Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Side 22
22
LAUGARDAGUR 10. MARS 1990.
Viðskiptajöfurinn Svavar Egilsson í nærmynd DV:
Svavar starfar á
jarðsprengiusvaedi
Á þeim þremur árum sem liðin eru
frá því Svavar Egilsson lauk námi í
hagfræði i Kantaraborg hefur hann
hvað eftir annað komiö á óvart í við-
skiptalífmu og nánast farið ham-
fórum í kaupum og sölu á fyrirtækj-
um. Nú síðast meö því að bjóða 200
milljónir í meirihlutavöld í Arnar-
flugi.
Miklum umsvifum fylgir mikið
umtal. Svavar hefur ekki farið var-
hluta af því og hefur hlotið nafngift-
ina „pappírstígrisdýrið" manna á
meðal. Nafnið er tilkomiö vegna þess
að við kaup á fyrirtækjum hefur
Svavar reitt fram skuldaviðurkenn-
ingar og aðra pappíra frá sölum á
öðrum fyrirtækjum. Beinharðir pen-
ingar koma lítið við sögu.
En það stendur ekki í vegi fyrir því
að Svavar fær fyrirtækin enda eru
skuldaviðurkenningar jafngildi pen-
inga. Auk þess má benda á að pening-
ar hafa verið pappírar frá því gullfót-
urinn var lagður niður snemma á
öldinni.
Skódinn var upphafið
En hver er þessi Svavar?
Saga hans minnir um margt á fjöl-
margar bækur og kvikmyndir sem
Ameríkanar hafa gert til að vegsama
ameríska drauminn. Svavar fæddist
ekki með silfurskeið í munninum.
Eftir að hafa stundað ýmis störf og
flakkað um heiminn fékk hann vinnu
hjá Tékkneska bifreiöaumboðinu
sem var með umboð fyrir Skoda.
Þar kynntist hann' dóttur eins af
um
hotel
Meöan Svavar var í
námlí Kantaraborg
geymdi hann fjármuni
sína í fastelgnum;
meöalannars
Laugavegl17 og
Þlngholtsstræti 1.
Eftir nám keyptl Svavar fyrst
Naustiö, rak þaö í stuttan tíma
og seldi sföan aftur. *
G\
EYSIR
f [ 1Ð1110 SIÖ 01N
FEROASKR1FSTOFAN
POLARIS ’yyfey
Áöur en Svavar seldl Naustlö
keyptihann íslenska
myndver lö. Þar var hann
forstjórl þar tll hann seldl
eigendum Stöövar 2 hlut
sinn.
Eftlr aö hafa gert tilboö í nokkur fyrir■
tæki keypti Svavar Feröamiöstööina
Veröld og síöar Pólaris. Þá átti hann
þegar Hótel Geysi.
ARNARFLUG
DVJRJ
Slöasti leikur Svavars var aö bjóöa
V 200 milljóna hlutafé fyrir
meirihlutavöld í Arnarflugl ásamt
fleirum.
eigendunum. Það ásamt því að hann
var góður sölumaður tryggði honum
hlut í fyrirtækinu sem var skírt upp
og nefnt Jöfur.
Eftir nokkur ár í Jöfri reif Svavar
sig síðan upp, fór í öldungadeildina
og síðan í hagfræðinám í Kantara-
borg. Þegar hann kom heim tók hann
að nota þá fjármuni sem hann hafði
bundið í fasteignum til kaupa á fyrir-
tækjum. Síðan þá hefur atburðarásin
verið hröö og æ stærri fjárhæðir leg-
ið undir.
Hann er það sem heitir á ensku
„high flyer“ í viðskiptalífinu; er fljót-
ur að taka ákvarðanir og óhræddur
við að ráðast í stórhuga framkvæmd-
ir.
Þó umsvif Svavars hafl vakið mikla
athygli þá fer því fjarri að hann sé
orðinn einn af þeim stóru. Hann hef-
ur fyrst og fremst keypt tiltölulega
lítil fyrirtæki sem flest eru nokkuð
ótrygg.
Svavar er þarna í hóp með mönnum
eins og Óla Laufdal, Þorleifi Bjarna-
syni og fleirum. Jafnvel þó þeir verði
moldríkir eins og Herluf Clausen þá
fá þeir ekki að leika sér nema á tak-
mörkuðu svæði í viðskiptalífinu. Þeir
hafa enn ekki haslað sér völl í sjávar-
útvegi, skipaútgerð, tryggingum og
öörum vel vörðum atvinnugreinum.
Þeir eru á svæði sem getur boðið upp
á skjótfenginn gróða en er jafnframt
hættulegt, - er hálfgert jarðsprengju-
svæði.
Sá eini af þessum mönnum sem
hefur náö að ógna fastbundnum völd-
um í viðskiptalífinu er Óli Kr. Sig-
urðsson enda hefur hann mátt þola
ýmislegt fyrir þá sök að hafa keypt
Olís.
Ömmu finnst
hann djarfur
Eins og áður sagði fæddist Svavar
ekki með silfurskeið í munninum.
Hann ólst upp á Sauðárkróki hjá afa
sínum og ömmu.
„Mér finnst hann fulldjarfur og
milijónirnar margar sem hann er að
kaupa fyrirtæki fyrir. Það er samt
ekki að marka því ég hef aldrei haft
vit á fjármálum," sagði Sigurbjörg
Ögmundsdóttir, amma Svavars Eg-
ilssonar, þegar DV ræddi við hana
um „drenginn" sem hún ól upp frá
flmm ára aldri.
Hún kallar hann enn dreng enda
er hann sem eitt af bömum hennar
og Svavars Guðmundssonar. Þau
hjónin tóku við dóttursyni sínum við
skilnað Ásdísar og Egils, foreldra
hans, og hjá þeim var hann allt til
sautján ára aldurs.
„Það bar aldrei á því að hann væri
peningamaður meðan hann var hér
heima á Króknum og ekkert kennd-
um við honum í þeim efnurn," heldur
Sigurbjörg áfram. „Hann var afskap-
lega ljúfur drengur og honum gekk
vel í skóla. Það er þó ekki mikið að
marka það sem ég segi um hann því
hverjum þykir sinn fugl fagur.“
Afl og amma Svavars voru mjög
virk í Hvítasunnusöfnuðinum á
Sauðárkróki. Svavar var þó aldrei í
söfnuðinum. „Við vorum ekkert að
halda trúmálum að bömunum og það
gilti líka um Svavar. Hann fékk því
að ráða sér algerlega sjálfur í þeim
efnum,“ segir Sigurbjörg.
Duglegur að
skrifa heim
Svavar fór frá Sauðárkróki árið
1968 og hélt suður til Reykjavíkur.
Þar vann hann á ýmsum stöðum en
lengst af við afgreiðslu í verslun Úl-
tíma. Þegar Svavar var nítján ára fór
hann í siglingar og settist að í Ástral-
íu. Þar bjó hann í þrjú ár og vann
ýmisstörf.
„í Ástralíu vann ég við flest það sem
til féll. Þetta átti ekki að vera gull-
grafaraævintýri hjá mér og ég vann
við það sem gaf mestu tækifærin til
að ferðast hveiju sinni. Ég var um
tíma á hveitibúgarði og á skipi sem
flutti nautgripi frá norðurhluta
landsins til borganna í suðri. Um
tíma var ég einnig í sláturhúsi.
Ég vann líka hjá jámbrautunum
og fékk þannig ókeypis ferðir en eftir
að hafa unnið tiltekinn tíma fengu