Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Blaðsíða 3
3
LAUGARDÁGUR 10. MARS 1990.
dv Fréttir
Breiöholt:
Haglabyssu og
skotum stolið
Haglabyssu og sennilega skotum
var stolið úr geymslu í Austurbergi
fyrr í vikunni. Eigandi byssunnar
hafði samband við DV og sagðist
hafa þungar áhyggjur af því að byss-
an væri í höndum barna eða ungl-
inga. Eigandinn sagðist ekki viss
hvort skotum heföi verið stolið en
hann taldi líklegt að svo væri.
Eigandinn sagði að heyrst hefðu
byssuhvellir þar sem fimm skotum
var skotið. Haglabyssan er fimm
skota. Hann sagðist ekki nægilega
sáttur við vinnu lögreglu, finnst að
lögregla fari fullrólega viö rannsókn-
ina. Hann vildi beina því til fólks að
athuga vel hvort byssan gæti verið í
höndum einhverra sem ekki kunna
með hana að fara.
Haglabyssan er af gerðinni Rem-
ington 1187. Hún var í grænum
byssupoka. -sme
Kaupfélag Grundfiröinga:
Kröfurnar eru
níu milljónir
Heildarkröfur í þrotabú Kaupfé-
lags Grundfirðinga eru tæpar níu
milijónir króna. Þrotabúið á óselt
verslunarhús í Grundarfirði. Ekki
er búið að taka afstöðu til aUra krafn-
anna og því geta þær hugsanlega
orðið lægri.
Skiptafundur var haldinn í þrota-
búinu á fimmtudag. Annar skipta-
fundur verður haldinn síðar.
-sme
Sendibílstjóri
olli stór-
skemmdum
og stakk af
Lýst er eftir ljósum eða hvítum
sendiferðabíl sem ók samsíða bláum
Saab norður yfir Amarneshæð og
þvingaði ökumann hans til þess að
aka út af og á umferðarmerki - með
þeim afleiðingum að Saab-bíUinn
stórskemmdist. Atburðurinn átti sér
stað klukkan 15.50 á þriðjudag og
stakk sendibílstjórinn af. Talið er
mjög líklegt að vitni hafi séð hvað
gerðist og eru þau beðin um að hafa
samband við lögregluna í Kópavogi.
-ÓTT
Verkfall unglækna:
Bíðum svars
Ólafs Ragnars
„Við vonumst til að þetta hafi vak-
ið athygli. Tilgangurinn var að fá
fram svör Ólafs Ragnars við bréfum
okkar. Við bíðum nú eftir svari,“
sagði Jón Hilmar Friðriksson, for-
maður Félags ungra lækna.
Aðstoðarlæknar í Félagi unglækna
komu aftur til vinnu í gær eftir að
hafa verið frá einn dag vegna skyndi-
verkfalls. Starfsemi sjúkrahúsanna
fór að mestu fram með eðlUegum
hætti enda gengu eldri læknar í störf
þeirra yngri.
Meö verkfallinu voru unglæknar
að vekja athygli á hækkunum á
gjöldum sem þeir verða að greiða í
ríkissjóð fyrir læknaleyfi. Fjármála-
ráðherra hefur ekki tekið undir þess-
ar kröfur. -GK
Þórscafé
opnað
Veitingahúsið Þórscafé hefur veriö
opnað aftur en tollstjórinn í Reykja-
vík lokaði húsinu í síðustu viku
vegna vangoldins söluskatts frá því
í desember.
ToUstjórinn í Reykjavík lokaði
einnig fyrirtækinu Agli Vilhjálms-
syni í síðustu viku. Það fyrirtæki er
enn lokað. -JGH
Áttþú
LADA SPORT?
Langar þig í japanskan jeppa?
Þá gerum við þér tilboð sem ekki er hægt að hafrta
- að skipta upp í Daihatsu Feroza á einstökum kjörum
Komið og kynnið ykkur málið
DAIHATSU
FEROZR
er fullbúinn og fallegur jeppi og kostar aðeins frá:
kr. 1.098.200 stgr. á götuna
Daihatsu Feroza er fáanlegur í þremur útfærslum: Feroza DX: 4 strokka fjórgengisvél 1600 cc 16
ventla • 5 gíra • vökvastýri • sjálfstæð snerilfjöðrun með jafnvægisstöng að framan • heil hásing
og fjaðrir að aftan • hlutalæsing á drifi • driflokur • tvöfaldur veltibogi • 3ja punkta öryggisbelti
framm í og aftur í • vönduð innrétting • litað gier og snúningshraðamælir. Feroza EL-II: Hér kemur
til viðbótar við búnað DX • veltistýri • topplúga • lúxus innrétting • voltmælir • hallamælir • staf-
ræn klukka og hágæða útvarps- og segulbandstæki. Feroza EL-II Sport: Einn með öllu og til við-
bótar krómfelgur • krómað grill • krómaðir stuðarar • krómáðir hliðarspeglar og krómaðir hurðar-
húnar.
□aihatsu Brimborg hf.
— draumur aö aka Faxafeni 8, sími 685870