Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 3Í. OKTÓBER 1989.
Útlönd dv
Öryggissvæði fyrir þingið
Sendimaöur Arababandalagsins
hóf i gær viðræöur við liðsforingja
kristinna í Beirút dl að tryggja ör-
yggi þíngsins þegar það kemur
saman til að ræða umbætur og
velja forseta. Aotm, yíirmaður her-
afla kristínna, er andvígur friðar-
tillögu Arababandalagsins en sagt
er aö liösforingi hans hafi í gær
samþykkt áætlun um hlutlaust
svæði umhverfis höllina þar sem
þingmenn ráðgera aö hittast í
næstu viku. Hermenn Aouns ráða
yfir svæðinu umhverfis höllina.
Sýrlenskir hermenn eru í tvö
hundruð metra íjarlægð.
Aoun, sem lítur á sig sem leiðtoga
þjóöarinnar, hefur hótað að rjufa
þingíð og fella stjómarskrána úr
gildi um stundarsakir til þess að
koma í veg fyrir að þingmenn taki
ákvörðun um umbætur.
Aoun, herforingi kristinna i
Libanon. Simamynd Reuter
Ráðgjöf í töfrum
í París eru starfandi fimm hundruð töframenn og galdrakarlar og í öllu
Frakklandi eru samtals íjörutíu þúsund stjömuspámenn. Ársvelta bak-
ara nokkurs, sem fór að töfra, er i kringum þrjátíu milljónir króna. Því
þykir nú ráðgjöf í töfrum vera vænlegt framtíðarstarf.
Hið yfimáttúmlega er ekki bara í lísku í Frakklandi heldur trúa fjöru-
tíu og tvö prósent franskra karla og fjörutíu og níu prósent franskra
kvenna á alls kyns fyrirbæri. Það er líka hægt að græða á því.
Flestir þeirra sem trúa á galdra, fjarskynjun, andaskoðun og svo fram-
vegis em menntað fólk. Fyrirtæki ráða til sín spákonur og spámenn til
að gefa ráð við ráðningu starfsfólks og þegar leysa þarf deilur.
VakavidKGB
Um þúsund manns kom saman við aðalstöðvar sovésku ieyniþjón-
ustunnar, KGB, i Moskvu í gærkvöldi og kveikti á kertum til að minnast
iátinna ættingja. Sfmamynd Reuter
Vaka var haldin við aðalstöðvar sovésku leyniþjónustunnar, KGB, í
Moskvu í gærkvöldi og safnaðist þar um þúsund manns. Flestir vom þar
til að minnast ættingja sera ofsóttír vora af Stalín.
Þegar þúsundir Moskvubúa á leið heim úr vinnu stöldmðu við til að
fylgjast meö kom lögreglan fyrir hindrunum til að koma í veg fyrir að
fólk færi inn á torgið við aðalstöðvamar.
Sprengdu bát
Arabiskur skæruliði sprengdi í gær fiskibát sinn 1 sjálfsmorðsárás á
ísraelskan byssubát undan strönd Líbanons. Skæruliðinn lét lifið og þrír
ísraelskir hermenn særöust
ísraelski herinn hindraði birtingu fréttarinnar í nokkrar klukkustund-
ir í gær.
Azem Vlasi, fyrrum leiðtogi kommúnista i Kosovo í Júgóslavíu, getur átt á hættu dauðadóm verði hann fundinn
sekur um „gagnbyltingarstarfsemi". Símamynd Reuter
Albanir í Júgóslavíu:
Mótmæla rétt
arhöldum
Lögreglu í Júgóslavíu, vopnaðri
táragási og kylfum, og þúsundum
Albana í Kosovo-héraði lenti saman
í gær vegna mótmæla viö réttarhöld
háttsetts albansks stjómmálamanns,
fyrrum leiðtoga kommúnistaflokks
héraðsins, Azem Vlasi. Vlasi er sak-
aður um að egna til óeirða á síðasta
ári til að reyna að koma í veg fyrir
samþykkt stjórnarskrárbreytinga er
veita Serbum aukin völd. Hann gæti
hlotið líflátsdóm fyrir „gagnbylting-
arstarfsemi".
Lögregla og um eitt þúsund mót-
mælendur áttust við i bænum
Podujevo, um 40 kílómetra vestur af
höfuöborg Kosovo, Pristina. Beitti
lögregla táragasi og kylfum á mann-
fiöldann. Mótmælendumir, margir
hverjir grímulæddir og vopnaðir
kylfum, reistu vegatálmanir á götum
til að leggja áherslu á mótmæli sín.
Þá mátti heyra hvatningarorð um
sjálfstæði til handa Kosovo.
Hundmð mótmælenda, sem höfðu
safriast saman á götum Pristina, tóku
til fótanna eftir að lögregla beitti
táragasi.
Vlasi og fjórtán aðrir voru teknir
fastir, sakaðir um að kynda undir
mótmæli gegn hömlum á sjálfsstjóm
Kosovo. Albanir eru í miklum meiri-
hluta í héraðinu, 1,7 milljónir á móti
200 þúsund Serbum. Tuttugu og
fimm létust í óeirðum sem áttu sér
stað í Kosovo í mars og maí á þessu
ári.
Vlasi hefur neitað sakargiftum.
Hann segir að pólitísk réttarhöld
hafi verið „sviðsett" og ásakar
Slobodan Milosevic, forseta Serbíu,
og Rahman Morina, leiðtoga komm-
únistaflokks Kosovo, um að standa
að baki þeim.
Reuter
Fjármálaráðherra Danmerkur víkur
Möguleikar dönsku samsteypu-
stjómarinnar á samvinnu á breiö-
um grundvelli í þinginu hafa
minnkaö vegna afsagnar Palle Sim-
onsens fjármálaráðherra. Þetta er
álit stjómmálasérfræðinga í Dan-
mörku.
Simonsen, sem verið hafði fjár-
málaráðherra Danmerkur síðast-
liðin fimm ár, sagði af sér í gær og
er jafnframt hættur þingmennsku.
Hann tekur nú við forstjórastöðu
hjá Lífeyrissjóði launþega, ATP.
Við embætti íjármálaráðherra
tekur Henning Dyremose sem áður
var atvinnumálaráðherra. Eftir-
maður hans verður Knud Kirke-
gaard.
Simonsen hafði tekið þátt í
dönskum stjómmálum í nær tutt-
ugu ár og hafði verið ráðherra frá
árinu 1982, fyrst sem félagsmála-
ráðherra og síðan fjármálaráð-
herra. Simonsen lagði á það
áherslu að afsögn hans væri ekki
í sambandi við neinn sérstakan
pólitískan atburð. Hann sagði það
vera erfitt aö vera fjármálaráð-
herra og kvaðst hlakka til að vera
ekki jafnmikiö í sviðsljósinu. Ritzau
Nixon í Kína
Sprengjutilrædi í Kólumbíu
Vlð dagblaðiö La Prensa í Bogotá í Kólumbíu hefur verfð komið fyrlr
sandpokum til varnar sprengjuárásum f iknief nakónga. Sfmamynd Reufer
Fimm sprengjuárásir hafa veriö geröar í Kólumbíu í kjölfar framsals
meints fíkniefnasala til Bandaríkjanna á sunnudaginn. í Bogotá sprungu
fjórar sprengjur á sunnudagskvöld en þær ollu litlu fjóni. I Medeliin,
höfuðborg líkniefhanna, sprakk öflug sprengja við útvarpsstöð.
Lík niu ungra kvenna fúndust á götum Medellin um helgina. Höiðu öll
fómarlömbin verið skotin í höfuöiö. Ekki er vitaö hvort moröin á þeim
tengjast baráttu fíkniefhasala gegn yfirvöidum en eftir framsaliö á sunnu-
daginn var sjónvarpsfréttamaöur skotinn. Hann berst nú fyrir lífl sínu.
Richard Nixon, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, kvaðst í morgun ánægö-
ur með viðræður sínar við Deng Xia-
oping, leiötoga Kína. „Viöræðurnar
vom hreinskiptar," sagöi Nixon.
Deng sagöi við forsetann fyrrverandi
aö þjóðimar tvær ættu að leggja til
hliöar hugmyndafræðilegar deilur
sínar í viðræöum um samskipti sín
á milli.
Nixon er í einkaferö í Kína en mun
samt sem áöur skýra Bush Banda-
ríkjaforseta frá niðurstöðum við-
ræðna sinn við kínverska ráðamenn.
Bush afréð að slíta samskiptum hátt-
settra bandarískra og kínverskra
embættismanna í kjölfar þess að kín-
verskir hermenn réðust að mótmæl-
endum á Torgi hins himneska friðar
í Peking í júni með þeim afleiðingum
að hundmð létu lífið.
Nixon og hinn aldni leiötogi Kína
ræddust við í morgun í Alþýðuhöll-
inni í Peking. í viötali við blaöamenn
að loknum viðræðunum sagði Nixon
aö samskipti Bandaríkjanna og Kína
væm nú stirðari en nokkra sinni
fyrr frá því að ríkin tvö tóku upp
stjómmálasamband árið 1972. En
hann sagði að viðræður milli fulltrúa
beggja þjóða yrðu að halda áfram
hvað sem liði hugmyndafræðilegum
deilum.
Á meðan á heimsókn Nixons stóð
tilkynntu kínversk stjómvöld aö
hermenn, sem verið hefðu á vakt á
Torgi hins himneska friöar síðan
blóðbaðiö í júní, mundu hverfa það-
an á brott en í staðinn mundu koma
vopnaðir lögreglumenn. Ekki var
minnst á hvort herlögum, sem verið
hefðu í gildi frá 20. maí síðastliðnum,
yrði nú aflétt.
Samkvæmt yfirlýsingu stjómvalda
var ákvörðunin um að flytja her-
mennina á brott tekin vegna þess að
sigur hefði unnist í baráttunni gegn
„andbyltingarsinnum" og ástandið
væri orðið að mestu eðlilegt á ný.
Reuter
Deng Xiaoping, leiðtogi Kína, og Ricard Nixon, fyrrum Bandarikjaforseti,
ræðast við í Alþýöuhöllinni i Peking i morgun. Simamynd Reuter