33
þúsund sýrlenskir hermenn.
í friðaráætlunni er ekki getið um
brottíor sýrlensku hermannanna
en Aoun sagði að sendimaður
Arababandalagsins hefði fullyrt að
þörfin á brottflutningi erlendra
hermanna væij viðurkennd. í Lí-
banon eru auk sýrlenskra her-
manna ísraelskir hermenn í suður-
hluta landsins á hinu svokallaða
öryggissvæði þar sem ísraelar hafa
ráðið ríkjum síðan 1985 til að koma
í veg fyrir skæruliðaárásir.
Þegar Aoun hitti fréttamenn í
gær var það í fyrsta sinn í margar
vikur sem hann yfirgaf forsetahöll
sína í austurhluta Beirút þar sem
hann hefur sofið og starfað í neðan-
jarðarbyrgi.
Að sögn stjórnarerindreka var
Aoun undir miklum alþjóðlegum
þrýstingi eftir að honum hafði mis-
tekist að afla stuðnings við herferð
sína gegn sýrlenskum hermönnum
í Líbanon.
Aðeins örfáum mínútum eftir til-
kynningu sendimanns Araba-
bandalagsins skutu múhameðstrú-
armenn í vesturhluta Beirút úr
vélbyssum sínum í loft upp til að
fagna því að sex mánaða blóðbaði,
hinu versta í fjórtán ára borgara-
stríðinu, væri lokið.
Mikill hluti Beirút hefur eyði-
lagst og yfir helmingur borgarbúa,
sem voru ein og hálf milljón, hefur
flúið síðan Aoun herforingi lýsti
yfir frelsisstríðinu.
Yfir átta hundruð og þrjátíu
manns hafa látið lífið síðan í mars
er herferð Aouns fyrir brottfór sýr-
lensku hermannanna hófst og þrjú
þúsund og fjögur hundruð særst.
Sýrlensk yfirvöld hafa sagt að
þau kalli ekki hermenn sína heim
fyrr en Líbanon sé sameinað og
friður ríki. Heimildarmenn sögðu
að Sýrlendingar hefðu þó sam-
þykkt að flytja hermenn sína til
Bekaadalsins í austurhluta Líban-
on.
Sýrlendingar og líbanskir þjóð-
varðliðar, sem styðja þá, sam-
þykktu friöaráætlunina stuttu eftir
■ að hún var kynnt fyrir viku. í henni
er meðal annars hvatt til þess að
hafnbanni verði aflétt og að flug-
völlurinn i Beirút verði opnaður.
Tvær stjórnir hafa ríkt í Líbanon
síöan 22. september í fyrra þegar
Amin Gemayel, þá fráfarandi for-
seti, útnefndi Aoun sem leiðtoga
nýrrar stjórnar Líbanon. Sýrlend-
ingar styðja stjórn múhameðstrú-
armanna undir forystu Selim Hoss.
Reuter
Björgunarmenn leita í rústum byggingar sem eyðilagðist í sprengjutilræði í Deal i Englandi í gær.
Simamynd Reuter
Blóðbað í Bretlandi
Lögregluyfiryöld í Evrópu höfðu
lengi óttast að írski lýðveldisherinn,
IRA, gerði alvöru úr hótunum sínum
um að gera harða árás gegn breska
hemum í tilefni þess að tuttugu ár
eru liðin frá því að breskir hermenn
voru sendir til Norður-írlands. Blóð-
baðið varð í gærmorgun.
Að minnsta kosti ellefu manns létu
lífið og tuttugu og tveir særðust þeg-
ar sprengja sprakk í herstöð í Deal í
suðausturhluta Englands þar sem
var tónlistarskóli fyrir meðlimi í
hljómsveit breska flotans. IRA
kvaöst bera ábyrgð á sprengjutilræð-
inu sem var blóðugasta árás samtak-
arrna í Bretlandi á þessum áratug.
íbúar í nágrenni skólans sögöu að
skyndilega hefði kröftug sprenging
yfirgnæft hljóðfæraleikinn. Hefði
sprengingin minnt þá á loftárásimar
í London í seinni heimsstyrjöldinni.
Svartur reykur steig upp frá einni
byggingunni sem kviknað haíði í og
síðan hrundi. Þök rifnuðu af nálæg-
um íbúðarhúsum við sprenginguna.
Meðlimir IRA, sem heitið höfðu
„blóðugu sumri“, eru nú betur vopn-
aðir en nokkm sinni. Var fjórum
skipsfórmum af vopnum smyglað til
þeirra til írlands 1985 og 1986. Er tal-
ið að þeir hafi birgöir af heimatil-
búnu semtex-sprengiefni til margra
ára.
Síðasta sprengjuherferð þeirra
hófst í júlí síöastliðnum er þeir
sprengdu breskan hermann í Hano-
ver í V-Þýskalandi í augsýn konu
hans og bama. Og fyrr í þessum
HELGARFERÐIR
ÁD1 istei É |1%1 4 dagar. Verð frá kr. 29.400 1111 Miðaó viö tvíbýli
Ha mb< )X[ f 4 dagar. Verð 30.950 m.v. tvíbýli.
Fcrtkkr
llnfnurstncU 2 - Sími 02-30-20
£
Peningamarkaður
mánuði myrtu byssumenn IRA v-
þýska eiginkonu bresks hemianns.
Sögðu hryðjuverkamennirnir að
þeim hefðu orðið á mistök, fórnar-
lambið hefði átt að vera annað.
Taliö er að tveir hópar IRA-manna
séu starfandi í Bretlandi. Segja þeir
að þar sé eitt sprengjutilræði meira
virði en hundrað heima á írlandi.
Reuter
Fórnarlömbum
Hugos fjölgar
Að minnsta kosti þrír biðu bana í
Suður-Karólínu í gær er fellibylur-
inn Hugo æddi þar yfir með aílt að
222 kílómetra hraða á klukkustund.
Miðborg hinnar sögufrægu Charles-
ton leit út eins og stríðshijáð svæði
og á einni aðalgötunni þar mátti sjá
skútu sem losnað haföi frá festum
við ströndina.
„Það er eins og maður sé kominn
á aðra plánetu,“ sagði lögreglumaöur
í Charleston er hann gekk út er Hugo
var á bak og burt. „Eða eins og mað-
ur hafi lifað af kjamorkusprengju."
Að sögn embættismanna eyðilögð-
ust tuttugu og tvær byggingar, þar á
meðal blokk og sjúkrahús í úthverfi
borgarinnar sem notað var sem
bækistöð fyrir sjúklinga sem njóta
heimahjúkrunar. Að sögn björgun-
arstarfsmanns héngu sjúkrarúm út
um glugga hússins. í gær var leitað
í rústum íbúðarhússins til að kanna
hvort einhveijir hefðu grafist þar
undir.
Er Hugo hafði ætt yfir Charleston
hægði hann á sér og kraftur hans
minnkaöi. Búist var við að hann
gæti gert usla í austurhluta Kanada
en færi fram hjá Washington, New
York og Boston í Bandaríkjunum.
Reuter
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækurób. Sparireikningar 6-9 Úb.Sp
3ja mán. uppsögn 6,5-11 Úb
6mán. uppsögn 9-12 Vb
12mán. uppsögn 7-11 Ob
18mán. uppsögn 23 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-3 Sb
Sértékkareikningar Innlán verðtryggö 3-9 Ob.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb
6mán. uppsögn Innlán meo sérkjörum 2,25-3,5 13-16 Ib Bb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7,5-8 Ab.Sb
Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab
Vestur-þýsk mörk 5,25-6 Sb.Ab
Danskarkrónur 8-8,5 Vb.Sb,- Ab
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennirvíxlar(forv.) 24-26 Úb.Ab
Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 27-29 Sb.Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 28-32 Lb
. Skuldabréf Utlántilframleiðslu 7-8,25 Lb
Isl. krónur 25-30 Ob
SDR 9,75-10,25 Lb
Bandaríkjadalir 10,5-11 Allir
nema Ob
Sterlingspund 15,5-15,75 Allir
nema
Ob
Vestur-þýsk mörk Húsnæðislán 8,25-8,5 3,5 Ob
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 40,8
MEÐALVEXTIR
óverötr. sept 89 Verótr. sept. 89 30.9 7,4
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala sept. 2584 stig
Byggingavísitala sept. 471 stig
Byggingavisitala sept. 147,3 stig
H úsaleiguvísitala 5%hækkaöi 1-júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4.181
Einingabréf 2 2,307
Einingabréf 3 2,742
Skammtímabréf 1,435
Lifeyrisbréf 2.102
Gengisbréf 1,862
Kjarabréf 4,167
Markbréf 2,212
Tekjubréf 1,803
Skyndibréf 1,258
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,999
Sjóðsbréf 2 1,565
Sjóðsbréf 3 1,409
Sjóðsbréf 4 1,182
Vaxtasjóösbréf HLUTABRÉF 1,4140
Söluverö aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 302 kr.
Eimskip 388 kr.
Flugleiöir 172 kr.
Hampiöjan 167 kr.
Hlutabréfasjóður 132 kr.
lönaöarbankinn 166 kr.
Skagstrendingur hf. 212 kr.
Otvegsbankinn hf. 142 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og
skiptaskuldabréfum, útgefnum af j;
aðila, er miðað við sérstakt kaupgi
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýöubanl
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðarb
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvi
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, '
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóöirni
Nánari upplýsingar um peningamar
Inn birtast i DV á fimmtudögum.