Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 20
20 ’ MU'tíÁRDÁGUR'ÍÓ. MÁtö 1090. Kvikmyndir Það má segja með sanni að þótt kvikmyndagerð í Hollywood sé íhaldssamur iðnaður komi þaðan stundum hugmyndir sem komi reglulega á óvart. Það nýjasta er varaleikstjóri. Eins og svo oft áður er þetta nýja hlutverk leikstjórans ekki komið af hina góða heldur hugsað sem trygging Hollywood gegn þeirri áhættu sem fylgir kvik- myndagerð. En hins vegar hefur þetta einnig góðar hliðar eins og að gefa leikstjórum af eldri kyn- slóðinni tækifæri til að halda áfram að gera kvikmyndir sem annars hefðu aldrei verið gerðar. Varaleikstjóri er eins og nafr;ð ber með sér leikstjóri sem getur tekið við leikstjóm viðkomandi kvikmyndar ef leikstjórinn fellur frá. Stóru kvikmyndaverin hafa tekið upp á því þegar þau eru að framleiða kvikmyndir sem eldri leikstjórar leikstýra að krefjast varaleikstjóra ef eitthvað kæmi fyrir leikstjórann. Gott dæmi um þetta er myndin NOSTROMO sem ætlunin er að kvikmynda í næsta mánuöi. Leikstjórinn er sjálfur David Lean, 82 ára gamall heiðurs- maður sem á að baki listaverk eins og OLIVER TWIST (1948), THE BRIDGE ON THE RTVER KWAI (1957), LAWRENCE OF ARABIA (1962), DR. ZHIVAGO (1965) og svo siðast A PASSAGE TO INDIA sem Lean gerði 74 ára að aldri. Það er mikið lagt undir við gerð myndar- innar því að búið er að fá Marlon Brando til að vera í einu aðalhlut- verkanna og kostnaðurinn er áætl- aður um 2,5 milljarðar íslenskra króna. Það er því mikið í húfi að ekkert fari úrskeiðis og ekkert Hér sést David Lean að störfum. Leikstjóri á varamannabekk komi fyrir David Lean. Því gripu þeir háu herrar í Hollywood til þess ráðs að setja það skilyrði fyrir gerð myndarinnar að Lean hefði varaleikstjóra sem yrði alltaf við- staddur við gerð myndarinnar og gæti tekið við stjómtaumunum ef þörf krefði. Tveirgóðir Sá leikstjóri sem tók þetta að sér var ekkert smástimi heldur en þaö var Arthur Penn sem er líklega þekktastur fyrir myndir sínar THE CHASE (1966), BONNIE AND CLYDE (1967), LITTLE BIG MAN og svo MISSOURI BREAKS (1976). Penn verða borguð full leikstjóra- laun fyrir að leikstýra ekki mynd- inni og hann hefur í raun ekkert að segja um gerð hennar nema Lean forfallist. Penn hefur sagt að hann hafi haft lítinn áhuga á hlutverki vara- leikstjórans af því að hann væri með sína eigin mynd í undirbún- ingi. Hins vegar vildi hann gera allt sem hann gæti til að sjá til þess að Lean gæti gert NOSTROMO en Penn telur Lean einn af þremur fremstu kvikmyndaleikstjórum okkar tíma. NOSTROMO er byggð á sögu Jos- eph Conrad sem hann skrifaði 1904. Hún gerist í lýðveldi i Suður- Ameríku sem rambar á barmi bylt- ingar. Hér skal ekki fariö nánar út í efnisþráðinn heldur einungis bent á þá staðreynd að ein umtalaðsta stórmynd síðasta áratugar var einnig gerö eftir sögu Conrad en það var mynd Francis Coppola, APOCALYPSE NOW, sem byggð var á Heart of Darkness. Það hefur löngum þótt erfitt að gera kvik- myndir eftir bókum Conrads en ef einhver getur gert það vel er það líklega gamla kempan David Lean. David Lean hefur lengi haft áhuga á að kvikmynda þessa sögu Joseph Conrad. Það sem reið eigin- lega baggamuninn voru fréttir þess efnis að kvikmyndaklúbbur í Cam- bridge hefði látið gera könnun meðal félagsmanna sinna um hvaða efni þeir teldu að David Lean ætti að kvikmynda næst ef hann héldi áfram kvikmyndagerð. Af einhveijum ástæðum nefndi meiri- hlutinn NOSTROMO. Coppola og Scorsese Lílega hafa fáir leikstjórar rétt eldri leikstjórum eins mikla hjálp- arhönd og þeir Francis Coppola og Martin Scorsese. Raunar hefur Coppola ekki síöur stutt unga og efiúlega kvikmyndagerðarmenn. Til dæmis tók hann upp á arma sína Wim Wenders þegar hann gerði sína fyrstu mynd í Bandaríkj- unum. Það er einnig alkunna að þeir fé- lagar beittu þrýstingi á ákveðið kvikmyndaver í Hollywood til að sjálfur Kurosawa gæti haldið áfram að gera kvikmyndir á full- orðinsárum sínum eftir aö bæði bandarísk og japönsk kvikmynda- ver höfðu afskrifað gamla manninn sem leikstjóra. Einnig má benda á að þeir Scorsese og Coppola beittu sér fyrir því í fyrra aö hinn 85 ára gamU herramaður Michael Powell fengi að gera THE FALL OF THE HOUSE OF USHER þótt myndin yrðu aldrei endanlega gerð vegna óviöráðanlegara ástæðna. Scorsese hefur einnig boðist til þess að vera framleiðandi nýjustu myndar Antonioni sem nefnist THE CREW og er fyrsta myndin sem hann hefur á prjónunum að gera í áratug. Þegar Antonioni var upp á sitt besta gerði hann myndir eins og BLOW-UP (1967) og ZA- BRISKIE POINT (1969) Margt framundan Þótt Antonioni hafi fengið slæmt hjartaáfall fyrir um það bil tveimur árum halda aðstandendur myndar- innar því stíft fram að aldrei hafi verið ætlunin aö hafa Scorsese sem varaleikstjóra heldur sem hjálp til að velja leikara og ákveða hvar ætti að taka myndina. Að lokum má nefna aö annar leikstjóri af eldri kynslóðinni er nú aö leita sér að varaleikstjóra þessa stundina. Það er Elia Kazan sem nú er 81 árs gamall. Hann gerði margar frægar myndir á sínum yngri árum eins og A STREETC AR NAMED DESRIE, ON THE WAT- ERFRONT og svo EAST OF EDEN en nú er svo komið vegna aldursins að stóru kvikmundaverin treysta sér ekki lengur að fjármagna myndir hans af ótta við að eitthvað komi fyrir hann sjálfan eða mynd- imar fjalli um efni sem áhorfendur hafa ekki áhuga á. Kazan er þessa Umsjón: Baldur Hjaltason dagana að undirbúa að kvikmynda BEYOND THE AEGEAN sem von- andi mun einhvem tímann líta dagsins ljós. A undanfórnum árum hefur kostnaður við kvikmyndagerð aukist hröðum skrefum. Til að minnka áhættuna hafa erlendu kvikmyndaverin tryggt sig hjá tryggingafélögum þannig að ef myndin er ekki gerð á ákveðnum tíma fyrir ákveðinn kostnað greiðir tryggingarfélagið mismuninn. Því setja mörg tryggingarfélög það sem algert skilyrði að yngri leikstjórar leikstýri myndunum og helst að- eins þeir sem hafa sýnt og sannað að þeir eru leikstjórar á heims- mælikvarða. Því er komin upp sú óþægilega staða að tryggingarfé- lögin geta haft meiri áhrif á hvaða leikstjóri á aö leikstýra viðkomandi mynd en framleiðandinn sjálfur. John Huston Það þekkja víst flestir John Hus- ton. Hann lést fyrir nokkrum árum og gerði raunar fárveikur síðustu mynd sína, THE DEAD. Það vita hins vegar færri að ástæðan fyrir því að honum var treyst til aö gera THE DEAD var einfaldlega sú að Karel Reisz haíði gengist undir þá kvöð að taka að sér leikstjómina ef Huston félli frá. Það var bæði Huston sjálfur og svo ættingar Ja- mes Joyce, en myndin var byggð á einni af bókum hans, sem höföu samband við Reisz. En Reisz hafði ekki erindi sem erfiði því þrátt fyr- ir sjúkleika sinn tókst Huston að ljúka við myndina þótt oft munaði mjóu. En ekki má heldur gleyma sjálf- stæðum framleiðendum sem eru tilbúnir að taka áhættu, sérstak- lega ef þeir eru orðnir sjálfir full- orðnir. Tökum sem dæmi Frak- kann Serge Silberman sem stendur að hluta til að baki David Lean við gerð NOSTROMO. Silberman framleiddi m.a. fimm síðustu myndir Bunuel eins og THAT OBJECT OF DESIRE sem Bunuel gerði 77 ára að aldri. Einnig var Silberman sá eini sem þoröi að framleiða RAN undir leikstjórn Kurosawa sem þá var um áttrætt. Helsti kosturinn við þessa nýju stefnu Hollywood er að mörgum gömlum kempum kvikmyndasög- unnar gefst nú tækifæri til að gera kvikmyndir þótt þeir séu komnir vel yfir eftirlaunaaldur. Þetta er ekki síður ánægjulegt fyrir kvik- myndahúsagesti því sjaldan hefur ræst eins vel máltækið „lengi lifir í gömlum glæðum“ eins og um þessa gömlu meistara þegar þeir á gamals aldri taka sig til og gera kvikmynd. Helstu Heimildir: Variety Sight and Sound B.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.