Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 19
LAUGARDAGUR 10. MARS 1990. 19 Fimm frumherjar Sinfóníuhljómsveitar íslands spila enn af sömu gleði: Björn R. Einarsson, Jónas Dagbjartsson, Þorvaldur Steingrímsson, Ingv- ar Jónasson og Páll P. Pálsson. DV-mynd Brynjar Gauti Sinfóníuhljómsveitin 40 ára: Kraftmiklir frumherjar að taka þátt í þessu en ýmsir voru andsnúnir. Fjármagn lá ekki á lausu og þótti mörgum að pening- um, sem fóru til hljómsveitarinnar, væri kastað á glæ,“ segir Páll. í dagblöðum frá 10. mars 1950 má lesa um tónleikana og er sagt að hljómsveitinni hafi verið fagnað gifurlega. Dr. Páll ísólfsson hélt hátíðarræðu og gerði að umtalsefni að tryggja þyrfti hljómsveitinni Qárhagslegan grundvöll. Áður en tónleikarnir hófust lék hljómsveit- in íslenska þjóösönginn. Sinfóníuhíjómsveit íslands hefur farið út fyrir landsteinana til tón- leikahalds og var fyrsta utanlands- ferðin til Færeyja. „Ferðin til Aust- urríkis árið 1981 er í mínum huga eftirminnilegust og einn af há- punktunum í starfseminni. Þar lékum við í stórkostlegum tón- leikasölum sem gáfu hljómsveit- inni nýja vídd,“ segir Páll. Góðir hljóðfæraleikarar Páll segir að framfarir hljóm- sveitarinnar hafi verið mjög miklar á þessum fjórum áratugum en inn- an hennar hafa ætíð verið mjög góðir hljóðfæraleikarar. „Það má heyra á gömlum upptökum að fyrstu hljóðfæraleikararnir voru geysigóðir þrátt fyrir að gæði stál- þráðarins væru ekki mikil. Nú hjálpast margt að við að skila flutn- ingi hljómsveitarinnar betur til hlustenda í útvarpi og munar mest um það hve tækninni hefur fleygt fram.“ Páll telur starfsemi Sinfóníu- hljómsveitarinnar hafa styrkt mjög allt tónlistarlíf í landinu. Hann seg- ir að unga fólkið, sem gengur til hðs við hljómsveitina, sé afar vel menntað í sínu fagi og greinilegt að kennsla hafi tekið mikinn fjör- kipp. Á fyrstu árum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar bar ekki mikið á kon- um en í dag eru þær jafnmargar, ef ekki fleiri en karlarnir. „Stelpur virðast hafa miklu meiri áhuga á tónlistarnámi en strákar. Strák- arnir vilja sennilega læra eitthvað sem gefur pening og vita sem er aö hljómlistarmaður er ekki há- launamaður hérlendis," segir Páll og virðist ekki vera neitt óánægður með þessa þróun. „Sumir hljóm- sveitaframkvæmdastjórar vilja alls ekki ráða konur og telja að þær eyðileggi hreinlega út frá sér. Það er hin mesta vitleysa og ég fæ ekki betur séð en þær standi sig eins vel og karlamir, ef ekki betur.“ -JJ Fyrir réttum fjörutíu árum hélt Sinfóníuhljómsveit íslands sína fyrstu tónleika. Ekki var stór hljómleikasalur til ráðstöfunar, fremur en nú, og varð Austurbæj- arbíó fyrsta tónleikahús hljóm- sveitarinnar. í nokkur ár átti hljómsveitin þar athvarf en fékk öðru hveiju inni í Þjóðleikhúsinu. Fimm hljóðfæraleikarar, sem komu fram á fyrstu tónleikunum, eru enn starfandi. Það eru þeir Björn R. Einarsson básúnuleikari, fiðluleikararnir Jónas Dagbjarts- son og Þorvaldur Steingrímsson, Ingvar Jónasson víóluleikari og Páll Pampichler Pálsson. Engin ellimerki er að finna á frumherjun- um. „Þeir eru svo lifandi og kraft- miklir í flutningi sínum af því þeim finnst svo gaman að leika saman," segir Páll þegar hann er spurður um samherjana. „Það á við um hljómsveitina í heild að starfsgleð- in endurspeglast í flutningi hennar. Ég hef unnið með hljómsveitum erlendis og þó að þær séu á margan hátt betri vantar í þær alla lífs- gleði. En gleðin þýðir ekki aö hljómsveitin sé agalaus, fjarriþví.“ Hljóðfæraleikarar í byggingarvinnu Páll P. Pálsson byijaði sinn feril hérlendis sem trompetleikari hljómsveitarinnar en er í dag þekktastur sem stjórnandi hennar. Hann var fenginn hingað til lands skömmu áður en hljómsveitin hóf starf sitt og ílengdist hér. Hann var ekki eini útlendingurinn sem kom til starfa en margir sneru heim. „Á fyrstu árum hljómsveitarinn- ar voru hljóðfæraleikararnir ekki fastráðnir og fengu því launin greidd með höppum og glöppum," segir Páll. „Margir erlendu gest- anna áttu erfitt með að sætta sig við að vinna í byggingarvinnu eða einhverju álíka til að afla tekna en vinna við hljóðfæraleikinn í hjá- verkum. Þeir voru fyrst og fremst tónlistarmenn en ekki verka- menn.“ í fyrstu hljómsveitinni voru hljóðfæraleikaramir 45 en nú eru starfsmenn hennar um sjötíu og oft eru meðlimir hljómsveitarinnar fleiri en hundrað. Mikið var rætt og ritað með og á móti stofnun hennar á sínum tíma. Stofnunin þótti mikill viðburður í þjóðfélag- inu og var góður rómur gerður að fyrsta flutningi hennar. Stjórnandi var Róbert Abraham Ottósson og var sinfónía í H-moll - Ófullgeröa sinfónían - eftir Schubert aðalvið- fangsefnið. „Okkur þótti gífurlega spennandi Fordkeppnin: Úrslitin kynnt a morgun Urslit í Ford-fyrirsætukeppninni verða kynnt á morgun í hófi sem fram fer í hinum glæsilega sal, Setr- inu, á Holiday Inn-hótelinu. Það er Vibeke Knudsen frá Ford Models í New York sem kynnir úrslit. Tólf stúlkur keppa til úrshta en sigurveg- arinn fær ferð til Los Angeles þar sem hún mun taka þátt í keppninni Supermodel of the World - Face of the 90’s - um mánaöamótin júlí- ágúst. Vibeke Knudsen starfaði sem fyrir- sæta á áttunda áratugnum og var ein af þeim eftirsóttustu í þeirri grein á sínum tíma. Vibeke er dönsk en fór til Parísar ung að árum þar sem hún náði mjög langt sem fyrirsæta. Það var í París sem Eileen Ford sá Vibeke og bauð henni til New York. Vibeke hefur skreytt forsíður allra helstu tískublaða, svo sem Elle, Vogue, Har- per’s, Bazaar, Newsweek og New. York Magazine. Vibeke mun ferðast vítt og breitt fyrir Ford Models í leit að ungum fyrirsætum. Hún kemur frá Ósló í dag en strax á mánudag heldur hún til Englands og þvínæst írlands þar sem hún mun velja þátttakendur í Supermodel of the World. Vibeke mun hitta stúlkurnar tólf, sem keppa til úrslita, í kvöld og aftur á morgun fyrir úrslitin. Stúlkurnar munu síðan mæta til smáhófs milli klukkan sextán og átján þar sem Vibeke mun tilkynna hver hlýtur þann titil aö verða Fordstúlkan 1990. Fordfyrirsætukeppnin er í raun ekkert annað en umsókn um starf og er því vel mögulegt að fleiri en ein stúlka fái samning við Ford Models í New York. Ágústa Erna Hilmars- dóttir, sem varð Fordstúlkan 1988, og Lillí Karen Wdowiak, Fordstúlka 1989, eru báðar starfandi sem fyrir- sætur á Ítalíu og gengur vel. Nú er því bara spurningin hver þessara tólf stúlkná hlýtur titihnn í ár. -ELA Stúlkurnar tólf, sem keppa um titilinn Fordstúlkan 1990, en úrslitin verða kynnt á Holiday Inn á morgun. FRUMSÝNDAR Á MYND- BANDALEIGUM \\\\. BlG lUEHSKUR T Tíl á öllum betrí myndbandaleígum landsíns DREIFING MYNDFORM SÍMI 651288

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.