Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989.
7
pv_______________________________Fréttir
Búhöldum finnst golfvöllurinn nógu stór:
„Þeir geta
bara spilað
fleiri hringi“
ÞórhaHur Ásmnndsson, DV, Sauðárkróki:
Jarðeigna- og búfjárnefnd Sauðár-
króks hefur mótmælt því eindregið
að land það sem golfklúbburinn hef-
ur sótt um til stækkunar á golfvellin-
um verði látið af hendi. Búhöldum á
Nöfunum óar við útþenslustefnu
kylfmga á Króknum.
„Við höfum ekkert á móti því að
fólk eigi sér áhugamál, en við viljum
gjaman fá að vera í friði með okkar.
Við erum ekki búin að gleyma því
raski sem við urðum fyrir með til-
komu golfvallarins á sínum tima.
Mér fmnst að golfmenn geti alveg
látið sér þetta duga. Þeir geta bara
spilað íleiri hringi á vellinum," sagði
valkyijan Þorbjörg Ágústsdóttir, for-
maður Félags sauðfjáreigenda á
Króknum.
Nú er verið að helluleggja Strandgötuna í Hafnarfiröi og er búlst við að
umferð verði hleypt á hana undir mánaðamótin. DV-mynd BG
Strandgafan hellulögð
Miklar framkvæmdir standa nú
yfir við Strandgötu í Hafnarfirði. Er
verið að skipta um allar lagnir í göt-
unni og helluleggja hana. Einnig er
verið að koma fyrir gróöri, bæði ein-
stökum tijám og gróðrarkerum við
hana.
Að sögn Kristjáns Knútssonar, for-
stöðumanns framkvæmdadeildar
Hafnarfjarðarbæjar, er ekki fyrir-
hugað að gera Strandgötuna að
göngugötu heldur stendur til að
hægja á umferðinni um hana. Það
er annar áfangi verksins sem unnið
er við núna. Nær hann frá Linnetstíg
suður fyrir Hafnarborg. Áætlaður
kostnaður við hann er um 30 milljón-
ir króna. Er búist við að vinnu við
hann ljúki um næstu mánaðamót og
þá verður umferð leyfð aftur um göt-
una. í fyrra var lokið að fullu við
fyrsta áfanga sem náði frá Reykja-
víkurvegi að Linnetstíg. Ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvenær
endanlega verður lokið við verkið.
-JSS
Bæjarstjórn Sauðárkróks:
Vill að þingmannafrum-
varpið verði endurflutt
ÞórhaBur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Anna Kristín Gunnarsdóttir hefur
dregiö til baka tillögu sína í lögsögu-
málinu sem hún lagði fram 13. júní
sl. en því var vísað aftur til bæjar-
ráðs. Tillagan var á þá leið að í staö
þingmannafrumvarpsins, sem lagt
var fram á Alþingi í vor, yrði enn
um sinn leitað samninga milli Sauð-
árkróks og Skaröshrepps - nú með
milligöngu þriðja aðila, væntanlega
eins af þingmönnum kjördæmisins.
Á bæjarstjómarfundi í síðustu viku
var þvi fagnað að full samstaða væri
innan bæjarstjórnarinnar í lögsögu-
málinu.
Tillaga Önnu var ekki tekin fyrir í
bæjarráði fyrr en 30. ágúst sl. Hún
segist reyndar enn vera sömu skoð-
unar og í vor og að nýta hefði átt
sumarið til samningaumleitana,
samningaleiðin hafi ekki verið full-
reynd.
Bæjarráð lagði fram bókun þar
sem harmað er að hreppsnefnd
Skarðshrepps skyldi slíta viðræðum
um lögsögumál á árinu 1988, sem
leiddi til þess að þingmenn lögðu
fram á alþingi frumvarp um stækk-
un lögsögu Sauðárkróks (Sjávarborg
og Áshildarholt, innsk. blm.), að
beiðni bæjarstjórnar Sauðárkróks.
í bókuninni segir ennfremur að um
leið og bæjarráð leggi áherslu á að
umrætt fmmvarp verði endurflutt í
upphafi næsta þings vilji ráðið lýsa
yfir því að það hafi ætíð verið og sé
enn tilbúið til viðræðna við fulltrúa
Skarðshrepps um samskipti sveitar-
félaganna.
Þrír teknir á Akureyri
Lögreglan á Akureyri tók í fyrra- að brjóta lög um hraðakstur innan-
dag þijá ökumenn fyrir of hraðan bæjar. Sá þeirra sem hraðast ók
akstur. Allir voru þeir teknir fyrir mældist á 85 kílómetra hraða. -sme
wmm' Brottför: föstud; Heimkoma: mánu Verö frá kr. 30.78( imiiiaKn aga eða laugardaga idaga eða þriðjudaga \ Miöaö við gistingu í | tvíbýli í Lúxemborg
Helgarferð til Lúxemborgar og Trier Vai*A fro br ^ m Mióað við gistingu 1 tvibý,i T Cl U 11 d I\1 • HU í Trier. Innif. akstur milli Lúx og Trier
Helgarferð til Lúxer - flug - bíll og íbúð/hús Verð frá kr. 30.690 m.v. 2 í bíl og íbúð MK Veró frá kr. 29.690 Sg/} m.v. 4 í bíl og húsi. nborgar og Hostenberg
1 Fciékr æ llafnarstrxtí 2 - Sími 62-30-20/ "
Slökkvum
sparifjárbálið
Opinn fundur um skattlagningu vaxtatekna almennings
Fundurinn er haldinn sunnudaginn 24. september 1989 í Súlnasal Hótel Sögu kl. 14.00.
DAGSKRÁ
Kl. 14.00 Setning fundarins
Othar Örn Petersen hr!., varaformaður
Samtaka sparifjáreigenda.
Kl. 14.15 Þrjú stutt framsöguerindi
Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi
Guðríður Ólafsdóttir, Félagi eldri borgara
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra
Kl. 14.40 Hver er stefna stærstu stjórnmálaflokkanna
varðandi skattlagningu vaxtatekna almennings?
HringBörðsumræður og spurningar úr sal undir
stjórn Ingva Hrafns Jónssonar.
Þátttakendur:
Alþýðubandalag: Ólafur Ragnar Grímsson
Alþýðuflokkur: Jón Sæmundur Sigurjónsson
Framsóknarflokkur: Steingrímur Hermannsson
Kvennalisti: Þórhildur Þorleifsdóttir
Sjálfstæðisflokkur: Þorsteinn Pálsson
Kl. 16.00 Almennar umræður (eins og tími leyfir)
Fundarstjóri: Kristján Gunnarsson, fyrrverandi
fræðslustjóri í Reykjavík.
Sparifjáreigendur og aðrir áhugamenn um sparnað eru hvattir til að mæta
og kynna sér hvað er raunverulega að gerast í skattamálunum o.fl.
Samtök sparifjáreigenda