Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 10. MARS 1990. Fréttir dv Vakthafandi stýrimaður sofnaði þegar Höfrungur n. strandaði: Talaði í land hálf- tíma fyrir strand Ök á barn og stakk af Ekið var á fimm ára dreng við Nönnufell klukkan rúmlega sex síðdegis i gær og slasaðist hann á höiði. Ökumaöurinn stakk af og sást hann síðan keyra vestur Suðurfell. Bílnum er lýst sem rauðleitum fólksbíl. Hliðarspegill brotnaði vinstra megin þegar bíllinn ók á drenginn sem kastað- ist í götuna við höggiö. Þegar DV fór í prentun var drengurínn í rannsókn á slysadeild og meiðsl ekki 'fullkönnuð. Lýst er eftir ökumanninum eða vitnum sem geta gefið nánari lýsingu á bíln- um. -ÓTT Strand við bryggju Stórt rækjuskip frá Hjaltlands- eyjum tók niðri og sat fast á sand- botni við hafnargarðinn á Húsa- vík í gær. Var stefhi skipsins komiö að bryggju og hallaðist það töluverL Tókst síðan að skipa farmi í land. Búist var við að tækist að koma skipinu á flot í dag. -ÓTT SÍF safnar undir- skriftalistum Sölusamband íslenskra fisk- framleiöenda hefur hafiö mikla herferð gegn þeirri hugmynd aö gefa saltfisksöluna frjálsa. í gær bárust DV 24 listar meö undir- skrift saltfiskframleiöenda í landinu þar sem þeir skora á Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra að breyta engu um salt- fisksöluna. Jafnframt er á Qest- um listunum lýst yfir stuðningi viö bann þaö sem Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra setti á útflutning á flöttum og hausuöum fiski. Þess má geta að þeir sem nú hafa rnisst útflutningsleyfi á flött- um og hausuðum fiski eru meö rúmlega 300 manns í vinnu. At- vinna þessa fólks er í mikilli hættu. Verðmæti þessa útflutn- ings nemur um eða yfir einum milljarði króna. -S.dór Riðuveikideila: Skera á allan stofninn í Flatatungu AUur sauðfiárstofninn í Flata- tungu í Akrahreppi skal skorinn niður vegna hættu á aö hann sé sýktur af riðu. Löng deila hefur verið vegna þessa máls. Á árinu 1987 vildi bóndinn skera allan , stofninn en samningar tókust ekki um heybætur til handa hon- um. Bóndinn fór í mál til að reyna að fá ákvörðun um nið'urskurö hnekkt.Ekki hefur orðiö vart riöu í fé bóndans eftir aö hann fargaði tuttugu ám. Dómurínn er nú fall- inn og samkvæmt honum á aö skera stofhinn. Ríkislögmaður hefur áfrýjað dóminum til Hæsta- réttar til staðfestingar. Sigríður Friðjónsdóttir, fulltrúi sýslumanns í SkagaQaröarsýslu, dr. Arthur Löve dósent og Stein- grímur Gautur Kristjánsson borgardómari kváðu upp dóm- inn. -sme Við sjópróf hjá bæjarþingi Grinda- víkur vegna strands netabátsins Höfrungs II. á fimmtudag kom fram að vakthafandi stýrimaður hefði sofnað í brúnni rétt áður en báturinn sigldi á sjálfstýringunni upp í fjöru. Klukkan sex um morguninn hélt báturinn til hafnar í Grindavík af Selvogsbanka þar sem neta hafði verið vitjað. Fyrsti stýrimaður var á vakt og annar vélstjóri var í vélar- Formannskjör fer fram í Starfs- mannafélagi ríkisstofnana á aðal- fundi félagsins 29. mars næstkom- andi. í fyrsta skipti í mörg ár er nú boðiö fram í formannssætið á móti Einari Ólafssyni, verslunarstjóra ÁTVR við Lindargötu. Þaö er Sigríð- ur Kristinsdóttir sem býður sig fram á móti Einari. Nú þegar er harður formannsslag- ur hafinn. Nokkrir félagar í Starfs- mannafélagi ríkisstofnana hafa haft samband við blaöið og halda því fram að stuðningsmenn Einars Ólafssonar séu búnir að koma sér upp kosninga- rúmi. Sjálfstýringin var síðan sett á og var stefnt á punkt um eina mílu frá landi, nálægt Grindavík. Klukkan 7.40 um morguninn hringdi stýri- maðurinn í veiðarfærastjórann í Grindavík. Við svo búið fór hann niður og fékk sér kaffi. Þegar hann kom aftur upp í brú skömmu síðar sofnaði hann. Klukkan 8.10 vaknaði stýrimaðurinn svo upp ásamt flest- um öðrum í áhöfninni. Höfrungur II. skrifstofu í húsnæði Vita- og hafnar- málaskrifstofunnar en þar er skrif- stofa Tómasar Sigurðssonar sem er varaformannsefni með Einari. Til að ganga úr skugga um hvort eitthvað væri hæft í þessu var hringt í skiptiborð Vita- og hafnamálaskrif- stofunnar og beðið um innanhúss- númer 72. Þá svaraði Einar Ólafsson, formaður Starfsmannafélags ríkis- stofnana. Spurt var hvort Kristján Thorlacius væri við en hann er sagð- ur kosningastjóri Einars Ólafssonar. Einar sagði að hann væri ekki í þessu númeri en sagðist sjálfur vera stadd- var þá strandaður skammt vestan við innsiglinguna í Grindavík. Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, full- trúa hjá bæjarfógetanum í Grinda- vík, kom einnig fram við sjópróf að í brúnni var svokallaður vökustaur. Á honum hafði verið slökkt og var ástæöan sú að píp sem kom á 3-A mínútna fresti þótti þreytandi til lengdar. Tæki sem þessi eru höfð í bátum og skipum í öryggisskyni til ur þarna af tilviljun að ræða við Tómas. Haft var samband við stuðnings- menn Sigríðar Kristinsdóttur og full- yrtu þeir allir að kosningaskrifstofan væri þarna. Þeir kvörtuðu undan því að fá ekki félagaskrána og sögðu hana tilbúna og að Einars-menn væru byijaöir að vinna eftir henni. Sigríðar-mönnum væri sagt að þeir fengju skrána ef til vill eftir stjórnar- fund á mánudag. Greinilegt er að mikið verður lagt undir í þessum formannsslag. -S.dór að halda dottandi mönnum vakandi. Höfðu skipstjórnarmenn á Höfrungi B. haft annan vökustaur i brúnni sem pípir á 15 mínútna fresti. Það tæki var einhverra hluta vegna ekki í bátnum í þessum túr. Við sjóprófin voru skipstjóri, 1. stýrimaður og 2. vélstjóri. -ÓTT Sendibílar aka fólki frítt „Við munum halda áfram bar- áttu okkar uns einhver leiðrétt- ing fæst,“ sagði Albert Ómar Guöbrandsson sendibílstjóri í samtali við DV. Sendibílstjórar ætla að bjóða fólki ókeypis heimakstur í kvöld eins og um síðustu helgi. Albert Ómar kvaðst búast við svipaðri þátttöku bílstjóra í þessum að- gerðum og fyrir viku en þá tóku um 300 bílar þátt í þessum mót- mælum. Nú eins og þá munu sendibílar verða fyrir utan stærstu skemmtistaði eftir mið- nætti og aka fólki þangað sem þaö vill án endurgjalds. Með þessu vilja sendibílstjórar mótmæla ákvæðum laga um virðisaukaskatt og ennfremur reglugerð um verkaskiptingu leigubíla og sendibíla. Sendibíl- stjórar halda því fram að leigubíl- stjórar stundi akstur með vörur í stórum stíl og taki þar með at- vinnu frá sendibílum. Þeir krefj- ast þess að samgönguráðuneytið breyti ákvæöum í reglugerð sem kveður á um þessa verkaskipt- ingu. 12. grein reglugerðarinnar sem deilt er um segir um leigubíla: „Eigi er heimilt að flytja farangur án farþega nema í undantekning- artilvikum, enda sé um að ræða flutning bréfa, skjala eða annarra sérstakra verðmæta." Ráðuneyt- ið hefur sagt aö efnisleg rök skorti til breytinga. í áliti umboðsmanns Alþingis segir um reglugerð þessa að skil- greining um verkaskiptingu sé ekki nógu skýr og einkum geti orðin, „... annarra sérstakra verðmæta,“ oröið tilefni ágrein- ings. Umboðsmaður Alþingis tel- ur því æskilegt að samgöngu- ráöuneytið beiti sér fyrir endur- skoðun þessara reglna. Það hefur ráðuneytið ekki viljað fram til þessa og því mótmæla sendibíl- stjórar en þeir telja úrskurö um- boðsmannsins ótvírætt styðja sinnmálstað. -Pá Stórveldaslagurinn í skák hófst i gær í sal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Þar etja kappi Bandaríkjamenn, Bretar, Sovétmenn og samanlögð sveit Norðurlandamanna undir forystu Friðriks Ólafssonar. Keppnin heldur áfram í dag og á morgun en þá fá skákmennirnir dagshvíld fyrir næstu lotu. Á myndinni sést Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra leika fyrsta leik Simens Agdestein gegn Jusupov. Helgi Ólafsson fylgist vel með. Skákunum var ekki lokið þegar DV fór i prentun í gærkvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti Starfsmannafélag ríkisstofnana: Formannsslagur í fullum gangi - kosningaskrifstofa rekin á Vita- og hafnarmálaskrifstofu „Trúi ekki að það komi annað framboð“ Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við verðum með fulltrúaráðsfund í flokknum á miövikudag í næstu viku og þar gefur uppstillingamefnd sína skýrslu. Fyrr en sá fundur hefur verið haldinn get ég ekki veriö að tjá mig um þetta mál,“ segir Knútur Karlsson, formaður uppstillingar- nefndar Sjálfstæðisflokksins á Akur- eyri, en eins og fram hefur komið í DV hefur gengið mikið á hjá sjálf- stæðismönnum viö að koma saman framboðslista sínum vegna kosning- anna í vor. Ömggar heimildir DV segja að hart hafi verið lagt að Guðfinnu Thorla- cius bæjarfulltrúa að vera í 3. sæti listans. Gunnar Ragnars, fyrrver- andi forseti bæjarstjómar og þáver- andi oddviti sjálfstæðismanna í bæn- um, hafi farið á fund Guðfinnu að beiðni Knúts Karlssonar formanns uppstillingarnefndar í þeim tilgangi og Guðfinna hafi fallist á þaö. Þegar samþykki Guðfinnu lá fyrir hafi uppstillingamefndin hins vegar hafnað henni í 3. sætið af einhverjum ástæðum og það var höfuðástæða þess að Jón Kr. Sólnes, sem átti kost á 4. sætinu, ákvað að taka ekki sæti á listanum. Samþykki hans um að verða í 4. sæti ef Guðfinna yrði í 3. sæti var hafnað. „Ég trúi því ekki að það komi fram annaö framboð meðal sjálfstæöis- manna vegna þessa máls,“ segir Knútur Karlsson. „Ég tel að þegar fólk fer yfir þetta í rólegheitum sjái það aö annað framboð er veikur kost- ur. Fólk gerir sér grein fyrir því þeg- ar öldurnar lægir.“ „Það hefur vissulega verið talað viö mig um að fara fram meö annan lista,“ segir Jón Kr. Sólnes. „Ég hef ekki skoðað hugsanlegt framhald í málinu enda er nægur tími. Sjálf- stæðisflokkurinn verður ekki búinn að ganga frá sínum lista fyrr en í fyrsta lagi á miðvikudag í næstu viku og það er best að sjá þann lista. Þeir þurfa 22 nöfn á listann og ég bíð eftir því að sjá þau nöfn,“ sagði Jón Kr. Sólnes.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.