Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Page 38
LAUGARD^qUR 40. ftfARS 1090.
50
Afmæli
Eggert Magnusson
Eggert Magnússon listmálari,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, er sjö-
tíu og fimm ára í dag.
Eggert fæddist viö Njálsgötuna í
Reykjavík og ólst upp í Reykjavík
en lengst af, eöáí þrjátíu og fimm
ár, átti hann heima í Engjabæ viö
Holtaveg þar sem faðir hans rak
sauöabú. Þar er nú Grasgarðurinn
í Laugardalnum.
Eggert byrjaöi ungur til sjós og var
þá m.a. á Skúla fógeta 1931 og Hann-
esi ráðherra 1932 auk fjölda annarra
skipa. Eggert tók mótorprófl938 og
minna stýrimannaprófið 1946 en
hann var m.a. fyrsti vélstjóri á Elsu
sem þá var á veiðum viö Grænland
1949 og annar vélstjóri á Hamranesi.
Eggert átti vörubíla og keyröi þá
um nokkurra ára skeiö. Hann var
félagi í Vörubílstjórafélaginu Þrótti
áárunum 1940-48.
Þá starfaði Eggert um hálfs árs
skeið 1950 í Gambíu á vegum Ný-
lendudeildarinnar í London.
Eggert er sjálfmenntaður listmál-
ari en hann hefur málaö myndir frá
1960. Hann hefur haldiö fimm einka-
sýningar og tekið þátt í nokkrum
samsýningum hér heima og erlend-
is. Einkasýningar hans: hjá Dags-
brún í Lindarbæ 1965; í Djúpinu viö
Hafnarstræti 1982; í Háskólabíói
1983; í Listmunahúsinu 1985, og á
Kjarvalsstöðum 1987.
Foreldrar Eggerts voru Magnús
Jónsson frá Breiöholti í Reykjavík
og Hrefna Eggertsdóttir Norödal frá
Hólmi í Seltjarnarneshreppi.
Þess má geta aö þijár götur í
Breiðholtinu bera nöfn fóðursystra
Eggerts. Þórufell ber nafn Þóru,
Lóuhólar bera nafn Lóu og Maríu-
bakki ber nafn Maríu. Hálfbróöir
Magnúsar er Haukur, afi Hauks
Gunnarssonar, heimsmeistara og
margfalds afrekshafa á alþjóðlegum
íþróttamótum fatlaðra. Magnús var
sonur Jóns, b. í Breiðholti Jónsson-
ar, og Bjargar Magnúsdóttur, af
húnvetnskum ættum. Hrefna var
hálfsystir Magnúsar, foöur Hregg-
viðs Norðdahl, doktors í jarðfræði.
Hrefna var dóttir Eggerts Norðdahl,
b. í Hólmi, bróður Skúla, föður
Gríms Norðdahl, b. á Úlfarsfelli.
Eggert var sonur Guðmundar
Norðdahl, b. á Elliðakoti í Mosfells-
sveit, Magnússonar Norðdahl,
prests í Meðallandsþingum, Jóns-
sonar, prests í Hvammi í Norður-
árdal, Magnússonar, sýslumanns í
Búðardal, Ketilssonar. Móðir Magn-
úsar sýslumanns var Guðrún
Magnúsdóttir, systir Skúla land-
fógeta. Móðir Magnúsar Norðdahls
var Guðrún Guðmundsdóttir, sýslu-
manns á Svignaskarði, Ketilssonar,
bróður, samfeðra, Magnúsar í Búð-
ardal. Móðir Guðmundar var Rann-
veig Eggertsdóttir, prests í Stafholti,
Bjamasonar landlæknis, Pálssonar.
Móðir Eggerts var Rannveig Skúla-
dóttirlandfógeta, Magnússonar.
Móðir Eggerts í Hólmi var Guðrún
Jónsdóttir, b. í Langholti, Gissurar-
sonar og konu hans, Guðrúnar
Jónsdóttur, b. á Syðri-Steinsmýri,
Jónssonar, prests í Meðallands-
þingum, Jónssonar, bróður Stein-
gríms biskups. Móðir Jóns prests
var Helga Steingrímsdóttir, systir
Jóns eldprests.
Móðir Hrefnu var Valgerður, syst-
ir Eiríks, afa Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Annar bróðir Valgerðar var Ein-
ar, faðir Guðmundar'frá Miðdal,
föður Errós. Valgerður var dóttir
Guðmundar, b. í Miðdal í Mosfells-
sveit, Einarssonar, b. á Álfsstöðum
á Skeiðum, Gíslasonar, b. á Álfs-
stöðum, Helgasonar, bróöur Ing-
Vilhjálmur Gunnlaugur Jónsson
Vilhjálmur Gunnlaugur Jónsson,
bóndi að Eyvindará við Egilsstaði,
eráttræðurídag.
Vilhjálmur fæddist að Arnórs-
stöðum í Jökuldal en ólst upp í
Möðrudal á Fjöllum. Hann stundaði
nám við bændaskólann á Hvanneyri
1928-1930, var bóndi í Möðrudal til
1962 en flutti þá í Eyvindará þar sem
hann hefur búið síðan.
Kona Vilhjálms er Margrét
Sveinsdóttir húsfreyja, f. 18.11.1916,
dóttir Sveins Pálssonar í Stóru-
tungu í Báröardal, og Vilborgar
Kristjánsdóttur.
Vilhjálmur og Margrét eignuðust
tiu börn. Þau eru Sveinn Vilberg, f.
15.3.1938, búsettur á Egilsstöðum,
kvæntur Kristínu Jónsdóttur og
eiga þau sjö dætur; Vernharður Jón,
f. 3.5.1939, b. í Möörudal, kvæntur
Önnu Birnu Snæþórsdóttur og eiga
þau íjögur böm; Þórann Aöalbjörg,
f. 29.9.1940, húsmóðir á Eskifirði,
gift Reyni Hólm og eiga þau fjögur
böm; Vilborg, f. 20.1.1942, húsmóðir
á Neskaupstað, gift Eðvald Jó-
hannssyni og eiga þau sex börn;
Anna Kristín, f. 6.2.1943, húsmóðir
á Reyðarfiröi, gift Bjarna Garðars-
syni og eiga þau sex böm; Bryn-
hildur, f. 2.12.1945, húsmóðir á Eg-
ilsstöðum, gift Sævari Gunnarssyni
og eiga þau þrjú börn; Stefán Sig-
urður, f. 19.12.1946, d. 9.1.1987; Sigr-
ún Margrét, f. 23.7.1951, húsmóðir
á Neskaupstað, gift Haraldi Bjarna-
syni og eiga þau þrjú börn, og Guð-
laug Erla, f. 29.8.1956, húsmóðir á
Eyvindará, gift Daníel Gunnarssyni
og eiga þau eitt barn.
Systkini Vilhjálms: Þórlaug, dó
þriggja ára; Jóhanna Arnfriður, gift
Jóni Jóhannessyni en þau eru bæði
látin; Stefán Vilhjálmur, málari í
Reykjavík; Guðlaugur Valgeir Þór-
hallur sem er látinn, var kvæntur
Rögnu Guðmundsdóttur, og Þórlaug
Aðalbjörg, dó sautján ára. Stjúp-
systir Vilhjálms er Kristín Odds-
dóttir, gift Ólafi Stefánssyni.
Foreldrar Vilhjálms voru Jón Aö-
alsteinn Stefánsson, f. 22.2.1880,-d.
1972, bóndi í Möðradal, og kona
hans, Þórunn Guðríður Björg Vil-
hjálmsdóttir Oddsen, f. 18.3.1872.
Systir Jóns Aðalsteins var Aðal-
björg, kona Jóns Helgasonar sem
var ritstjóri Heimilisblaðsins. Jón
Aðalsteinn var sonur Stefáns, b. í
Möörudal, Einarssonar, b. á Brú,
Einarssonar, b. á Brú, Einarssonar,
b. á Eiríksstöðum, Jónssonar. Móðir
Einars eldra á Brú var Sólveig Þor-
kelsdóttir, b. á Eiríksstöðum, Þor-
steinssonar. Móðir Einars yngra á
Brú var Anna Þorsteinsdóttir frá
Melum. Móðir Stefáns var Anna
Stefánsdóttir frá Gilsárvelli.
Móðir Jóns Aðalsteins var Arn-
fríður Sigurðardóttir, b. á Ljósa-
vatni, Guðnasonar.
Þórunn, móðir Vilhjálms, var
dóttir Vilhjálms Oddsen, söðlasmiðs
á Hrappsstöðum. Móðir Þórunnar
var Guðlaug Þorsteinsdóttir, sýslu-
manns í Krossavík, bróður Páls
sýslumanns Guðmundssonar,
sýslumanns í Krossavík, Pétursson-
ar, sýslumanns Þorsteinssonar.
Árið
sem ekki
kom sumar
Úrval
tímarit fyrir alla
melbrosia
melbrosia p.l.d. for kvjnuer
i m fgglSöSS- 0 Ovi'r^ðnctvjiIdfVirti
W ^éT ^ » S t IMO< OfJ .vMÍ-.l Sk nAturproiíiikt
MELBROSIA P.L.D. er hrein nátt-
úruafurð sem inníheldur bipollen,
perga pollen og Royal Yelly og
færir þér lífsorku i ríkum mæli.
MELBROSIA P.L.D. er fyrir konur
á öllum aldri. Mætíð nýjum degi
hressar og fullar af lifskrafti - i
andlegu og likamlegu jafnvægi -
alla daga mánaðarins. Breytinga-
áldurínn er tímabil sem mörgum
konum er erfiður. Ef til vil getur
MELBROSIA P.L.D. gert þér þetta
tímabil auðveldara. MELBROSIA
er ekki ný framleiðsla. Að baki
er áratugareynsla.
MELBROSIA er selt i flestum
heilsuvöruyerslunum um alla Evr-
ópu. Aðeins það besta er nógu
gott fyrir þíg.
Umboð og dreifing
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN
Laugavegi 25, simi 10263. Fax 621901
Ásgeir Ámason
Ásgeir Árnason kennari, Ásgarði 1,
Keflavík, er fimmtugur í dag.
Ásgeir fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Hafnarfirðinum. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri 1962, stundaði nám við
heimspekideild Háskóla íslands
1962- 63, við Háskólann í Moskvu
1963- 64 og viö Kvikmyndaháskól-
ann í Moskvu 1964-65. Ásgeir var
við réttindanám í Kennaraháskóla
íslands 1973-74, lagði stund á dönsk-
u og bókmenntasögu við Kennara-
háskólann í Kaupmannahöfn
1979-80 og á sama tíma nam hann
við sagnfræðideild Kaupmanna-
hafnarháskóla. Ásgeir var kennari
við Bamaskólann á Selfossi 1965-66
og stundakennari við Iðnskólann á
Selfossi á sama tíma. Frá árinu 1967
hefur hann kennt í Gagnfræðaskóla
Keflavíkur (síðar Holtaskóla). Ás-
geir vann við afgreiðslustörf í Bæj-
arbókasafni Hafnarfjarðar 1962-63,
hjá Bókaverslun Máls og menning-
ar 1966-67 og var bókavörður við
Bæjarbókasafn Njarðvíkur 1971-80.
Ásgeir kvæntist þann 8.8.1964 Sig-
riði Svanhildi Jóhannesdóttur, f.
10.6.1943, kennara og ritara Kenn-
arafélágs íslands. Foreldrar hennar
era Jóhannes Guðnason, f. 29.9.
1921, og Aldís Jóna Ásmundsdóttir,
f. 9.5.1922.
Böm Ásgeirs og Sigríðar era: Jó-
hannes Gísli, f. 6.2.1965; Þóra Krist-
ín, f. 10.8.1966; Ester, f. 30.12.1975;
og Aldís Jóna, f. 19.9.1982.
Systkini Ásgeirs eru:
Páll, f. 30.7.1944, kennari, búsettur
í Hafnarfirði, kvæntur Bryndísi
Skúladóttur kennara.
Kristín, f. 11.10.1945, hjúkrunar-
fræðingur, búsett í Reykjavík, gift
Einari Sindrasyni lækni.
Björgúlfur Kláus, f. 15.3.1947, d.
14.6.1976, verkamaður í Reykjavík,
var kvæntur Ann Dabney, kennara
í Virgínufylki í Bandaríkjunum.
Hólmfríður, f. 22.5.1949, kennari,
búsett í Hafnarfirði, gift Friðrik
Rúnari Guðmundssyni talkennara.
Anna Pálína, f. 9.3.1963, kennari,
búsett í Reykjavík, gift Aðalsteini
Ásberg Sigurðssyni hljómlistar-
manni.
Foreldrar Ásgeirs: Ámi Gíslason,
f. 15.11.1920, d. 24.7.1987, vélvirki
og framkvæmdastjóri Lýsis og mjöls
hf. í Hafnarfirði, og Svanlaug Ester
Kláusdóttir, f. 30.4.1922, kaupmaður
í Hafnarfirði.
Árni var sonur Gísla Guðna, bif-
reiðarstjóra í Hafnarfirði, Ásgeirs-
sonar, útvegsbónda á Bíldudal, Ás-
geirssonar, bónda, Jónssonar.
Móðir Ásgeirs útvegsbónda var
Jóhanna Bjarnadóttir. Móðir Gísla
Guðna var Þóra Árnadóttir, kaup-
manns og útgerðarmanns í Reykja-
vík og á Bíldudal, Kristjánssonar,
og Jakobínu Jónsdóttur, Eiríksson-
ar frá Húsatóftum á Skeiðum, Jóns-
sonar.
Asgeir Árnason.
Móðir Áma var Kristín Ágústína
Kristjánsdóttir, b. í Arnarfirði,
Oddssonar, og Kristínar Jónsdóttur.
Ester, móðir Ásgeirs, er dóttir
Kláusar, verkamanns og vélgæslu-
manns, Hannessonar, b. í Knútskoti
í Mosfellssveit, Kláussonar. Móðir
Kláusar Hannessonar var Elín Hall-
dórsdóttir.
Móðir Esterar var Pálína Björg-
úlfsdóttir, húsmanns á Litlu-Háeyri,
Ólafssonar, b. í Einkofa á Eyrar-
bakka, Björgúlfssonar.
Móðir Björgúlfs vinnumanns var
Ingibjörg Eggertsdóttir frá Haga í
Holtahreppi. Móöir Pálínu var
Andrea Elín Pálsdóttir, b. og for-
manns í Nýjabæ á Eyrarbakka,
Andréssonar, og Geirlaugar Eiríks-
dóttur frá Húsatóftum á Skeiðum,
Jónssonar.
Eggert Magnússon.
veldar, móður Ófeigs ríka á Fjalli,
langafa Grétars Fells rithöfundar.
Móðir Guðmundar var Margrét
Hafliðadóttir, b. á Bimustöðum,
Þorkelssonar, Móðir Guðbjargar
var Vigdís Eiríksdóttir, b. á
Vorsabæ á Skeiðum, Haíliðasonar,
bróðurMargrétar.
Eggert tekur á móti gestum í íbúð
sinni, Skólabraut3, Seltjarnarnesi,
fráklukkan 15-17.
Vilhjálmur Gunnlaugur Jónsson.
Móðir Þorsteins í Krossavík var
Þórunn Guttormsdóttir, sýslu-
manns Hjörleifssonar.
Móðir Guðlaugar var Guðríður
Sigurðardóttir, prests á Hálsi, Árna-
sonar.
Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir.
Guðrún
Rósalind
Jóhanns-
dóttir
Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir,
Faxabraut 5, Keflavík, verður fertug
á morgun, 11. mars.
Guðrún er fædd í Keflavík og þar
ólst hún upp. Hún á einn son sem
heitir Jóhann Jóhannsson.
Systkini Guðrúnar eru: Pétur Vil-
helm, kvæntur Sigrúnu Jónatans-
dóttur, og eiga þau þrjú börn; Helgi,
kvæntur Hjördísi Bjarnason, og eiga
þau þrjá syni; og Sóley, á einn son.
Óll eru þau búsett í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar eru Jóhann
Pétursson, póstmeistari í Leifsstöð,
og Kristrún Helgadóttir afgreiöslu-
maður. Þau eru búsett í Keflavík.
Guðrún mun taka á móti vinum
og vandamönnum milli kl. 16 og 19
á afmælisdaginn í Iðnsveinahúsinu,
Tjamargötu 7, Keflavík.