Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Síða 27
LAUGAtUJAGUR 20, ÆANÚA’Rj 4990., •
39
Skák
Margeir gerir víðreist
- Frá skákmótunum í Reggio Emilia og Wijk aan Zee
A þriðja degi jóla hélt Margeir
Pétursson stórmeistari áleiðis til
Reggio Emilia á Norður-Ítalíu, til
móts við marga fremstu stórmeist-
ara heims. Árangur hans var bæri-
legur, deilt sjöunda sæti en mótið
var af sextánda styrkleikaflokki og
gerast þau varla sterkari. Margeir
lét ekki þar við sitja, heldur hélt
þaðan rakleiðis til Wijk aan Zee í
Hollandi. Þar situr hann enn að
tafli en hafði er síðast fréttist gert
jafntefli í fimm fyrstu skákum sín-
um.
Sjálfur Anatoly Karpov var með-
al þátttakenda í Reggio Emiha.
Nafn hans er venjulega merki um
að slagurinn muni standa um 2.
sætið, þ.e.a.s. þegar Kasparov er
fjarri góðu gamni. í þetta sinn varð
Karpov þó að horfa á eftir sér yngri
mönnum hreppa efstu sætin. Sig-
urinn kom í hlut Eistlendingsins
Jaan Ehlvest, sem gulltryggði sig-
urinn með því að vinna Georgiev í
lokaumferðinni. Ehlvest hlaut 7,5
v. en Vassily Ivantsjúk, sem þykir
efni í heimsmeistara, náði 2. sæti
með 6,5 v. Honum tókst að halda
Karpov í skefjum með jafntefli við
hann í síðustu umferð.
Karpov varð þriðji með 6 v. og
tapaði ekki skák en baráttugleðin
heföi mátt vera meiri. Hann gerði
t.a.m. jafntefli í 14 leikjum við
Bandaríkjamanninn de Firmian í
þekktri teóríu í spænskum leik og
ekki í fyrsta sinn sem Karpov teflir
þannig. Núna hefði hann að ósekju
mátt reyna til þrautar því að de
Firmian kom rúmri hálfri klukku-
stund of seint í skákina, hafði tapað
illilega fyrir Portisch í umferðinni
áður og var næstneðstur á mótinu.
Karpov kom hins vegar í humátt á
eftir þeim efstu.
Ribli og Andersson deildu ijórða
sætinu með 5,5 v. Ribli átti sitt
draumamót - vann eina skák og
gerði jafntefli í ölium hinum. And-
ersson hefði gjaman viljað fara að
dæmi hans en Margeir setti strik í
reikninginn með því að leggja
sænska stórmeistarann að velli í
fjórðu umferð. Andersson neyddist
því til að vinna tvær skákir.
Taflmennska Margeirs fannst
mér dálítið dauf, svona eins og
hann væri ekki búinn að jafna sig
eftir jólasteikumar. Hann var far-
sæll í vinningsskákum sínum, gegn
Andersson, Beljavsky og Portisch
- naut þess greinilega að móther-
jarnir ætluðu sér um of. Á hinn
bóginn gat Margeir nagað sig í
handarbökin í öðrum tilvikum, t.d.
gegn sigurvegaranum Ehlvest, er
Margeir hafði peði meira í enda-
tafli en lék þá af sér manni. í DV í
gær sáum við hvernig það atvikað-
ist. Margeir má annars prýðilega
við una, enda var hann einn af
stigalægstu þátttakendum mótsins.
Tímamörkin voru óvenjulég, 3
klst. á mann á fyrstu 60 leikina,
þ.e. ekki þurfti að ljúka 40 leikjum
á 2 klst. eins og nú tíðast. Þetta
varð til þess að tímahrakið varð oft
meira og lengra en venja er og tók
það sinn toll af skákunum. Vera
má að Beljavsky hafi ekki náð að
aðlaga sig þessu en hann varð
langneöstur.
Við skulum líta á eina hressilega
skák frá mótinu, þar sem de Firm-
ian fellur í heimabmggaða gildru
Portisch, sem nær að reka svarta
kónginn þvert yfir borðið.
Hvítt: Lajos Portisch
Svart: Nick de Firmian
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rffi 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. e3
Portisch hefur lengi verið dyggur
stuðningsmaður þessa rólyndis-
lega afbrigðis, sem er kannski ekki
eins rólegt og ætla mætti.
4. - Bb7 5. Bd3 c5 6. (W) Be7 7. Rc3
d5 8. b3 (W) 9. Bb2 Rc6 10. Hel Hc8
11. Hcl cxd4 12. exd4 He8
Þetta er þekkt staða úr skák-
Eistlendingurinn Jaan Ehlvest hlaut 7,5 vinninga og sigraði á skákmótinu í Reggio Emilia á Norður-ítaliu.
Vassily Ivantsjúk, sem þykir efni I heimsmeistara, náði 2. sæti með 6,5 vinninga og Anatoly Karpov varð að
láta sér nægja 3. sætið.
bókmenntunum. Fræg skák Keres-
ar og Smyslovs, úr áskorendamót-
inu 1953 tefldist 12. - Rb4 13. Bfl
Re414. a3 Rxc315. Hxc3 Rc616. Re5
Rxe5 17. Hxe5 Bf6 18. Hh5!? g6 19.
Hch3 dxc4! 20. Hxh7? c3! 21. Dcl
Dxd4! 22. Dh6 Hfd8 og Smyslov
hratt atlögunni.
Textaleikurinn þykir einnig
góðra gjaldá verður. Tvær skákir
Keresar tefldust nú áfram 13. Re5
dxc4 14. Rxc6 Bxc615. bxc4 en með
15. - Dd7 (Keres - Darga, Bled 1961),
eða 15. - BfB (Keres - Andersson,
Tallinn 1973) mátti svartur vel við
una. Portisch hefur önnur áform.
13. cxd5!? Rxd5 14. Rxd5 Dxd5 15.
Be4 Dd7?
Beint í gildmna. Afbrigðiö stend-
ur og fellur með 15. - Dd6.
Skák
I I
ii k A A A
& A
A
A ÉL A A A
aC'3 QÍj??p Þfvj 5 s 2 <á?
Jón L. Arnason
16. Hxc6! Bxc6 17. Re5 Db7 18.
Bxh7 +!
Þetta bjó að baki. Svarti kóngur-
inn kýs nú að leggja á flótta, því
að 18. - Kxh7 19. Dh5+ Kg8 20.
Dxf7+ Kh7 21. Rxc6 (ef 21. d5 þá
21. - Bf6!) Hf8 (21. - Dxc6 22. d5! og
máthótun á g7) 22. Dxe7 Dxc6 23.
d5 gefur hvítum þrjú peð biskup
og frumkvæðið gegn hrók.
18. - Kf8 19. Dh5 Bb4
Forðar mátinu á f7 og hótar
kóngshróknum. Lítur vel út, eða
hvað?
20. Bd3! g6-
í ljós kemur, að ef 20. - Bxel, þá
21. Ba3 + og mát á h8 er í sjónmáli.
21. Dh6+ Ke7 22. d5! Bxel
Eða 22. - Bxd5 23. Dh4+ Kd8 24.
Dxb4 með vinningsstöðu.
23. Ba3+ Kd8 24. Dh4+ Kc7 25. dxc6
Da8 26. Df6 b5 27. Bc5! Hcd8 28.
Dxf7 + Kc8 29. Bxb5 a6
ABCDE FGH
30. Dd7 + !
Og svartur gafst upp.
Short og Kortsnoj efstir
Staðan á skákmótinu í Wijk aan
Zee að loknum fimm umferðum var
sú, að Short og Kortsnoj vora efstir
með 3,5 v., Nunn, Anand og Dok-
hojan komu næstir með 3 v. Síðan
kom Dlugy með 2,5 v. og biðskák
en Margeir, Andersson og Piket
höfðu 2,5 v. Neðar komu Kuijf,
Portisch, Gurevits, van der Wiel og
Nijboer. Það er hollenska fyrirtæk-
iö Hoogovens, sem hefur átt í við-
ræðum um að reisa álver hér á
landi, sem stendur að mótinu eins
og undanfarin ár.
Margeir hefur gert fimm jafntefli
í fimm umferðum, við Nunn,
Dlugy, van der Wiel, Andersson og
Anand. Samkvæmt töfluröðinni
mætir hann næstu andstæðingum
sínum í þessari röð: Portisch, Nij-
boer, Gurevits, Kortsnoj, Short,
Piket, Dokhojan og Kuijf.
Lítum á sigurskák Shorts gegn
Andersson úr þriðju umferð. Short
saumar aö mótherjanum eftir byrj-
unina og eftir 24 leiki hefur hann
náð yfirburðastöðu. Andersson
gerir örvæntingarfulla tilraun til
að hrista upp í stöðunni en allt
kemur fyrir ekki og eftir 40 leiki
gefst hann upp.
Hvítt: Nigel Short
Svart: Ulf Andersson
Sikileyjarörn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 g6 5. c4 Rf6 6. Rc3 d6 7. Be2
Bg7 8. Be3 0-0 9. 0-0 Bd710. Rc2 Da5
11. f4 Hac8 12. Hbl a6 13. b4 Dd8 14.
Dd3 Bg4 15. Khl Bxe2 16. Dxe2 e6
17. c5 d5 18. Hfdl He8 19. a4 De7 20.
b5 axb5 21. e5! Rd7 22. Rxb5 Hf8 23.
Rd6 Hb8 24. Rd4
6 8 I lé’
5Vi 7 1 4«i 1
6 m&k A
5Zi 5
4 A A
5 3 Jl
dlA 2 W A A
1 S : : S 4?
24. - f6 25. Rxb7 Rxd4 26. Bxd4 fxe5
27. fxe5 Hf4 28. c6 Hxd4 29. Hxd4
Rxe5 30. Hdb4 Rxc6 31. Hb6 Rd4 32.
Dg4 Hf8 33. a5 Be5 34. a6 Df6 35. Hgl
Bc7 36. Hbbl De5 37. Dh3 Bb8 38.
Rc5 Dd6 39. Hb7 h5 40. Rd7 Da6
og svartur gafst upp um leiö.
-JLÁ