Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Qupperneq 19
.esei flaHMa'naíí .& EVDAGffAOUAi . 8,
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989. 19
Sviðsljós
Bakaradreng-
urinn fer í
mál við Cher
Það ætlar ekki að reynast auðvelt
fyrir óskarsverðlaunahafann og
söngkonuna Cher að losna við fyrr-
um elskhuga sinn, bakaradrenginn
Rob Camilletti. Hafi Cher haldið að
það væri nóg fyrir sig að benda á
dymar og biðja hann um að taka
hafurtask sitt og hypja sig þá hefur
hún stórlega misreiknað sig. Rob fer
núna fram á um 36 milljónir í skaða-
bætur.
Þegar Cher og Rob kynntust fyrst
vann hann sem bakari. Eftir að hafa
lifað kóngalífi í tvö ár er nú svo kom-
ið fyrir honum að hann vinnur sem
barþjónn á næturklúbbi á Manhatt-
an í New York til að geta borgað leig-
una.
Að sögn manna mun Rob hafa litið
svo á þau Cher hafi búið saman sem
hjón og það hafi alls ekki verið létt-
asta verk í heimi að vera félagi henn-
ar í sambúð. Hafi hann þurft að þola
niðurlægingu á almannfæri. Þó að
hann hafi t.d. aðeins unnið í bakaríi
mjög skamman tíma hefur hann
aldrei verið kallaður annað en bak-
aradrengurinn.
Cher er að sjálfsögðu yfir sig reið
yfir ósvífninni í bakarastráknum.
Hún heldur því fram að hún hafi
kynnt Rob fyrir rétta fólkinu, hjálpað
honum til að fá hlutverk í kvikmynd
og leyft honum að koma fram í
myndböndum með sér. Án henpar
hefði hann aldrei komist svona langt.
Rob aftur á móti stendur á því
fastar en fótunum að hann eigi rétt
á „smá“sárabótum fyrir sambúðar-
slitin. Hann hafi vingast við 12 ára
gamlan son leikkonunnar og veitt
henni stuðning á mikilvægum stund-
um.
Þó nokkuð sé síðan þau skötuhjú
héldu hvort í sína hefur Cher ekki
enn tekist að komast alveg yfir þetta.
Hún mun nefnilega vera mjög trygg
þeim sem henni eru kærir en væntir
trygglyndis af þeirra hálfu einnig.
Cher mun ekki enn vera komin yfir sambúðarslit sin og bakaradrengsins.
Rob Camilletti og Cher meðan allt lék i lyndi.
íþróttapistill
Pétur Pétursson sést hér skora fyrra mark sitt gegn Tyrkjum.
Nú verður
stefnan tekin
fram á við
íslenska landsliðið í knattspymu
lauk keppni í undankeppni heims-
meistaramótsins með glæsibrag á
miðvikudagskvöldið. íslendingar
sigruðu Tyrki og gerðu um leið
draum þeirra um sæti í úrslita-
keppninni á Ítalíu næsta sumar
nánast að engu. íslendingar höfðu
fyrir leikinn ekki lengur möguleika
í riðlinum en margt kom fram í
leik þeirra sem yljaði mörgum
landanum um hjartaræturnar.
Stillt var upp breyttu liði frá und-
anfórnum leikjum í keppninni og
var ekki annað að sjá en breytingin
hefði komið vel út. Þetta var fyrsti
sigur íslenska liðsins í riðlakeppn-
inni.
Pétur á heima
í landsliðinu
Baráttan, sem er okkur íslend-
ingum í blóð borin, var allsráðandi
í leiknum. Pétur Pétursson sannaði
rétt eina ferðina að hann á heima
í landsliðinu. Sigi Held, sem stjórn-
aði öllum leikjum liðsins í for-
keppninni, að undanskildum leikn-
um á miðvikudagskvöldið var, sá
ástæðu til að halda þessum marka-
hrók fyrir utan liðið. Nær undan-
tekningarlaust hefur Pétur sýnt
góða leiki í þau skipti sem hann
hefur kiæðst landsliðspeysunni.
Sigi Held sá ekki ásftæðu til að nota
krafta Péturs og er það ámælis-
vert. Við getum aldrei svarað þeirri
spumingu hvernig landsliðinu
hefði vegnað ef Pétur Pétursson
hefði leikið með liðinu í ailri keppn-
inni. Pétur hefur leikið vel með fé-
lagi sínu, KR, í allt sumar en Sigi
Held var aldrei á landinu og fylgd-
ist aldrei með Pétri, sem og öðrum
leikmönnum í 1. deildinni. Eftir
leikinn gegn Tyrkjum lét einn
landsliðsmanna þau orð falla að ef
Pétur hefði leikið með landsliðinu
í öllum leikjum keppninnar væri
íslenska liðið ef til vill á leiðinni í
úrshtakeppnina á Ítalíu.
Átti Held að stýra
liðinu gegn
A-Þýskalandi?
Sú spuming hlýtur að koma upp
í hugann hvort ekki hefði verið
rétt að láta Held hætta strax með
liðið eftir að hann réð sig sem þjálf-
ara hjá tyrkneska félaginu Galatas-
aray. Ég hygg að það heföi verið
hið eina rétta í stöðunni. Held var
kominn með hugann við tyrkneska
félagið og Guðni Kjartansson hefði
auðveldlega stýrt liðinu síðasta
spölinn í keppninni.
Hefðu ekki allir
leikið sama leikinn?
Ef litið er á árangur Sigi Held
með landsliðið er hann ekki svo
slæmur. Hins vegar vaknar sú
spurning hvort flestir þjálfarar
hefðu ekki náð svipuðum árangri.
Ekki er hægt að segja að Held hafi
svitnað í starfi sínu hér á landi.
Held kom aðeins nokkrum dögum
fyrir landsleikina og lagði grunn-
inn að leikaðferðinni - hefðu ekki
allir í hans spomm getað leikið
sama leikinn? Það sem mönnum
sárnar helst í starfi Sigi Held hér á
landi er hvað hann gaf íslandsmót-
inu lítin gaum. Margir leikmenn á
nýafstöðnu íslandsmóti bönkuðu
hressilega á landsliðsdyrnar en
landsliðseinvaldurinn var hvergi
sjáaniegur enda var kappinn stadd-
ur í Vestur-Þýskalandi að leika
tennis.
Sigi Held á undir högg að sækja
í Tyrklandi um þessar mundir. Lið
hans, Galatasaray, hefur ekki unn-
ið leik til þessa og heyrast gagnrýn-
israddir úr öllum áttum. Tyrkne-
skir íþróttafréttamenn, sem voru
hér á dögunum í tengslum við
landsleikinn, sögðu að ef gengi liðs-
ins breyttist ekki á allra næstu vik-
um væru dagar Sigi Held taldir hjá
félaginu.
Það verður því fróðlegt að fylgj-
ast með tyrkneska félaginu á næstu
vikum.
Við eigum
aó leggja
allt í sölurnar
íslenskri knattspyrnu hefur
fleygt fram á síðustu árum.
Frammistaða landsliðsins er glöggt
dæmi því til staðfestingar. Næsta
verkefni landsliðsins verður Evr-
ópukeppnin en hún fer af stað
næsta haust. Við eigum að leggja
allt í sölurnar svo árangur þar
verði enn betri en í heimsmeistara-
keppninni. Ef vel verður að málum
staðið er ekki að efa að góður ár-
angur næst. Nú stendur knatt-
spyrnuforystan frammi fyrir því
að ráða landsliðsþjálfara og nú þeg-
ar hafa umsóknir borist áður en
staðan er auglýst. Það sýnir að
þjálfarar líta íslenska landsliðs-
þjálfarastarfið hýru auga enda er
starfið mjög áhugavert fyrir áhuga-
saman þjálfara!
Kostar sitt að
halda úti
góðu landsliði
Knattspyrnan nýtur gífurlegra
vinsælda hér á landi, sem og ann-
ars staðar, almenningi fmnst gam-
an að eiga gott landslið og það get-
um við svo sannarlega enda efni-
viður nægur í ekki stærra landi en
því sem við búum í. Auðvitað kost-
ar mikla peninga að halda úti góðu
landsliði en eitt er víst að þeir pen-
ingar myndu skila sér til baka.
Ekki myndu áhorfendur láta á sér
standa og fyrirtæki sem og aðrir
kæmu fram í dagsljósið. Ekki má
heldur gleyma þeirri landkynn-
ingu sem fylgdi í kjölfarið.
Jón Kristján Sigurðsson