Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Blaðsíða 11
11 ÞRIBJUDAGUR 20. MARS 1990. Ann Richards, fjármálaráðherra Texas-fylkis í Bandaríkjunum, þótti lengi sigurstrangleg í baráttunni um útnefningu demókrata sem fylkisstjóraefni flokksins. Símamynd Reuter Harka í kosningum í Texas: Málefnin útundan Birgir Þórisson, DV, New York Texasbúar í Bandaríkjunum eru af mörgum taldir nokkuö sérstakur þjóðflokkur og aö eigin áliti eiga þeir engan sinn líka. Einkum þykja þeir gangast upp í mannalátum og töfT- arahætti og gildir það jafnt um stjórnmál sem annað. Margir telja að vindbelgir og skúrkar eigi auð- veldar uppdráttar þar en nokkurs staðar annars staðar í Bandaríkjun- um. Mikið gengur jafnan á í kosning- um og undirbúningur fyrir fylkis- stjórakjör í haust er engin undan- tekning. í prófkjöri repúblikana vann áður óþekktur milljónamæringur, Clay- ton Williams að nafni, yflrburðasig- ur enda eyddi hann átta milljónum dollara, jafnvirði hálfs milljarðs ís- lenskra' króna, af eigin fé til að kynna íbúum Texas hversu brennandi löng- un hann hefði til aö þjóna þeim. Aðalkosningamál hans var að hann myndi sýna afbrotamönnum enn meiri hörku en aðrir frambjóð- endur. Einkum fékk það góðan hljómgrunn að hann lofaði að senda eiturlyfjaneytendur í þrælkunar- vinnubúðir þar sem þeir gætu notið þess að beija grjót. Williams auglýsti sig sem ekta kúreka, kom gjarnan rjðandi á kosningafundi og gortaði af fæmi sinni sem slagsmálahundur. En andstæðingar hans draga einna helst gáfnafar hans í efa. Ekki fengust úrslit hjá demókröt- um þar sem enginn frambjóðandi fékk hreinan meirihluta í fyrstu umferð. Fjármálaráðherra fylkisins, Ann Richards, og dómsmálaráð- herra, Jim Mattox, hafa því mánuð til að ata hvort annað auri. Richards var lengi framan af talin líkleg til sigurs. Hún er hress kona semn lætur ekki vaða ofan í sig. Ric- hards sló í gegn sem aðalræðumaður á flokksþingi demókrata 1988 þar sem hún gerði óspart gys að George Bush. En henni fataðist flugið þegar andstæðingar hennar kröfðu hana um afdráttarlaust svar við því hvort hún hefði nokkurn tíma neytt ólög- legra eiturlyfja. Hún hefur aldrei far- ið leynt með þaö að hún var áfengis- sjúkhngur en segist ekki hafa neytt neinna vímuefna í tíu ár. Hún hefur neitað að svara afdráttarlaust hvað hún gerði á drykkjuárunum. Segist hún þegar hafa opinberað meira um einkalíf sitt en nokkur annar fram- bjóðandi. Fyrst í stað hóf Richards harða gagnsókn gegn æru keppinauta sinna. Mattox marði fyrrum fylkis- stjóra í keppninni um annað sæti sem einkum snerist um hvor þeirra væri meiri harðjaxl. Töldu báðir dyggilega fram hversu marga þeir höfðu látið taka af lífi. í öUu þessu moldviðri urðu málefn- in útundan þrátt fyrir að kreppa hafi ríkt í fylkinu síðan olíuverð á heims- markaði féll. Bíræfnir lista- verkaþjófar Tveir þjófar, klæddir einkennis- búningi lögreglu, gerðu sér lítið fyrir og rændu listaverkum, sem metin erp á hundruö milljóna dollara, úr listasafni í Boston-borg í Bandaríkj- unum á sunnudag. Meðal verka sem þjófarnir tóku voru Rembrandt- myndir, tvær myndir eftir Degas og Manet-mynd. Þá tóku þeir einnig ol- íumynd eftir Vermeer. Þjófarnir, sem birtust við dyr safnsins skömmu eftir miðnætti, þóttust vera lögreglumenn og sögðu öryggisvörðum að þeir væru að rannsaka kvörtun um hávaða í ná- grenninu. Þeir bundu og kefluðu ör- yggiverði Isabella Stewart Gardner safnsins áður en þeir létu greipar sópa um listaverkin. Að sögn Karen Haas aðstoðarsafnvarðar urðu engar skemmdir á þeim verkum sem eftir eru í safninu. 4 Reuter Utlönd ÁstraHa: Verkamannaf lokkurinn í sókn Samkvæmt niðurstöðum nýlegra skoðanakannanna um fylgi flokk- anna í Ástralíu er Verkamanna- flokkurinn í sókn í þeim kjördæm- um þar sem tvísýnt þykir með úr- slit. Líkur benda til að flokkurinn haldi tuttugu og tveggja sæta meirihluta sínum á þingi þegar Ástralar ganga til kosninga þann 24. þessa mánaðar. En fréttaskýrendur segja að stjórnarandstaðan, bandalag Frjálslynda flokksins og Þjóðar- flokksins, geti enn náð þingmeiri- hlutanum af Verkamannaflokkn- um en aðeins munar þremur pró- sentum á fylgi stjórnar og stjórnar- andstöðu á landinu öllu. Kosningabaráttan hefur nú stað- ið í fjórar vikur og hafa Verka- mannaflokkurinn og stjórnarand- stöðubandalagiö notið svo aö segja jafns fylgis í skoðanakönnunum hingað til. Reuter • Fókus frí • Innbyggt flass • Sjálfvirk þræðing • Mótor fyrir filmufærslu • Sjálfvirk ASA-stilling Fermingargjöfin vinsæla B a M n I Mr* M B M 'iSJ Æ /b íSSSIS LJOSMYNDAÞJONUSTAN HFi........J Laugavegi 178 - Sími 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið) :■* * ■ 1 ..I. iiiHMmiiiimmmimnj B%1 H «i 3* ms % r S VINCENT Hollandi hefur verið íj lýst sem veislustaó 1 fyrir þá sem njóta list- v ar. í lok þessa mánað- ■jj ar verður þeim búin | einstæó veisla í tilefni y af því að hundrað ár . AUÐVITAÐ ÞEKKI EG 1 eru liðin frá dánar- |’ dægri Vincents van ^ Gogh. Yfir 400 olíu- VAIM GOGH, EN HVER i málverk og teikningar v eftirhannveröatilsýn- ER ÞESSI SAMA j 1 is í van Gogh safninu | og Kröll-Möller safn- l inu. Einnig verða sér- stakar minningarsýn- i ingar í Stedelijk safn- | inu og í Haag. SEBO? J | SEBO Sama Sebo býður til í l veislu af öðru tagi. ® Amsterdam er fræg | fyrir fjölbreytta og | góða veitingastaði og j Sama Sebo er einn | þeirra. Eftir að hafa k notið listar van Goghs, er tilvalið að njóta 26 i ARNARFLUG | rétta rijstaffel á Sama t Sebo. Það kostar auk Lágmúla 7, sími 84477. Leifsstöð, sími 50300. ^ þess ótrúlega lítið. 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.