Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Blaðsíða 21
. l.AUG^KDAqUH, 10. MAR8 1990. Meiming Nýtt í klassíkinni: Kynþokki í aðalhlutverki mm ■ Fiðlusnillingurinn Anne Sophie Mutter missti nokkur kíló og fékk afar kynþokkafulla markaðssetningu hjá Deutshce Grammophon. Hún er óumræðilega talin snillingur en skyldi kynþokkinn hafa hækkað sölutöl- urnar? Þaö mun ekki lengur vera nóg að vera frábær hljóðfæraleikari ef menn vilja ná langt í klassískri tón- list. í nýlegu tölublaði Politiken má lesa að í dag séu einleikarar í klassík markaðssettir á sama hátt og popp- og rokkstjörnur þar sem kynþokkinn er í aðalhlutverkinu. Hið heimsþekkta útgáfufyrir- tæki, Deutsche Grammophon, ruddi brautina í kynþokkafullri markaðssetningu á einleikurum. Fiðlusnillingurinn Anne Sophie Mutter, sem var frekar þybbin, var sett í hörkumegrun. Fyrirtækið vildi kynþokkafulla glansmynd á plötuumslagið, ekki mynd af ein- hverri „buddu“ með fiðlu. Það gekk. Þannig hefur ný vídd komið inn í klassíska tónlist. „Kynþokki er ein besta söluvara sem til er og því ætti það ekki að gilda um klasíska tónlist," segir Wensel Andreasen, einn af liðs- mönnum Dana í Kontrapunkts- spurningakeppninni í sjónvarpinu. „Viö höfum gjörsamlega mettaðan plötumarkað í kiassík þar sem til dæmis má finna 30 rhismunandi hljóðritanir á fiðlukonsert Brahms. Það er því ekkert skrýtið þó fyrir- tækin leiti nýrra leiða í markaðs- setningu. Þegar „standardkúnni" kaupir „standardverk" gerist það meira með augunum en ekki eyr- unum.“ En kynþokki er líka á ferðinni þar sem karlmenn eru annars veg- ar. Enski fiðluleikarinn Nigel Kennedy er kjaftfor þar sem hann lætur ijós sitt skína í rabbþáttum sjónvarpsins og með loðna bringu í þokkabót. Það er sögð ástæða þess að selst hafi meira en 150 þúsund plötur þar sem hann leikur Árstíð- ir Vivaldis þrátt fyrir að klassískir gagnrýnendur séu allt annað en hrifnir af hljóðfæraleik hans þar. Það er ekki nóg með að kynþokki sé notaður sem slíkur heldur er honum beint sérstaklega að ákveðnum kaupendahópum eins og konum, körlum og samkyn- hneigðum. En gengur kynþokkafull mark- aðssetning þegar til lengri tíma er litið? Því trúa menn almennt ekki en kynþókkinn er þó sagður hjálpa einleikurum mjög að koma sér á framfæri og hjálpa upp á sölutölur þegar viðurkenndra snillinga. Þannig fékk flautuleikarinn Mic- hala Petri, sem fram að þrítugs- aldri var talin næsta „kynlaus“ kvenmaður, yfirhalningu í anda kynþokkafullrar markaðssetning- ar. Kynþokkafull markaðssetning er ein hlið málsins en svipuhögg út- gáfufyrirtækjanna, þar sém þau reka einleikarana áfram, önnur. Margir hljósmveitarstjórar segja að tækni í hljóðfæraleik einleikar- anna hafi aldrei verið betri en kvarta um leið yfir því að þá vanti of oft „persónuleika" eða „sál“ í leik sínum. Því spyrja menn hvar kynþokkafullir ungir einleikarar standa þegar fjöldi verka gömlu meistaranna, sem seldust vegna „sálar og persónuleika" í leik þeirra, er settur á geisladiska við hlið þeirra nýju. -hlh ~ VlVALDl CELLO CONCERTOS töRonio chahbV.r orchestra PAUL ROBinSOW COMDCC.TOK Kanadíski sellóleikarinn Ofra Harnoy þykir ekkert framurskarandi í selló- konsert Vivaldis en þar sem hún liggur í kynþokkafullum faömlögum með sellóinu sinu er hún ómótstæðileg fyrir marga kaupendur. 21 ,,Opid hús“ Háskóla íslands á morgun, 11. mars, frá kl. 13.00-18.00 „Opið hús“ í byggingum Háskólans. Jarðfræðahús (austan Suðurgötu) 2. Loftskeytastöðin 3. VR m 4. VR I 5. VR n 6. Tæknigarður Veitingastofan í Tæknigarði 7. Vetrarhöll 8. Raunvísindastofnun 9. Háskólabíó* Dagskrá í Þj óðarbókhlöðu. Kynning á öllum deildum Háskólans, 22 sérskólum, ýmsum stofnunum Háskólans og ýmsum þjónustustofn- unum stúdenta. Háskólabókasafn kynnir starfsemi sína í tilefni af 50 ára afmæli safnsins. Nemendur lista- skólanna og Háskólakórinn sjá gest- um fyrir hinum ýmsu listviðburðum. Kaffi á könnunni í boði Félags- stofnunar stúdenta. Háskólabfó: * Kynning á nýjum fyrirlestra- og sýningasölum. Salur 4 kl. 14:00. Kvikmyndasýning í boði fyrir fullorðna (Hálendingurinn). Dagskrá fyrir böm: Salur 3 kl. 14:00. Kvikmyndasýning í boði fyrir böm (Flakkaramir). í anddyri kl. 13:15 og kl. 16:00 söngur og brúðuleikhús á vegum nemenda í Fósturskóla íslands. AEIG tile: Hugsaðu þér ferðafrelsið. Og möguleikana. Þú getur ekið vítt og breitt um Skandinavíu eða suður til Evrópu án þess að eyða stórfé í að leigja bfl. Með Norrænu getur fjöl- skyldan farið á ódýran og þægilegan hátt með sinn eigin bfl þangað sem hana langar. Þegar þú ferð á þínum eigin með Norrænu slærðu tværflug- ur í einu höggi. IN BIF' VRÓPU 'REIÐ eða Evr- ópu. Þú ræður ferðatímanum og getur farið hvert á land sem er. Frá Bergen liggja leiðir til allra átta í Skandinavíu. Há- fjallafegurð Noregs og undirlendi Svíþjóðar er skammt undan að ógleymd- L um borg- u m -"miimiiiiiimiii □ ■iii....... sameina ferð um ísland á leiðinni til Seyðisfjarðar og utanlandsferð til Norðurlanda eins og Ósló og Stokkhólmi. Frá Svíþjóð er hægur vandi að komast með ferju yfir til Finn- lands og skoða þúsund vatna landið eða hina fögru höfuðborg, Helsinki. Frá Hanstholm í Danmörku liggja leiðir um Jótland til Kaupmannahafnar, ef vill og áfram um Skandinavíu, eða suður til , Þýskalands og blasir Evrópa þá við í öllu sínu veldi. Við Játum þig um ferðaáætlunina en flytjum hins vegar fjölskylduna og bílinn yfir hafið á þægilegan en óvenju skemmtilegan hátt. NORRÆNA FERÐASKRIFSTO FAN SMYRIL-LINE ÍSLAND LAjJGAVEGUR 3 101 REYKJAVÍK SIMI 91-62 63 62 AUSTFAR HF. N0RRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN FJ^RÐARGÖTU 710 SEYÐISFIRÐI SIMI 97-211 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.