Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Page 10
LAUGARÐAGUR 10. MARS 1890. „Ég man ekki hvenær pabbi byrjaði að fitla við mig en ég man hve- nær því lauk. í minn- ingunni er þaðfrá því ég var smábarn þótt ég vilji ekki trúa því. Þetta byrjaði með því að hann baðaði mig, strauk mér allri og smáttog smátt varð þetta alvarlegra. Þessu laukþegarég vará fimmtánda ári og þá hafði hann haft sam- farirvið mig nokkrum sinnum. Af hverju hann hætti veitég ekki. Kannski hefur hann orðið hræddur um að ég yrði ólétt.” Þetta er ekki útlend frásögn heldur alíslensk og viðtaliö fór fram á Vest- urgötu 3 þar sem Stígamót eru til húsa. Sú sem segir frá er í sjálfs- hjálparhóp fómarlamba sifjaspella sem hittist reglulega á sama stað til að vinna úr sínum málum. Hennar rétta nafn getum við látið liggja milli hluta en köllum hana Helgu og sama gildir um aðra viðmælendur. Helga er aðeins ein af fjölda kvenna sem leitað hafa til sjálfshjálparhópanna á undanfornum þremur árum eða frá því farið var að vekja máls á þessu vandamálum. Samtökin Samhjálp gegn sifjaspellum skilgreina siíja- spell á aðeins víðtækari hátt en lög- in. Sifjaspell em þegar einhver full- orðinn, skyldur eða nákominn, notar börn til aö þjóna kynferðislegum þörfum sínum í skjóli valds síns, hvort sem hann sýnir sig beran, þuklar á barninu eða hefur við það samfarir. Með nákomnum er átt viö hvem þann sem barnið er háð eða ber traust til. Þolendur kljást við sömu afleiðingarnar Með Helgu sitja tveir aðrir þolend- ur, Guðbjörg og Hafdís, og eru þær allar um og yfir þrítugt. Allar hafa þær orðið að ganga í gegnum vítis- kvalir frá barnæsku vegna þess að fjölskyldumeðlimur misnotaði þær kynferðislega meðan þær vom börn. Atburðarás og tengsl við gerandann eru mismunanandi en afleiðingarnar eru þær sömu: þunglyndi, sektar- kennd, hræðsla, lítið sjálfstraust og öryggisleysi fram til dagsins í dag. Þolendurnir líta alveg eins út og konan í næsta húsi. Þær hafa hvert Fórnarlömbin þrjú á Stigamótum eygja loks birtuna eftir áralangt þögult myrkur. DV-mynd Brynjar Gauti. Sifjaspell töluð í hel - þrír þolendur segja frá sitt svipmót en era greinilega mis- langt komnar í því að vinna úr sínum málum. Helga er skemmst á veg komin og er greinilega ekkert um það gefið að segja ókunnugum frá þvi sem hana henti. Það kom líka í Ijós síðar að hún hafði aðeins einu sinni sagt sína sögu áður en hún tók þátt í sjálfshjálparhópnum. Enginn mátti vita Guðbjörg varð fyrst fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi á aldrinum fimm til sex ára. Hún og eldri systir henn- ar vora á fósturheimili en þegar syst- ir hennar lét vita af því að heimil- isfaðirinn hafði reynt að nauðga henni voru þær teknar af heimilinu. „Enginn spurði mig hvort ég hefði sömu sögu að segja enda var ég bara sex ára,“ segir Guðbjörg. Þær vora þá fluttar til frændfólks síns og þar var það frændi hennar sem misnot- aði hana frá því hún var níu ára. Hún slapp ekki undan honum fyrr en hún gat flutt að heiman, sextán ára göm- ul. „Ég lagðist aUtaf á magann af því ég trúði því að ég gæti betur varist honum svoleiðis. Hann virtist fá mest út úr því að fróa sér á mér og eftir því sem ég barðist meira um því meira fékk hann út úr þessu, held ég,“ segir Guðbjörg. Enginn vissi um þetta ofbeldi og barnið þoröi engum að segja, ekki einu sinni systur sinni. „Ég vissi að það yrði allt vitlaust eins og í fyrra tilvikinu og hvert yrðum við fluttar þá. Auk þess hefði enginn trúað mér og þegar móðir hans frétti af þessu seinna sagði hún að ég hlyti að hafa viljað þaö sjálf," segir Guð- björg og greinilegt er að hún á erfitt með rifja upp þessar hörmungar. Líkaminn forsmáöur Síðan eru liðin mörg ár og það er fyrst nú að hún eygir möguleika á að sættast við sjálfa sig og þakkar hún það starfinu í sjálfshjálpar- hópnum. „Mér fannst gaman í leik- fimi og sundi en átti alltaf mjög erf- itt í búningsklefanum. Mér fannst ég öðruvísi og hkami minn ljótur og ógeðslegur." Hinar taka undir þessi viðbrögð og segja það algengt að þol- endumir forsmái líkama sinn, í raun tilheyrir höfuðið aðeins þeim en lík- aminn fær bara að druslast með. Eina lausn hennar voru róandi lyf og suma dagana varð hún aö taka þau inn til að komast í vinnuna. Guðbjörg átti við langvarandi þung-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.