Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Page 16
16
LAUGARDAGUR 10. MARS 1990.
Skák
Stórveldaslagurinn
hafinn í Faxafeni
- Jusupov, Short, Gulko og Ivantsjúk komu beint frá stórmótinu í Iinares
Stórveldaslagur VISA og IBM
hófst í skákmiðstööinni Faxafeni
12 í gær. Þá var teíld fyrsta umferð
af sex í þessari sérstæðu lands-
keppni Bandaríkjamanna, Sovét-
manna, Englendinga og úrvals-
sveitar Norðurlanda. Keppni af
þessu tagi hefur ekki áður farið
fram ög má því búast við að hún
vekji mikla athygli víða um lönd.
Yfir 40 stórmeistarar eru saman
komnir í Faxafeni, flestallir snjöll-
ustu skákmeistarar heims.
Sovéska sveitin er sigurstrang-
legust þótt heimsmeistarinn Ka-
sparov sé fjarri góðu gamni og
Karpov sömuleiöis, sem nú teílir
einvígi við Timman í Malasíu. En
Englendingar og Bandaríkjamenn
munu áreiöanlega selja sig dýrt.
Þeir stilla hvorir tveggju upp sín-
um þyngstu og snjöllustu mönnum.
í stigum talið er Noröurlanda-
úrvahð fátækast en þar vantar
nokkra lykilmenn. Mestu munar
um sænska stórmeistarann snjalla,
Ulf Andersson, en hann er staddur
í Malasíu, Timman til aðstoðar í
áðurnefndu einvígi. En stigin segja
ekki alla söguna. Sveitin hefur allt
að vinna, engu að tapa. Hver veit
nema hún, með aðstoð liðsstjórans,
Friðriks Ólafssonar, geri einhveij-
ar rósir.
Æfðu sig í Linares
Forsprakkar sovésku, banda-
rísku og ensku sveitanna komu
hingað til lands beint frá stórmót-
inu í Linares á Spáni sem lauk um
síðustu helgi. Þetta eru þeir Artur
Jusupov og Vassily Ivantsjúk, sem
tefla á 1. og 2. borði með Sovét-
mönnum; Boris Gulko, efsti maður
Bandaríkjamanna, og Nigel Short,
sem leiðir ensku sveitina. Ivant-
sjúk skákaði þar 1. borðs mönnun-
um, hlaut 6,5 v. af 11 mögulegum.
Short hlaut 6 v. en Gulko og Ju-
supov fengu 5,5 v. eða 50% vinn-
ingshlutfall.
Sigurinn kom í hlut heimsmeist-
arans Kasparovs sem hlaut 8 v. af
11 mögulegum. Honum tókst að
leggja Spánverjann Ulescas í loka-
umferðinni í 61 leik og skríða þar
með upp fyrir Boris Gelfand, sem
hlaut 7,5 v. og 2. sætið óskipt. Val-
éry Salov hlaut 7 v. og þriðja sæti
og síðan kom Ivantsjúk og þeir fé-
lagar sem nú gista Reykjavík.
Mótstaflan hér á síðunni sýnir röð
keppenda og úrslit í einstökum
skákum.
Það er athyglisvert að hin unga
kynslóð sovésku stórmeistaranna
raðar sér í efstu sætin. Kasparov
er aðeins 26 ára þótt varla verði
hann talinn neitt unglamb lengur;
Gelfand er 23ja ára, Salov er 25 ára
Skák
Jón L. Arnason
og Ivantsjúk, sem er þeirra yngst-
ur, verður 21 árs 18. þessa mánað-
ar. Um Kasparov þarf vart að hafa
mörg orð og Salov hefur þegar sýnt
skákheiminum hæfileika sína.
Gelfand og Ivantsjúk eru menn
framtíðarinnar, vart komnir af
gelgjuskeiði en afburðasnjallir
skákmenn. Margir spá því að
Ivantsjúk sé efni í heimsmeistara.
Nú eiga íslenskir skákáhugamenn
Linares1990 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 V.
LKasparov /i /i 1 1 0 1 'Zi 1 1 1 /1 8
2. Gelfand /i 1 /i 0 1 0 1 1 1 /1 1 7'/2
3. Salov Vi 0 /i 1 /l 1 /l 1 '/2 1 •/2 7
4. Ivantsjúk 0 /l. /i 'Á /l /l 1 /i '/2 1 1 6'/2
5. Short 0 1 0 /i 1 /l 1 i /l 0 'A 6
6. Gulko 1 0 /l /i 0 /l 0 /i /l 1 1 5'/2
7. Jusupov 0 1 0 /i /l /l /l 0 1 /1 1 5'/2
8. Beljavsky /l 0 /l 0 0 1 /l 0 1 1 /1 5
9. Illescas 0 0 .0 /l 0 '/2 1 1 0 , '/2 /1 4
10. Spassky 0 0 /l /l /l /l 0 0 1 /1 /1 4
H.Portisch 0 /l 0 0 1 0 /l 0 /l /1 1 4
12. Ljubojevic /l 0 /l 0 '/2 0 0 '/2 /l /1 0 3
Táknræn mynd.fyrir stórveldaslaginn? Short, 1. borös maður Englendinga, gægist yfir öxlina á forsprakka
sovésku sveitarinnar, Artur Jusupov.
þess kost að fylgjast með tafl-
mennsku hans - hann er líklega
eitt helsta aðdráttaraflið í Faxafeni.
En hver skyldu innbyrðisúrslit
hafa orðið í Linares milli fjórmenn-
inganna sem nú tefla í stórvelda-
slagnum? Með því að athuga móts-
töfluna sjáum við að jafntefli hefur
orðiö í öllum innbyrðisskákum
þeirra nema einni - Short vann
Gulko. Skákir þeirra voru þó al-
mennt þrungnar baráttu og raunar
verður það sama sagt um aðrar
skákir í Linares. Meira að segja
Spassky mátti gera sér að góðu að
beijast, enda hafði hann fyrir mót-
iö undirritað eiðstaf um aö semja
ekki um jafntefli fyrr en í fulla
hnefana. Nokkrum sinnum lét
hann þó freistast en líklega geymir
hann skákir sínar, sem eru lengri
en tuttugu leikir, í spjaldskránni
undir heitinu „maraþonskákir".
Tefldar verða tvöfaldar umferðir
í Stórveldaslagnum en er þetta er
sett á skjá liggur ekki ljóst fyrir
hvaða sveitir tefla fyrst. Þegar Eng-
lendingar mæta bandarísku sveit-
inni má búast við aö bitið verði í
skjaldarrendur. Á fyrsta borði á
Gulko harma að hefna gegn Short
frá Linares. Hann fékk prýðilegt
tafl eftir rólyndislega byrjun
Shorts en setti menn sína í dálítið
þrönga stööu á kóngsvængnum,
sem bauð hættunni heim. Þetta
tókst Short að færa sér í nyt sem
lét riddarafóm Gulkos eins og
vindu um eyru þjóta.
Hvítt: Nigel Short
Svart: Boris Gulko
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3
d6 5. c3 Bd7 6. Rbd2 g6 7. Rfl Bg7
8. Bg5 h6 9. Bh4 Ra5 10. Ba4 Bxa4
11. Dxa4+ Rc6 12. Re3 Dd7 13. 0-0
0-0 14. Khl Rd8 15. Dc2 Rg4 16. h3
Rxe3 17. fxe3 Re6 18. d4 exd4 19.
exd4 í5 20. Hael Hae8 21. exf5 Hxf5
22. Bg3 Df7 23. De2 BfB 24. De4 d5
25. Dd3 c6 26. Be5 Rf4 27. Dd2 Rxh3?
28. g4!
Ekki 28. gxh3? Bxe5 og leppunin eftir
f-llnunni skilar svörtum manninum til
baka. Nú er hrókur svarts strandaglóp-
ur á miðju borði og hvítur hlýtur að
tapa Uði.
28. - Bg5 29. Dg2 Rf4 30. Dh2 Hf6 31.
Rxg5 hxg5 32. Bxf6
Og Gulko gafst upp.
Skoðum að lokum handbragð Ivant-
sjúks, sem leikur hér Ljubojevic grátt.
Júgóslavneski stórmeistarinn telur sig
vera að veiða riddara en kemst að því
að hann er tálbeita. Ivantsjúk hefur
reiknað framhaldið nákvæmt og kemst
út í endatafl með tveimur peðum meira
og þá er ekki að spyrja að leikslokum.
Hvítt: Ljubomir Ljubojevic
Svart: Vassily Ivantsjúk
Caro-Kann vörn.
1. e4 c6 2. d3 e5 3. Rf3 Rf6!
Örlítil gletta: Nú strandar 4.
Rxe5?? á 4. - Da5+ og riddarinn
fellur.
4. Be2 d6 5. 0-0 Rbd7 6. Hel g6 7. a4
Bg7 8. Rc3 0-0 9. d4 exd4 10. Rxd4
He8 11. Bfl Rc5 12. f3
Taflið hefur yfirbragð kóngsind-
verskrar varnar, án þess að hvítur
hafi leikið c2-c4, eins og jafnan í
þeirri byrjun. Hvítur hefur einnig
tapað leik með því að leika drottn-
ingarpeðinu tvisvar. Þetta tvennt
er næg ástæða fyrir svartan til að
taka af skarið á miöborðinu.
12. - d5! 13. e5 Rh5 14. g4?
Er hvítur að vinna mann? í ljós
kemur aö 14. f4 var nauðsynlegt.
I A#I tir
k 1 lii
i á
A 4H
A & A
A
A A A
1 áfii^
A B C D E . - Hxe5! 15. Hxe5 F G H
Ekki 15. gxh5 Hxel 16. Dxel
Bxd4+ o.s.frv.
15. - Bxe5 16. gxh5 Dh4 17. f4
Eini leikurinn til að hindra mát
á h2 og loka skotlínu drottningar-
innar að riddaranum um leið. Hætt
er við að Ljubojevic hafi, er hann
lék sinn 14. leik, sést yfir næsta
leik Ivantsjúks.
17. -Dg4 + !
Svartur vinnur nú manninn aft-
ur þar eö 18. Dxg4 er svarað með
millileiknum 18. - Bxd4 meö skák.
18. Bg2 Dxdl+ 19. Rxdl Bxd4+ 20.
Be3 Bxe3 21. Rxe3 d4 22. b4 Re6 23.
Rc4 Rxf4
Með tveimur peðum meira í
endatafli er sigur svarts augljós.
24. Rd6 Rxg2 25. Kxg2 Bf5 26. Hdl
Bxc2 27. Hxd4 Hd8 28. a5 Kf8 29. Rb5
Hxd4 30. Rxd4 Ba4 31. Kf3 Ke7 32.
Kf4 f6 33. hxg6 hxg6 34. h4 Kd6 35.
Re2 Bc2 36. Rc3 Ke6 37. Kf3 Kf5 38.
Ke3 Kg4 39. b5 cxb5 40. Rxb5 Ba4 41.
Rxa7 Bd7 42. Kd4 f5 43. Kc5 f4 44.,
Kd6 Ba4
Og Ljubo gafst upp. -JLÁ