Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 3
FlMMTtDAfiUR'fÍ. ííl'ARS 1990. Fréttir Ræðst staðsetning álvers 1 næstu viku? Valið er á milli Eyja- fjarðar og Straumsvíkur - Eyj afl arðarsvæðið hefur sigið á að undanfórnu Forstjórar álfyrirtækjanna þriggja, Alumax, Gránges og Ho- ogovens, koma hingað til lands í byrjun næstu viku til að athuga staðsetningu nýs álvers og skrifa undir yfirlýsingu um samstarf. Munu þeir skoða land í Eyjafirði og þar að auki er ætlunin að fara til Reyðarfjarðar. Auk þess beinist athyghn að Reykjanesi, nánar til- tekiö Straumsvík. Samkvæmt upplýsingum DV stendur nú valið fyrst og fremst á milli Straumsvíkur og Eyjaíjarðar. Mun til dæmis vera algerlega úr myndinni að setja álver í Þorláks- höfn og þá er ekki mikill áhugi á Reyðarfirði. Eyjafjarðarsvæðið mun hafa ver- ið að síga á að undanförnu og þá sérstaklega vegna byggðasjónar- miða. Nokkru dýrara verður að hafa álver þar en fyrirtækin þrjú munu sjá ýmsa vankanta á því að hafa álver við hhðina á ísal. Er til dæmis nefnt að það geti verið erfitt að finna sökudólg ef einhver um- hverfisspjöll koma upp þegar tvö álver standa hlið við hhð. Það má telja víst að nýtt álver verði alltaf eitthvað upp á þjónustu ísals kom- ið. Þá er því haldið fram að ekkert dýrara sé að flytja raforku th Eyja- fjarðarsvæðisins en samkvæmt samþykktri virkjanaröð á að ráðast í Fljótsdalsvirkjun næst. Er tahð mikilvægt að undirbúningur fram- kvæmda þar geti hafist í sumar. Þess má geta að gert er ráð fyrir að grafin verði jarðgöng fyrir aust- an en það flýtir framkvæmdum við virkjunina frá því sem áður var áætlað. Það eru forstjórar Alumax sem koma til með aö ráða mestu varð- andi staðsetningu álversins enda er hugmyndin að þeir séu stærsti eignaraðilinn, auk þess sem þeir sjái um uppsetningu og rekstur verksmiðjunnar. Þeir munu ekki vera mjög áhugasamir um að hafa verksmiöjuna í Straumsvík -SMJ Þá hafa þessir tveir hitaveitutankar í Öskjuhlíð lokið hlutverki sínu eftir áratugalanga þjónustu fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Smám saman verður klæðningunni flett af þeim og að lokum verður ekkert eftir. Nýir tankar standa nú á gamla staðnum en þó er ekki allt sem fyrr þar sem ofan á þeim er hálfkúlan góða þar sem gestir geta notið útsýnisins yfir veitingum eftir rúmt ár. DV-mynd Brynjar Gauti Andri BA á leið frá Dutch Harbour til Vancouver: Sala á skipinu er einn möguleikinn - segir Haraldur Haraldsson „Við reynum nú allar hugsanlegar leiðir tíl að koma í veg fyrir að við töpum of miklu á útgerðinni. Það virðist útséö um að við fáum þann fisk til vinnslu um borð sem við vild- um þannig að sala á skipinu er einn af þeim möguleikum sem til greina koma,“ sagði Haraldur Haraldsson, stjórnarformaður útgerðar Andra BA, í samtali við DV. Vinnslu á kola um borð í Andra BA hefur nú verið hætt eftir nokk- urra vikna vinnu. Útgerðin hefur ákveðið að láta sigla skipinu til Van- couver í Kanada og leggja því þar í bih. Skipið er þegar lagt af stað frá Dutch Harbour þar sem það hefur legið frá því um jól. Siglingin milli staða tekur tíu daga. Heimildir til veiða á kola viö Al- aska voru afturkallaðar vegna þess að of mikið slæddist með af aukaafla við kolaveiðarnar. Enginn afli berst því lengur frá skipum heimamanna til vinslu um borð í Andra BA. „Þetta voru smámunir sem unnið var af kolanum. Við vorum fyrst og fremst að prófa tækin og það er ekki annað að sjá en allt sé í lagi. Kolinn var hins vegar ekki sá afli sem við vorum að sækjast eftir,“ sagði Har- aldur. Allt er óvíst um hvað bíður Andra BA í Vancouver. Ráðningartími nokkurra manna í áhöfninni er að renna út en Haraldur vildi ekkert segja um hvort samningar við þá menn yrðu endurnýjaöir. -GK Biskup íslands um hina nýstofnuðu Fjölskylduvemd: Ætla að leggja þeim lið Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, hefur ákveðið að leggja lið nýstofnuðum samtökum sem nefnast Fjölskylduvernd. Eins og fram hefur komið í DV á síðastliðnum vikum er markmið samtakanna að hjálpa fjöl- skyldum sem hafa á ýmsan hátt lent í deilum við barnaverndaryfirvöld vegna barna sinna. Ólafur segist ekki ætla að beita sér gegn barnaverndar- yfirvöldum á einn eða annan hátt - en hann vhl veita hlutaðeigandi íjöl- skyldum og börnum alhliða stuðn- ing. „Ég ætla að ljá samtökunum það lið sem ég get. Markmið þeirra er göfugt og gott. Ég mun reyna að hlúa að þeim sem ganga fram fyrir skjöldu til að koma börnum áfram og gera þau að nýtum þjóðfélagsþegnum. Þeim sem bera kvíðboga fyrir upp- eldi barna sinna mun ég vinna að því að hjálpa," sagði Ólafur í samtah við DV. Biskupinn verður viðstaddur næsta fund samtakanna sem haldinn veröur þann 17. mars í safnaðar- heimili Langholtssóknar klukkan 16.00. Um áttatíu manns eru þegar skráð hjá samtökunum. -ÓTT Rúmin frá Kaliforníu eru nú komin aftur í 5 gerðum og tveimur litum - Ijósum og dökkum. Margir hafa beðið lengi eftir þessum rúmum og nú er best að koma strax því magnið er ekki mikið sem við fengum og tveir mánuðir þar til næsta sending kemur. M REGENTMÖBEL Bíldshöfða 20 Sími 68-11-99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.