Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1990, Síða 25
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1990.
'
3S
Það þarf bæði mikla krafta og þolinmæði til að fara i gegnum
allt þetta hár. Svava Haraldsdóttir er með hár niður fyrir mitti
en Margrét Sigurðardóttir tók málið „föstum tökum“.
garðinnþarsem
hann er lægstur því
að það var starfsfólk
Sólveigar Leifsdótt-
ur á hárgreiðslustof-
unum í Suðurveri og
í Grímsbæ sem lögðu
stúlkunum lið. Förð-
unarmeistarinn var
Margrét Benedikts-
dóttirenhúnerný-
kominúrnámifrá
París og á án efa eftir
aðhasla sérvöllhér
á landi. Margrét tók
aðséraðfarða
hármódelfyrirSól-
veigufyrirstuttu
sem vöktu mikla at-
hygli. Þaðerþví
sannarlega fagfólk
semhérhefurlagt
höndáplógeinsog
sjámá.
-ELA
Margrét Benediktsdóttir förðunarmeistari er nýkomin heim úr
námi frá París og hefur þegar sannað færni sína.
DV-myndir KAE
Tinna Jónsdóttir:
Áhugi á samkvæmisdönsum
Svava Haraldsdóttir:
Hef gaman af flakki
Tinna Jónsdóttir er fædd 9. mars 1971 og er því rétt að verða
nítján ára. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík, dóttir Jóns
H. Karlssonar, sem rekur Teppabúöina, og Erlu Valsdóttur.
Tinna, sem er ein af fimm systrum, segist að mestu hafa ahst
upp í Breiðholtinu eða frá fimm ára aldri.
Hún stundar nám í Menntaskólanum við Sund þar sem hún
er á þriðja ári. Hún segist hafa hug á að læra hjúkruna-
rfræði við Háskóla íslands eftir stúdentspróf. Á sumrin hefur
Tinna starfað við skrifstofustörf hjá Bananasölunni en segist
ætla að breyta til næsta sumar og fara frekar í útivinnu,
malbik eða annað slík.
Áhugamál hennar eru margvísleg; skíðaíþróttih, en hún
segist stunda hana nokkuð, tónlist og dans. „Ég var í jass-
ballett í ijögur ár og hafði mjög gaman af en er hætt núna,“
segir hún. Tinna segist hlusta á alla tónhst en þó mest á nýj-
ustu lögin. „Svo fmnst mér æðislega gaman að fara út meö
vinum mínum og skemmta mér um helgar og þá helst í Casa-
blanca."
Síðastliðið sumar fór Tinna ásamt átta vinum sínum til ítal-
íu þar sem hún segir að hafi verið alveg frábært strandlíf. í
vetur stundar hún líkamsrækt hjá Dansstúdíói Sóleyjar.
Tinna er auk þess í samkvæmisdönsum en hún og vinkona
hennar hafa mikinn áhuga á þeim dönsum. „Við fórum bara
til að prófa en þetta er mjög skemmtilegt og ég held að það
sé að vakna mikill áhugi á samkvæmisdönsum aftur,“ segir
hún.
Tinna hefur verið hármódel hjá hárgreiðslufólki Dúdda á
Suðurlandsbrautinni á sýningum en hún hefur ekki tekið
þátt í tískusýningum. Hún segir að það sé eitthvað sem heilli
hana við fyrirsætustörf og þess vegna hafi hún sent inn mynd
af sér í Ford-keppnina. „Mér fannst aht í lagi að prófa,“ segir
hún.
Tinna Jónsdóttir er nemandi í Menntaskólanum við Sund.
Svava Haraldsdóttir er fædd 10. október 1972 og er því sautj-
án ára. Hún er fædd og uppalin í Keflavík en flutti til Reykja-
víkur átta ára gömul. Svava stundar nú nám í Menntaskólan-
um við Hamrahhö á fyrsta ári. Á síðasta ári bjó hún í Banda-
ríkjunum, Rhode Island, hjá íöður sínum, Haraldi Skarphéð-
inssyni, og stjúpmóður sinni. Móðir hennar, Hafrún Alberts-
dóttir, býr í Keflavík en Svava býr nú hjá vinkonu sinni í
Reykjavík.
Svava segist nokkuð hcifa flakkað á milli Reykjavíkur og
Keflavíkur auk þess að búa í Bandaríkjunum. Hún segist
kunna ágætlega við þetta flakk. „Alltaf gaman að breyta tH,“
segir hún. Svava segir framtíðina óráðna og ekki neitt sérs-
takt á óskalistanum. Hún hefur áhuga á ferðalögum og hefur
ferðast nokkuð um Norðurlöndin.
Svava stpndar líkamsrækt hjá Katý í World Class, hún fer
oft á skíði „þó ég sé enginn snillingur."
Þá hefur hún tekið þátt í námskeiðum hjá Módelsamtökun-
um og verið með í tískusýningu hjá þeim.
Svava sendi inn mynd í Fordkeppnina vegna áhuga á starfi
fyrirsætunnar. „Ég gæti mjög vel hugsað mér að prófa þetta
starf í einhvern tíma,“ segir hún.
Svava lætur sér ekki nægja að vera i fullu námi heldur starf-
ar hún með skólanum í býtibúri Landsspítalans í vetur þar
sem hún tekur vaktir. Sl. sumar vann hún við garðyrkju hjá
kirkjugörðunum. Næsta sumar hefur hún hins vegar ákveðið
að fara aftur til Bandaríkjanna og dvelja hjá föður sínum.
Svava hefur safnað hári frá átta ára aldri og hefur náð því
langt niður fyrir mitti enda reyndist þaö mikið starf fyrir
hárgreiðslumeistara hjá Sólveigu að greiða niður úr hári
hennar.
Svavaer 173smáhæð. -ELA
Svava Haraldsdóttir stundar nám í Menntaskólanum við
Hamrahlíð á fyrsta ári. DV-mynd KAE
Rut Stephens hefur það starf með höndum að sjá um aldrað-
an mann í Reykjavik. DV-mynd KAE
Rut Stephens:
Sér um aldraðan mann
Rut Stephens er fædd í Reykjavík 19. ágúst 1967 og er því
tuttugu og tveggja ára. Hún ólst upp í Saurbæ í Dalasýslu
hjá uppeldisforeldrum, Hildi Eggertsdóttur, sem er látin, og
Kristni Steingrímssyni. Móðir Rutar er María Lovísa Jack,
dóttir séra Róberts Jack sem er nýlátinn.
Rut hætti námi eftir grunnskóla. Hún starfar við heimilisað-
stoð í Reykjavík, hefur það starf með höndum að sjá um aldr-
aðan mann á einkaheimili. „Hann getur ekkert gert sjálfur
þannig að ég þríf fyrir hann, elda og sé um hann áð öðru
leyti,“ segir Rut. Hún hefur áður starfað á barnaheimili og
dvalarheimili fyrir aldraða þannig að hún hefur bæði kynnst
ungum sem öldnum vel. Samt segist hún engan áhuga hafa
á að læra hjúkrun. „Það er voðalega skrítið en einhvern veg-
inn hefur mig aldrei langað til þess,“ segir hún. Rut segist
kunna vel við sig í þessu starfl en gæti alveg hugsað sér að
reyna fyrir sér sem fyrirsæta.
Sambýlismaður Rutar er Jón Stefánsson pizzugerðarmaður
en hann rekur pizzustaðina Jón Bakan. Rut hefur stundað
frjálsar íþróttir frá barnsaldri og þær eru hennar mesta
áhugamál. Þá finnst henni gaman að ferðast um ísland og
hefur gert talsvert að því. Skíðaíþróttin heillar hana eins og
flesta aðra.
Rut hefur sýnt á tískusýningum fyrir verslanir í Reykjavík
þegar hún hefur verið beðin um það. „Mig hefur alltaf langað
í fyrirsætustörf en aldrei þorað út í það fyrr en nú að ég lét
verða af því að senda mynd af mér í Ford-keppnina,“ segir
hún.
Móðir Rutar býr í Svíþjóð og segist oft fara þangað út að
heimsækja hana en að öðru leyti hefur hún látið sér nægja
aö ferðast innanlands. Hún segist vera tilbúin að fara út í
heim núefhúnfengisamning. _FIA