Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989.
15
Haldlítið íhald
Hvers konar stjómmálaflokkur er
Sjálfstæðisflokkurinn? Hann held-
ur sig aflt mögulegt en reynslan
sýnir að hann uppfyflir aldrei óskir
sínar. Hann nær aldrei með tæmar
þangað sem óskhyggja hans hefur
hælana.
Ábyrgur í fjármálum?
Ein stærsta goðsögn flokksins er
sú að hann kunni að fara með al-
mannafé. Fráleitari vitleysu er þó
varla hægt að hugsa sér.
Eirihver mesta svikamylla ríkis-
íjármálanna er landbúnaðarkerfið.
Það er uppflnning og sérstakt óska-
bam Sjálfstæðisflokksins. Þegar
átök hafa staðið um þetta mál hafa
sterkustu talsmenn flokksins afltaf
staðið í vörninni.
Lengi dugðu þar vel svipmestu
foringjar flokksins í þessum mála-
flokki, þeir Egill og Pálmi Jónssyn-
ir. Ekki linaðist vörnin þegar
flokksformaðurinn stillti sér upp
með þeim fyrir Suðurland.
Mesta bruðl seinni ára í ríkis-
framkvæmdum er Leifsstöð. Þar
sameinast það sterkasta í íslenskri
vanmáttarkennd, flottræfflshætti
og ábyrgðarleysi. Sjálfstæðisflokk-
urinn fór svo óumdeilanlega með
sfjórn þeirra framkvæmda að
ábyrgð hans er eitt hundrað pró-
sent.
Flokkurinn segist ætíð styðja lág-
skattastefnu og niðurskurð ríkisút-
gjalda. Það er ein sjáifsblekkingin
enn. Dæmin sýna að yísu að flokk-
urinn er til í lækka skatta en hann
hefur aldrei haft hugrekki til að
skera niður. Skattalækkanir hans
hafa því leitt til fjárlagahafla og
skuldasöfnunar.
Staða þjóðarbúsins í lok góðæris
til sjávar og sveita eftir fjármála-
ráðherratíð Þorstei'nS'Pálssonar
var með endemum.
KjáUarinn
Guðmundur Einarsson
lektor og framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins
Framkvæmdasamur?
Sjálfstæðisflokkurinn vill láta
líta svo út að hann láti hendur
standa fram úr ermum. Þar vísar
hann bæði til fyrrverandi forystu-
manna og atorkusamrar stjórnar á
málefnum Reykjavíkur.
Staðreyndin er hins vegar sú, að
í landsmálum er verkleysi flokks-
ins nánast algert.
Hann sýnir aðeins viðbrögð en
aldrei frumkvæði.
Sé horft aftur til 1983 og litið yfir
þau mál, sem hafa verið ofarlega á
baugi, kemur í ljós að flokkurinn
hefur afdrei verið í forystu fyrir
merkum málum utan einu sinni.
Það var þegar Geir Hallgrímsson
var utanríkisráðherra og hafði
frumkvæöi um aukna þátttöku ís-
lendinga í varnarsamstarfl NATO.
Frumkvæðið í fiskveiðistjórnar-
málum hefur afltaf verið hjá Fram-
sókn. Framkvæmd og atorka í
skattabyltingunni var öll hjá AI-
þýðuflokki. Eftirminnilegasti þátt-
ur sjálfstæðismanna þar var hug-
og dugleysið sem heltók þá þegar
máhnu var hrint í framkvæmd.
Hvað gerði flokkurinn eiginlega
í stjórn Þorsteins Pálssonar? Eina
verulega lifsmarkið með honum
þar var upphlaup Þorsteins í Út-
vegsbankamálinu. Þar var hann
reyndar ekki í hlutverki forsætis-
ráðherrans að gæta þjóðarhags-
muna heldur í rullu flokksform-
annsins að pota þröngum flokks-
hagsmunum.
í öllum stórum málum skilar
flokkurinn auðu. Landsfundurinn
síðasti breytir þar engu um. í raun
var þar aðeins samin heljarstór
krossgáta sem flokkurinn kallar
stefnu sína. Það verður síðan hlut-
verk samstarfsmanna hans í næstu
ríkisstjórn að fylla í reitina eins og
oft áður.
Siðbótarsamur?
Nýjustu fót keisarans af Valhöll
eru þau að hann sé siðavandur. Það
er reyndar ekkert sem bendif til
að sjálfstæðismenn hafi gengiö
hægar um gleðinnar dyr eri aðrir á
undanförnum árum. Siðavendnin
er enn ein blekkingin og þjónar því
einu að koma höggi á andstæðinga
sína.
Flokkurinn hefur haft fjölmörg
tækifæri til þess á undanfórnuiri
árum að sýna siðbótaráhuga sinn
í verki. Það er e.t.v. framkvæmda-
leysinu að kenna að hann hefur
hingað til hvorki sýnt hann í orði
né á borði. Guðmundur Einarsson
„Einhver mesta svikamylla ríkisfjár-
málanna er landbúnaðarkerfiö. Það er
uppfinning og sérstakt óskabarn Sjálf-
stæðisflokksins.“
■o
Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. - „Þar sameinast það sterkasta í íslenskri vanmáttarkennd, flottræfilshætti
og ábyrgðarleysi", segir greinarhöf. m.a.
Svavar
svíkur
Eftir öll fögru fyrirheitin og lof-
orðin frá Svavari Gestssyni urðu
svik á samkomulagi menntamála-
ráðherra og námsmanna að veru-
leika þegar drög að fjárlagafrum-
varpi fyrir 1990 voru lögð fram.
Lánin skert
Námsmenn höfðu búið við 20%
skerðingu námslána í tæp þrjú ár
þegar Svavar Gestsson tók við
menntamálaráðuneytinu. Svavar,
jafrit sem námsmenn, haföi beitt
sér af hörku fyrir leiðréttingu
skerðingarinnar og voru mörg
stóryrði látin fafla um þá aðila er
stóðu fyrir skerðingunni.
Svavar lagði fram þingsályktun-
artillögu í tvígang þar sem krafist
var skilyrðislausrar leiðréttingar
skerðingarinnar. Námsmenn þótt-
ust því standa vel að vígi þegar
Svavar tók við fáðuneyti mennta-
mála og biðu óþreyjufullir eftir að
stóru orðunum yrði hrint í fram-
kvæmd. Það þurfti þó töluverðan
þrýsting af hálfu námsmanna tfl
að ýta við ráðherranum og krefja
hann um efndir.
Vinnuhópur skipaður
Það fór því svo að Svavar skipaði
vinnuhóp um málefni Lánasjóðs
íslenskra námsmanna sem haföi
meðal annars það hlutverk að
koma með tillögur um leiöir til að
leiðrétta skerðinguna. Vinnuhóp-
urinn skilaði loks álití. í febrúar
1989 þar sem lagt var til að skerð-
ingin yrði leiðrétt í þremur áföng-
um, 6,5% í mars 1989,5% í septemb-
er 1989 og loks 6,7% í janúar 1990.
Þrátt fyrir að hér væri aðeins
KjaHarinn
Viktor B. Kjartansson
fulltrúi Stúdentaráðs HÍ
í stjórn Lánasjóðs
íslenskra námsmanna
verið að leiðrétta skerðingu á lán-
unum, sem námsmenn höföu búið
við í tæp þrjú ár, tóku námsmenn
á sig að draga sumartekjur enn
frekar af lánunum. Þannig skyldi
draga helming af sumartekjum
námsmanna frá þeirri lánsupp-
hæð, sem þeir áttu rétt á, í stað um
þriðjungs áður. Þessar ráðstafanir
komu strax til framkvæmda þegar
námslán voru reiknuð fyrir núver-
andi skólaár.
Samkomulag gert
Þetta varö að samkomulagi milli
Svavars menntamálaráðherra og
námsmanna. Námsmenn hafa
staðið við sinn hluta samkomulags-
ins með því að taka á sig hækkað
tekjutillit og bjuggust að sjálfsögðu
við að ríkisvaldið.stæði við sitt. Það
ríkti von í hugum námsmanna eftir
að fyrsti áfangi leiðréttingarinnar
fékkst í gegn í mars á þessu ári.
Erfiðara var að fá annan áfangann
í gegn en það tókst þó með sam-
stilltu átaki.
Grunsemdir fóru hins vegar að
vakna þegar drög að fjárlagaáætl-
un fyrir lánasjóðin voru lögð fyrir
stjórn sjóðsins í sumar. Þar var
ekki gert ráð fyrir síðasta áfanga
leiðréttingarinnar og urðu menn
uggandi um að brögð værú í tafli.
Fjárlagafrumvarp lagtfram
Það fór því svo að þegar fjárlaga-
frumvarpið var lagt fram var hlut-
ur námsmanna verulega skertur.
Ekki var gert ráð fyrir janúar-
áfanganum í fjárlagafrumvarpinu
og var einnig gert ráð fyrir að þeir
áfangar, sem nú þegar hafa náðst
í gegn, yrðu aftur teknir næsta
haust.
í fyrstu neituðu námsmenn að
trúa því. að svo væri komið og
námsmannahreyfingarnar skrif-
uðu ráðherra bréf þar sem hann
var kraflnn svarg. í svarbréfl ráð-
herra kom fram að hann hygðist
skipa nefnd sem ætti að fjalla um
málefni lánasjóðsins og ná þjóðar-,
sátt um hann.
Námsmönnum þótt það undarleg
undankomuleið hjá ráðherra að
skipa nefnd sem ná ætti þjóðarsátt
um lánasjóðinn og leggja drög að
framtíðarskipulagi sjóðsins á 80
dögum. Með þessu væri ráðherra
einungis að skorast undan ábyrgð
varðandi samkomulag hans og
námsmanna og láta í staðinn eitt-
hvert nefndarapparat sjá um að
svíkja námsmenn.
Framkoma ráðherra
Námsmönnum þykir sárt til þess
að vita að vera sviknir með þessum
hætti. Þrátt fyrir að menntamála-
ráðherra heföi margoft gefið loforð
um það að hann myndi standa við
sinn hluta samkomulagsins varð
raunin önnur. Þessi framkoma
ráðherra hlýtur að teljast ámælis-
verð og munu námsmannahreyf-
ingar, sem hafa umboð um 15.000
manna, mótmæla harkalega. Þegar
ráðherra var spurður að því í fjöl-
miðlum hvers vegna hann stæði
ekki við gefin loforð var það hans
eina undankomuleið að benda á að
sjálfstæðismennirnir í náms-
mannahreyfingunum væru nú
bara með skæruhemað á sig. Ráð-
herra veit mætavel að í forsvari
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra. - Hefur skorast undan
ábyrgð og svikið sinn hluta sam-
komulagsins, segir greinarhöfund-
ur meðal annars.
fyrir námsmannahreyfmgarnar er
fólk úr öllum flokkum, einnig hans
eigin.
Námsmenn stóðu frá upphafi við
sinn hluta samkomulagsins og
tóku á sig hækkun tekjutillits þeg-
ar í stað. Menntamálaráðherra hef-
ur hins vegar skorast undan
ábyrgð og svikið sinn hluta sam-
komulagsins. Þetta ætti að kenna
mönnum að það virðist vera sama
hversu ötullega þingmenn berjast
fyrir ákveðnum málaflokkum og
hversu stór orö þeir láta fafla, aldr-
ei virðist vera þægt að treysta því
að þeir séu sjálfum sér samkvæmir
þegar þeim gefst kostur á að bæta
um betur. Alvarlegra er að þeir
komast iðulega upp með svik og
undirferli án þess að fólkið í
landinu láti það sig nokkru skipta.
Það verður að slá í borðið og heimta
sanngimi í þessu lýðræðisþjóðfé-
lagi þannig að hægt veröi að treysta
því að ráðamenn standi við þá
samninga sem þeir hafa gert.
Viktor B. Kjartansson
„Þessi framkoma ráöherra hlýtur að
teljast ámælisverð og munu náms-
mannahreyfingar, sem hafa umboð um
15.000 manna, mótmæla harkalega.“