Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Side 26
34 FIMMTUDAGUR 8. MARS 1990. Afmæli Ingi Þorsteinsson Ingi Þorsteinsson, forstjóri og aðal- ræðismaður íslands í Kenýa, varð sextugur24.2. sl. Ingi fæddist í Reykjavík og ólst þar upp að undanskildum tveimur árum sem foreldrar hans bjuggu á Flateyri og einu í Hafnarfirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MA1952, viö- skiptafræðiprófi frá HÍ1957 og stundaði tæknifræðinám í meðferð vefnaðarvéla og í framleiðslutækni gerviþráða 1962-65 og 1969-70. Ingi var framkvæmdastjóri og meðeigandi Everest Trading Comp- any í Reykjavík 1954-63, fram- kvæmdastjóri sokkaverksmiðjunn- ar Evu á Akranesi 1964-68, tækni- legur ráðunautur Samverks hf. á Sauðárkróki 1968-69, tækniþjón- ustustjóri og útflutningsstjóri hjá Klinger Manufacturing Co. Ltd. Machine Division í London 1969-70, framkvæmdastjóri National Textile Industries Corporation Ltd., Dar es Salaam í Tanzaníu 1970-75, fram- kvæmdastóri, stjórnarformaður og meðeigandi í Ramthor Textile Corp., Int. Ltd., Port Louis í Mauritius 1976-79, forstjóri og meðeigandi í Jenithor Textiles Industries Ltd., í Nairobi í Kenýa 1979-83, stjórnar- formaður í Scania Bottlers Ltd. í Kampala í Uganda og í Patco í Kampala í Uganda, stjórnarformað- ur Econex International of Uganda Ltd. og Uganda Footwear & Synt- hetic Ltd. frá 1982, meðeigandi hjá OTC Aussenhandels GmbH & Co KG, Bremen frá 1975, svæðisstjóri fyrirtækisins í Nairobi í Kenýa frá 1980, framkvæmdastjóri PATH á ís- landi hf. frá 1988 og stjórnarformað- ur í Temiðstöðinni hf. í Reykjavík frá 1988. Ingi var ræðismaður íslands í Nairobi í Kenýa frá 1980 og aðalræð- ismaður íslands í Kenýa frá 1986. Hann sat í stjórn Tan-Nordic Assoc- iation 1971-75 og formaður 1972-73. Ingi var þekktur frjálsíþróttamað- ur hér á landi á árum áður. Hann var landsliðsmaður í frjálsum íþróttum, þátttakandi á ólymþíu- leikum fyrir íslands hönd og met- hafi í grindahlaupi. Ingi sat í stjórn Frjálsíþróttasambands íslands 1961- 66 og formaður þar 1962-66, í stjórn ólympíunefndar íslands 1962- 66 og fulltrúi íslands í Alþjóða- frjálsíþróttasambandinu IAAF 1961-66. Ingi var sæmdur gullmerki Frjáls- íþróttasambands íslands 1964, er fellow of British Institute of Mana- gement frá 1973 og member of the Institute of Marketing frá 1973. Ingi kvæntist 6.9.1955, Fjólu Guð- rúnu Þorvaldsdóttur húsmóður, f. 1.11.1931, dóttur Þorvalds Þórarins- sonar, skrifstofumanns á Blönduósi og síðar bókara í Reykjavík, f. 16.11. 1899, d. 2.11.1981, og Ólafar Bjargar Guðjónsdóttur, húsfreyju í Reykja- vík, f. 29.9.1911, d. 14.2.1986. Maður Ólafar var Jón Bjarni Helgason, kaupmaður í Reykjavík, f. 14.10. 1893, d. 20.8.1984. Sonur Inga og Fjólu er Þorsteinn Skúli, tölvunarfræöingur í Reykja- vík. Foreldrar Inga: Þorsteinn T. Þór- arinsson, f. 15.5.1907, d. 20.4.1981, vélfræðingur í Reykjavík, og eftirlif- andi kona hans, Þóra Guðrún Ein- arsdóttir, f. 20.7.1909, húsfreyja í Reykjavík. Systir Þorsteins var Petrína, föð- uramma Herberts Guðmundssonar söngvara. Önnur systir Þorsteins var Ásta, sem var kona Víglundar Möller, skrifstofustjóra Sjúkrasam- lags Reykjavíkur og formanns Guð- spekifélagsins. Bróðir Þorsteins var Olafur, bakarameistari í Þingholts- stræti í Reykjavík. Þorsteinn var sonur Þórarins „á Melnum“, verka- manns hjá Eimskip í áratugi Jóns- sonar, b. á Fossi á Barðaströnd, Helgasonar, b. á Skjaldvararfossi, Sæmundssonar. Móöir Jóns var RagnhildurEinarsdóttir. Móðir Þórarins var Ástríður Jónsdóttir. Móðir Þorsteins var Ingifríð Pét- ursdóttir, sjómanns í Bakkakoti i Reykjavík, Ingjaldssonar, og Sigríð- ar Auðunsdóttur frá Stóra-Seli í Reykjavík. Foreldrar Þóru voru Einar Ólafs- son, b. á Fremra-Hálsi í Kjós, og kona hans, Jóhanna Þorsteinsdótt- ir, húsfreyja á Fremra-Hálsi, siöar í Viðey ogReykjavík, Foreldrar Jó- hönnu voru Þorsteinn Ásbjörnsson, b. á Bjarnastöðum í Selvogi, og Kristín Ólafsdóttir, b. á Kirkjubóli á Akranesi, Ólafssonar. Foreldrar Einars voru Ólafur Jónsson, b. í Skrauthólum og Salt- vík á Kjalarnesi, og kona hans, Gróa, systir Þorláks í Varmadal, langafa Kára Jónassonar, frétta- stjóra RÚV, og systranna Sigríðar myndhstamanns, konu Leifs Breið- fjörð, og Maríu, skrifstofustjóra heimspekideildar HÍ, konu Sigurðar Líndal prófessors. Gróa var dóttir Jóns, b. í Varmadal í Mosfellssveit, Jónssonar, b. á Gafli í Villingaholts- Ingi Þorsteinsson. hreppi, Ólafssonar, b. á Mýrum í Flóa, Jónssonar, prests í Villinga- holti, Gíslasonar. Móðir Ólafs var Kristín Ásmundsdóttir, b. á Tungu- felh, Guðnasonar, bróður Sigurðar, afa Sigurðar, langafa Tómasar Sæ- mundssonar Fjölnismanns og Jóns Sigurðssonar forseta. Móðir Jóns á Gafli var Guðrún Brynjólfsdóttir, systir Jóns, prests á Eiðum, langafa Sigfúsar, föður Guðrúnar, ættmóð- ur Gunnhhdargerðisættarinnar, langömmu Péturs Einarssonar flug- málastjóra. Ingi dvelur erlendis um þessar mundir. Til hamingju með afmælið 80 ára Rögnvaldur Dagbjartsson, Syðri-Vík, Kírkjubæjarhreppi. 75 ára IngibjörgJósefsdóttir, Ketilsbraut 11, Húsavík. Rósa Björnsdóttir, Sunnubraut 12, Akranesi. 70ára Sigfríður Runólfsdóttir, Heiöarvegi 66, Vestmannaeyjum. 60ára Aðalbjörg Jónsdóttir, Litlu-Reykjum, Reykjahreppi. Rakel Guðmundsdóttir, Heinabergi 6, Þorlákshöfn. 40ára Björn Ingi Jósefsson, Skipholti 45, Reykjavík. Hrafnhildur Bjarnadóttir, Álakvísl31, Reykjavik. Jón Sigurðsson, Garði I, Kelduneshreppi. Sigurður Kjartansson, Furugrund 56, Kópavogi. Svana Símonardóttir, Skeiðarvogi 147, Reykjavík. Svanhildur Jóhannesdóttir, Ljósheimum 8, Reykjavík. Torfi Steinsson, Stóra-Krossholti, Baröastrandar- hreppi. ValdimarBjörgvinsson, Laugarbraut 15, Akranesi. Elín Esmat Paimani Elín Esmat Paimani, húsmóðir og aðstoðarkona á tannlæknastofu, Raftahlíð 77 á Sauöárkróki, varð fimmtug á þriðjudaginn. Elín er fædd í Neyríz í íran og ólst upp þar og síðar í Shíras þar í landi. Hún tók gagnfræðapróf í heima- landi sínu og hugði á kennaranám en fékk það ekki af trúarástæðum. Eftir það vann hún á sjúkrahúsi og síðar á skrifstofu hjá NIOC, íranska olíufélaginu. Elín kom til íslands árið 1975 og gerðist aðstoðarkona á tannlækna- stofu verðandi eiginmanns síns. Hún hefur haldið því starfi áfram eftir giftinguna nær óslitið. Hún fékk íslenskan ríkisborgararétt í janúar árið 1988 og fékk um leið Ehnar-nafnið. Áður hét hún aðeins Esmat Paimani. Elín Esmat er nú stödd í íran í einkaerindum. Elín á tvo bræður og sjö systur á lífi en ein systranna er látin. Það var tvíburasystirin Effat sem dó á fyrsta aldursári. Hin systkinin búa öh í íran nema systirin Mahin sem býr í Aþenu í Grikklapdi. Foreldrar Ehnar voru Fazlollah Elin Esmat Paimani. Paimani kaupmaður, sem nú er lát- inn, og Norsat Paimani húsmóðir. Elín giftist 9. desember árið 1975 Baldri Bárði Bragasyni tannlækni, fæddum 18. júní árið 1939. Baldur er sonur Sigurbjargar Lárusdóttur og Braga Matthíasar Steingríms- sonar, dýralæknis á EgUsstöðum og síðar í Laugarási í Biskupstungum. Elín og Baldur eiga einn son. Það er Robert Badí Baldursson, fæddur 16. september 1976. Þorsteinn Einarsson Þorsteinn Einarsson bakari, Hlíf, Torfunesi á ísafirði, er áttatíu ára í dag. Þorsteinn er fæddur á Eyri í Skötufirði og þar ólst hann upp til 12 ára aldurs er hann flutti til Hafn- arfjarðar með foreldrum sínum. Þar bjó hann í sex ár, en 18 ára gamall flutti hann til ísafjarðar þar sem hann hefur búið síðan. Þorsteinn lauk barnaskólanámi og nam við Iðnskólann á ísafirði. Hann fékk iðnréttindi sem bakari áriö 1932 og meistarbréf 1934. Á árunum 1928-77 vann hann hjá Bökunarfélagi ís- firðinga, en starfaði í íshúsi næstu fjögurárinþaráeftir. Þorsteinn kvæntistþann 12.3.1932 , Soffíu Karlsdóttur Löve húsmóður, f. 27.10.1907. Foreldrar hennar voru Karl Löve, skipstjóri ogfiskimaður á ísarfirði, og Agnes Jónsdóttir. Þorsteinn og Soffía eignuðust þrjú börn, en tvö dóu, annað í æsku en hitt um tvítugt. Á lífi er Einar Hjört- ur, f. 7.7.1935, vélvirki, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Sigríði Gunn- arsdóttur bankastarfsmanni, og eiga þau fjögur börn: Þorstein, Bald- vin, Guðrúnu Agnesi og Una Þór. Systkini Þorsteins: Karítas, f. 6.6. 1899, látin, húsmóðir í Reykjavík, var gift Sigurði Björnssyni, stór- kaupmanni og konsúl; Kristján Jón, f. 27.3.1902, d. 28.7.1946, hafði síldar- söltun á Húsavík, var kvæntur Þór- unni Kristrúnu Elíasdóttur; Margr- ét, f. 20.6.1906, d. 15.10.1938, hús- móðir í Reykjavík, var gift Birni Hjaltested; Einar, f. 15.6.1907, starfs- maður vélsmiðjunnar Kletts í Reykjavík, kvæntur Svövu Björns- dóttur; Unnur, f. 25.7.1908, látin, húsmóðir í Reykjavík, var gift Páli Jóhannessyni verslunarmanni; El- ín, f. 11.5.1911, d. 27.12.1953, hús- móðir í Reykjavík, var gift Tryggva Magnússyni, verslunarmanni og leikara; Baldvin, f. 22.2.1913, látinn, forstjóri Almennra trygginga í Reykjavík, var kvæntur Kristínu Pétursdóttur; Jóakim, f. 30.10.1914, látinn, starfsmaður Almennra trygginga; Karl, f. 12.12.1915, rekur verslunina Álfhól í Kópavogi, kvæntur Ólafiu Jóhannsdóttur. Foreldrar Þorsteins voru Einar Þorsteinsson, f. 15.8.1875, d. 27.2. 1955, b. á Eyri í Skötufirði og síðar í Hafnarfirði, og Sigrún Kristín Baldvinsdóttir, f. 1.6.1879, d. 9.3. 1943. Sigrún var systir Jóns, prentara, alþingisforseta og forseta Alþýðu- sambands íslands, og Hafliða, fisk- sala í Reykjavík. Einar var sonur Þorsteins, b. á Hrafnabjörgum í Ögursveit, Einars- sonar, Magnússonar. Móðir Einars Þorsteinssonar var Sara Benediktsdóttir, skutlara í Vatnsfirði ogb. í Strandseljum, Björnssonar, b. í Laugabóli, á Ögri og í Þernuvík, Sigurðssonar. Móðir Benedikts var Guðný Jóns- dóttir. Móðir Söru var Soffía Jak- obsdóttir, b. á Ósi í Bolungarvík. Sigrún, móðir Þorsteins, var dóttir Baldvins, b. í Strandseljum, Jóns- sonar, b. á Eyri og skutlara í Vatns- firði, Auðunssonar, prests á Stóru- völlum, Jónssonar. Móðir Jóns á Eyri var Sigríður Magnúsdóttir frá Indriðastöðum. Móðir Sigrúnar var Halldóra Sig- urðardóttir, b. í Hörgshlíð í Mjóa- firði vestra, Hafliðasonar, b. á Skarði og Borg, Guðmundssonar. Móðir Halldóru var Kristín Hall- dórsdóttir, b. í Hvítanesi og í Hörgs- hlíð, Halldórssonar, og Kristínar Hafliðadóttur, b. í Ármúla, Hafliða- sonar. Kári f sleifur Ingvarsson Kári ísleifur Ingvarsson húsasmíða- meistari, Grandavegi 47, Reykjavík, er75áraídag. Kári er fæddur í Framnesií Holta- hreppi í Rangárvallasýslu. Árið 1927 fór hann til Guðrúnar systur sinnar qg Þorsteins Runólfssonar að Markaskarði í Hvolhreppi. Þau voru þá að byrja búskap og þar átti hann sín æskuár. Kári vann við búskap sumar, vor og haust, en var við vertíðarstörf í Vestmannaeyjum á vetuma. Til Reykjavíkur flutti hann vorið 1939 og það sumar og sumarið 1940 var hann við vegavið- hald frá Ingólfsfjalli til Hveravaha. Árið 1941 byrjaði Kári svo að stunda húsasmíði, byriaði í námi í þeirri grein hjá Guðmundi Jóhannssyni en nam við Iðnskólann 1944—46. Hann fékk sveinsbréf 1948 og meist- arabréf 1951. Kári starfaði í iðn- greininni til 1979 er hann gerðist húsvörður hjá Pósti og síma í Múla- stöö til 1987. Kári stundaði nám við íþróttaskólann í Haukadal veturinn 1937-38 og tók þátt í ýmsum félags- málum. Hann var varaformaður Trésmiðafélags Reykjavíkur 1957-60. Kári kvæntist þann 14.10.1939 Margréti Stefánsdóttur, f. 13.8.1912. Foreldrar hennar voru Stefán Ey- jólfsson, b. á Kleifum í Gilsfirði, f. 2.8.1869, d. 12.2.1944, og kona hans, Anna Eggertsdóttir, f. 6.7.1874, d. 1.5.1924. Börn Kára og Margrétar eru: Katrín Sigríður, f. 30.6.1941, hús- móðir, gift Olveri Skúlasyni skip- stjóra í Grindavík, og eiga þau einn son og tvær dætur. Stefán Arnar, f. 30.6.1944, tækni- fræðingur, kvæntur Stefaníu Björk Karlsdóttur skrifstofustúlku, f. 21.8. 1940, og eiga þau einn son. Anna, f. 19.9.1950, kennari við Seljaskóla, gift Karsten Iversen tæknifræðingi, f. 11.7.1948, ogeiga þau tvo syni og eina dóttur. Tvo hálfbræður átti Kári af fyrra hjónabandi Ingvars: Jón, sem lengi var vegaverkstjóri á Selfossi, og Sig- urð, vörubílstjóra á Eyrarbakka. Foreldrar Kára voru Ingvar Pétur Jónsson, trésmiður og bóndi, f. 21.6. Kári ísleifur Ingvarsson. 1862, de. 31.3.1949, og Katrín Jósefs- dóttir frá Ásmundarstöðum í Holt- um, f. 23.5.1872, d. 23.10.1938. Ingvar var sonur Jóns Þorsteins- sonar, b. í Austvaðsholti í Land- sveit, og konu hans, Vigdísar Guð- mundsdóttur. Kári verður að heiman í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.