Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Side 32
T A S K O T I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989.
Vanskil á innheimtufé:
Ofnotaði
sjóðina
*
- segir Jón Isberg
„Þetta er nú ekki beint íjárveiting-
arvald sem ég hef tekiö mér heldur
hef ég ofnotaö sjóðina eöa réttara
sagt gert það af of miklu gáleysi og
ekki fylgst nægilega vel með,“ sagöi
Jón ísberg, sýslumaður Húnvetn-
inga, en viö utandagskrárumræöu á
Alþingi í gær gagnrýndi íjármálaráð-
herra, Olafur Ragnar Grímsson,
harðlega skil embættisins á inn-
heimtufé ríkisins.
Jón ísberg sagöi að hér væri um
að ræða 22 milljón króna skuld og
þrjár ástæður væru fyrir henni.
Sveitarsjóður skuldaði um 5 milljón-
_ ir vegna færslu á framlagi hans til
"^ýslusjóðs. Þá hefði hann greitt til
dvalarheimilis aldraðra sem verið
væri að byggja á Skagaströnd. Þar
hefðu framlög frá Byggingasjóði
aldraðra brugðist og hann hefði orðið
að greiða til að halda framkvæmdum
gangandi. Sagði Jón að þar ætti
sýslu- og héraðssjóður stórfé inni. í
þriðja lagi sagðist hann hafa látið fé
af hendi til byggingar heilsugæslu-
stöðvar en þar hefði vantað upp á
framlag sýslunnar.
„Það er auðvitað satt að þetta á
-ekki að vera svona, enda erum viö
að reyna að kippa þessu í lag,“ sagði
Jón en hann fundaði í morgun með
héraðsnefndinni um hvernig staðið
verður að greiðslu skuldarinnar.
Gerði Jón ráð fyrir að héraðsnefndin
myndi taka lán fyrir skuidinni en
hún skuldar sýslumanni í kring um
15 milljónir iem hann síðan skuldar
ríkissjóði. Jón sagðist áður hafa feng-
ið athugasemd frá Ríkisendurskoðun
og þá hefði komið í ljós að hann
skuldaðiekkikrónu. -SMJ
Fjórir gripnir
vegna innbrots
* í Kópavogi
Fjórir ungir menn gerðu innbrotst-
ilraun við verslun að Borgarholts-
braut 71 í nótt. Þeir voru handteknir
af lögreglunni í Kópavogi skömmu
seinna. Fyrr um nóttina höfðu fjór-
menningarnir stolið bensíni af bíl í
Kópavogi.
Ætlun njannanna var að verða sér
úti um tóbak í sælgætisverslun. Er
þeir komu á staðinn villtust þeir og
komu að samlokugerð þar sem þeir
brutu rúðu og komu síðan aö
rammgirtum rimlum. Við það gáfust
þeir upp og flúðu. Lögreglan fékk
lýsingu á bíl þeirra óg náðust þeir
síðan á Nýbýlavegi. Við yfírheyrslu
jiátuðu mennimir að hafa stolið bens-
íni fyrr um nóttina. ^TT
LOKI
Ætli þeir hafi ekki verið að
kanna varnir landsins?
Flarskiptastöðin í Grindavík:
Brutust inn á sof-
andi varnarliðsmenn
- önnur helgin í röð sem þarf lögregluafskipti
Tveir ungir Islendingar gerðu
aðsiig að vamarliðsmönnum í fjar-
skiptastöð varnarliðsins í Grinda-
vik um helgina. Einnig kom til
kasta lögreglunnar þegar varnar-
liðsmenn héldu gleðskap ásamt is-
lensku kvenfólki um fyrri helgi
Piltamir tveir gerðu mikínn usla
er þeir brutust inn um hlið sem er
umhverfis fjarskiptastöðina og inn
í bygginguna. Bmtu þeir fyrst gler
í brunaboða og settu eldvarnakerfi
hússins í gang. Aö þvi loknu rudd-
ust þeir til inngöngu í svefhher-
bergi að sofandi hermönnum með
miklum látum og stálu þaðan her-
mannabúningum, nærfatnaði,
strigaskóm, myndavél og sjónauka.
Mikið fát kom á þá 30 bandarísku
’ hermenn sera þama starfa út áf
brunakerfinu. í öliu írafárinu tókst
piltunum aö stinga af og aftur út
af svæðinu. Stuttu seinna komu
lögreglumenn í Grindavik auga á
óróaseggina. Voru mennimir þá
handteknir og þýfið komst í leitirn-
ar, Varnarliðsmenn hafa kært at-
burðinn.
Umhverfis fjarskiptastöðina í
Grindavík er hlið en engin hliö-
varsla eins og á Keflavíkurflug-
velli. Helgina áður þurfti lögreglan
í Grindavík einnig að hafa afskipti
af varnarliðsmönnum þegar þeir
höfðu boðið til sín íslensku kven-
fólki. Fór þá fram mikill gleöskap-
ur og óskaði lögreglan í Grindavík
eftir gestalista þar sem engin hlið-
varsla er höfö við svæðið. Þvi var
neitað og var þá kallaö á lögregluna
á Keflavíkurflugvelh sem flutti
gestina í burtu.
Vamarliðsmönnum er óheimilt
að flytja áfengi á milli Keflavikur-
flugvallar og Grindavikur nema í
innsigluðum bOum. Lögreglan í
Grindavík segir að gestirnir um-
rætt kvöld hafi verið í óleyfi inni á
þessu svæði. Allar utanaðkomandi
gestakomur eiga aö tilkynnast til
lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli.
Engin hliðvarsla hefur verið höfð
viö fjarskiptastöðina 1 mörg ár en
stöðin tilheyrir svæði lögreglunnar
á Keflavíkurflugvelli.
-ÓTT
Öllum sagt upp hjá Slippstöðinni:
Verið að drepa þenn-
an iðnað hér á landi
- segir formaður starfsmannafélags stöðvarinnar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Sennilega eru starfsmenn stöðvar-
innar ekki búnir að átta sig á þessu
ennþá en andinn meðal starfsmann-
anna er mjög slæmur vegna þessara
tíðinda," sagði Þorsteinn Konráðs-
son, formaður Starfsmannafélags
Slippstöðvarinnar á Akureyri, í sam-
tali við DV í gærkvöldi en skömmu
áður höfðu allir starfsmenn stöðvar-
innar að forstjóranum einum undan-
skildum fengiö uppsagnarbréf í
hendur.
Um er að ræða 210 starfsmenn og
eru ástæður uppsagnanna verkefna-
skortur Shppstöðvarinnar. Uppsagn-
irnar taka flestar gildi 1. febrúar en
einhveijar þeirra mánuði áður.
Verkefni eru fyrir um 60% starfs-
manna fram yfir áramót en eftir það
eru engin verkefni fyrirsjáanleg.
Segja má að það sem fyllti mæhnn
hafi verið að Fiskveiðasjóður hafnaði
að samþykkja sölu á nýsmíðaverk-
efni stöðvarinnar til Eskifjarðar en
vinna við það skip hefði getað bjarg-
að miklu í vetur.
„Það er mitt mat að forsvarsmenn
sjóðakerfisins séu að drepa þennan
iðnað hér á landi og ákveðnir aðilar
vilja ekki hlusta á að hér sé rekinn
skipasmíðaiönaður," sagði Þor-
steinn. „Þaö má taka þá sem sitja í
Fiskveiðasjóði sem dæmi um það og
ég sé ekki að iðnaðarráðherra hafi
mikinn áhuga á að halda þessu gang-
andi.
Þetta er svakaleg staða og sýnir
hvað pólitíkin er búin að gera þess-
um iðnaði. Starfsmenn hér hljóta að
fara að líta í kring um sig eftir ann-
arri vinnu. Á sama tíma streyma svo
ný skip til landsins erlendis frá en
skipasmíðastöðvarnar hér heima fá
engin nýsmíðaverkefni," sagði Þor-
steinn Konráðsson.
Fóstrur héldu fund fyrir utan Alþingishúsið í gær og mótmæltu hugmyndum
Jóhönnu Sigurðardóttur um að flytja málefni dagvistunar frá menntamála-
ráðuneytinu yfir i félagsmálaráðuneytið. Fóstrurnar höfðu börn af dagvistun-
arstofnunum sér til fulltingis á fundinum. DV-mynd BG
Banaslys við Ólafsfjarðarmúla
var emn í bílnum, sem endastakkst
út af veginum. Hann var látinn þegar
komiö var á slysstað í morgun. Nokk-
uð var þá hðið frá því slysið varð því
að vél bílsins var orðin köld.
Geir A. Guðsteinssan, DV, Dalvík:
Banaslys varð í nótt þegar bO var
ekið út af veginum Dalvíkurmegin
við Ólafsijarðarmúla. Sjómaður var
á leið frá Siglufirði th Dalvíkur og
Veðrið á morgun:
Skúrir og
slydduél
Á morgun verður suöaustanáft
og stinningskaldi vestan til á
landinu en hægari austantil.
Skúrir eða slydduél veröa um
sunnan- og vestanvert landið en
að mestu þurrt á Norður- og
Austurlandi. Hitinn verður 2-6
stig.
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJORAR
Kentucky
Fned
Chicken
Hjallahrautii ij, Hafnarfiröi
Kjúklingarsem bragö erað.
Opiö alla daga frá 11-22.