Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 27
 Lífestm FYLLINGAREFNI S Sólarlandaferðir 1990 Kostuðu árið 1989 Kosta árið 1990 Hækkun/lækkun miðað við framfærslu- vísitölu Hækkun miðað við laun Samvinnuf./Landsýn Mallorca 72.100 80.300 -2,4% 1,4% Rimini 70.700 83.800 3,9% 8,0% Ferðamiðstöðin Veröld/Pólaris Costa del Sol 85.300 97.100 -0,3% 3,7% Benidorm 74.900 101.900 19,2% 23,9% Ún/al-Útsýn Mallorca 65.200 76.100 2,3% 6,3% Kýpur 77.700 88.900 2,5% 4,2 Úrval Útsýn Úrval Útsýn er með ferðir á sínum snærum til Mallorca. í fyrra kostaði þriggja vikna ferð í júní eða júlí á vegum Úrvals 65.200 krónur fyrir einstaklinginn miðað við að hann byggi með öðrum í stúdíóíbúð á E1 Paraiso, sams konar ferð ætti að kosta miðað við verðlagsþróun á ár- inu 74.400 krónur en kostar aðeins meira eða 76.100 krónur. Hækkun miðað við framfærsluvísitölu er rétt rúm 2,0 prósent en miðað við laun er hún 6,3 prósent. Úrval bauð ferðir til Kýpur síðast- hðið sumar og eftir samruna þessara ferðaskrifstofa bjóða þær sams kon- ar ferðir í ár. Tveggja vikna ferð í júní eða júlí kostaði í fyrra 77.700 krónur, fyrir manninn, ef hann deildi stúdíóíbúð með örðum á L’Onda, á föstu verðlagi ársins í ár ætti þessi ferð að kosta 86.700 krónur en kostar 88.900 krónur. Það er rétt um 2,5 prósent hækkun sé miðað viö framfærsluvísitölu en rúm 4 prósent hækkun sé miðað við laun. Kauphækkanir ogveróbólga Ályktunin af þessum útreikning- um er því sú að sólarlandaferðir hafa ekki hækkað ýkja mikið í verði frá síðasta ári, sé miðað við framfærslu- vísitölu en öllu meira ef miðað er við pyngju hins almenna borgara, eins og við er að búast þegar kaupmáttur hefur lækkað jafnmikið og raun ber vitni. Þær hafa hins vegar í fæstum tilvikum lækkað í verði eins og sum- ar ferðaskrifstofur vilja láta í veðri vaka. Þess ber þó að geta að flestar ferðaskrifstofurnar birtu verðlista sína fyrir síðustu kjarasamninga og miðuðu því við meiri verðbólgu en nú er búist við. Ef samið hefði verið um meiri kauphækkanir og þar með meiri verðbólgu hefði núgildandi verð þýtt raunlækkun á verði sólar- landaferða. -J.Mar Bláfjöll: vel. Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi. Gott efni, lítil rýmun, frostþolið og þjappast Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi sand og möl af ýmsum grófleika. m&QíMWWM M&z Sævarhöfða 13 - sími 681833 Nýjar spumingar um kynlíf og hjónaband Úrval tímarit fyrir alla Skíðaskólinn Snæfríður í Bláfjöllum eru í vetur starfræktir tveir skíöaskólar. Annar þeirra er skíðaskólinn Snæfríður og býður hann upp á kennslu fyrir öll getustig og er þátttakendum skipt í hópa eftir því hversu mikið þeir kunna fyrir sér í íþróttinni. Einnig er boðið upp á einkakennslu fyrir allt að þrjá í hóp. Stærri hópar, svo sem fyrirtæki, starfsfélagar, skólafélagar og vina- hópar, geta pantað kennslu fyrirfram og fer kennslan fram um helgar á einhverju skíðasvæðinu hér sunnan heiða að vali hvers hóps. Gjarnan er þá leigður einhver skíöaskáli yfir helgi, til dæmis skálinn í Bláfjöllum, og þar eru svo haldnar kvöldvökur og reynt að gera ýmislegt til skemmt- unar fyrir þátttakendur. Fyrir fimm árum Skíðaskólinn Snæfríður tók til starfa fyrir fimm árum og að honum standa skíðakennarar sem flestir hafa hlotið menntun sína í Austur- ríki. Flestir kennaranna hafa áður starfað á sumrum í Kerlingarfjöllum. Hver kennslustund er einn og hálf- ur tími. Fyrsti tíminn hefst klukkan 11 á morgnana, annar tíminn hefst klukkan 13 og þriðji tíminn hefst klukkan 15.00. Fullorðnir greiða 700 krónur fyrir kennslustundina en börn 500 krónur. Tíminn í einkakennslu kostar 1900 krónur, sama hvort um er að ræða börn eða fullorðna. Helgarnámskeið hjá Snæfríði kostar 3.500 krónur fyr- ir fullorðna en 2.500 krónur fyrir börn. Lyftugjöld eru ekki innifalin en dagskort í Bláfjöllum kostar 750 Það er austurrískur skiðastíll sem kenndur er hjá Snæfríði. Kennarar hjá Skíðaskólanum Snæfriði. krónur fyrir fullorðna en 350 krónur i fyrir börn. ] Höfuðstöðvar skólans eru í Blá- i fjöllum og þar er alla daga hægt að r>6 comVionrli irift PÍnhvfim StarfS- 1 mann skólans og svo er hægt að panta tíma í síma 91-40578 eða 92-15451. Skólastjóri Snæfríðar er Einar Úlfsson. '\ > >' .. ■> s. v ■, Nú er hægt að hringja irm smáaugiýsingar og greiða með korti. Þú gefur okkur upp: nafn þitt og heimilisfang, síma, kennitölu og gildistíma og númer greiðslukorts. • Hámark kortaúttektar í síma kr. 6.000,- • SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022 BIBLIAN I MYNDUM 230 lista'uerk eftir Gusta've Aðaltilgangur útgáfu þessarar bókar er að glæða áhuga almennings á að lesa ogfræðast um hina helgu bók, Biblíuna. Bókin er 248 bls. ÍA4 broti Við huerja mynd er hægt að fletta upp í Ritningunni og lesa um þann atburð, sem myndin sýnir... lí^Sðilar m mndsbanW Brimbqrgút- »os>' / rúma öld hafa biblíumyndir Dorés mótað hugmyndir okkar um fólk, húsakynni og atbwði sem Biblian segirfrá. Um miðjan mars verður efnt til samkeppni þar sem birtar verða 10 myndir, ein mynd í hverri viku, hér í D.V. Dregið verður úr réttum lausnum og fær sá sem þekkir hvað allar myndirnar fjalla um vegleg vérðlaun. Einnig verða nokkur aukaverðlaun. BÓKlfÍ FÆST í FLESTUM BÓFA VERSLUNUM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.