Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Side 12
I,AUGARL)AGUR }0:,MARS 19.90. 12 Jóhanna S. Sigþórsd., DV, V-Þýskal.: Hún kom svo sannarlega á óvart, hún Helga Melsteö þegar tíöinda- menn DV náðu tali af henni í Amst- erdam á dögunum. Samkvæmt uppskriftinni hefði hún átt að vera önnum kafin við fyrirsætustörf, því það var einmitt hún sem vann Ford-keppnina hér heima árið 1985, þá aðeins sautján ára gömul. En nei, þarna var hún í allt öðru hlutverki heldur en fyrirsætunnar, því hún stóð uppi á sviði og söng jass. Og satt að segja skaut sú hugs- un upp kollinum að þarna væri hún komin á rétta hillu, svo vel flutti hún lögin sin við dúndrandi undirtektir viðstaddra. „Ég fór eiginlega að læra jasssöng svona að gamni mínu og ég er raun- ar ekki í tímum nema einu sinni í viku,“ sagði Helga þegar DV náði tali af henni. „Mig hefur alltaf lang- að að læra þetta og nú þykist ég vera að því,“ bætti hún við og hló. „Mér flnnst þetta ofsalega gaman og ætla að halda því áfram, enda hvetur kennarinn minn mig ein- dregiö til þess. Og það þarf enga hvatningu til, því ég geri ekkert skemmtilegra en að syngja." Sem fyrr sagði vann hún Ford- keppnina á Fróni á sínum tíma og fór síðan út til Dallas þar sem aðal- keppnin var háð. Þar komst hún í úrslit. Að því loknu kom hún heim og vann í tískufataverslun í eitt ár. „Ég vildi þetta í rauninni ekki til að byrja með og var ekki nógu hress með að fara út í fyrirsætu- störfin. Ég kunni ekki nógu góða ensku að mér fannst og það var ýmislegt í veginum. Mér fannst ég einnig vera of ung og hafði heimþrá á meðan ég dvaldi erlendis. En svo fór þó á endanum að yfir mig kom löngun til aö komast éitt- hvað í burtu og prófa þetta. Þegar Lacey Ford kom heim árið eftir að ég hafði unnið til að halda næstu keppni þá talaði ég aftur við hana, og var þá náttúrlega orðin árinu eldri. í framhaldi af því fór ég út til Þýskalands og ætlaði að vera þar í nokkra mánuði en hef eiginlega verið erlendis síðan. Að vísu hef ég ferðast mikið til Þýskalands og Austurríkis en alltaf búið í Holl- andi.“ -S • §8® Helgu var vel fagnað þegar hún hafði flutt nokkur lög. DV-myndir Hjalti Jón Sveinsson fyrirsæta. Það var raunar í starfinu sem þau kynntust. „Hann er alveg á fullu í þessu og gengur æðislega vel. Ég sé satt að segja ekkert eftir fyrirsætustarfmu. Ég er ánægð með það sem ég hef núna. Ég var orðin leið á að búa í ferðatösku og vildi stofna mitt eigið heimili með mínum eigin hlutum. Þegar maður býr alltaf á hóteli er þreytandi til lengdar að hafa ekkert í kringum sig nema fótin sín og töskurnar. Ég var því alveg tilbúin til að hætta, stofna heimili og eignast litla drenginn.“ Við hverju getur stúlka, sem hyggst leggja fyrirsætustörf fyrir sig, búist? „Þetta er náttúrlega mjög erfið vinna. Ef henni gengur vel þá þarf hún að ferðast mikið og ræður ekki tíma sínum sjálf. Það er erfitt að eiga kærasta ef maður er í þessu, því maður er alveg undir hælnum á vinnuveitendum sínum. En fyrir- sætan má eiga barn og t.d. á systir mannsins míns, sem er mjög þekkt fyrirsæta í Frakklandi og víðar, tveggja ára dóttur. Sú stutta hefur ekki verið henni nein hindrun í starfi. Þá er bróðir mannsins míns líka fyrirsæta, þannig að segja má að öll fjölskyldan sé í þessu." Hvaða ráð myndirðu vilja gefa stúlku sem ætlar að gerast fyrir- sæta? „Það var nú raunar frænka mín, Lillí Karen, sem vann Fordkeppn- ina í fyrra, en það var svo lítið sem ég gat sagt henni áður en hún fór út, því það er svo mikið undir fyrir- sætunni sjálfri komið hvernig henni tekst að spila úr sínum spil- um. Þótt maður sé að reyna að gefa einhver ráð þá er viðbúið að raun- veruleikinn verði allur annar. Þetta kostar mikla peninga í byrj- un, því fyrisætan verður að greiða ljósmyndaranum biðji hún um myndatökurnar, eins og áður sagði. Þá þarf að passa upp á að maður fái myndimar, sé ekki lát- inn borga of mikið og svona mætti lengi telja. Það er ekkert óalgengt að stelpur, sem eru að byrja, séu sviknar um myndir, látnar borga alltof mikið og lendi á fleiri vegu illa í því.“ Helga Melsteð, fyrrum sigurvegari í Ford-keppninni: Hætt að sitja fyrir og farin að syngja jass Hefði átt að vera lengur „Ég fór til Mílanó á þessum tíma og mér gekk mjög vel þar. Ég byrj- aði strax að vinna og hefði átt að vera lengur. En þá vildi ég endilega fara heim til íslands og lét það eftir mér.“ Hvernig myndirðu lýsa fyrstu reynslu þinni af fyrirsætustarfinu? „Þaö er ekki hægt að lýsa henni, því þessi atvinnugrein er ólýsan- leg. Eitt eru þó allir sammála um og það er að fyrirsætustarfið er afar erfitt. Maður fær ekkert að fara að vinna strax heldur verður aö fara í myndatökur og safna í möppu, sem er svo endalaust bætt við. Myndatökumar verður fyrirsætan aö borga sjálf, nema hún sé komin í vinnu. Þáfær hún auðvitað mynd- ir þaðan. Út á þessar myndir fær hún svo vinnu og út á hana enn fleiri myndir, sem aftur auka möguleika hennar á meiri vinnu, ferðalögum og peningum. Svona gengur þetta koll af kolh. En til að byrja með er þetta mjög erfitt og mikil píslarganga. Þetta reynir míög á þohnmæðina og eins þarf maður að hafa kjarkinn í lagi til að missa ekki sjálfstraustið." En hver eru laun fyrirsætunnar? „Þau geta veriö afar mismun- andi. Það er hægt að fá frá 600 mörkum upp í 1600 á dag, eða um 22.000-57.000 íslenskar krónur. Maður fær minnst borgað fyrir bestu myndirnar, til dæmis eins og forsíðumynd á Vogue, því það þyk- ir næg greiðsla til fyrirsætunnar að komast á forsíðu svo virts tíma- rits. En fyrir leiðinlegustu tökum- ar, svo sem nærfatatökur fyrir verðlista, fæst best greitt. Ef fyrir- sætu gengur vel fær hún alltaf yfir 1000 mörk á dag (samsv. um 36.000 ísl. krónum). Hún er kannski bók- uð allan daginn, mætir á staðinn og af henni em teknar tvær mynd- ir. Hún á þá frí það sem eftir er dagsins en heldur greiðslunni. Ef hún vinnur vel og skrifstofan er að syngja." hennar er ánægð með hana þá er allt gert fyrir hana. En ef hún tekur upp á því að slá slöku við og gerir það í nokkrar vikur þá er henni einfaldlega hent út í horn. Þess vegna verður maður aö leggja aha áherslu á að vinna vel og koma sér vel og þetta er alltaf stöðug bar- átta.“ Var á leið til Frakklands Helga starfar ekki sem fyrirsæta lengur. Hún býr nú ásamt manni sínum og ungum syni í Hollandi, í bæ sem heitir Sandfort, skammt frá Amsterdam. „Ég varö aö hætta að vinna sem fyrirsæta þegar ég varð ófrísk fyrir rúmum tveim árum. Þá átti ég að fara til Frakklands en af þvi gat eðlilega ekki oröið þar sem ég var orðin barnshafandi." Það er þó ekki svo að þessi starfs- grein sé langt undan, því eigin- maður hennar starfar einnig sem En þú sjálf, færðu aldrei heimþrá? „Jú, jú, hún hverfur aldrei. Ég er víst alveg ekta íslendingur og símareikningurinn hjá mér er stundum ansi hár. En ég fer alltaf heim tvisvar, þrisvar á ári. Ég er til dæmis á leiðinni heim nú í apríl. Þá fer maðurinn minn til Spánar en mig langar frekar að skreppa heim og sjá hvort ég kemst ekki á skíði.“ En hvað um framtíðina? Ertu sest að hérna úti fyrir fullt og allt? „Ég á náttúrlega mína fiölskyldu og heimili hérna úti. En maður veit aldrei hvað getur gerst. Við gætum þess vegna átt eftir að flytja heim, þótt síðar verði, ef maðurinn minn fær einhveija vinnu þar. Það er allt hægt, en við erum ekkert að flýta okkur, enda líöur okk- ur mjög vel þar sem við erum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.