Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritsljórn - Auglýsingar - Á skrift - Dreifing: Simi 27022 Veðrið á morgun: Hvasst en frostlaust Á morgun verður norðaustan- átt og frostlaust um mestan hluta landsins. Ennþá hvasst á Vest- fjörðum en farið að lægja annars staðar á landinu. Skúrir eða slydduél við austur- og suðaust- urströndina en slydda eða snjó- koma norðantil á Vestfjörðum og á Ströndum. Hitinn veröur ú-3 stig. Snjóflóð að húsveggjum 4 4 4 4 5 Ógnað med ■ ■■■■■■ ■ kjotoxi - piltar handteknir ^ Tveir fimmtán ára piltar ógnuöu hjónum á mjög storkandi hátt á knattspymuvelli Þróttar við Sævið- arsund í gærkvöldi. Hjónin voru á gönguskíðum þegar piltarnir veittust að þeim og sveifluðu kjötöxi rétt fyr- ir framan þau. Höíðu þeir í hótunum við fólkið sem átti sér ekki skjóta undankomuleið þar sem það var á skíðum. Annar þeirra hjó síðan með öxinni í marksúlu á knattspyrnuvelhnum til að storka hjónunum. Viö svo búið hurfu piltarnir á brott. Lögreglunni var tilkynnt um at- hæfi piltanna og var þeirra leitað í gærkvöldi. Þeir voru handteknir __skömmu síðar. Kom þá í ljós að þeir komu frá unglingaheimili og voru þeir færðir þangað í vörslu skömmu síðar. Piltarnir sögðust hafa fengið kjötöxina hjá móður annars þeirra. -ÓTT ^eynir Tiaustason, DV, Flateyri: Komið hefur í ljós að snjóflóð hefur fallið alveg niður að húsnum við Ól- afstún á Flateyri. Taliö er að flóðið hafi fallið fyrir einum eða tveimur dögum. Ekki hefur tekist að kanna stærð flóðsins vegna veðurs en ljóst er að það hefur farið yfir snjóflóða- vörnina fyrir ofan bæinn. Almannavarnanefnd Flateyrar hefur ekki enn heimilað fólki, sem býr við Ólafstún, að snúa heim. Menn frá nefndinni fóru í könnunar- leiðangur upp í hlíðina í gær og sáu að flóðið hafði fært malarsíló úr stað. Níu hús á Flateyri hafa staðið mann- laus síðan á fimmtudag og er óvíst hvenær flutt verður í þau aftur. L_»~ Vestfirðir: Ferðalög varasöm Allar leiðir á norðanverðum Vest- fjörðum eru enn ófærar ef frá er tal- ið að Vegageröin heldur veginum frá Súðavík um ísafjörð til Bc'ungavík- ur opnum. í Önundarflröi eru allar leiðir innanfjarðar ófærar og er ekki talið ráðlegt að reyna að opna þær vegna snjóflóðahættu. Kristinn Jónsson hjá Vegagerðinni á ísafirði taldi varasamt að vera á ferðinni milli staða því að hengjur eru í öllum hlíðum. í morgun var skafrenningur á ísafirði og aðeins jgpalgötur í bænum færar. í Súganda- flrði er allt á kafi í snjó og vegir ófær- ir. -GK Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, fékk far með Þórarni V. Þórarinssyni, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins, á fund rikisstjórnarinnar i gær. Það er eins gott að vera við öllu búinn í hraða samninganna og radarvarinn í bíl Þórarins er á sínum stað. DV-mynd GVA ÞRiÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990. Ríkisstjómin vill flármagna samningana innanlands: Lifeyrissjoðirmr LOKI Ætli radarvari Þórarins og Ásmundar dugi á Ólaf Ragnar? NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR wmmmm Þjóðar mmmm SALIN býr í Rás 2. Kl. 16: Dagskrá-dægurmálaútvarp Kl. 18: Þjóðarsálin, simi 38500 FM 90,1 - útvarp með sál. láni 4 milljarða - kauphækkanir verði 3 prósent í ár og tvisvar 2,5 prósent á næsta ári Ríkisstjórnin óskaði eftir því á fundi með forystumönnum Al- þýöusambandsins og Vinnuveit- endasambandsins í nótt að lífeyris- sjóðirnir kaupi ríkisskuldabréf fyr- ir 3 til 4 milljarða króna til að standa straum af þeim kostnaði sem að ríkisstjóminni snýr í kjara- samningum sem unnið er að. Hlut- ur ríkisins í niðurgreiðslum á land- búnaðarafurðum og tekjutengingu ellilífeyrisgreiðslu kostar á annan milljarð króna. Mönnum ber ekki saman um hve há talan er en 1200 til 1400 milljónir eru nefndar. Það voru þeir Ásmundur Stefáns- son, forseti Alþýðusambandsins, og Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins, sem hittu ráðherrana að máli. Þeir gerðu svo samninga- mönnum grein fyrir niðurstöðum fundarins í Karphúsinu um mið- nætti síðastliðið. Eftir það var fundi frestað til klukkan 17 í dag. Jákvætt svar líklegt Miklar líkur eru taldar á að líf- eyrissjóðirnir verði við þessari ósk ríkisstjórnarinnar. Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna í ár eru 22 til 23 milljarðar króna. Af þeirriupphæð kaupa þeir skuldabréf af Hús- næðisstofnun ríkisins fyrir 11 til 12 milljarða. Þeir eiga því annað eins eftir til ráðstöfunar. Niðurskurður Ríkisstjórnin gerði þingflokkum stjórnarflokkanna grein fyrir því í gær að enda þótt að þessu verði gengið og ríkisstjórnin fái 3 til 4 milljarða lán frá lífeyrissjóðunum mun niðUrskurður á ýmsum svið- um fylgja í kjölfarið. Ríkisstjórnin mun ekki telja rétt að fjármagna allan þann kostnað, sem kjara- samningarnir hafa í fór með sér, með lánum. Halli á íjárlögum þessa árs er sem kunnugt er áætlaður 3 til 4 milljarðar króna. Brotnar ekki á þessu Talið er víst að þetta gangi og að kjarasamningar takist alveg á næstunni. „Það verður ekki látið bijóta á þessu atriði,“ sagði einn af verka- lýðsforingjunum í samtali við DV í morgun. 8 prósent kauphækkun á 18 mánuðum Aðalástæðan fyrir því að að samningagerðin hélt ekki áfram í nótt er sú að gera þarf upp ákveðin samningamál sem snúa að opin- berum starfsmönnum. Þess vegna hófst fundur með forystumönnum þeirra og ríkisstjórnarinnar klukk- an 9.30 í morgun. Gert er ráð fyrir að þeir kjara- samningar, sem nú eru að verða til, gildi fram í september 1991. Gert er ráð fyrir að kauphækkunin í ár verði 3 prósent en tvisvar sinn- um 2,5 prósent á 8 mánuðum ársins 1991. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.