Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 10. MARS 1990. Viðskiptajöfurinn Svavar Egilsson í nærmynd DV: Svavar starfar á jarðsprengiusvaedi Á þeim þremur árum sem liðin eru frá því Svavar Egilsson lauk námi í hagfræði i Kantaraborg hefur hann hvað eftir annað komiö á óvart í við- skiptalífmu og nánast farið ham- fórum í kaupum og sölu á fyrirtækj- um. Nú síðast meö því að bjóða 200 milljónir í meirihlutavöld í Arnar- flugi. Miklum umsvifum fylgir mikið umtal. Svavar hefur ekki farið var- hluta af því og hefur hlotið nafngift- ina „pappírstígrisdýrið" manna á meðal. Nafnið er tilkomiö vegna þess að við kaup á fyrirtækjum hefur Svavar reitt fram skuldaviðurkenn- ingar og aðra pappíra frá sölum á öðrum fyrirtækjum. Beinharðir pen- ingar koma lítið við sögu. En það stendur ekki í vegi fyrir því að Svavar fær fyrirtækin enda eru skuldaviðurkenningar jafngildi pen- inga. Auk þess má benda á að pening- ar hafa verið pappírar frá því gullfót- urinn var lagður niður snemma á öldinni. Skódinn var upphafið En hver er þessi Svavar? Saga hans minnir um margt á fjöl- margar bækur og kvikmyndir sem Ameríkanar hafa gert til að vegsama ameríska drauminn. Svavar fæddist ekki með silfurskeið í munninum. Eftir að hafa stundað ýmis störf og flakkað um heiminn fékk hann vinnu hjá Tékkneska bifreiöaumboðinu sem var með umboð fyrir Skoda. Þar kynntist hann' dóttur eins af um hotel Meöan Svavar var í námlí Kantaraborg geymdi hann fjármuni sína í fastelgnum; meöalannars Laugavegl17 og Þlngholtsstræti 1. Eftir nám keyptl Svavar fyrst Naustiö, rak þaö í stuttan tíma og seldi sföan aftur. * G\ EYSIR f [ 1Ð1110 SIÖ 01N FEROASKR1FSTOFAN POLARIS ’yyfey Áöur en Svavar seldl Naustlö keyptihann íslenska myndver lö. Þar var hann forstjórl þar tll hann seldl eigendum Stöövar 2 hlut sinn. Eftlr aö hafa gert tilboö í nokkur fyrir■ tæki keypti Svavar Feröamiöstööina Veröld og síöar Pólaris. Þá átti hann þegar Hótel Geysi. ARNARFLUG DVJRJ Slöasti leikur Svavars var aö bjóöa V 200 milljóna hlutafé fyrir meirihlutavöld í Arnarflugl ásamt fleirum. eigendunum. Það ásamt því að hann var góður sölumaður tryggði honum hlut í fyrirtækinu sem var skírt upp og nefnt Jöfur. Eftir nokkur ár í Jöfri reif Svavar sig síðan upp, fór í öldungadeildina og síðan í hagfræðinám í Kantara- borg. Þegar hann kom heim tók hann að nota þá fjármuni sem hann hafði bundið í fasteignum til kaupa á fyrir- tækjum. Síðan þá hefur atburðarásin verið hröö og æ stærri fjárhæðir leg- ið undir. Hann er það sem heitir á ensku „high flyer“ í viðskiptalífinu; er fljót- ur að taka ákvarðanir og óhræddur við að ráðast í stórhuga framkvæmd- ir. Þó umsvif Svavars hafl vakið mikla athygli þá fer því fjarri að hann sé orðinn einn af þeim stóru. Hann hef- ur fyrst og fremst keypt tiltölulega lítil fyrirtæki sem flest eru nokkuð ótrygg. Svavar er þarna í hóp með mönnum eins og Óla Laufdal, Þorleifi Bjarna- syni og fleirum. Jafnvel þó þeir verði moldríkir eins og Herluf Clausen þá fá þeir ekki að leika sér nema á tak- mörkuðu svæði í viðskiptalífinu. Þeir hafa enn ekki haslað sér völl í sjávar- útvegi, skipaútgerð, tryggingum og öörum vel vörðum atvinnugreinum. Þeir eru á svæði sem getur boðið upp á skjótfenginn gróða en er jafnframt hættulegt, - er hálfgert jarðsprengju- svæði. Sá eini af þessum mönnum sem hefur náö að ógna fastbundnum völd- um í viðskiptalífinu er Óli Kr. Sig- urðsson enda hefur hann mátt þola ýmislegt fyrir þá sök að hafa keypt Olís. Ömmu finnst hann djarfur Eins og áður sagði fæddist Svavar ekki með silfurskeið í munninum. Hann ólst upp á Sauðárkróki hjá afa sínum og ömmu. „Mér finnst hann fulldjarfur og milijónirnar margar sem hann er að kaupa fyrirtæki fyrir. Það er samt ekki að marka því ég hef aldrei haft vit á fjármálum," sagði Sigurbjörg Ögmundsdóttir, amma Svavars Eg- ilssonar, þegar DV ræddi við hana um „drenginn" sem hún ól upp frá flmm ára aldri. Hún kallar hann enn dreng enda er hann sem eitt af bömum hennar og Svavars Guðmundssonar. Þau hjónin tóku við dóttursyni sínum við skilnað Ásdísar og Egils, foreldra hans, og hjá þeim var hann allt til sautján ára aldurs. „Það bar aldrei á því að hann væri peningamaður meðan hann var hér heima á Króknum og ekkert kennd- um við honum í þeim efnurn," heldur Sigurbjörg áfram. „Hann var afskap- lega ljúfur drengur og honum gekk vel í skóla. Það er þó ekki mikið að marka það sem ég segi um hann því hverjum þykir sinn fugl fagur.“ Afl og amma Svavars voru mjög virk í Hvítasunnusöfnuðinum á Sauðárkróki. Svavar var þó aldrei í söfnuðinum. „Við vorum ekkert að halda trúmálum að bömunum og það gilti líka um Svavar. Hann fékk því að ráða sér algerlega sjálfur í þeim efnum,“ segir Sigurbjörg. Duglegur að skrifa heim Svavar fór frá Sauðárkróki árið 1968 og hélt suður til Reykjavíkur. Þar vann hann á ýmsum stöðum en lengst af við afgreiðslu í verslun Úl- tíma. Þegar Svavar var nítján ára fór hann í siglingar og settist að í Ástral- íu. Þar bjó hann í þrjú ár og vann ýmisstörf. „í Ástralíu vann ég við flest það sem til féll. Þetta átti ekki að vera gull- grafaraævintýri hjá mér og ég vann við það sem gaf mestu tækifærin til að ferðast hveiju sinni. Ég var um tíma á hveitibúgarði og á skipi sem flutti nautgripi frá norðurhluta landsins til borganna í suðri. Um tíma var ég einnig í sláturhúsi. Ég vann líka hjá jámbrautunum og fékk þannig ókeypis ferðir en eftir að hafa unnið tiltekinn tíma fengu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.