Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989.
Fréttir uv
Hafiiarverkamenn við Sundahöfn lögðu niður vinnu til að funda í morgun:
Bara tímaspursmál
hvenær sýður upp úr
- sagði Hannes Jónsson, aðstoðartrúnaðarmaður Dagsbrúnar við höfnina
Hafnarverkamenn við Sundahöfn
lögðu niður vinnu í morgun klukkan
8 og héldu með sér fund til að ræða
innri mál hafnarverkamanna. Sig-
urður Rúnar Jónsson, aðaltrúnaðar-
maður Dagsbrúnar við Sundahöfn,
hélt ræðu og rakti þau mál sem vaida
óánægju hafnarverkamanna.
DV ræddi við Hannes Jónsson að-
stoðartrúnaðarmann og sagöi hann
að óánægja hefði verið að grafa um
sig meðal hafnarverkamanna og nú
væri aðeins tímaspursmál hvenær
sýði upp úr. Hannes sagði að verið
væri að fækka starfsmönnum við
höfnina með þeim afleiðingum að
álagið á hina sem eftir væru stóry-
kist.
„Þeim sem orðnir eru 67 ára er
sagt upp með þriggja mánaða fyrir-
vara og nú er verið að bjóða þeim sem
orðnir eru 60 ára að hætta. Við unum
þessu ekki. Þá er ýmis verktakastarf-
semi rekin hér á svæðinu þar sem
verktakar ganga inn í störf okkar
hafnarverkamanna. Verkstjórar
vinna á tækjunum vegna mannfæðar
og loks erum við orðnir langþreyttir
á lágum launum. Það er staðreynd
að hafnarverkamenn hafa dregist
stórlega aftur úr öðru verkafólki í
launum," sagði Hannes.
Samkvæmt áreiðanlegum heimiid-
um DV býr meira en þetta að baki
óánægju hafnarverkamanna. Þeir
eru óánægðir með hvað þeirra manni
í stjórn Dagsbrúnar, Sigurði Rúnari,
er haldið frá öllum trúnaðarstörfum
á vegum félagsins. Þeim finnst sem
þeir séu settir hjá innan Dagsbrúnar
en allt framundir þetta hafa hafnar-
verkamenn verið sterkasti kjaminn
í félaginu. Einn stjómarmanna Dags-
brúnar, sem DV ræddi við, viður-
kenndi að mikil óánægja kraumaði
undir hjá hafnarverkamönnum
vegna þess að þeim þætti sem þeir
væm nú settir hjá innan félagsins.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, er í veikindafríi
en Halldór Björnsson, varaformaöur
félagsins, er erlendis þannig að ekki
var hægt að fá umsögn þeirra um þá
óánægju sem kraumar undir hjá
hafnarverkamönnum í Sundahöfn.
-S.dór
Fá ekki að
birta spá um
kaupmátt at-
vinnutekna
Ráðamenn hafa hindrað Þjóð-
hagsstofnun í að birta .spá um
kaupmátt atvinnutekna fyrir
þetta og næsta ár. Þetta kom í ljós
eftir margar tilraunir DV til að
fá Þjóðhagsstofnun til að koma
með þessa spá.
Þess i stað endaði síðasta þjóð-
hagsspá snubbótt með auðum h'n-
um.
Ráðamenn munu ekki vilja láta
koma i ljós hvaöa áhrif fyrir-
hugaðir skattar em líklegir til aö
hafa á kaupmátt atvinnutekna.
Hins vegar er birt spá um kaup-
mátt ráðstöfunartekna þar sem
fram kemur að áætlað er að
kaupmáttur þeirra minnki um 8,2
prósent í ár og 4,9 prósent á næsta
ári.
En almenningur má sem sé
ekki af spánni ráða hvernig lík-
legt er að fara muni um atvinnu-
tekjumar. -HH
íslenskir dagar eru nú i BYKÓ og ýmislegt á seyði af því tilefni, til dæmis
kynningar og uppákomur. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra heimsótti timb-
ursölu BYKÓ í Kópavogi i gær. Þar sagaði hann planka af miklum myndar-
skap. Að þvi loknu lét hann þau orð falla að það væri ábyrgðarhlutur að
láta sög í hendur ráðherra. „Þeir sleppa nefnilega ekki allir með „fulde
fem“,“ sagði ráðherrann og veifaði þumalfingri, vísifingri, löngutöng, baug-
fingri og - litla f ingri framan i viðstadda. DV-mynd GVA
Steingrímur J. Sigfússon:
Flugráðsmenn eiga
sjálfir að ákveða
hvort þeir víkja
„Ég vil taka fram að Leifur Magn-
ússon er virtur maöur með þekkingu
og reynslu á sínu sviði og reikna með
að forveri minn hafi valið hann á
þeim forsendum. En það ber að
treysta mönnum til að ák.veða hvort
þeir eigi aö víkja eða ekki ef um hags-
muni eins aðila er að ræða. Þessi
vandkvæði koma oft upp í fámennu
þjóðfélagi og við þekkjum þetta víða
í okkar stjórnkerfi," sagöi Steingrím-
ur J. Sigfússon samgönguráðherra í
samtali við DV í morgun um að í flug-
ráöi, sem gefur umsögn um veitingu
flugleyfa í innanlandsflugi, situr
framkvæmdastóri flugrekstrarsviðs
Flugleiöa og tekur þar m.a. afstöðu
til yfirlýstrar stefnu Flugleiða í flug-
málum innanlands.
„Flugráð væri afstööulaust ef þaö
væri mannað aðilum sem ekki tengj-
ast flugi á beinan hátt.
- En nú er flugrekstur ekki beinlínis
sérgrein Páls Péturssonar og ann-
arra í ráðinu.
„Ég get skilið að menn velti vöng-
um yfir þessu. En menn verða aö
gæta sín sjálfir og ég kannast ekki
yið annað en að menn hafi vandað
sín vinnubfögð í flugráði,“ sagði
Steingrímur.
-ÓTT
Jón Baldvin Hannibalsson:
Samningaviðræðum EFTA
og EB Ijúki á næsta ári
„Við stefnum að því að ljúka samn-
ingaviðræðunum á næsta ári. Síðan
munum við þurfa tvö ár til að gera
atriði samninganna að veruleika og
fá þá formlega samþykkta í þjóð-
þingunum,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra á
blaöamannafundi í Brussel í gær.
Hann hafði þá átt viðræður við Frans
Andriessen, varaforseta fram-
kvæmdastjómar Evrópubandalags-
ins, í kjölfar ráöherrafundar EFTA á
fostudaginn.
í EFTA og EB er vilji fyrir því að
hefja viðræður um samstarfssamn-
inga bandalaganna í mars á næsta
ári. Er tilgangurinn að koma á mun
umfangsmeira og formlegra sam-
starfi milli bandalagsríkjanna sem
síðan myndi leiða til evrópsks efna-
hagssvæðis, EES. Vonast er til að
evrópskt efnahagssvæði verði að
veruleika um leið og innri markaöur
Evrópubandalagsins, 1. janúar 1993.
Næstu skref í undirbúningi þess-
ara viðræðna er ráðherrafundur
EFTA-ríkjanna 12. desember og sam-
eiginlegur ráðherrafundur EFTA- og
EB- ríkjanna 19. desember. Á ráð-
herrafundi EB, 8. og 9. desember,
veröa tengshn við EFTA eitt af um-
ræðuefnunum.
Þá sagðist Jón Baldvin eiga von á
því að heimsókn Mitterrands Frakk-
landsforseta til íslands, 7. nóvember,
hefði mikla þýðingu varöandi vænt-
anlegar viðræður.
--hlh
„Viljum betri þjón-
ustu og verð((
- Eyjamenn og Húsvlkingar vilja samkeppni í innanlandsflugi
I samhljóða ályktun bæjarstjómar
Húsavíkur segir að þeim tilmælum
sé beint til samgönguráðherra að
Húsvíkingum verði séð fyrir tveimur
flugferðum á dag - sérstakt flugfélag
er þó ekki tilgreint. Meirihluti bæjar-
stjómar Vestmannaeyja samþykkti
hins vegar að að mæla með veitingu
sérleyfa fyrir þrjá aðila, Flugleiðir,
Arnarflug og Val Andersen. Guð-
mundur Þ.B. Ólafsson í bæjarstjórn
Vestmannaeyja segir þaö merkilegt
að talsmenn frjálsræðis úr Sjálfstæð-
isflokki þar skuli vera andvígir sam-
keppni. „Sama gildir um Áma
Johnsen í flugráöi," sagði Guðmund-
ur.
Ráöherra heldur fund í dag með
flugráði vegna úthlutuncir sérleyfa.
Meirihluti flugráðs hefur mælt með
ofangreindri samþykkt bæjarstjóm-
ar Vestmannaeyja. Flugráð mælir
einnig með að bæði Flugleiðum og
Amarflugi verði úthlutað sérleyfum
fyrir áætlunarflug til Húsavíkur.
„Við eram ekki beint aö biðja um
þjónustu Amarflugs en við viljum
örari ferðir - nokkuð sem Amarílug
hefur boðist til í umsókn sinni um
hluta af flugi til og frá Húsavík.
Margir era óhressir með núverandi
ástand og millilendingar á Sauðár-
króki,“ sagði Tryggvi Finnsson, full-
trúi í bæjarstjóm og bæjarráði Húsa-
vikur, í samtali viö DV.
„Við Húsvíkingar getum sparað
okkur mikinn tíma og jafnvel gist-
ingu ef viö fáum beinar feröir fram
og til baka kvölds og morgna til
Reykjavíkur. Ég hef farið tvær ferðir
á síðustu dögum með Dornier-vél
Amarflugs, t.d. frá ísafirði til
Reykjavikur, og var sú vél pöntuð
vegna þess að ekki var útlit fyrir að
aðrar vélar gætu lent þar vegna hlið-
arvinds. Mér finnast þessar vélar
vera hentugar og með góðu öryggi-
skerfi. Við látum síðan ráðherra
ákveða með framhaldið,“ sagði
Tryggvi.
„Bæjarstjómin okkar hefur farið
fram á að samkeppni skuh verða
reynd og flugráð komst að sömu nið-
urstöðu. Þess vegna trúum við ekki
öðra en að ráðherra taki það til
greina. Áhuginn hér er mikill og
hann kviknaði þegar Arnarflug sótti
um,“ sagði Aðalsteinn Baldursson,
einn frumkvöðla á Húsavík aö um-
ræðu um flugþjónustu viö bæjarbúa
og veitingu sérleyfa.
„Fólk hér vih breytingar og er ósátt
við mynstur Flugleiða. Við viljum
samkeppni enda umhugsunarefni að
til og frá Reykjavík kosti 11.000 kr.,“
sagði Aðalsteinn.
I Vestmannaeyjum samþykkti
meirihluti bæjarstjómar að sérleyf-
um skyldi haldiö opnum fyrir Flug-
leiðir, Amarflug og Val Andersen.
Hins vegar segir þar að ef ráðherra
taki ákvörðun um að aðeins einn
aöili fái leyfið skuli það falla i hlut
Flugleiða. Minnihluti bæjarstjórnar,
skipaður fjórum sjálfstæöismönn-
um, vildi aðeins að leyfið yrði veitt
Flugleiðum. Siguröur Einarsson,
Sjálfstæðisflokki, sagði í samtah við
DV að hann sæi ekki hvernig ætti
að skipta sérleyfum án samvinnu.
„Ég get ekki áttað mig á hvernig það
á að ganga fyrir sig,“ sagði hann.
Ragnar Óskarsson, forseti bæjar-
stjórnar, sagði við DV að meirihlut-
inn hefði talið að meö því að veita
þremur aðhum sérleyfi myndi það
þýða aukna þjónustu og betra verð.
„Til marks um áhugann hér skrifuðu
á þrettánda hundrað Eyjamanna á
undirskriftahsta til stuðnings Arnar-
flugi,“ sagði Ragnar.
Ákvörðun meirihluta flugráðs um
að mæla með veitingu sérleyfa fyrir
Flugfélag Norðurlands, Flugfélagið
Erni og Flugfélag Austurlands á leið-
unum á mhh Reykjavíkur og Akur-
eyrar, ísafjarðar og Eghsstaða hefur
komið á óvart þar sem félögin sóttu
alls ekki um leyfi á þessum leiðum.
Hins vegar sóttu þessi félög um allar
átta núverandi flugleiðir Arnarflugs
- og samvinnu við Flugleiðir á „stóru
stöðunum". „Hvað þessu fyrirbæri
líður þá telur meirihluti flugráös
greinhega að smáu flugfélögin séu
þörf,“ sagði einn viðmælandi DV.
-ÓTT