Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1990, Síða 40
52
LAUGARDAGUR 10. MARS 1990.
Simnudagur 11. mars
SJÓNVARPIÐ
14.50 Gitarleikarinn Chet Atkins
(Chet Atkins: A Certified Guitar).
Bandarískur tónlistarþáttur með
þessum heimsþekkta gítarleikara.
15.40 Oscar Wilde - Snlllingur sem
gæfan sniðgekk (Oscar Wilde:
Spendthrift of Genius). Heimild-
armynd um litrikan starfs- og
aeviferil skáldsins. Þýðandi Óskar
Ingimarsson, þulur ásamt honum
Arnar Jónsson.
16.40 Kontrapunktur. Sjötti þáttur af
ellefu. Spurningaþáttur tekinn
upp i Osló. Að þessu sinni keppa
lið Dana og Norðmanna. Þýð-
andi Ýrr Bertelsdóttir. (Nordvisi-
on - Norska sjónvarpið).
17.40 Sunnudagshugvekja. Flytjandi
er séra Gylfi Jópsson, prestur í
Grensássókn.
17.50 Stundln okkar (20). Umsjón
Helga Steffensen. Dagskrárgerð
Eggert Gunnarsson.
18.20 Litlu prúðuleikararnir (Muppet
babies). Bandariskur teikni-
myndaflokkur úr smiðju Jims
Henson. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Fagri-Blakkur. Breskur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
19.30 Kastljós á sunnudegi. Fréttir
og fréttaskýringar.
20.35 Til þess er leikurinn gerður.
Þáttur um islensk orðtök. Fjallað
er um mun á orötökum og máls-
háttum. Spjallað er við íslensku-
fræðinga og rithöfunda, auk þess
sem málræktarkonan Bibba á
Brávallagötunni er tekin tali.
Umsjón Sigrún Stefánsdóttir,
21.15 Barátta (Campaign). Lokaþátt-
ur. Breskur myndaflokkur. Aðal-
hlutverk Penny Downie. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir. Fram-
hald
22.05 Myndverk úr Listasafni ís-
lands. Sumarnótt - lómar við
Þjórsá, ollumálverk eftir Jón
Stefánssön (1881-1962). Um-
sjónarmaður Bera Nordal. Dag-
skrárgerð Þór Elís Pálsson.
22.10 Gin úlfsins (La Boca Del Lobo).
Spænsk sjónvarpsmynd frá árinu
1988. Leikstjóri Francisco J.
Lombardi. Aðalhlutverk Miguel
Angel Bueno Wunder, Antonio
Vega Espejo og Lucio C. Yabar
Masias. Myndin sýnir baráttu
mannsins gegn villimennsku
byltingar og hvers hann er megn-
ugur þegar ofbeldi, einmanaleiki .
og jafnvel dauði vofir yfir honum.
Þýðandi Örnólfur Arnason.
0.10 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
9.00 í Skeljavik. Falleg leikbrúðu-
mynd.
9.10 Paw, Paws. Teiknimynd.
9.30 Litll tollnn og félagar. Teiknimynd
með íslensku tali.
9.55 Selurlnn Snorri. Teiknimynd.
10.10 Þrumukettir. Teiknimynd.
10.30 Mímlsbrunnur. Áhugaverð og
skemmtilega fræðandi teikni-
mynd fyrir börn á öllum aldri.
11.00 Skipbrotsbörn. Ástralskur ævin-
týramyndaflokkur fyrir börn og
unglinga.
11.30 Stelni og Olli. Þeir félgarnir fara
á kostum.
12.00 Sæl í bleiku. Pretty in Pink. Bráð-
skemmtileg gamanmynd. Aðal-
hlutverk: Molly Ringwald og
Harry Dean Stanton. Leikstjóri:
John Hughes.
13.35 iþróttir. Leikur vikunnar i NBA
körfunni og sýnt verður frá leik
í itölsku knattspyrnunni. Umsjón:
Jón Örn Guðbjartsson og Heim-
ir Karlsson.
16.35 Fréttaágrip vikunnar.
16.55 Menning og listir. Igor Tcharkov-
skl. Við strendur Svartahafs starf-
ar Igor Tcharkovsky með barns-
hafandi konum á hverju sumri.
Þær eru að undirbúa fæðingu
barna sinna I vatni. Þjálfun
Tcharkovskys er bæði andlegs
og likamlegs eðlis.
17.50 Land og fólk. Ómar Ragnarsson
sækir fólk og staði heim. Var
áður á dagskrá í apríl á siðast-
liðnu ári.
18.40 Vlðskiptl I Evrópu. Nýjar fréttir
úr viðskiptaheimi liðandi stundar.
19.19 19:19. Fréttir.
20.00 Landslagið. Kinn við kinn. Flytj-
andi: Jóhannes Eiðsson. Lag:
Nick Cathart Jones. Texti: Jó-
hannes Eiðsson.
20.05 Stórveldaslagur i skák. Stöð 2
1990.
20.15 Landslelkur: Bælrnlrbitast. Mos-
fellsbær og Keflavíkurbær bitast.
Lið Mosfellinga skipa Bjarki
Bjarnason, Hrafnkell Kárason og
Friðrik Olgeirsson. Bæjarbragi er
Jón H. Asbjörnsson. Lið Keflvik-
inga skipa Stefán Jónsson, Ey-
steinn Eyjólfsson og Þórunn
Friðriksdóttir. Bæjarbragi er Krist-
inn Kaldal. Umsjón: Ómar Ragn-
arsson.
21.50 Fjötrar. Traffik. Mjög vandaður
spennumyndaflokkur í sex hlut-
um. Þriðji hluti. Aðalhlutverk:
Lindsay Duncan og Bill Pater-
son.
22.00 Stórveldaslagur i skák.
22.30 Listamannaskálinn. The South
Bank Show. Truman Capote.
Bandaríski rithöfundurinn, Tru-
man Capote, fæddist árið 1942
en sagt verður frá ferli hans í
þessum þætti.
23.30 Bestu kveðjur á Breiðstræti. Give
My Regards to Broad Street.
Bítlarnir Paul McCartney og
Ringo Starr og eiginkonur þeirra
fara með aðalhlutverkin í þessari
mynd. Hún segir frá leit þeirra
að snældu sem fræg poppstjarna
tapaði og verður leitin ævintýra-
leg, Mörg þekkt lög eru leikin
og sungin í myndinni. Aðalhlut-
verk: Paul McCartney, Bryan
Brown, Ringo Starr, Barbara
Bach, Linda McCartney, Tracy
Ullman og Ralph Richardson.
1.15 Dagskrárlok.
Rás I
FM 92,4/93,5
8.00 Fréttir.
8.07 Morgunandakt. Séra Flosi
Magnússon, Bíldudal, flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir. Dagskrá.
8.30 Á sunnudagsmorgni. með
Wincie Jóhannsdóttur kennara.
Bernharður Guðmundsson ræðir
við hana um guðspjall dagsins.
Markús 10, 46-52.
9.00 Fréttir. 9.03 Tónlist á sunnu-
dagsmorgni
10.00 Fréttir.
10.03 Á dagskrá. Litið yfir dagskrá
sunnudagsins i Utvarpinu.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Skáldskaparmál. Fornbók-
menntirnar í nýju Ijósi. Umsjón:
Gísli Sigurðsson, Gunnar Á.
Harðarson og örnólfur Thors-
son.
11.00 Messa i Digranesskóla. Prest-
ur: Séra Kristján Einar Þorvarðar-
son.
12.10 Á dagskrá. Litið yfir dagskrá
sunnudagsíns f Utvarpinu.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
Tónlist.
13.00 Hádegisstund i Útvarpshús-
inu. Ævar Kjartansson tekur á
móti sunnudagsgestum.
14.00 Eittsinnlifðiégguðannasæld.
Dagskrá um þýska skáldið Fri-
edrich Hölderlin. Kristján Árna-
son tók saman. Lesari: Hákon
Leifsson. Helgi Hálfdanarson
flytur óprentaðar Ijóðaþýðingar
sinar. (Áður á dagskrá 25. des-
ember 1989.)
14.50 Með sunnudagskaffinu. Sigild
tónlist af léttara taginu.
15.10 I góðu tómi. með Vilborgu Hall-
dórsdóttur.
16.00 Fréttir.
16.05 Á dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Þorpið sem svaf eftir M. Lade-
bat. Þýðandi: Unnur Eiríksdóttir.
Leiklesin saga í útvarpsgerð og
umsjón Sigurlaugar M. Jónas-
dóttur. Þriðji þáttur. Lesarar
ásamt umsjónarmanni: Markús
Þór Andrésson og Birna Ósk
Hansdóttir.
17.00 TónlisteftirRichardWagner.
18.00 Flökkusagnir I fjölmiðlum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagskrá 1987.)
18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánar-
fregnir.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.31 Leikrit mánaðarins- Lokaæf-
ing eftir Svövu Jakobsdóttur.
Leikstjóri: Maria Kristjánsdóttir.
Leikendur: Jóhann Sigurðarson,
Guðrún Gisladóttir og Erla Rut
Harðardóttir. (Endurtekið frá
fyrra laugardegi.)
20.40 Tónlist eftir Leif Þórarinsson.
• Sónata per Manuela og • Sjó-
leiðin til Bagdad Manuela Wiesl-
er leikur á flautu.
21.00 Úrmenningarlífinu. Endurtekið
efni úr Kviksjá siðustu viku.
21.30 Útvarpssagan: Unglingsvetur
eftir Indriða G. Þorsteinsson.
Höfundur les lokalestur (12.)
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins. Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 íslenskir einsöngvarar og kór-
ar syngja. Sigurður Ólafsson,
Skúli Halldórsson, Ragnheiður
Guðmundsdóttir, Ólafur Vignir
Albertsson, Sunnukórinn á
Isafirði, Hjálmar H. Ragnarsson,
Halldór Vilhelmsson og Guðrún
A. Kristinsdóttir flytja íslensk og
erlend lög.
23.00 Frjálsar hendur. Illugi Jökuls-
son sér um þáttinn.
24.00 Fréttir.
0.07 Samhljómur. Umsjón: Anna
Ingólfsdóttir. (Endurtekinn Sam-
hljómsþáttur frá föstudags-
morgni.)
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns.
9.03 Sunnudagsmorgunn með
Svavari Gests. Sigild dægurlög,
fróðleiksmolar, spurningaleikur
og leitað fanga i segulbandasafni
Útvarpsins.
11.00 Helgarútgáfan. Urval vikunnar
og uppgjör við atburði líðandi
stundar. Umsjón: Árni Magnús-
son og Skúli Helgason.
12,20 Hádegisfréttir. Helgarútgáfan
heldur áfram.
14.00 Með hækkandi sól. Umsjón:
Ellý Vilhjálms.
16.05 Donovan. Magnús Þór Jónsson
segir frá söngvaskáldinu og rekur
sögu þess. (Einnig útvarpað að-
faranótt fimmtudags að loknum
fréttum kl. 2.00.)
17.00 Tengja. Kristján Sigurjónsson
tengir saman lög úr ýmsum átt-
um. (Frá Akureyri.) (Úrvali út-
varpað í Næturútvarpi aðfaranótt
sunnudags kl. 5.01.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Zikk zakk. Umsjón: Sigrún Sig-
urðardóttir og Sigríður Arnar-
dóttir.
20.30 Gullskífan. Að þessu sinni Dark
side of the moon með Pink Flo-
yd-
21.00 Ekki bjúgul. Rokkþáttur i umsjá
Skúla Helgasonar. (Einnig út-
varpað aðfaranótt föstudags að
loknum fréttum kl. 2.00)
22.07 Blitt og létt... Gyða Dröfn
Tryggvadóttir rabbar við sjó-
menn og leikur óskalög. (Einnig
útvarpað kl. 03.00 næstu nótt á
nýrri vakt.)
23.10 Fyrirmyndarfólk litur inn í
kvöldspjall.
0.10 í háttinn. Umsjón: Ólafur Þórð-
arson.
2.00 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns. Fréttir kl. 8.00,
9.00.10.00,12.20,16.00,19.00,
22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARP
1.00 Áfram ísland. islenskir tónlistar-
menn flytja dægurlög.
2.00 Fréttir.
2.05 Djassþáttur. - Jón Múli Árna-
son. (Endurtekinn frá þriðju-
dagskvöldi á rás 1.)
3.00 Blitt og létt... Endurtekinn sjó-
mannaþáttur Gyðu Drafnar
Tryggvadóttur.
4.00 Fréttir.
4.05 Undir værðarvoð. Ljúf lög und-
ir morgun.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heið-
ar Jónsson og Bjarni Sigtryggs-
son. (Endurtekinn þáttur frá
föstudegi á rás 1.)
5.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum.
5.01 Harmóníkuþáttur. Umsjón: Sig-
urður Alfonsson. (Endurtekinn
þáttur frá miðvikudegi á rás 1.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flug-
samgöngum.
6.01 Suður um höfin. Lögaf suðræn-
um slóðum.
9.00 Haraldur Gislason. Létt spjall við
hlustendur og athugað hvað er
að gerast um helgina.
13.00 Hafþór Freyr Sigmundsson og
Ágúst Héðlnsson. Almællsbarn
dagsins vallð og sótt heim. Fylgst
með veðri, samgöngum og færð.
17.00 Þorgrimur Þráinsson fótboltafyr-
irliði á vaktinni.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson á Ijúfu
nótunum í helgarlok.
24.00 Freymóður T. Slgurðsson á næt-
urvaktlnni.
Ath. Fréttir eru sagðar kl. 10, 12, 14,
og 16 á sunnudögum.
10.00 Bjöm Sigurðsson er fyrstur á
fætur á sunnudagsmorgni. Tón-
list að hætti hússins.
14.00 Darri Ólason. Hver kemur I kaffi.
18.00 Amar Albertsson. Sunnudags-
síðdegi hjá Arnari þar sem m.a.
verður farið yfir það hvað verið
er að sýna í bióhúsum borgarinn-
ar.
22.00 Krlstófer Helgason. Ef rómantlk
er i loftinu finnur hann svo sann-
arlega fyrir því og spilar tónlistina
sem við á.
1.00 Bjöm Þórlr Sigurðsson. Nætur-
haukur Stjörnunnar er mættur á
staöinn. '
9.00 Stefán Baxter.
14.00 Ómar FríðleHsson. Kvikmynda-
sérfræðingurinn á EFF EMM
með ítarlega umfjöllun um nýjar
og væntanlegar kvikmyndir.
Slúður og aðrar glóðvolgar fréttir
úr kvikmyndaheiminum ásamt
vikulegu myndbandayfirliti.
16.00 Klemenz Amarson. Slúður og
aðrar glóðvolgar fréttir af frægu
fólki úr heimi tónlistar og kvik-
mynda.
19.00 Kiddi „blgfoot". Danstónlistin I
uppáhaldi hjá Kidda.
22.00 Páll Sævar. Páll með hressa
kvöldtónlist fyrir þá sem vaka
fram eftir.
1.00 Næturdagskrá.
EM 104,8
12.00 Fjölbrautaskóllnn i Breiðholti.
14.00 Karen Slgurkarlsdóttir.
16.00 Nýbylgjan frá MH.
18.00 Fjölbraut, Ármúla. (680288)
20.00 Menntaskóllnn vlð Sundsér um
að halda ykkur við efnið.
22.00 Þá eru það skólafréttir og skóla-
slúður. Umsjónarmenn eru að
vanda Helgi Gogga og Jón
(s)Óli.
1.00 Dagskrárlok.
AÐALSTÖÐIN
9.00 Inger Anna Aikman. Svona er líf-
ið. Ljúf tónlist sem notalegt er
að vakna við. Lesnar eru sögur
úr hvunndagslífinu og frásagnir
af skemmtilegum uppákomum
mismælum og pinlegum uppá-
komum.
12.00 Leikin tónlist stórsvelta á borð
við hljómsveita Glenn Miller og
Tommy Dorsey.
13.00 Það er gaman hjá Gröndal. Jón
Gröndal, hinn kunni útvarps-
maður, er nú kominn til starfa á
Aðalstöðinni. Milli kl. 15 og 16
stjórnar Jón Gröndal spennandi
spurningaleik og eru glæsilegir
ferðavinningar í boði.
16.00 Gunnlaugur Helgason rifjar upp
gömlu lögin og dustar ryklð at
gömlu góðu plötunum.
18.00 Undir Regnboganum. Tónavelsla
Ingólfs Guðbrandssonar. Klass-
ískur þáttur á heimsmællkvarða
með fróðleik og viðtölum.
19.00 Ljúfir tónar
22.00 Allt getur gerst undir sólinni.
Umsjón: Margrét Hrafnsdóttir.
24.00 Næturdagskrá.
6.00 TheHourofPower.Trúarþáttur
7.00 Griniðjan. Barnaefni.
11.00 The Hour of Power.
12.00 Beyond 2000. Vísindaþáttur.
13.00 That's Incredible. Fræðslu-
mynd.
13.30 Krikket. England-West Indies.
21.00 Nightmare in Badham County.
22.00 Entertainment This Week.
23.00 Fréttir.
23.30 The Big Valley. Vestrasería.
14.00 Carry on Don’t Lose Your He-
ad.
16.00 The Ryan White Story.
18.00 Hello Again.
19.40 Projector.
20.00 Hope and Glory.
22.00 The Morning After.
23.45 The Pick-up Artist.
01.30 Chariots of Fire.
04.00 Just Between Friends.
EUROSPORT
★ ★
9.00 Trax. Óvenjulegaríþróttagreinar
9.30 Listhlaup á skautum. Heims-
meistarakeppnin á Nova Scotia.
11.30 Svig. Heimsnikarmót í svigi
kvenna í Stranda i Noregi.
13.00 Rugby.
14.00 Hnefaleikar.
15.30 Kappakstur Formula 1 keppni i
Bandaríkjunum.
16.00 Skíði. Helstu atburðir helgarinn-
ar i heimsbikarkeppninni.
17.00 Frjálsar íþróttir. Keppni í
Aþenu og Haag.
18 00 Hestaiþróttir.
19.00 Spánski fotboltinn. Barcelona-
Celta.
21.00 Kappakstur Formula 1 keppni i
Bandaríkjunum.
23.00 Listhlaup á skautum. Lokaat-
höfnin.
SCREENSPORT
6.00 Kappakstur.
8.00 Körfubolti. Bandarisk háskóla-
lið.
9.30 US Pro Ski Tour.
10.00 Golf. Doral Ryder Open I Miami.
12.00 Spænski fótboltinn. Sevilla
Real Madrid.
14.00 íþróttir á Spáni.
16.00 Tennis. Volvo International I
Memphis.
17.30 íþróttir í Frakklandi.
18.00 íshokki. Leikur í NHL-deildinni.
20.00 Powersporfs international.
21.00 Kappakstur á is,
22.00 Rugby. Leeds-Wigan.
23.30 Hnefaleikar.
Skáldið og listamaðurinn Oscar Wilde.
Sjónvarp kl. 15.40:
Snillingur sem
gæfan sniðgekk
Heimildarmynd um írska skáldið Oscar Wilde. Myndina
gerði leikstjórinn Sean O’Mordha eftir handriti Richards
Ellmanns, prófessors í bókmenntum við Oxford háskóla,
sem hefur ritaö ítarlega ævisögu Wildes.
Þó 90 ár séu nú liðin frá dauða Wildes í París, er minning
hans sem ljóðskálds, leikskálds og skáldsagnahöfundar þó
enn í heiðri höfð í hinum vestræna heimi. Einkum lifir
skáldsaga hans, Myndin af Dorian Grey og leikritin The
Importance of Being Earnest (Hreinn umfram allt) og Lady
Windermere’s Fan góðu lífi.
í myndinni er ferili Wildes rakinn, fylgst með uppgangi
hans í menningarheimi Dubhnborgar, Lundúna og Parísar,
frægð, niðurlægingu fyrir samkynhneigð, fangavist og út-
legð í París. Brugðið er upp lítt þekktum ljósmyndum af
Wilde, auk þess sem leikin er einstæð hljóðritun af rödd
hans, gerð árið 1900 þegar hann lést, aöeins 46 ára aö aldri.
Þýðandi er Óskar Ingimarsson og er hann jafnframt þulur
ásamtArnari Jónssyni. -Pá
Stöð 2 kl. 22.30:
Heimildarmynd um með sérkennilegri frara-
bandaríska rithöfundinn komu og rosalegum yfirlýs-
Truman Capote. Hann ingum í opinberum við-
fæddist árið 1924 og þekkt- tölum. Óhófleg áfengis-
ustu verk hans eru trúlega drykkja og neysla eiturlyfja
In Cold Blood og Breakfast leiddi um síðir til þess að
at Tiffany’s. Hann lék aðal- hann endaði í félagslegri
hlutverkið i kvikmyndinni útlegð og var hunsaður.
Murder by Death sem gerð Seinustu kaflar Answered
var árið 1976. Prayers, sem var framhald
Capote var alla ævi um- In Coid Blood, komu aldrei
deildur iistamaður sem lifði út og ekki vitað hvort þeir
hátt og naut þess aö vorunokkrusinniskrifaöir.
hneyksla samborgara sina -Pá
Sjónvarp kl. 17.50:
Stundin okkar
Suzuki-aðferðin, hvað er nú þaö? Það er stórfróðleg og
áhrifarík aðferö sem beitt hefur verið í undanfarin ár til
að kenna litlum krökkum á hljóðfæri. í Stundinni okkar
kynnumst við því hvernig þessari aðferð er beitt til að kenna
börnum á fiðlur og hvorki meira né minna en 22 fiðluleikar-
ar koma í heimsókn, hinir yngstu aðeins fjögurra ára.
Sérstaklega verður íjallaö um stafinn F. Síðan verður
margt fleira á dagskrá, þar á meðal heill söngleikur sem
heitir Karlinn í klukkunni og fjallar um ótrúlegar heimil-
isaðstæður.
Karhnn Sólmundur og efnafræöingurinn Ágúst Kvaran
geta aldrei stillt sig um aö sulla saman ólíklegustu blöndum
og óvíst hver útkoman verður. Skralli fer að venju í heim-
sókntillögreglunnar. -Pá
Stöð 2 kl. 21.50:
Þriðji þáttur breskrar
framhaldsmyndar um fólk
sem flækt er í heróínvið-
skipti en í þeim leik verða
sumir undir en aðrir ofan á.
f þriöja þætti verður
áfram lýst viðskiptum
Helenar sem á í höggi við
ósvtfna þýska dópsmyglara
sem vilja koma henni á
kaldan klaka.
Leikurinn teygist víöa um
átfur og aðalpersónurnar
eiga heima í Bretlandi,
Þýskalandi og f Pakistan en
þaðan er heróínið upprunn-
iö.
Aöalhlutverk leika
Lindsay Duncan og Bill Pat-
erson en leikstjóri er Alast-
airReid. -Pá
Heróíniö er það sem allir
sækjast eftlr.