Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 12
12 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990. Sælkerinn Kristinn Gyifi Jónsson, svínabóndi og formaður Svínaræktarfélags Islands. Áfengi hækkar Já, viö könnumst öll við þessa til- kynningu sem birtist á nokkurra mánaða fresti. Eftir hvaða reglum er verð á áfengi ákveðið? Eru það geðþóttaákvarðanir? Hvert er vægi hækkana erlendis? Það eru margar spurningar sem vakna í þessu sam- bandi þegar skoðuö er síðasta hækkun á áfengi. Hið ágæta rauð- vín Ch. Batailley hækkaði um 27,9% en rauðvínið Le Putt lækkaði hins vegar um 3,4%. Hvítvínið Bic- hot Sautemes hækkaði um 26,2%. Bernkasteler Schlossberg hækkaði um 17,6% en Kenderm. Green Gold hækkaði aðeins um 1,7%. Hið ágæta hvítvín Bird series Bone Dry hækkaði um 18,3%. Limbasský SUvá lækkaði um 7,5%. Glenlivet Malt, 12 ára viskí, hækkaði um 16,2%. Chivas Regal, 12 ára, hækk- aði aðeins um 2,2%. Já, svona mætti lengi telja. Camus XO koníak hækkaði um 12% en ódýrari teg- und frá sama fyrirtæki, Camus Napoleon, hækkaði aðeins um 5,3%. Hvað á fólk að lesa úr þessum mismunandi hækkunum? Er verið að hækka þau vín sem seljast vel eða er þessu öfugt farið? Mjög er mismunandi hvað hinar ýmsu áfengistegundir hækka í verði og aðrar tegundir lækka. Chapoutier í Frí- höfninni í Keflavík Undanfama daga hefur töluvert verið fjallað um hvort leyfa eigi inn- flutning á svokölluðum „verk- smiðjuframleiddum landbúnaðaraf- urðum“. í þessu sambandi er átt við afurðir eins og kjúklinga, egg og svínakjöt. Afurðir þessar eru mun ódýrari í löndum Efnahagsbanda- lagsins, enda em þessar vömr þar mikið niðurgreiddar. Kristinn Gylfi Jónsson er formaður Svínaræktarfélags íslands. Kristinn rekur ásamt þremur bræðrum sínum og föður svínabúið Brautarholt sem er eitt fullkomnasta svínabú landsins. Þeir feðgar hafa tekið upp á þeirri nýbreytni að selja grísakjöt beint til neytenda. Kristinn sagði í samtali við Sælkerasíðuna að þetta heföi gefist mjög vel og ekki væri annað séö en að neytendur kynnu vel að meta þessa þjónustu. „Kaupandinn hringir til okkar,“ sagði Kristinn „og við sendum kjötið heim til hans.“ Grísakjötið er selt í hálfum skrokkum og er hann hlutað- ur niður og pakkaður í neytenda- pakkningar. Við framleiðsluna starfa 4 menn og er ársframleiöslan um 200 tonn af kjöti á ári. Kristinn var spurður hvort erlenda grísakjötið væri bragðbetra en það íslenska. „Það held ég ekki,“ svaraöi Kristinn. „Það er mjög strangt heil- brigðiseftirlit með búunum hér á ís- landi. Þá era ekki alls konar hor- móna- og sýklaefnum blandaö saman við það fóður sem við gefum dýrun- um. Við eram einnig lausir við marga sjúkdóma sem herja í ná- grannalöndum okkar. Þar af leiðandi þurfum við ekki aö gefa dýrunum jafnmikið af lyfjum og þeir. Einnig vaxa íslensku grísirnir hægar og því er kjötið þéttara í sér, ekki eins gróft.“ - Ertu þá að segja að ef leyföur væri innflutningur á t.d. dönsku svína- kjöti myndu íslendingar frekar kaupa íslenskt grísakjöt vegna þess að það er bragðbetra? „Já,“ svarar Kristinn, „ég er ekki frá því að sú yrði raunin.“ - Hvers vegna geta t.d. danskir bændur boðið ódýrara kjöt en þið? „Niðurgreiðslur hafa auðvitað mikið að segja. Aðalatriðið er þó að dönsku búin eru mun stærri en þau Umsjón: Sigmar B. Hauksson íslensku. Við höfum ekki neinn möguleika á að kynbæta íslenska svínastofhinn. Frá árinu 1932 hafa verið lög í gildi hérlendis þess efnis að ekki megi flytja inn í landið lif- andi svín, sæði eða frjóvguð egg. Þegar þessi lög vora sett vora 50 gylt- ur í landinu en nú era þær 3500. Þetta ástand er vitaskuld óviðunandi. Eitt af okkar brýnustu baráttumálum er að fá að kynbæta íslenska svína- stofninn. Við þurfum að fá stofn sem nýtir fóðrið betur. Vissulega er mik- ilvægt að við höldum ýmsum góðum eiginieikum sem íslenski stofninn er gæddur. Svínarækt er alþjóðleg at- vinnugrein og ég er sannfærður um að ef við byggjum við sömu skilyrði og svínabændur í öðram löndum ættum við að geta framleitt kjöt á svipuðu verði og þeir.“ - En Kristinn, er ekki allt fóður sem þið gefið dýranum innflutt? „Nei, ekki er það nú allt. 75% af því er flutt inn og það er mest bygg, maís og hveiti og okkur er gert skylt aö greiða 10% kjarnfóöurskatt. Það verður einnig að greiða virðisauka- skatt af svínakjöti. Við fáum að vísu kjarnfóðurskattinn frádreginn virð- isaukaskattinum. Ef þessi gjöld væru hreinlega felld niður þá mætti lækka verð á svínakjöti. Við teljum að svínakjötið sé þrátt fyrir allt ódýr- asta kjötið á markaðnum því að beinahlutfall í svínakjöti er lágt og þannig er nýting kjötsins mjög góð. Einnig er svínakjöt selt sem fersk vara og birgðum er ekki safnað í frysti.“ - Þið feðgar eruð þá bjartsýnir, þrátt fyrir allt? „Já, það eram við,“ svaraði Krist- inn. „Við kappkostum að framleiða eins gott kjöt og unnt er og heimsend- ingarþjónustan virðist hafa hitt í mark.“ Hvað sem framtíðin ber í skauti sér þá munu íslendingar halda áfram að snæða svínakjöt. Fyrr á öldum var töluvert um svín hér á landi og gengu þau frjáls um hagana. Mörg örnefni hér á landi sanna þaö, t.d. Galtafell og Svínadalur. Þá borðuðu hinir fornu Æsir helst kjöt af göltum. Svín- ið er frjósamt dýr. Franski marskálk- urinn Vaupan reiknaði það út að gylta gæti eignast 6.434.838 afkom- endur á 12 árum en það er nú önnur saga. íslenskir neytendur hljóta samt að vera sammála um að nauðsynlegt er að kynbæta íslenska svínastofn- inn og að svínakjöt verði á sömu kjöram og annað kjöt. Úrval góðra rauðvína hefur nokk- uö lagast eftir að bjórinn fór. Meðal öndvegisvína, sem nú er hægt að kaupa í Fríhöfninni, er La Petite Ruche frá hinu virta fjölskyldu- fyrirtæki Chapoutier í Frakklandi. Þetta vín kemur frá hlíðum Croz- es-Hermitage. Vínið er kraftmikið, dimmrautt, ilmandi og matarmik- ið. Rætur vínviðarins liggja djúpt í sprungum brattra fjallshlíöa og sólarljósið endurkastast af ánni á vínakurinn. Chapoutier-fyrirtækið er eitt hið virtasta í Rhondalnum. Hermitage-vínin eru nú fáanleg í flestum löndum Vestur-Evrópu og hafa vinsældir þeirra aukist stöð- ugt. Þegar talað er um Hermitage kemur nafn Chapoutier-fjölskyl- dunnar alltaf upp í hugann. Fjöl- skyldan framleiðir mörg af bestu vínum Rhondalsins. Fjölskyldan hefur framleitt vín frá 1806. Gamlar vinnuaðferðir era enn í heiðri haföar og nýjar framleiðsluaðferö- ir eru aðeins teknar upp eftir marg- brotnar tilraunir á ágæti þeirra. í dag stjóma fyrirtækinu þrjár kyn- slóðir, afinn, pabbinn og tveir syn- ir. Margir starfsmannanna hafa starfað hjá fyrirtækinu kynslóð eft- ir kynslóð. Chapoutier-fyrirtækið er eitt af fáum smáfyrirtækjum sem enn eru í eigu sömu fjölskyld- unnar. Unnendur góðra vína, sem eiga leið um Fríhöfnina í Keflavík, ættu ekki að láta hjá líða að kaupa þetta ágæta rauðvín, La Petite Ruc- he, sem er svo sannarlega vín með sál. La Petite Ruche, franskt gæðavín með sál, er nú hægt að kaupa í Frí- höfninni í Keflavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.