Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 11
IJAtUGÁRDAGUÍl7 ÍO./TtíXílS) Í99d.
lyndi aö stríöa og gekk til geðlæknis
í nokkur ár. Hún gerði nokkrar
sjálfsmorðstilraunir þegar erfiðleik-
arnir voru mestir.
Guðbjörg hefur verið í sambúð í
nokkur ár og segist vera mjög heppin
með mann sinn. Hún sagði honum
fyrst frá hörmungum sinum fyrir
nokkrum árum. Hann trúði sögu
hennar en á mjög erfitt með að hjálpa
henni að ööru leyti. Þær voru sam-
mála um það að makar þeirra ættu
ekki síður erfitt með að lifa við þess-
ar staðreyndir. í flestum tilfellum
hafa þeir þekkt geranda sem tengda-
fóður, frænda eða afa í fjölda ára en
ekki sem manninn sem eyðilagði líf
eiginkonunnar.
Var illa við snertingu
Eðlilegt kynlíf hefur reynst Guð-
björgu erfitt og er reyndar mjög neð-
arlega á lista hjá henni og er það
reynsla flestra fórnarlambanna. „Ég
hef notið þess stundum eftir að ég
byrjaði í sjálfshjálparhópnum og er
að vona að smátt og smátt takist mér
að vinna það vel í mínum málum að
það geti orðið fyrir mér eöliiegur
hlutur milli hjóna. Mér var illa við
alla snertingu og þráði stundum aö
mér gæti liðið vel ef tekið yrði blíð-
lega utan um mig. Maðurinn minn
getur núna sýnt mér hlýju án þess
að ég bregðist til vamar en enginn
má koma aftan að mér að óvörum
og mér líður afar illa ef karlmaöur
horfir í augu mér.“
Sárar minningar koma upp í huga
hennar þegar hún sér karlmann sem
líkist þeim sem misnotaði hana. „Um
daginn var ég í banka og sá blásak-
lausan mann sem líktist honum og
ég varð alveg miður mín.“
Lífsreynslan grafin
djúpt í þögnina
Allar eiga þær það sammerkt aö
hafa kappkostað að einangra sig sem
mest. Fram að því að þær gengu til
liðs við hópinn vildu þær aldrei ræða
um slík mál.
„Mér fannst öll umræða í fjölmiðl-
um yfirþyrmandi og verst var að sitja
undir svona fjasi í kaffitímum í vinn-
unni. Venjulega hljóp ég út þegar
einhver bryddaði á þessu og taldi að
um slíka hluti ætti ekki að talaseg-
ir Helga. Hennar lifsreynsla lá grafin
í þögninni í tæp tíu ár. Þegar þögnin
var henni um megn brotnaði hún
niöur fyrir framan vinkonu sína og
rambaði þá á barmi taugaáfalls.
„Þegar ég var búin að ná mér
breytti ég strax sögunni og reyndi
að telja henni trú um að ég hefði
verið að ljúga. Með semingi féllst ég
á koma hingað til að leita mér hjálp-
ar en ætlaði í fyrstu að ýta þessu á
undan mér,“ segir Helga. Hinar tala
um það hvað hún hafi breyst gífur-
lega á þessum fáu mánuðum frá því
hún kom fyrst. „Ég var löngu hætt
að vinna og dögum saman lá ég í
rúminu. Mér tókst að blekkja alla
með magaverkjum og öðru sem var
tiltækt," segir hún. Reyndar var það
ekki svo ósennilegt því magakvillar
höfðu hijáð hana í mörg ár. Engum
lækni haföi hins vegar tekist að finna
hvað amaði að og var botnlanginn
fjarlægður til að gera eitthvað.
Reyndin var sú að magaverkirnir
voru vegna spennu og ótta við fóður-
inn og gjörðir hans.
Mamma vissi ekki
Þegar móðir hennar var að heiman
gekk faðir hennar lengst. Þau skildu
síðar og hefur Helga ekki enn sagt
móður sinni hvað átti sér stað innan
veggja heimilisins meðan hún var í
burtu. „Kannski veit hún um þetta
og kannski ekki. Hún hefur átt í
nægum erfiðleikum sjálf með sitt líf
og er á réttri braut núna. Því sé ekki
ekki ástæðu til að segja henni frá
þessu af því að ég veit ekki hvort hún
gæti nokkurn tíma horfst í augu við
þennan veruleika," segir Helga. Þeg-
ar foreidrar hennar skildu fylgdi hún
fóður sínum og bjó áfram hjá honum.
„Ég vildi þaö vegna þess að í mínum
barnsaugum var nógu ömurlegt að
þau væru að skilja og allir krakk-
arnir vissu af því. Ég viðhélt blekk-
ingunni með því að láta alla halda
að það væri allt fint og flott heima
hjá okkur pabba.“
Áfall fyrir makann
Helga flutti aö heiman mjög ung
og hóf sambúð með þeim manni sem
nú er eiginmaður hennar. Nýlega
sagði hún honum að elskulegur
tengdafaðir hans hefði misnotað
hana kynferðislega í mörg ár. Hann
á sjálfur í vandræðum meö að takast
á við vandamálið og nú standa þau
á krossgötum. „Eftir margra ára
sambúð er það auðvitaö áfall að fá
þær fréttir að kynlíf sé andstyggilegt
og ég hafi leikið allan tírnann," segir
Helga. „Eftir öll þessi ár stend ég upp
og neita kynlífi 'nema ég vilji það
sjálf. Við höfum komist að samkomu-
lagi um að ég reyni að vinna mig út
úr þessu og á meðan verði ekki um
kynlíf að ræða. Hvort við komumst
í gegnum þetta saman veit ég ekki.“
Leið illa í margmenni
Þrátt fyrir yfirstandandi erfiðleika
í hjónabandinu líður Helgu mun bet-
ur innra með sér. „Ég get loksins
horft framan í fólk, skylt og óskylt.
Ég hef aldrei átt vini og talið það
mesta óþarfa að umgangast fólk. Mér
leið alltaf mjög illa í margmenni og
talaði varla nema á mig væri yrt.
Venjulega tafsaði ég og hnaut um
orðin, sagði einhverja vitleysu qg var
viss um að heimskari mannvera
væri ekki til. Núna er ég byijuð að
vinna og líður ágætlega í vinnunni,"
segir Helga. „Fram að því að ég gekk
í hópinn var ég viss um að ég væri
eitt einstakt tilfelli en núna veit ég
að þolendurnir eru margir."
Óhrein á
líkama og sál
Öll fórnarlömbin lifa með þá til-
fmningu að engin geti verið eins ein-
sömul í heiminum og jafnóhrein á
líkama og sál. Það að tala við ein-
hvern sem þekkir sömu líðanina er
það sem hjálpar þeim í átt að sjálfs-
hjálp. Það sem þær geta gert hver
fyrir aðra getur enginn sérfræðingur
gert, hversu vel menntaður og mein-
andi hann er.
Hafdís er lengst á veg komin og
leiðir nú hóp með félagsráðgjafa.
Hún er frískleg og glaðleg í fram-
komu og er ekki laust við að hinar
dáist að styrk hennar og vilji ná því
að lifa frjáls eins og hún. Saga henn-
ar er fremur óvenjuleg því kynferðis-
legu ofbeldi kynntist hún frá fleiri
en einum fiölskyldumeðhmi. Hún bjó
með foreldrum sínum á heimili afa
og ömmu og fiölskyldulífið leit út
fyrir að vera hið besta.
Afi var góður en...
„Sem lítið barn var ég afar kát og
lífsglöð, reyndár hinn mesti fiörkálf-
ur. Átta ára gömul var ég gjörbreytt,
lokuð og bæld,“ segir Hafdís. „Ég
vissi ekki þá að það sem afi gerði
væri ljótt en þegar ég fór að rifia upp
sögu mína í hópnum vaknaði ég upp
við vondan draum. í mínum augum
var afi góður maður en þegar hann
var fullur var hann breyttur. Hann
hafði þann háttinn á að taka mig í
fangið og strjúka á mér lærin innan-
verð í gegnum fótin. Mér féll þetta
illa en var aldrei beint hrædd við
hann. Eftir því sem ég eltist fór ég
að forðast hann eins og ég gat. Amma
var og er yndisleg manneskja og ég
hefði aldrei í lífinu farið að ásaka afa
um eitthvað ljótt hennar vegna.“
Faðir Hafdísar átti viö skapgerðar-
galla að stríða og bitnaði það á börn-
unum. „Hann gerði allt vitlaust af
því að einn kexpakki var opnaður
án hans leyfis.“ Gerðir afa og skap-
ferh pabba brutu Hafdísi smám sam-
an niður og lífsglatt barn varð inni-
lokað.
Bróðir notfærði
sér hræðsluna
Hún var send í sveit eins og mörg
önnur börn á Jiennar aldri. „Kvöld
eitt kom bóndinn inn í herbergið til
%
mín og káfaði á kynfærum mínum.
Ég varð ofsahrædd og fór að hágráta.
Hann dró sig til baka og sagðist koma
aftur þegar ég hefði jafnað mig,“ seg-
ir Hafdís.
Þar sem heimilisaðstæður Hafdísar
voru þess eðlis að enginn hafði tök á
aö hjálpa þagði hún. Hún treysti eldri
bróður sínum fyrir leyndarmálinu
úr sveitinni og hann notfærði sér
þaö. „Hann tók að leita á mig, káfa
á mér og þukla. Þetta gekk lengra
og lengra og endaði með því að hann
tók mig nauðuga þegar ég var fiórtán
ára en eftir það snarhætti hann
þessu,“ segir Hafdís. Bróðirinn hafði
alla yfirburði því hann hótaði að
segja frá atburðinum í sveitinni ef
hún segði til hans.
Rót vandans fundin
Hafdís er nú einstæð móðir tveggja
barna og er mjög á réttri leið. Á árum
áður drakk hún mikið og neytti eit-
urlyfia. Fyrir nokkrum árum byrjaöi
hún að leysa flækjuna í lífi sínu og
naut til þess aðstoðar Félagsmála-
stofnunar í því formi að fá styrk til
að afla sér starfsmenntunar og í dag
er hún í góðu skrifstofustarfi. í eitt
ár var hún í geðlæknismeðferð á
göngudeild en enginn komst að rót-
um vandans fyrr en hún gekk í sjálfs-
hjálparhópinn. Hún fékk styrk til að
afla sér starfsmenntunar og í dag er
hún í góðu skrifstofustarfi.
Aðferð þeirra til sjálfshjálpar er að
tala vandamálið í hel, segja þær. Það
er vitað að sifiaspell eiga sér stað á
alls konar heimilum, ríkum og
snauðum, í sveit og í borg. Sifiaspell
eru ekki algengari í einni stétt frem-
ur en annarri og hafa ekkert með
menntun og samfélagslega stööu að
gera. Guðbjörg lauk umræðunni með
því að segja: „Ég vona bara að þeir
þolendur sem þetta lesa komi til sam-
starfs við okkur því engin önnur
lausn er til.“ -JJ
MEIRIHÁTTAR SKEMMTISTAÐIR
Klakabandið, 3. hæð
Ath. um næstu helgi:
Hljómsveit
Ingimars Eydal
Þar sem fjörið er mest skemmtir fólkið sér best
SMÁAUGLÝSINGAR
lENSai ’90 hljómtækjalínan
Fermingargjöf - framtíðareign
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN
Síðumúla 2, sími 68 90 90
TENSAIC0MP0 95
* Útvarp (FM/MW/LW) 20
minni.
* Magnari 40 W músík
* Kassettutæki tvöfalt
* Equalizer 2x3 banda
* Plötuspilari
hálfsj álfvirkur
* Geislaspilari
* Fjarstýring
Stem 82 hátalarar 70 W músík.
Verð 48.204,- stgr.
TENSAI COMPO 90
* Útvarp (FM/MW/LW) 20
minni.
* Magnari 40 W músík
* Kassettutæki tvöfalt
* Equalizer 2x3 banda
* Plötuspilari hálfsjálfvirkur
* Fjarstýring
Stem 82 hátalarar 70 W músík.
Verð 29.349,- stgr.