Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Page 27
Lífestm
FYLLINGAREFNI S
Sólarlandaferðir 1990
Kostuðu árið 1989 Kosta árið 1990 Hækkun/lækkun miðað við framfærslu- vísitölu Hækkun miðað við laun
Samvinnuf./Landsýn
Mallorca 72.100 80.300 -2,4% 1,4%
Rimini 70.700 83.800 3,9% 8,0%
Ferðamiðstöðin Veröld/Pólaris Costa del Sol 85.300 97.100 -0,3% 3,7%
Benidorm 74.900 101.900 19,2% 23,9%
Ún/al-Útsýn
Mallorca 65.200 76.100 2,3% 6,3%
Kýpur 77.700 88.900 2,5% 4,2
Úrval Útsýn
Úrval Útsýn er með ferðir á sínum
snærum til Mallorca. í fyrra kostaði
þriggja vikna ferð í júní eða júlí á
vegum Úrvals 65.200 krónur fyrir
einstaklinginn miðað við að hann
byggi með öðrum í stúdíóíbúð á E1
Paraiso, sams konar ferð ætti að
kosta miðað við verðlagsþróun á ár-
inu 74.400 krónur en kostar aðeins
meira eða 76.100 krónur. Hækkun
miðað við framfærsluvísitölu er rétt
rúm 2,0 prósent en miðað við laun
er hún 6,3 prósent.
Úrval bauð ferðir til Kýpur síðast-
hðið sumar og eftir samruna þessara
ferðaskrifstofa bjóða þær sams kon-
ar ferðir í ár. Tveggja vikna ferð í
júní eða júlí kostaði í fyrra 77.700
krónur, fyrir manninn, ef hann
deildi stúdíóíbúð með örðum á
L’Onda, á föstu verðlagi ársins í ár
ætti þessi ferð að kosta 86.700 krónur
en kostar 88.900 krónur. Það er rétt
um 2,5 prósent hækkun sé miðað viö
framfærsluvísitölu en rúm 4 prósent
hækkun sé miðað við laun.
Kauphækkanir
ogveróbólga
Ályktunin af þessum útreikning-
um er því sú að sólarlandaferðir hafa
ekki hækkað ýkja mikið í verði frá
síðasta ári, sé miðað við framfærslu-
vísitölu en öllu meira ef miðað er við
pyngju hins almenna borgara, eins
og við er að búast þegar kaupmáttur
hefur lækkað jafnmikið og raun ber
vitni. Þær hafa hins vegar í fæstum
tilvikum lækkað í verði eins og sum-
ar ferðaskrifstofur vilja láta í veðri
vaka. Þess ber þó að geta að flestar
ferðaskrifstofurnar birtu verðlista
sína fyrir síðustu kjarasamninga og
miðuðu því við meiri verðbólgu en
nú er búist við. Ef samið hefði verið
um meiri kauphækkanir og þar með
meiri verðbólgu hefði núgildandi
verð þýtt raunlækkun á verði sólar-
landaferða.
-J.Mar
Bláfjöll:
vel.
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýmun, frostþolið og þjappast
Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
m&QíMWWM M&z
Sævarhöfða 13 - sími 681833
Nýjar spumingar
um kynlíf og hjónaband
Úrval
tímarit fyrir alla
Skíðaskólinn Snæfríður
í Bláfjöllum eru í vetur starfræktir
tveir skíöaskólar. Annar þeirra er
skíðaskólinn Snæfríður og býður
hann upp á kennslu fyrir öll getustig
og er þátttakendum skipt í hópa eftir
því hversu mikið þeir kunna fyrir sér
í íþróttinni. Einnig er boðið upp á
einkakennslu fyrir allt að þrjá í hóp.
Stærri hópar, svo sem fyrirtæki,
starfsfélagar, skólafélagar og vina-
hópar, geta pantað kennslu fyrirfram
og fer kennslan fram um helgar á
einhverju skíðasvæðinu hér sunnan
heiða að vali hvers hóps. Gjarnan er
þá leigður einhver skíöaskáli yfir
helgi, til dæmis skálinn í Bláfjöllum,
og þar eru svo haldnar kvöldvökur
og reynt að gera ýmislegt til skemmt-
unar fyrir þátttakendur.
Fyrir fimm árum
Skíðaskólinn Snæfríður tók til
starfa fyrir fimm árum og að honum
standa skíðakennarar sem flestir
hafa hlotið menntun sína í Austur-
ríki. Flestir kennaranna hafa áður
starfað á sumrum í Kerlingarfjöllum.
Hver kennslustund er einn og hálf-
ur tími. Fyrsti tíminn hefst klukkan
11 á morgnana, annar tíminn hefst
klukkan 13 og þriðji tíminn hefst
klukkan 15.00.
Fullorðnir greiða 700 krónur fyrir
kennslustundina en börn 500 krónur.
Tíminn í einkakennslu kostar 1900
krónur, sama hvort um er að ræða
börn eða fullorðna. Helgarnámskeið
hjá Snæfríði kostar 3.500 krónur fyr-
ir fullorðna en 2.500 krónur fyrir
börn.
Lyftugjöld eru ekki innifalin en
dagskort í Bláfjöllum kostar 750
Það er austurrískur skiðastíll sem
kenndur er hjá Snæfríði.
Kennarar hjá Skíðaskólanum Snæfriði.
krónur fyrir fullorðna en 350 krónur i
fyrir börn. ]
Höfuðstöðvar skólans eru í Blá- i
fjöllum og þar er alla daga hægt að
r>6 comVionrli irift PÍnhvfim StarfS- 1
mann skólans og svo er hægt að
panta tíma í síma 91-40578 eða
92-15451.
Skólastjóri Snæfríðar er Einar
Úlfsson.
'\ > >' .. ■> s. v ■,
Nú er hægt að hringja irm
smáaugiýsingar og greiða
með korti.
Þú gefur okkur upp:
nafn þitt og heimilisfang,
síma, kennitölu og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 6.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
BIBLIAN I MYNDUM
230 lista'uerk eftir Gusta've
Aðaltilgangur útgáfu þessarar bókar er
að glæða áhuga almennings á að lesa ogfræðast
um hina helgu bók, Biblíuna. Bókin er 248 bls.
ÍA4 broti Við huerja mynd er hægt að fletta
upp í Ritningunni og lesa um þann atburð,
sem myndin sýnir...
lí^Sðilar
m mndsbanW
Brimbqrgút-
»os>'
/ rúma öld hafa biblíumyndir Dorés
mótað hugmyndir okkar um
fólk, húsakynni og atbwði sem
Biblian segirfrá.
Um miðjan mars verður efnt til
samkeppni þar sem birtar verða
10 myndir, ein mynd í hverri viku,
hér í D.V. Dregið verður úr réttum
lausnum og fær sá sem þekkir hvað
allar myndirnar fjalla um vegleg
vérðlaun. Einnig verða nokkur
aukaverðlaun.
BÓKlfÍ FÆST í FLESTUM BÓFA VERSLUNUM.