Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Blaðsíða 8
Veiðifélagið Flóki
auglýsir eftir tilboðum í stangaveiði í Flókadalsá í
Fljótum veiðitímabilið 20. júní - 20. sept. 1990.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Tilboðum skal skila fyrir 15. mars til Lúðvíks
Ásmundssonar, Sigríðarstöðum, 570 Fljótum.
Upplýsingar gefa Lúóvík í síma 96-71041 og Rafn
Sigurjónsson í síma 96-71057.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Staða deildarstjóra í Handritadeild Landsbókasafns íslands er laus
til umsóknar. Æskilegt er að umsaekjendur hafi próf í bókasafns-
fræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 10. mars nk.
Menntamálaráðuneytið,
19. febrúar 1989
Húsavík
^SJÚKRAHÚSIÐ í HÚSAVÍK
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið í Húsavík óskar eftir hjúkrunarfræðing-
um um lengri eða skemmri tíma og til sumarafleys-
inga.
Hvernig væri að kanna málið? Upplýsingar gefur
hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333.
Þjálfunar- og ráðgjafarmiðstöð
Austurlands, Egilsstöðum
Tilboð óskast í að steypa upp og gera fokhelt hús fyrir þjálfunar-
og ráðgjafarmiðstöð svæðisstjórnar fatlaðra á Austurlandi. Húsið
stendur við Árskóga á Egilsstöðum og er stærð nýbyggingar 385
m2, auk 103 m2 kjallara sem þegar hefur verið byggður.
Verktími er til 1. október 1990.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík, til og með fimmtudegi 15. mars gegn 10.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni 7, 20. mars kl.
11.00.
IIMNKAUPASTOFNUIM RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðir sem
hafa skemmst í umferðaróhöppum:
Subaru st. 1800 4x4 special edition 1988
Daihatsu Feroza 1989
Ford EscortXR3i 1988
Toyota LiteAcedísil 1988
MMCLancer 1987
Ford Escort 1984
MMCLancer 1983
Nissan Laurel dísil 1983
SuzukiAlto 1981
Datsun Sunny 1980
Volvo 244 1978
Ladast. 1983
NissanSunny 1985
Suzuki TS50XK létt bifhjól 1987
Bifreiðirnar verða til sýnis mánudaginn 26.
febrúar í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15.
Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 16.00 sama
dag tii bifreiðadeildar Tryggingar hf., Lauga-
vegi 178, 105 Reykjavík, sími 621110.
verndgeonvA
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI 621110
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990.
Hinhliðin
Arthúr Björgvin Bollason segir að soðin ýsa með hömsum og rjómaskyr sé uppáhaldsmaturinn.
íslenskur
kúakokkteill
í uppáhaldi
- segir Arthúr Björgvin Bollason dagskrárgeröarmaður
- Arthúr Björgvin Bollason, dag-
skrárgerðarmaður hjá útvarpi og
sjónvarpi, hefur getiö sér gott orð
fyrir menningarþætti sína. Arthúr
Björgvin varð fyrst frægur sem
fréttaritari útvarps í V-Þýskalandi
en þangað fer hann aftur í vor og
tekur upp fyrra starf. Arthúr
Björgvin sagðist kunna vel við sig
í þessu nýja starfi enda ynni hann
með frábæru starfsfólki. J>á er
hann hrifinn af tvífara sínum sem
birtist iðulega hjá þeim félögum á
Stöðinni á laugardagskvöldum.
„Við hittumst oft hér hjá sjón-
varpinu og röbbum saman,“ sagði
• Arthúr Björgvin. Það er menning-
arfrömuðurinn sem sýnir hina
hliðina aö þessu sinni:
Fullt nafn: Arthúr Björgvin Bolla-
son.
Fæðingardagur og ár: 16. 9. 1950.
Maki: Katharina Haasis.
Böm: Einn sonur, Ýmir Björgvin,
16 ára.
Bifreið: Engin sem stendur.
Starf: Dagskrárgerðarmaöur.
Laun: Þolanleg.
Áhugamál: Bóklestur, tónlist og
sund.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur i lottóinu? Ég hef aldrei spilað
í happdrættum.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera? Ég hugsa að það sé að eiga
náðugar stundir með eiginkon-
unni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Skræla kartöflur.
Uppáhaldsmatur: Það er soðin ýsa
með hömsum og rjómaskyr í eftir-
rétt.
Uppáhaldsdrykkur: íslenskur kúa-
kokkteill - mjólk.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati: Ég
held alltaf mikið upp á Ásgeir Sig-
urvinsson.
Uppáhaldstímarit: Það er Der Spie-
gel.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Gudrun Landgrebe sem leikur í
Bastöröunum sem veriö er að sýna
í Sjónvarpinu um þessar mundir.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Ég hef enga skoðun á
því.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Eg myndi gjarnan vilja hitta
Heine.
Uppáhaldsleikari: Tvimælalaust
Pálmi Gestseon.
Uppáhaldsleikkona: Elva Ósk Ól-
afsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Leonard Co-
hen.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Þaö
er Willy Brandt.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Fred Flintstone.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Klúbbur2
i austurríska sjónvarpinu og Stöð
’90.
Ertu hiynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Frekar
andvígur.
Hver útvarpsrásanna fmnst þér
best? Rás eitt og tvö eru báðar jafn-
góöar.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Þaö er
erfitt að svara því annars finnst
mér Pétur Pétursson hafa góða
rödd.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég hef aðeins einu sinni
séö Stöð 2 en tæknjlegar orsakir
hafa valdið því að ég finn ekki Stöð-
ina á tækinu mínu.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég get
ekki gert upp á milli félaga minna
hér hjá Sjónvarpinu.
Uppáhaldsskemmtistaður: Stofa
hjá ónefndum vinimínum í austur-
bænum.
Uppáhaidsfélag í íþróttum? Nátt-
úrulega Valur, ég er gamall Vals-
ari.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Já, aö standa mig bet-
ur í því sem ég er að gera.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu eða
ætlar að gera næsta sumar? Ég hef
ekki tekiö sumarfrí í tíu ár en ætla
að reyna að skreppa tíl Samóaeyj-
anna með sænskum tengdaforeldr-
ummínum. -ELÁ