Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990. Fólk í fréttum Þorvarður R. Elíasson Þorvarður Rósinkar Elíasson, skólastjóri Verslunarskóla íslands, til heimilis að Fjólugötu 11, Reykja- vík, var tekinn tali í helgarviðtali DV en hann hefur verið ráðinn sjón- varpsstjóri Stöðvar 2. Þorvarður fæddist í Hnífsdal 9.7. 1940 og ólst þar upp til fimm ára aldurs en flutti þá með foreldrum sínum til Skagastrandar. Fjölskyld- an flutti síðan til Akureyrar og loks til Reykjavíkur en þangað kom Þor- varður 1960, er hann hafði lokið stúdentsprófum frá MA, tveim árum eftir að foreldrar hans fluttu suður. Þorvarður stundaði nám í við- skiptafræðideild HÍ og lauk þaðan prófiíjanúar 1965. Hann var starfsmaður hagfræði- deildar Seðlabanka íslands 1963-64, starfsmaður Kjararannsóknanefnd- ar frá ársbyrjun 1965 til ársloka 1970, starfsmaður og einn af eigend- um Hagverks sf. frá ársbyrjun 1971 til ársloka 1972, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands 1973-79 og skólastjóri Verslunarskólans frá miðju ári 1979. Þorvarður mun taka við stöðu sjónvarpsstjóra Stöðvar 2 þann 1.2. nk. Á námsárum sínum sat Þorvarður í stúdentaráði og í stjórn Félags við- skiptafræðinema. Hann hefur verið formaður menntamálanefndar Sjálfstæðisflokksins og situr í nor- rænni nefnd verslunarskóla á Norð- urlöndum auk þess sem hann hefur unnið ýmis nefndarstörf er varða lagasetningu og lagabreytingar á sviði efnahags- og verðlagsmála. Þorvarður kvæntist 17.6.1963, Ingu Rósu Sigursteirísdóttur, f. 8.12. 1942, dóttur Sigursteins Þórðarson- ar verkamanns, og Althildar Kristj- ánsdóttur húsmóður. Böm Þorvarðar og Ingu Rósu eru Einar Eyjólfsson, f. 26.11.1958, frí- kirkjuprestur í Hafnarfirði, kvænt- ur Eddu Möller, framkvæmdastjóra Skálholts, og eiga þau tvö börn; Guðný Rósa, f. 12.12.1963, viðskipta- fræðingur hjá Eimskipafélagi ís- lands í Gautaborg, gift Ágústi Má Jónssyni, knattspyrnumanni í Gautaborg; Bjarni Kristján, f. 22.12. 1966, rafmagnsverkfræðingur við framhaldsnám í Bandaríkjunum, kvæntur Katrínu Helgadóttur, og Elías Þór, f. 31.12.1971, nemandi viö Verslunarskólann. Systkini Þorvarðar em Jónas, prófessor í verkfræði við HÍ, kvænt- ur Ásthildi Erlingsdóttur, húsmóð- ur og kennara og eiga þau tvö börn; Halldór, prófessor í stærðfræði við HI, kvæntur Björgu Stefánsdóttur húsmóður og eiga þau þrjú böm; Elías, yfirverkfræðingur Lands- virkjunar, kvæntur Rannveigu Eg- ilsdóttur og á hann fimm börn, og Margrét, listamaður í Stokkhólmi. Foreldrar Þorvarðar: Elías Kristj- án Ingimarsson, f. 11.1.1903, d. 4.8. 1965, kaupfélagsstjóri ogútgerðar- maöur í Hnífsdal, síðast yfirverk- stjóri í Reykjavík, og kona hans, Guðný Rósa Jónasdóttir, f. 28.12. 1906, húsmóðir. Föðurforeldrar Þorvarðar voru Ingimar Bjarnason, skipstjóri og útgerðarmaður í Fremri-Hnífsdal, og Halldóra Halldórsdóttir, hús- móðir þar. Föðursystur Þorvarðar eru Margrét, giftist Hallgrími Guð- mundssyni togaraskipstjóra og framkvæmdsstjóra Togaraaf- greiöslunnar í Reykjavík, og Rósa, kona Sigurðar ísólfssonar, organ- ista í Fríkirkjunni og úrsmiðs í Reykjavík. Föðurbræður Þorvarðar voru Bjami, skipstjóri og landsfræg aflakló og útgerðarmaður ásamt Tryggva Ófeigssyni hjá Júpiter og Mars, Halldór, skipstjóri í Reykja- vík, og Ingimar, starfsmaður hjá SÍS. Bróðir Ingimars Bjamasonar var Jón, afi Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðis- flokksins. Ingimar var sonur Bjarna, b. í Tannanesi í Önundar- firði, Jónssonar og konu hans Rósa- mundu Guðmundsdóttur, læknis í Nesdal, Guðmundssonar. Halldóra var dóttir Halldórs, b. í Fremri-Hnífsdal, Sölvasonar, b. á Kirkjubóh í Skutulsfirði, Sveinsson- ar, bróður Rannveigar, ættmóður Thorsteinsson-ættarinnar, ömmu Péturs Jens Thorsteinssonar á Bíldudal sem var faðir Muggs, afi Péturs Thorsteinssonar sendiherra og langafi Ólafs B. Thors forstjóra. Þá var Rannveig amma Davíðs Schevings Thorsteinssonar læknis, afa alnafna síns, forstjóra Sól hf. Móðurforeldrar Þorvarðar voru Jónas Marías Þorvarðarson, útgerð- armaður á Bakka í Hnifsdal, og kona hans, Guðný Jónsdóttir. Móð- ursystkini Þorvarðar voru Ehsabet María, skólasfjóri Húsmæðraskól- ans í Reykjavík og seinni kona Aðal- steins Pálssonar skipstjóra, Helga, kona Bjama Snæbjörnssonar, al- þingismanns og læknis í Hafnar- firði, Kristjana er lést 1918, Jónas Janus, sem lést ungur, Bjarni Öss- ur, bókhaldari og kaupmaður í Hafnarfirði og Björg, tannsmiður í Þorvarður Rósinkar Eliasson. Hafnarfirði. Jónas var sonur Þorvarðar, b. í Hrauni, Sigurðssonar b. í Eyrardal, Þorvarðarsonar, ættföður Eyrar- ættarinnar. Móðir Jónasar útgerð- armanns var Ehsabet Kjartansdótt- ir, b. í Hrauni, Jónssonar. Móðir Kjartans var Sigríður Sigurðardótt- ir, systir Sveins á Kirkjubóh. Móðir Elísabetar var Margrét Pálsdóttir, b. í Amardal, Hahdórssonar og konu hans, Margrétar Guðmunds- dóttur, b. í Amardal, Bárðarsonar, b. í Amardal, hlugasonar, ættföður Amardalsættarinnar. Móðir Guðnýjar var Guðný Jóns- dóttir, b. á Læk í Dýrafiröi, Bjarna- sonar, b. á Rana, Sigmundssonar, bróður Sveins, langafa Jensínu, móður Gunnars Ásgeirssonar stór- kaupmanns. Afmæli Agnar Rafn J. Agnar Rafn J. Levy, oddviti og hreppstjóri Þverárhrepps og bóndi í Hrísakoti, Þverárhreppi, er fimm- tugurídag. Agnar er fæddur á Ósum á Vatns- nesi. Hann ólst upp í föðurgarði við almenn sveitastörf, var um tíma til sjós 1958-’59 en hóf störf hjá Ingvari Helgasyni, hehdverslun, 1960 sem fyrsti starfsmaður fyrirtækisins og síðar skrifstofustjóri. Þar vann hann fram á vor 1969 og aftur 1971-72. Þann 1.5.1969 flutti Agnar að Hrísakoti og hóf þar búskap, fyrst með foreldrum sínum, en tók við búi 1.2.1975 og hefur búið þar síðan. Agnar var kosinn varamaður í hreppsnefnd Þverárhrepps 1974, að- almaður 1979 og oddviti hrepps- nefndar sama ár. Hann var skipaður hreppstjóri Þverárhrepps frá 1984, var varamaður í sýslunefnd Vest- ur-Húnavatnssýslu frá 1978 og þar til þær vom aflagðar 1988 og hefur setið sem aðalmaður í Héraðsnefnd Vestur-Húnavatnssýslu frá þeim tíma. Auk þess hefur hann starfað í flestum nefndum í sveitárfélaginu og setið í jarðanefnd Vestur-Húna- vatnssýslu frá 1989. Agnar hefur setið í stjóm Tónlistarskóla Vestur- Húnavatnssýslu frá 1982 og í stjóm KVH á Hvammstanga, fyrst sem varamaður en sem aðalmaður frá 1985. Hann tók virkan þátt í fijálsum íþróttum á árunum 1960-’68 með KR í Reykjavík, í langhlaupum, og var í landsliði íslands á þeim tíma. Agn- ar hefur skrifað greinar í Tímaritið Húna og Húnaþing III. Agnar kvæntist þann 19.12.1964 Hlíf Sigurðardóttur, f. 28.8.1946 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Sigurður Hjálmsson, verkstjóri hjá ÁTVR, f. 23.9.1902, d. 19.8.1985, Og Steha Jórunn Sigurðardóttir ljós- móðir, f. 5.3.1918, d. 20.3.1975. Foreldrar Sigurðar vom Hjálmur Þorsteinsson, Þorsteinssonar, Þor- bjamarsonar, stúdents af Voga- tunguætt, Þorsteinssonar fálka- fangara af Arinbjamarætt, og Guðný Ásmundsdóttir, Gíslasonar dalaskálds. Foreldrar Stellu -voru Sigurður Bjamason og Aðalheiður K. Dýr- fjörð á ísafirði. Böm Agnars og Hlífar era: Jóhannes, f. 20.6.1963, lagerbókari hjá Ingvari Helgasyni, búsettur í Reykjavík. Sigurður Rafn, f. 23.9.1965, nemi í sálarfræði við Háskóla íslands. Skúli Gísh, f. 17.4.1968, nemi á tæknisviði til stúdents við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti og lærð- urrafvirki. Óskírður drengur, f. 5.1.1970, dá- inn tveimur dögum síðar. Steha Jórann, f. 20.3.1975, nemi í Laugarbakkaskóla í Miðfirði. Hjálmur Ingvar, f. 29.11.1977, nemi í Vesturhópsskóla í Þverár- hreppi. SystkiniAgnars: Svanhildur Erla J. Levy, f. 4.9. 1937, verslunarkona, búsett í Reykjavík, gift Gunnlaugi Guð- mundssyni, kaupmanni í Gunn- laugsbúð, og eru böm þeirra: Garð- ar, f. 11.12.1956, forstjóri heildversl- unárinnar Ritrúnar í Reykjavík; Gunnlaugur Sævar, f. 29.12.1958, framkvæmdastjóri Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunnar hf. í Reykja- vík; Hildur, f. 25.6.1965, verslunar- stjóri í Gunnlaugsbúð; ogÁslaug, f. 23.10.1973, nemi í Verslunarskóla íslands. Eggert Ósmann J. Levy, f. 26.4. 1947, áður skólastjón á Húnavöh- um, nú kennari við Árbæjarskóla í Reykjavík, var kvæntur Ingunni Sigurðardóttur og eignuðust þau fjóra syni: Sigurð Öm, f. 29.3.1972; Jóhannes Helga, f. 31.5.1974; Atla Bjöm, f. 4.2.1980, og Valgeir Má, f. 16.10.1981. SambýhskonaEggerts er Rannveig Sigurðardóttir, f. 28.6. 1953. Foreldrar Agnars: Jóhannes Helgi E. Levy, b. og oddviti í Hrísakoti, f. Levy 29.5.1910, d. 26.5.1981, og Marzibil Sigurrós Jenný Jóhannesdóttir, f. 9.8.1910. Jóhannes var sonur Eggerts Levy, hreppstjóra á Ósum, Jónssonar, prests á Tjörn á Vatnsnesi, Þorláks- sonar, prests á Undirfelh, Stefáns- sonar. Jón var bróðir Þorláks í Vestur- hópshólum, föður Jóns, verkfræð- ings og ráðherra, Magnúsar á Blika- stöðum, dr. Bjargar í Kaupmanna- höfn og Sigurbjargar, kennslukonu íReykjavík. Móðir Jóns Þorlákssonar var Sig- urbjörg Jónsdóttir, prófasts í Stein- nesi, Péturssonar. Móðir Eggerts Levy var Ólöf Eggertsdóttir, hrepp- stjóra og skálds á Kolþemumýri í Vesturhópi, Jónssonar, Þorsteins- sonar, og Margrétar Ólafsdóttur. Móðir Jóhannesar Helga var Ögn Guðmannsdóttir, b. í Krossanesi, Ámasonar, Guðmundssonar, b. á Húki, Bjömssonar. Móðir Agnar var Ósk Guðmundsdóttir. Marzibh Sigurrós Jenný, móðir Agnars, er dóttir Jóhannesar Pét- urs, b. í Hrisakoti, Jónssonar, Jóns- sonar, b. í Syðsta-Hvammi á Vatns- nesi, Ambjamarsonar, stúdents frá Stóra-Ósi, Ámasonar, prests að Bægisá, Tómassonar. Móðir Jóhannesar Péturs var Agnar Rafn J. Levy. Helga Pétursdóttir, b. í Krossanesi, Jónssonar, og Sigurlaugar Jóns- dóttur. Bræður Jóns Jónssonar vora Egg- ert á Ánastöðum, Árni í Stöpum, Stefán í Kagaðarhóh, Daníel í Tungukoti og Davíð í Kirkju- hvammi, faðir Sigurðar, kaup- manns á Hvammstanga. Móðir Jennýjar var Guðríður Guðrún Gísladóttir, Gunnarssonar, Gíslasonar úr Rangárvahasýslu, af Víkingslækjarætt. Móðir Guðríðar Guðrúnar var Guðrún Bjamadóttir, b. á Hraða- stöðum í Mosfehssveit, Eiríkssonar. Meðal systkina Jennýjar var dr. Jón Jóharinesson prófessor, kvænt- ur Guðrúnu P. Helgadóttur, fyrrv. skólastj óra, Ingvarssonar, yfir- læknis á Vífilsstöðum. Kraftaverkin gerast á okkar dögum - heilög guðsmóðir birtíst í Medjugorje Urval tímarit fyrir alla Til han ungju með afmælið 30. janúar 80 ára 70 ára 50ára 40 ára :: Hermonn Guðlaugsaon '■ ■■ húsgagnasmiður, Njálsgötu27, Reykjavík. Hann veröur að heiman ídag. Friðbjörn H. Jóhannsson, Hhð, Svarfaðardalshreppi. Ásta Einarsdóttir, ; U ý ; Hhðarvegi 18, Ólafsfirði. Gunnlaugur Geirsson, Nýja-Lundi við Nýbýlaveg, Kópa- vogi. Rannveig Jóhannesdóttir, Hólmagrund 17, Sauðárkróki. ; Sigríður Tómasdóttir, ;'■ Sunnuvegi 16, Selfossi. Þórhalla Stefánsdóttir, Holtsgötu 34, Njarðvík. ; Anna Guðmundsdóttir, Fomhaga 26, Reykjavík. Björgvin S. Friðriksson, Barmahhð 1, Reykjavík. Böð var Gíslason, Reykjabraut 2, Þorlákshöfn. Gunnþór Ægisson, Karlsbraut 25, Dalvík. Óiafur Ingimarsson, Læknisbústað, Sauðárkróki. StefaníaS. Ingimundardóttir, Hringbraut l, Hafnarfiröi. 75ára 60 ára Ármann Kr. Einarsson, Brautarlandi 12, Reylgavik. Skúli Þórarinsson, Hafþórsstöðum, Noröurárd.hreppi. Ragnheiður Indriðadóttir, Otrateigi 30, Reykjavík. Rögnvaldur Þorleifsson, Faxatúni 19, Garðabæ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.