Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1990, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1990. 11 Utlönd Fleiri bilanir í Greifswald Albani, búsettur í Kosovo í Júgóslaviu, hendir grjóti að lögreglu. Símamynd Reuter Róstumar í Kosovo: Yfirvöld hvetja til friðar Júgóslavneskir ráðamenn hafa hvatt til þess að bundinn verði endi á blóðbaðið í Kosovo-héraði í júgó- slavneska lýðveldinu Serbíu þar sem Albanir, sem þar eru búsettir og eru í meirihluta í héraðinu, hafa krafist frjálsra kosninga, pólitískra umbóta og afsagnar ráðamanna. Róstur í héraðinu hafa kostað að minnsta kosti sextán manns lifið, tveir til við- bótar týndu lífi í gær. Yfirvöld í Serb- íu hafa lagt ábyrgðina á róstunum á herðar nágrannalýðveldunum Króa- tíu og Slóveníu í yfirlýsingu alríkisyfirvalda segir að rósturnar í Kosovo ógni einingu landsins, framkvæmd fyrirhugaðra umbóta og mannréttindum þegn- anna. En ekki er ljóst hvað alríkis- yfirvöld geta aðhafst í ljósi þess að ráðamenn í Serbíu hafa heitið því að ekki verði um samvinnu að ræða við Albanina. Serbar í lýðveldinu hafa vopnbúist til að veija sig ef til átaka kæmi að þvi er heimildarmenn herma. Segja þeir að Albanir hafi unnið hefndareið gegn Serbum. í Kosovo eru um 1,7 milljónir al- banskra múhameðstrúarmanna og um 200 þúsund kristnir, að mestu Serbar. Reuter Fréttir hafa nú borist af alvarlegri bilun í kjarnorkuverinu Greifswald í Austur-Þýskalandi sem átti sér stað í nóvember síðastliðnum. í byijun síðustu viku greindi vestur-þýska tímaritið Der Spiegel frá því að elds- voða, sem orðið hefði í kjarnorkuver- inu 1976, hefði verið leynt vandlega af austur-þýskum yfirvöldum. Þau hafa hins vegar tilkynnt yfir- völdum í Vestur-Þýskalandi um bil- unina í nóvember, að því er um- hverfismálaráðherra Vestur-Þýska- lands, Klaus Töpfer, sagði í v-þýska blaðinu Welt am Sonntag. í nýjasta hefti Der Spiegel, sem kom út í gær, er greint frá því að ýmiss konar óhöpp hafi orðið í kjarn- orkuverinu í Greifswald á undan- fórnum árum. Á síðastá ári þurftu starfsmennirnir að stöðva kjarna- ofnana átján sinnum. Hefur tímaritið það eftir austur-þýskum sérfræðing- um að kastað hafi verið til höndun- um við byggingu kjarnorkuversins sem er gert eftir sovéskri fyrirmynd. Samkvæmt upplýsingum austur- þýskra tæknifræðinga eru víða bygg- ingargallar í kjarnorkuverinu. I nóvember síðasthðnum bilaði aö- aldæla samtímis því sem þijár aðrar voru ekki í notkun vegna eftirlits. Sjálfvirkur slökkvibúnaður á kjarnaofninum hefði þá átt að grípa í taumana en hann virkaði ekki. Það var ekki fyrr en eftir fjörutíu sekúnd- ur að starfsmenn í kjamorkuverinu gátu með handafli slökkt á kjarna- ofninum. Hann hefur ekki enn verið tekinn í notkun. Þetta slys virðist samt ekki hafa verið jafnalvarlegt og slysið 1976. Þar sem kjarnorkuverið í Greifs- Kjarnorkuverið í Greifswald liggur f 150 kílómetra fjarlægð frá suður- hluta Svíþjóðar. wald er ekki nema í hundrað og fimmtíu kfiómetra fjarlægð frá suð- urhluta Svíþjóðar hefði getað orðið mikil geislun þar ef verr hefði farið. Umhverfismálaráðherra Svíþjóðar, Birgitta Dahl, hefur krafið austur- þýsk yfirvöld um skýringu en vill þó ekki taka undir kröfu vestur-þýska umhverfismálaráðherrans sem vill að austur-þýsku kjarnakljúfamir verði teknir úr sambandi þar til ör- yggi hafi verið tryggt. Thor Pedersen, innanríkisráð- herra Danmerkur, kveðst vera reiðu- búinn að kanna hvort samningamir við austur-þýsk og pólsk yfirvöld um viðvaranir við óhöppum í kjamorku- verum séu haldnir. í danska blaðinu Pohtiken í gær var sagt að samning- urinn við Austur-Þjóðverja hefði ekki virkað. ' Ritzau, TT Búlgaría: Harðvítug valdabarátta Sérstakt þing búlgarska kommún- istaflokksins hefst í dag og er það í fyrsta sinn sem kommúnistar í Búlg- aríu koma saman til slíks þings. Um þijú þúsund flokksfélagar sitja þetta þing sem mun fjalla um framtíð flokksins í ljósi þess að forysta hans hefur þegar samþykkt að láta af al- ræði sínu og heitið landsmönnum frjálsum kosningum. Bak við hina opinberu, sameinaðu ásjónu búlgarskra kommúnista ólg- ar harðvítug valdabarátta milli um- bótasinna og harðhnumanna. Fast- lega má búast við að á þinginu, sem hefst í dag og stendur í tvo til þijá daga, megi sjá merki þessarar valda- baráttu. „Svo virðist sem íhaldsöflin innan flokksins séu mjög sterk,“ sagði Ass- en Davidov, félagi í einum af róttæk- ustu hópum umbótasinna innan kommúnistaflokksins, samtökum jafnaðarmanna. Það sem þessir fimm hópar vilja gera - breyta flokknum innan frá - verður án efa erfitt því vestrænir stjórnarerindrekar segja að flokksfélagar séu ósammála um svo að segja hvert einasta stefnuat- riði flokksins, aögerðir í efnahags- málum, framtíð flokksins og sam- skipti hans við stjórnarandstöðuna. Kollegi Davidovs, Kiril Vasfiev, sagði að róttækir myndu segja sig úr flokknum og setja á laggirnar nýjan stjórnmálaflokk nema umbætur yrðu róttækar. Einn félaga í forystusveit flokksins, Andrei Lukanov, viðurkenndi að nauðsyn væri á uppstokkun í komm- únistaflokknum en lagði áherslu á að ekki kæmi tU tals að feta í fótspor annarra austantjaldsríkja, s.s. Pól- lands, þar sem flokkurinn var nýver- ið lagður niður. Lukanov lagði ábyrgðina á óförum flokksins á herð- ar fyrrum leiðtoga hans, Todors Zhivkov, og stjórnarstefnu þeirri sem var við lýði í hans stjórnartíð. Talið er að Zlúvkov, sem er 85 ára gamall, sé í vörslu yfirvalda og eigi yfir höfði sér ákærur m.a. um að svíkja fé út úr þjóðinni. Reuter I Fulltrúar Azera og Armena í Sovétrikjunum eru nú sanunála um að heíja friðarviðræður í Riga, höfuðborg Lettlands, á fimmtudag. Fulltrúar þjóöfyUcinga Eystrasalts- landanna munu verða sáttasemjar- DeUuaðilar munu raiða þá ákvörðun sovéskra yfirvalda að beita rauða hernum til þess að : binda enda á átökin milli Armena og Azera. Á dagskrá mun einnig verða flóttamannavandinn og ýmis önnur málefni. Aftur á móti stend- ur ekki tU aö ræða um yfirráðin yfir Nagomo-Karabakh hérðaöinu í Azerbajdzhan sem Armenar gera tilkall til en þeir eru þar í meiri- hluta. Talsmaður sovéska utanríkis- ráðuneytisins, Gennadij Gera- simov, lagði á það áherslu í gær að finna þyrfti þá leiðtoga Alþýðufylk- ingai-innar sem tryggt geti öryggi minnihlutahópa í Azerbajdzhan. Hann bætti því viö að meirihluti leiðtoga Azera væru afhuga of- sóknum á hendur Armenum. Hins vegar væm öfgamenn í fylking- unni sem væru á móti Armenum, Rússum og gyðingum. Gerasimov varði þá ákvörðun sovéskra yfirvalda að senda herlið tU bardagasvæðanna og benti á að áður en rauöi herinn hefði komið hefðu yfirvöld ekki veitt Armenum neina vernd gegn öfgamönnum. FNB u a J— — — er þjónusta sem gerir fjármálastiórum, gjaldkerum og n k a n s sendimönnum fyrirtækja lífið léttara. Með því að tengja tölvu fyrirtækisins vi ð BOÐLÍNUNA opnar fyrirtækið í raun sína eigin bankaafgreiðslu sem opin er frá kl. 8:00-19:00 alla virka daga. Með BOÐLÍNUNNI er hægt að millifæra af eigin reikningi á hvaða reikning sem er í hvaða banka sem er, og greiða þannig t.d. alla gíróseðla, víxla, skuldabréf og laun án þess að fara í banka. Jafnframt á fyrirtækið aðgang að fjölbreyttum upplýsingum um stöðu sína í bankanum og ýmiskonar annarri þjónustu. Hugaðu strax að BOÐLÍNU Landsbankans og mánaðamótin verða iéttari. Allar nánari upplýs ingar fást í bæklingi sem liggur frammi í næsta Landsbanka. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.