Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990. 11 Jesus frá Montreal Það hefur lítið farið fyrir kanadískri kvikmynda- gerð á undanförnum árum. Þó hafa komið fram efnilegirleikstjórareinsog David Cronenberg, sem sýndi á sér nýjar hliðar í myndinni Dead Ringers, en Cronenberg hefur aðallega verið þekktur fyrir hryllingsmyndir á borð við Scann- ers og The Dead Zone. Það vakti því bæði ánægju og gleði þegar nýjasta mynd Denys Arcand, sem ber nafnið Jesús frá Montreal, hlaut sérstök heiðursverðlaun dómnefndará kvik- myndahátíðinni í Cannes í fyrra. Denys Archand er einn af þeim fáu kanadísku leikstjórum sem hafa gert kvikmyndir sem hafa hlotið mikið lof fyrir hstræna út- færslu jafnframt því að ganga vel jafnt í Kanada sem erlendis. Marg- ar kanadískar myndir ganga vel í sínu fylki en með THE DECLINE OF THE AMERICAN EMPIRE, sem tekin var í Quebec, sýndi Arc- hand fram á hæfileika sína sem kvikmyndagerðarmaður á heims- mælikvarða. Myndin var vel leikin, bráðfyndin á köflum, alltaf áhuga- verð og spennandi ásamt því að ná fram háðskri ádeilu á menningu okkar. Frægð Denys Archand er enginn ný- græðingur í kvikmyndum því að hann hefur verið að gera kvik- myndir og vinna við sjónvarps- þætti síðan 1962. THE DECLINE OF THE AMERICAN EMPIRE gerði hann heimsfrægan á einni nóttu og nú er hann einn eftirsótt- asti leikstjóri Kanadabúa ásamt því að vera sá aðili sem flestir beina augum sínum að til að halda á lofti kvikmyndagerö í Kanada. Ekki minnkaði álit samlanda Archand á honum þegar hann hlaut síðan verðlaunin í Cannes í fyrra fyrir JESÚS FRÁ MONTREAL. En um hvað er þá þessi mynd sem kennir sig viö Jesús? Myndin íjallar um Daniel Colombe, ungan og hæfileikaríkan leikara, sem er ráðinn af presti í Montreal til að setja á svið leikrit um trúarlegt efni. Þetta er árlegur viðburður og er leikritið alltaf flutt á fjallstoppi rétt utan við Montreal. Colombe, sem er nýkominn frá Indlandi, fær einnig það erfiða hlutskipti að leika hlutverk Jesús. Hann fær síðan til liðs viö sig fjóra aðra leikara til að fara með hin ýmsu hlutverk í leikritinu. Tvöfeldni Leikararnir koma víða að. Við kynnumst Constance sem vinnur við eldamennsku. Hún er einstæð móðir, hjákona prestsins, hefur áöur tekið þátt í þessum trúarlegu sýningum og er því öllum hnútum kunnug. Síðan eru það Martin og Tony, sem lesa inn raddir á mynd- bönd með vafasömu efni, og svo Mireille sem er fyrirsæta. Þegar æfingar hefjast tekur leikritið á sig nýjan blæ vegna nýrra hugmynda og breytinga á handriti sem allur hópurinn stendur saman aö. Eftir fyrstu sýningu er sýnilegt að leikritið á eftir að verða mjög vinsælt. Ekki minnka vinsældirnar við það að presturinn, sem réð Colombe upphaflega til að leikstýra verkinu, er ekki ánægður með breytingamar og uppfærsluna og gerir þetta að blaöamáli. Hann tel- ur Colombe hafa bætt inn efni um Jesús sem kirkjan kannast ekki við. Mireille, sem er orðin ástmey Colombe, er ung og falleg frönsk stúlka sem hefur ekki náð lengra á framabrautinni en aðleika í nokkr- um sjónvarpsauglýsingum. Hún er nýlega skihn við kærastann sem hafði mestan áhuga á líkama henn- ar sem hann taldi hennar dýrmæt- ustu eign. Umskipti En þar kemur að Colombe finnst ekki nóg að leika Jesús á sviði. Hann er farinn að taka hlutverkiö of alvarlega. Dag nokkurn fer Colombe með Mireille til reynslu- upptöku á sjónvarpsauglýsingu. í einu atriði myndarinnar er þess krafist að hún komin nakin fram. Colombe bregst reiður við og þegar hann er beðinn um að yfirgefa upp- tökusalinn gengur hann berserks- gang og brýtur allt og bramblar til að sýna vanþóknun sína. Þetta end- ar með því aö hann er handtekinn en sleppt skömmu síðar. Þegar Colombe ætlar að taka aftur við stjórn leikritsins kemst hann að því að presturinn er búinn að breyta ýmsum efnisatriðum. Leikararnir eru ekki hressir með breytingarnar svo að presturinn neyðist til að af- lýsa sýningunni. Leikararnir eru ekki heldur ánægðir með þá lausn og ákveða að hafa enn eina sýn- ingu. Þegar lögreglar kemur síðar til að stöðva sýninguna slasast Colombe alvarlega og er farið með hann á sjúkrahús. Hann vill sem minnst gera úr meiðslunum og yfirgefur sjúkrahúsið en á leiðinni heim byrjar hann að tala líkt og spámaður sem endar með því að hann fellur niður. Þegar komið er aftur meö hann á sjúkrahúsið er hann í dái og þar komast læknarn- ir að þeirri niðurstöðu að hann vakni aldrei til meðvitundar aftur. En lífið gengur sinn vanagang. Constance ákveður að gefa lækna- vísindunum líffæri Colombe og þeir leikarar sem eftir eru af hópn- um sýna áhuga á að setja á fót fyrir- tæki til leiksýninga í naífni Daniels. Eins og sjá má á þessum efnis- þræði má líkja saman mörgu því sem gerist í lífi Colombe við at- burðina úr Bibhunni. Það má segja Kvikmyndir Umsjón: Baldur Hjaltason að Colombe hafi bæði verið kross- festur og gengið í gegnum uþpris- una á sinn máta. Hins vegar er rétt aö eftirláta veröandi áhorfendum aö túlka þessa mynd hver á sinn máta og lesa það út úr henni sem hver og einn vill og getur. Bakgrunnur í nýlegu viðtali við Monthly Film Bulletin segir Archand frá því hvers vegna hann réðst í gerð JES- Hér er leikhópurinn að störfum Það er Lothaire Bluteau sem fer með hlutverk Jesús US FRÁ MONTREAL. „Það sem kom þessu af stað var leikari sem hafði látið sér vaxa skegg vegna reynsluupptöku annarrar myndar. Hann sagði við mig: „Þú verður að afsaka þetta skegg en það er vegna þess að ég er Jesús.“ í fyrstu hélt ég að maðurinn væri annað hvort stórskrítinn eöa til- heyrði einhverjum sértrúarsöfn- uði. En síðar kom hið rétta í ljós, að hann hafði verið ráðinn til að leika Jesús í trúarlegu leikriti. Þetta eru yfirleitt verkefni sem leikurum finnast lítið spennandi og oft fengnir utanaðkomandi leik- arar í þessi hlutverk. Biblían er mjög gömul og að mörgu leyti dularfull bók. Hún hef- ur einnig að geyma margar and- Atriði úr leikritinu. stæður sem má nota að eigin geð- þótta. Fólk hefur svo oft notað Bibl- íuna til að réttlæta svo marga hluti. Þú getur sagst vera fylgisveinn Jes- ús en framkvæmt samtímis hroða- lega ljóta hluti. Heilu menningar- svæðin hafa verið lögð í rúst eins og gerðist hjá indíánum Norður- Ameríku eða Inkunum í S-Amer- íku, allt í nafni Jesús. Það er þetta sem ég vildi meðal annars að kæmi fram í JESÚS FRÁ MONTREAL." Umdeild mynd Eins og alltaf þegar kvikmyndir fjalla um eins viðkvæmt efni og trúmál er gefið að sitt sýnist hverj- um. Á kvikmyndahátiðinni í Cann- es voru alltaf nokkrir sem löbbuðu út af sýningum og kærðu sig ekki um að sjá myndina til enda. Hins vegar virtust flestir hrifnir af myndinni og hefur hún verið sýnd á fjölda kvikmyndahátíða víða um heim. Ekki nóg með þaö, líeldur hefur JESÚS FRÁ MONTREAL verið tekin til almennra sýninga í Bretlandi og náði þar svo miklum vinsældum að hún var meðal 10 vinsælustu kvikmyndanna í jan- úarmánuði. En nokkur orð um Archand, sem var fæddur í Deschambault í Qu- ebec 1941 og nam sögu viö Háskól- ann í Montreal. Arcand fann fljót- lega að það átti ekki við hann að verða söguprófessor svo að hann leitaöi sér vinnu við kvikmynda- stofnun Kanada á sumrin sem handritahöfundur að stuttum myndum um sögu Kanada. Síðan kom framhaldið nokkurn veginn af sjálfu sér. Archand hóf kvik- myndaleikstjórn skömmu síðar og á nú að baki mjög árangursríkan feril sem kvikmyndagerðarmaður. Eitt af fyrstu handritunum sem hann skrifaði var frumraun Genevieve Bujold sem bar heitið ENTRE LA MER ET LEAU DOUCE sem Michel Brault leikstýrði. Af öðrum verkum hans má nefna heimildarmyndina ON EST AU COTON sem var bönnuö af kvik- myndayfirvöldum í Kanada. Bann- ið dró athygli almennings og fjöl- miðla að myndinni og fékk Arc- hand því góða auglýsingu. Miðað við það sem búið er að telja upp er ekkert óeðlilegt að margir kalli Arcand faðir nýbylgjunnar í kana- dískri kvikmyndagerð sem nú virð- ist hafin í Kanada. B.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.