Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 1990. Utlönd Jafnaðarmenn hafna stjórnarsetu Leiötogi jafnaðarmanna í Austur- Þýskalandi, Ibrahim Böhme, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að forysta flokks síns hefði ákveðið að hafna tilboði um setu í stjórn banda- lags hægri flokka sem unnu stórsig- ur í kosningunum á sunnudaginn. Jafnaðarmenn fengu aðeins rúmt 21 prósent atkvæða en bandalag hægri flokka, Bandalag fyrir Þýskaland, 48 prósent. Hægri flokkarnir munu nú reyna að mynda samsteypustjórn með Bandalagi frjálsra demókrata sem hlaut rúm 5 prósent atkvæða. Bandalagið hefur gefið í skyn að það muni taka þátt i stjórnarsamstarfí. í sjónvarpskappræðum i gærkvöldi milli Böhme og Lothar de Maiziere, leiðtoga bandalags hægri flokkanna og flokks kristilegra demókrata, sagðist Böhme ekki útiloka samstarf við hann. De Maiziere, sem fastlega er talinn verða forsætisráðherra Austur-Þýskalands, ítrekaði í gær þörfma á samsteypustjórn á sem breiðustum grundvelli. Ákvörðun forystu Jafnaðarmannaflokksins um að hafna setu í stjórninni verður lögð fyrir allsherjarþing flokksins í dag og þar verður lokaákvörðun um stjórnarþátttöku tekin. Ibrahim Böhme, leiðtogi austur- þýskra jafnaðarmanna, hafnar stjórnarþátttöku en útilokar ekki samstarf við nýja stjórn Austur- Þýskalands. Simamynd Reuter Myntbandalag sem fyrst De Maziere sagði á fundi með fréttamönnum í gær að ný stjórn Austur-Þýskalands þyrfti að njóta stuðnings tveggja af hverjum þremur þingmönnum til að geta gert þær breytingar á stjórnarskránni sem nauðsynlegar væru til að flýta sam- einingu þýsku ríkjanna. De Maziere sagði að bandalag hægri flokkanna hefði nú þegar lagt fram áætlun um framtíðina. Flokk- arnir vilja samræmingu gjaldmiðla ríkjanna og efnahags sem allra fyrst og þar á eftir viðræður um samein- ingu Þýskalands. Leiðtoginn lagði á það áherslu að sameiningin ætti að eiga sér stað innan ramma evrópskr- ar sameiningar og hafa þyrfti ofar- lega í huga öryggi evrópskra ríkja. Flokkur kristilegra demókrata til- kynnti í gær að hann hefði hug á að sækja til Vestur-Berlínar efnahags- málaráöherra nýrrar stjórnar í Aust- ur-Þýskalandi. Um er að ræða efna- hagssérfræðinginn Elmar Pieroth sem de Maiziere hefur margsinnis áður lýst yfir áhuga á að fá til sam- starfs. Pieroth, sem er flokki kristi- legra demókrata fyrir vestan, var ekki fráhverfur þeirri hugmynd í gær. Það er misjafnt mat manna á kosningunum í Austur-Þýskalandi. Teikning Lurie. „Eftir 45 ár er leiðin að sameiningu Þýskalands greið,“ var fyrirsögn á forsíðu þessa dagblaðs í Austur-Berlín í gær t kjölfar kosningasigurs hægri manna. Símamynd Reuter Farið ykkur að engu óðslega - segja Sovétmenn við Austur-Þjóðverja Vestrænar nkisstjornir fögnuðu í gær niðurstöðum kosninganna í Austur-Þýskalandi og sögðu þær endurpsegla vilja um hraða samein- ingu þýsku ríkjanna, stórsigur fyrir Helmut Kohl, kanslara Vestur- Þýskalands, og ósigur fyrir stjórnar- stefnu kommúnistamans. „Þetta er stórfenglegur dagur fyrir Austur- Þýskaland og Evrópu,“ sagði Thatc- her, forsætisráðherra Breta. En Sov- étríkin vöruðu nýja leiðtoga landsins við og báðu þá að flýta sér hægt. Talsmaður sovéska utanríkis- ráðnuneytisins, Gennadí Gerasimov, ítrekaði þá afstöðu Sovétmanna að sameinað Þýskaland verði ekki aðili að Nato, Atlantshafsbandalaginu. „Við virðum vilja Austur-Þjóðveija en við gerum ráð fyrir að hin nýja stjórn þar í landi virði skyldur sínar og okkar hagsmuni," sagði talsmað- urinn. „Við viljum samstilla samein- ingu þýsku ríkjanna og sameiningu Evrópuríkja," sagði Gerasimov enn- fremur. „Farið ykkur rólega, það er okkar kjörorð." En vestrænir ráðamenn litu á yfir- gnæfandi sigur hægri aflanna í kosn- ingunum á sunnudag sem staðfest- ingu á þeirri afstöðu að sameinað Þýskaland ætti að eiga aðild að Nato og sagði háttsettur bandarískur emb- ættismaður aö þessar niðurstöður styrktu stöðu þeirra sem vildu sam- einað Þýskaland í Nato. Franski utanríkisráðherrann, Ro- land Dumas, spáði því að sameining þýsku ríkjanna myndi eiga sér stað áður en árið er á enda. Mitterrand Frakklandsforseti ítrekaði í gær nauðsyn á að undirrita samninga um varanleg landamæri Þýskaland en deilur um landamæri Póllands og Austur-Þýskalands hafa varpað skugga á sameiningarviðræðurnar. Bandaríkjamenn fögnuðu fyrstu frjálsu kosningunum í Austur- Þýskalandi. Talsmaður Hvíta húss- ins sagði að sigurinn væri ekki ein- vörðungu austur-þýsku þjóðarinnar heldur allra Þjóðverja og allra þeirra sem meta lýðræðið. Kínverks yfirvöld hafa ekkert látið hafa eftir sér um úrslitin í Austur- Þýskalandi og segja fréttaskýrendur að slík þögn sé merki um að kín- verskum ráðamönnum standi ekki á sama. í blöðum þar í landi var ekk- ert minnst á kosningarnar. Reuter Lafontaine kanslaraefni v-þýskra jafnaðarmanna Jafnaðarmenn í Vestur-Þýska- landi hafa formlega útnefnt Oskar Lafontaine kanslaraefni sitt. La- fontaine mun leiða flokk vestur- þýskra jafnaðarmanna í komandi kosningum í desember og beijast við Helmut Kohl, kanslara Vestur- Þýskalands og leiötoga kristilegra demókrata, um forystuhlutverk Þýskalands. Fastlega má búast við að fyrirhuguð sameining þýsku ríkj- anna verði aðaldeflumál mannanna. Sigur hægri manna í kosningunum í Austur-Þýskalandi á sunnudag hef- ur styrkt mjög stöðu Kohls í samein- ingarviðræöunum. Kanslarinn vill hraðá sameiningu en Lafontaine, varaformaður jafnaðarmanna og for- sætisráðherra Saarlands, hefur sagt að sameiningin kunni að reynast Vestur-Þjóðveijum íjárhagslega erf- ið. Lafontaine segir jafnaðarmenn að vonum ekki ánægða með úrslit kosn- inganna en segir að nú eigi kanslar- inn erfitt verk fyrir höndum. Hann sakar Kohl um að taka hraða sam- einingu fram yfir yfirvofandi félags- leg vandamál í báðum þýsku ríkjun- um sem og aö leiða hjá sér spurning- una um hver skuli greiða fyrir sam- einingu. Lafontaine sagði að helsta kosningamál kosninganna í desemb- er yrði hvort Kohl geti efnt allt það sem hann hafi heitið Austur-Þjóð- verjum fyrir austur-þýsku kosning- arnar. Oskar Lafontaine, kanslaraefni vestur-þýskra jafnaöarmanna, til vinstri, ásamt Willy Brandt. Simamynd Reuter Lafontaine hefur sætt gagnrýni vegna afstöðu sinnar til innfluttra Austur-Þjóðverja en hann lagði með- al annars til að Bonn-stjórnin léti þeim ekki í té full félagsleg réttindi á við Vestur-þjóðverja til að koma í veg fyrir áframhaldandi flótta vest- ur. Um eitt hundrað og fimmtíu þús- und Austur-Þjóðverjar hafa flutt til Vestur-Þýskalands það sem af er ári. Lítill vafi lék á að Lafontaine hlyti útnefningu flokks síns til kanslara- _efnis. Hann leiddi flokk sinn til sig- "úrs í fylkiskosningum í Saarlandi í janúar og má þá segja að útnefningin hafl verið í höfn. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.