Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Side 6
Útlönd
Hundrað manns
handtekin
í S-Afríku
Suður-afríska lögreglan tók í
sína vörslu rúmlega eitt hundrað
manns í gær til að reyna að binda
enda á verstu öldu ofbeldis og
mótmæla gegn aðskilnaðarstefnu
stjórnarinnar sem gengið hefur
yfir landið síðustu fjögur ár. Að
sögn heimildarmanna voru að
minnsta kosti 63 blökkumenn
handteknir, sumir pólitískir and-
ófsmenn, og 67 hvitir menn. Að
því er lögregla skýrði frá voru
flestar handtökurnar fyrir glæp-
samleg athæfi, s.s. gripdeildir og
íkveikjur.
„Nú er nóg komið. Pólitískt
frelsi er ekki hið sama og leyfi til
að stofna til óeirða," sagði ráð-
herra dóms og laga, Adriaan
Vlok, á þingi í gær en þar fóru
fram harðorðar umræður um of-
beldi síðustu vikna. í fimm vikur
hafa blóðugar róstur ríkt víða í
Suður-Afríku en talið er að tvö
hundruð hafi látið lífið í þeim.
Margir fréttaskýrendur telja aö
þessar róstur nú séu þær verstu
síðan 1984-1986 en þá voru mikil
mótmæli gegn kynþáttaaöskiln-
aðarstefnunni.
Stjórnin var gagnrýnd harðlega
á þingi í gær. íhaldsmenn segja
að þær pólitísku umbætur sem
de Klerk forseti nefur innleitt og
miða aö því að gefa meirihluta
blökkumanna í landinu pólitísk
réttindi hafi leitt til þess aö þjóðin
rambi nú á barmi styijaldar. Þeir
segja aö blóöugar róstur í tveim-
ur heimalöndum Suður-Afríku
séu að undirlagi Afríska þjóðar-
ráðsins, samtaka sem berjast fyr-
ir jafnrétti kynþátta, sem nýlega
var lögleitt. Meira en helmingur
blökkumanna í Suður-Afríku býr
í svokölluðum heimalöndum.
Samkvæmt fréttum japanskrar
fréttastofu mun Kim ll-sung, leiö-
togi Norður-Kóreu, víkja af
valdastóli eftir 78 ára afmæli sitt
í april.
Simamynd Reuter
Leiðtogi
N-Kóreu ætlar
að víkja af
valdastóli
Kim Il-sung, leiðtogi Norður-
Kóreu, er sagður munu láta af
embætti innan skamms að því er
fram kom í fréttum Kyodo-frétta-
stofunnar japönsku i gær. Ekki
er ljóst hvenær hann víkur úr
leiðtogaembættinu en sagt var að
þaö yrði eftir 78 ára afmæli hans,
um miðjan apríl næstkomandi.
Kim mua láta völdin í hendur
syni sínum, Kim Jong-il, sagði í
fréttinni en þaö yrði þá í fyrsta
sinn sem völdin í kommúnista-
ríki ganga í erfðir. Ekki hefur
fengist staðfesting á þessari frétt
Kyodo-fréttastofunnar.
í fréttinni sagði aö Kim eldri
myndi ekki gefa öll völd frá sér.
„Hann verður Deng Xiaoping
Norður-Kóreu,“ sagði einn heim-
ildarmaður fréttastofunnar en
það er skírskotun til valdamesta
manns Kína sem hefur engin
formleg embætti en hefur samt
sem áður öll völd á sinni hendi.
Reuter
Mitterrand Frakklandsforseti, annar frá hægri, ræddi í gær við pólska ráðamenn. Mitterand á vinstri hönd er
Mazowiecki, pólski forsætisráðherrann. Lengst til vinstri á myndinni er Jaruzelski, forseti Póllands. Símamynd Reuter
Ágreiningur Vestur-Þýskalands og Póllands:
Frakklandsforseti
skerst í leikinn
Mitterrand Frakklandsforseti fór
þess á leit við vestur-þýsk stjómvöld
í gær að þau gengju skrefi lengra en
þau þegar hafa gert til að leysa þann
ágreining sem komið hefur upp milli
Vestur-Þýskalands og Póllands. For-
setinn, sem í gær ræddi við forseta
Póllands og forsætisráðherra, hvatti
Bonn-stjórnina til að fullvissa Pól-
veija um að Þjóðverjar muni ekki
véfengja núgildandi landamæri Pól-
lands og Austur-Þýskalands.
Þingið í Vestur-Þýskalandi sam-
þykkti í gær yfirlýsingu þar sem
sagði að Þjóðveijar muni aldrei
leggja fram landakröfur á hendur
Pólveijum. Pólskum ráðamönnum
fannst yfirlýsingin ekki ganga nógu
langt og sagði Jaruzelski forseti á
fimmtudag að í henni væri ekki sagt
berum orðum hvaða landamæra
væri verið aö vísa til.
Sameiningarmálið er nú komið á
skrið en í gær hófst fyrsti fundur
háttsettra embættismanna beggja
þýsku ríkjanna. Að fundinum lokn-
um gaf Ernst Krabatsch, aðstoðar-
utanríkisráðherra Austur-Þýska-
lands, í skyn að viðræðurnar yrðu
ekki auðveldar þegar hann sagði að-
spurður að vissulega væri skoðana-
munur milli þjóðanna.
Fundurinn í gær var haldinn til að
undirbúa víðtækari viðræður sem
fara fram í Bonn í næstu viku milli
fulltrúa Bandamanna - Bandaríkj-
anna, Sovétríkjanna, Bretlands og
Frakklands - auk þýsku ríkjanna.
Fastlega má búast við aö hernaðarleg
staða sameinaðs Þýskalands verði
erfiðasta viðfangsefni þeirra við-
ræðna. Reuter
Meir Vanunu:
Berst fyrir frelsi bróður síns
„í þijú og hálft ár hef ég ferðast
víða um heim til að íjalla um mál
bróður míns, Mordechai Vanunu. Ég
hef rætt viö stjórnmálamenn, al-
menning og fjölmiðla víðs vegar og
reynt að útskýra forsögu gerða hans,
sem og forsögu kjarnorkustefnu
Ísraelsríkis sem er grundvöllurinn
fyrir gerðum Mordechai... Það gleð-
ur mig að fá tækifæri til þess sama
hér á landi,“ sagöi ísraelsmaðurinn
Meir Vanunu í viðtali við DV í gær.
Meir kvaðst vonast til að með
heimsókn sinni til íslands myndi
hann ná athygli stjórnvalda hérlend-
is á baráttunni fyrir lausn bróður
síns, sem og fyrir kjarnorkulausum
Mið-Austurlöndum.
Átján ára fangelsi
Meir er bróðir Mordechai Vanunu
sem nú afplánar átján ára fangelsis-
dóm í ísrael fyrir landráð, svik og
njósnir. Eftir leynileg réttarhöld í
ísrael var Mordechai fundinn sekur
í mars árið 1988 og dæmdur til fanga-
vistunar þremur dögum síðar. Máli
hans hefur verið áfrýjað til hæsta-
réttar en úrskurður hans hefur ekki
verið birtur, að sögn Meir.
Meir er landflótta í Bretlandi þar
sem hann hefur farið fram á pólitískt
hæli en verið hafnað. Hann segist
eiga yfir höfði sér réttarhöld og hugs-
aniega fangavist snúi hann til ísraels
á ný vegna þess að hann skýrði
bresku dagblaði frá þvi að skömmu^
eftir að bróðir hans hafi komið til
London hafi hoiium verið rænt af
ísraelsku leynilögreglunni og færður
nauðugur til ísraels.
„Ég varö að fara úr landi til að
vekja athygli á kringumstæðum í
réttarhöldunum yfir bróður mínum
og skýra frá því hvernig hann var
færður til dóms í ísrael,“ sagði Meir.
Meir Vanunu.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Ég skýrði Sunday Times frá því að
honum hefði veriö rænt í London og
hann síðan fluttur til israels. ísraelsk
stjórnvöld líta á mannránið sem rík-
isleyndarmál og hafa gefið út hand-
tökuskipun á hendur mér.“
Mordechai var tæknimaður i Dím-
/ óna-kjarnorkuverinu 1 Negev-eyði-
mörkinni í níu ár. Haustið 1986 birti
breska dagblaðið The Sunday Times
frásögn hans þar sem hann skýrði
frá því að ísraelsk yfirvöld byggju
yfir kunnáttu til að framleiða kjarn-
orkuvopn og heíöu framleitt allt að
tvö hundruð kjamaodda á tuttugu
ára tímabili. „Bróðir minn var ekki
vísindamaður. Hann var tæknimað-
ur sem var kunnugt um aö ísraels-
stjórn byggi yfir þekkingu til að
framleiða kjamorkuvopn. „Glæpur"
hans var að skýra frá vitneskju sinni
um hvaö átti sér stað í kjarnorkuver-
inu sem hann taldi að almenningur
í ísrael, sem og um allan heim, ætti
rétt á að fá að vita... Mál hans hefur
orðið til þess að athygli hefur beinst
að þessum málum í Mið-Austurlönd-
um, sem og um allan heim,“ sagði
Meir.
„Greinarhöfundar Sunday Times
komast að þeirri niðurstöðu, og
byggja þar á þeim upplýsingum og
myndum sem Mordechai Vanunu
lagði fram, að ísrael sé nú sjötta
sterkasta kjarnorkuríki heims og
hafi yfir að ráða milli eitt og tvö
hundruö kjarnaoddum. Er það allt
að tíu sinnum meira magn en áður
var talið að stjórnvöld þar í landi
réðu yfir. Yfirvöld í ísrael hafa ætíð
vísað því á bug að þau hafi framleitt
eða búi yfir kunnáttu til framleiðslu
á kjarnorkuvopnum.
Fram undan er hörð barátta
Meir sagði að hann hefði orðið var
við mikinn stuðning, sérstaklega
meðal vísindamanna, við baráttu
sína til að fá bróður sinn leystan úr
haldi. „Hundruð vísindamanna hafa
undirritaö beiöni um lausn hans,“
sagði Meir. „Margir þingmenn hafa
einnig lýst yfir stuðningi við baráttu
okkar en við njótum ekki opinbers
stuðnings ríkisstjórna."
Aðspurður hvort hann væri bjart-
sýnn á lausn bróður síns fljótlega
sagði hann aö stefna ísraelsku stjórn-
arinnar heföi ekki gefið þeim sem
beijast í þessu máli ástæðu til bjart-
sýni. „Við eigum langa og érfiöa ferð
fyrir höndum," sagði Meir Vanunu.
-StB/Reuter
LAUÓÁRök'dúR1 íó! Mar^ ^lðba A 1
Norðmenn vilja
lækka framlög
til varnarmála
Meirihluti Norðmanna er
hlynntur niðurskurði í íjárfram-
lögum til varnarmála því hættan
á árás af hendi Sovétmanna hefur
minnkað, samkvæmt niðurstöð-
um skoðanakönnunar sem birtar
voru í Arbeiterbladet í gær.
Fimmtíu og tvö prósent að-
spurðra vilja aö minna fé verði
veitt til hermála. í desember síð-
asfliðnum vildu þrjátíu og þrjú
prósent minnka fjárframlög til
varnarmála.
Fyrir fjárhagsárið 1990 hækk-
aði norska stjómin framlög til
varnarmála um 2,5 prósent, í
raungildi, en það er einhver
mesta hækkun af öllum aðildar-
ríkjum Nato. Stjórnvöld í Noregi
hafa fagnað þeim lýöræðislegu
umbótum sem átt hafa sér stað í
ríkjum Austur-Evrópu en segja
að enn sé of snemmt að skera
niður á sviði varnarmála.
Samkvæmt niðurstöðum fyrr-
nefndar könnunar vilja aðeins 3,2
prósent Norðmanna að framlög
til vamarmála veröi hækkuð,
34,8 prósent vilja óbreytt framlög
en tíu prósent tóku ekki afstöðu.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3-5 LB.Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 4-r6 Ib
6 mán. uppsógn 4.5-7 Ib
12mán. uppsógn 6-8 Ib
18mán. uppsógn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema
Sértékkareikningar 3-5 Lb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,-
Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 Sb Sp
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6.75-7,25 Sb
Sterlingspund 13,5-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6.75-7.25 Sb.lb
Danskarkrónur 10,5-11,2 Bb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 18,5-19,75 Bb.Lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 18,5-19 Ib.Bb,- Sb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 25-26,5 Ib.Bb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8.25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 17,5-19,5 lb
SDR 10.95-11 Bb
Bandaríkjadalir 9,95-10 Bb
Sterlingspund 16.75-17 Lb.Bb
Vestur-þýskmörk 10.15-10,25 Bb
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 30 /
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. mars 90 22,2
Verðtr. mars 90 7.9
VISITÖLUR
Lánskjaravísitala feb. 2806 stig
Lánskjaravisitala mars 2844 stig
Byggingavisitala mars 538 stig
Byggingavisitala mars 168,2 stia
Húsaleiguvisitala 2,5% hækkaði 1. ian.
VERÐBRÉFASJÓDIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4.748
Einingabréf 2 2,601
Einingabréf 3 3.131
Skammtímabréf 1.615
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2.089
Kjarabréf 4,704
Markbréf 2,501
Tekjubréf 1,963
Skyndibréf 1.413
Fjölþjóðabréf 1.270
Sjóðsbréf 1 2,287
Sjóðsbréf 2 1.716
Sjóðsbréf 3 1,601
Sjóðsbréf 4 1,352
Vaxtasjóðsbréf 1.6160
Valsjóðsbréf 1.5200
HLUTABRÉF
Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv
Sjóvá-Almennar hf. 600 kr.
Eimskip 500 kr.
Flugleiðir 164 kr.
Hampiðjan 175 kr.
Hlutabréfasjóður 172 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr.
Skagstrendingur hf. 371 kr.
Islandsbanki hf. 158 kr.
Eignfél. Verslunarb. 158 kr.
Olíufélagið hf. 400 kr.
Grandi hf. 160 kr.
Tollvörugeymslan hf. 116 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabrétum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.