Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990.
Utlönd
verða forseti
Hinn umdeildi Boris Jeltsin
stefnir nú aö því aö veröa forseti
Rússlands. Sovéska fréttastofan
Tass greindi frá því í gær aö Jeltsin
hefði hafið kosningabaráttu sína
fyrir þingkosninganiar í Rússlandi
4. mars næstkomandi. Ileimsótti
Jeltsin tvö stór fyrirtæki í borginni
Sverdlovsk þar sem hann var sjálf-
ur flokksleiðtogi áöur en hann var
kaUaöur til Moskvu til aö gegna
samsvarandi stööu þar.
Jeltsin loíar efnahagslegri,
stjórnmáialegri og andlegri endurfæðingu Rússlands. Þrettán aörir þing-
menn erui framboöi í kjördæminu. Vitalij Vorotnikov, sem er meðiimur
sljórnmálaráðsins, gegnir nú forsetaembættinu í stærsta sovéska lýðveld-
inu. FNB
Sovéski
Jeltsin.
umbótasinninn Boris
Símamynd Reuter
Neydarlögum aflétt
Herstjórnin á Haiti tiikynnti í gærkvöldi að neyðarlögum heföi veriö
aflétt. Þau áttu að gilda í mánuö en var aflétt vegna þess aö sérstakar
aögeröir, sem gripið haföi verið til, höföu verið árangursríkar, eins og
sagöi í tilkynningu yfirvalda. Neyðarlögin voru sett á 20. janúar.
Ekki var greint frá áætlunum um að binda enda á ritskoðun sem sett
var á í síðustu viku þegar herstjórnin hóf herferð sina gegn stjórnarand-
stæðingum. Reuter
Quayle í Panama
Varaforseti Bandaríkjanna, Dan Quayle, ásamt forseta Panama, Guili-
ermo Endara. Simamynd Reuter
Dan Quayie, varaforseti Bandaríkjanna, sem nýlokið hefur heimsókn
innrás Bandaríkjamanna í Panama, sagði í gær að leiðtogar Panama
þyrftu að íhuga hvort þeir ættu ekki að boða til kosninga til að hljóta
viöurkenningu erlendra ríkja.
Forsætisráöherra Jamaica, Michael Manley, tjáði Qayle að hann hefði
veriö mótfallinn innrásinni og gæti þess vegna ekki viðurkennt nýju
stjómina í Panama. Manley fordæmdi reyndar Noriega hershöföingja en
sagði að með innrásinni hefðu verið brotin alþjóðleg lög.
Bandarísk yfirvöld hafa sagt að ekki væri þörf á nýjum kosningum til
að staðfesta völd stjórnar Endara, forseta Panama. Noriega neitaði aö
viöurkenna úrslit vorkosninga í fyrra og var við völd þar til Bandaríkja-
menn gerðu innrás í desember síöastliðnum. Reuter
Noriega með dönskum sjómönnum
Manuel Antonio Noriega, fyrrum hershöfðingi 1 Panama, var á sunnu-
dagskvöld fluttur úr dómshúsinu í Miami þar sem hann haföí verið i
sérstökum fangaklefa og í fangelsi fyrir utan Miami.- í því fangelsi er
danskur skipstjóri og sex aörir danskir skipverjar sem ákærðir hafa ver-
iö fyrir kókaínsmygl.
Danimir munu þó líkiega ekki fá tækifæri til aö spjalla við Noriega
þegar þeir veröa viöraðir í fangelsisgarðinum. Noriega mun ekki fá leyfi
til að umgangast aöra fanga. Hann var fluttur eftir að veijandi hans hafði
krafist þess að hann fengi aö fara til þríöja lands á meðan réttarhöldin
yfir honum væm undirbúin.
Noriega lítur á sig sem stríðsfanga og vill að farið veröi eftir Genfarsátt-
málanum um meðferð fanga. Þar stendur meðal annars aö geyma eigi
stríðsfanga meðal annarra meö sömu gráðu. Meðal fanganna þúsund er
víst enginn annar fjögurra stjömu hershöföingi. Rttzau
Uppreisnarieiðtogi handtekinn
Heryfirvöld á Filippseyjum sýndu fréttamönnum uppreísnarleiðtogann
sem þelr gripu. Hann er lengst til haegri á myndinni. Símamynd Reuter
Edgardo Abenina, sá sem talinn er hafa veriö einn af skipuleggjendum
uppreisnartiiraunarinnar gegn Aquino, forseta Filippseyja, í desember-
byrjun, var gripinn snemma í gærdag í útjaöri höfuðborgarinnar Manila.
Abenina, sem meiddist á fæti er hann reyndi að flýja xmdan hermönnun-
um, er hæst settur af þeím liðsforingjum sem gripnir hafa verið eftir að
uppreisnartilraunin var bæld niöur. „Gringo“ Honasan, sá sem talinn
er foringi uppreisnarmanna, gengui- enn laus. tt
Erich Honecker, fyrrum leiðtogi A-Þýskalands, var í gær færður í fangelsi. Hér sést hann ásamt eiginkonu sinni,
Margot. Símamynd Reuter
Austur-þýski forsætisráðherrann:
Hætta á hruni
Austur-Þjóðverjar horfast nú í
augu við hugsanlegt hrun aöeins örf-
áum vikum eftir aö friösamleg bylt-
ing almennings steypti alræði
kommúnista. Efnhagslega sem og
stjómmálalega er hætta á ringulreið
í landinu og sagði Hans Modrow for-
sætisráðherra á þingi í gær aö lög
og regla hefði viöa hmniö, efnahags-
líflö væri í rúst og að flótti austur-
þýskra ríkisborgara vestur yfir héldi
áfram. Eina leiðin til bjargar þjóöinni
frá algeru hruni er aö setja á laggirn-
ar þjóðstjóm allra stjórnmálaafla í
landinu og aö flýta kosningum um
tvo mánuöi. Stjórn og stjórnarand-
staða hafa komið sér saman um að
gengiö veröi til kosninga þann 18.
mars í staö 6. maí eins og áöur hafði
veriö ákveðið. Sveitarstjórnarkosn-
ingar munu þó fara fram 6. maí. Þá
verður einnig sett 'á laggirnar þjóð-
stjórn.
Verkfóll og mótmæli hafa breiðst
út um Austur-Þýskaland og í gær-
kvöldi söfnuðust um eitt hundrað
þúsund manns saman á götum Leipz-
ig. Krafðist fólkið sameiningar þýsku
ríkjanna og gagnrýndi kommúnista-
flokkinn.
Fyrrum leiðtogi flokksins, Erich
Honecker, hefur nú verið handtek-
inn og færður á bak við lás og slá.
Þar mun hann að öllum líkindum
dúsa þar til í mars þegar hann verð-
ur leiddur fyrir rétt, ásakaður um
landráð. Honecker, sem var leiðtogi
í átján ár þar til almenningur reis
gegn alræði kommúnista, var látinn
laus af sjúkrahúsi í gær eftir að hafa
gengist undir uppskurð vegna
krabbameins. Læknar segja að hann
sé of veikburða til að koma fyrir rétt.
í gærkvöldi hafnaði austur-þýskur
dómari kröfu yfirvalda um hand-
tökuskipun á hendur Honeckers.
Sakskóknari kvaðst munu áfrýja
ákvörðun dómara í dag en að Honec-
ker yrði áfram í vörslu yfirvalda.
Reuter
Hinn nýi flokkur jafnaðarmanna í Póllandi:
Á brattann að sækja
Pólskir kommúnistar hafa fellt
rauða fánann og breytt flokknum að
nafni til í flokk jafnaðarmanna. Þrátt
fyrir þaö gera þeir sér grein fyrir aö
þeir munu að ölium líkindum eiga
erfitt uppdráttar og að það munu líöa
mörg ár þar til vinstri flokkur fær
mikinn stuðnings kjósenda í Póll-
andi.
Tveir flokkar jafnaðarmanna voru
settir á laggimar á síðasta þingi
pólskra kommúnista sem haldið var
um helgina - annar þeirra er klofn-
ingsflokkur - en hvorugur er talinn
eiga mikla möguleika á að ávinna sér
mikinn stuðning. Að auki má annar
þeirra, sá stærri, eiga von á enn frek-
ari klofningi.
Stærri flokkurinn er undir forsæti
Alexander Kwasniewski en í honum
eiga einnig sæti kommúnistar og
harðlínumenn. Ríkissjónvarpið
sagði einfaldlega að flokkur Kwasni-
ewskis væri í raun gamli kommún-
istaflokkurinn undir öðm nafni.
Kwasniewski til ánægju hafa harð-
línumenn hótað að ganga úr flokkn-
um.
Reuter
Umkringdu bækistöðvar
stjórnarandstöðunnar
Tugir þúsunda stuðningsmanna
Þjóðfrelsishreyfingarinnar í Rúme-
níu, sem fer með stjórn landsins,
gengu um götur Búkarest í allan
gærdag. Hrópuðu þeir slagorð og
veifuðu borðum.
Stuðningsmennirnir umkringdu
bækistöðvar Bændaflokksins og
Frjálslynda flokksins. Þeir allra her-
skáustu fóru inn í bygginguna þar
sem Fijálslyndi flokkurinn hefur
bækistöð sína og límdu upp spjöld
Þjóðfrelsishreyfingarinnar. Leiðtogi
flokksins flúði út um hliðarglugga.
Talsmaöur frjálslyndra sagði að þeir
hefðu getað fengið mótmælendur til
að yfirgefa bygginguna eftir nokk-
urra klukkustunda samningavið-
ræður.
Hermenn þurftu að koma leiðtoga
Bændaflokksins til aðstoðar og var
hann fluttur á brott í brynvörðum
bíl.
Þegar líða tók á kvöldið héldu flest-
ir stuðningsmanna Þjóðfrelsishreyf-
ingarinnar heim á leið en nokkrir
þeirra húktu fyrir utan eigin bæki-
stöðvar, viðbúnir gagnárás stjórnar-
andstöðunnar.
Reuter
Fyrrum yfirmaður öryggismála i
Rúmeniu, Emil Macri, er meðal
þeirra mörgu manna Ceausescu
sem biða eftir að verða kallaðir fyr-
ir rétt. Símamynd Reuter