Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1990, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 1990. Afmæli Valgarður Egilsson Valgarður Egilsson, læknir og rit- höfundur, Hólatorgi 4, Reykjavik, erfimtntugurídag. Valgarður fæddist á Grenivík og ólst þar upp og í Hléskógum í Höföa- hverfi. Hann lauk stúdentsprófi frá MA1961 og embættisprófi í læknis- fræði frá HÍ1968. Valgarður var kandídat á Lands- spítalanum 1969-70, aðstoðarlæknir á rannsóknarstofu HÍ í meinafræði 1969 og til ársloka 1970, stundaði rannsóknir í krabbameinsfræðum við Chester Beatty Cancer Institute í London 1972-74 og við University College 1974-78 en hann lauk dokt- orsprófi frá University of London 1978. Valgarður stundaði rannsóknir á Imperial Cancer Research Fund í London 1978-79 og er sérfræðingur í fruntumeinafræði frá 1978. Hann hefur stundað krabbameinsrann- sóknir á Rannsóknarstofnun HÍ.í meinafræði við Barónsstíg frá 1979 og kenndi frumulíffræði við lækna- deild HÍ1979-83. Valgaröur var formaður Samtaka foreldrafélaga í Reykjavík 1986-88. Skáldverk hans eru Dags hriðar spor, leikrit, útg. 1980, sýnt í Þjóð- leikhúsinu sama ár og í Belfast á Norður-írlandi íjórum árum síðar; Ferjuþulur, rím við Bláa strönd, útgefið 1985, sett á svið af Alþýðu- leikhúsinu sama ár, og Dúnhárs kvæði, ljóðabók útg. 1988. Þá þýddi hann ásamt Katrinu Fjeldsted leik- ritið Amadeus, eftir Peter Shaffer, en það var sýnt í Þjóðleikhúsinu 1983. Valgarður er formaður fram- kvæmdastjórnar Listahátíðar í Reykjavík 1989-90. Valgarður kvæntist 23.9.1967 Katrínu Fjeldsted, f. 6.11.1946, lækni og borgarfulltrúa, en hún er dóttir Lárusar Fjeldsted forstjóra og Jór- unnar Viðar tónskálds. Börn Valgarðs og Katrínar eru Jórunn Viðar, f. 16.6.1969, nemi; Einar Vésteinn, f. 26.6.1973, d. 3.3. 1979; Vésteinn.f. 12.11.1980, ogEin- ar Steinn, f. 22.8.1984. Dóttir Val- garðs og Dómhildar Sigurðardóttur er Arnhildur, f. 17.8.1966, en hún stundar tónlistarnám í Glasgow. Valgarður á sex systkini. Þau eru: Sigurður, f. 26.9.1934, skipasmiður og nú húsvörður hjá Reykjavíkur- borg, á þrjú börn, var kvæntur Kol- brúnu Daníelsdóttur en þau skildu; Lára, f. 23.12.1935, sjúkraliði, búsett á Seltjarnarnesi, gift Björgvini Odd- geirssyni skipstjóra og eiga þau fimm börn; Bragi, f. 19.6.1937, var við læknanám en fórst ásamt þrem- ur skólabræðrum í flugslysi á Öxna- dalsheiði 29.3.1958; Áskell, f. 28.8. 1938, skipasmiður á Akureyri, kvæntur Svölu Halldórsdóttur hús- móöur og eiga þau fimm börn; Eg- ill, f. 25.10.1942, eðlisfræðingur og rithöfundur í Reykjavík, kvæntur Guðfinnu Ingu Eydal sálfræðingi og eiga þau þrjú börn, og Laufey, f. 5.8. 1947, hjúkrunarkona og söngkona á Egilsstöðum, gift Þorsteini P. Gúst- afssyni viðskiptafræðingi og eiga þau þrjúbörn. Foreldrar Valgarðs; Egill Áskels- son, f. 28.2.1907, d. 25.1.1975, sjómað- ur á Grenivík, síðar bóndi í Hléskóg- um og kennari á Grenivík, og kona hans, Sigurbjörg Guömundsdóttir, f. 22.8.1905, d. 10.12.1973, húsfreyja. Egill var sonur Áskels, b. á Skuggabjörgum í Dalsmynni í Suð- ur-Þingeyjarsýslu, Hannessonar, b. í Austari-Krókum á Flateyjardals- heiði, Friðrikssonar, b. í Austari- Krókum Gottskálkssonar, Ólafsson- ar. Móðir Hannesar var Þuríður, systir Kristbjargar í Lundarbrekku, ömmu Kristbjargar á Ystafelli, ömmu Jónasar búnaðarmálastjóra. Kristbjörg eldri var einnig amma Árna í Múla, föður Jónasar rithöf- undar og Jóns Múla tónskálds. Bróðir Þuriðar var Sigurður á Hálsi, afi Benedikts Sveinssonar alþingis- forseta, föður Bjarna forsætisráð- herra og Ólafar menntaskólakenn- ara. Þuríður var dóttir Kristjáns, dbrm. og b. á Illugastöðum, ættföður Illugastaðaættarinnar, Jónssonar. Bróðir Kristjáns var Björn, b. í Lundi, afi Einars, alþingismanns í Nesi, langafa Gunnars J. Friðriks- sonar, fyrrv. formanns VSÍ, en syst- ir Einars var Halldóra, amma Hall- dóru Sigurjónsdóttur skólastjóra, móður Kristínar Halldórsdóttur, fyrrv. alþingiskonu. Halldóra eldri var einnig amma Arnórs skóla- stjóra, Braga, fyrrv. alþingismanns og ráðherra, og Unnar, móður Ingva Tryggvasonar, fyrrv. formanns Stéttarsambands bænda. Móðir Áskels á Skuggabjörgum var Hólmfríður Árnadóttir, b. á Austari-Krókum, Einarssonar, b. á Krossi, Árnasonar. Móðir Egils var Laufey, systir Unnar, ömmu Unnar Arngríms- dóttur, framkvæmdastjóra Módel- samtakanna. Laufey var dóttir Jó- hanns, b. og smiðs á Skarði, Bessa- sonar, b. í Skógum, Eiríkssonar í Steinkirkju. Móðir Jóhanns á Skarði var Margrét Jónsdóttir, b. í Heiðarhúsum, Þórarinssonar. Móð- ir Laufeyjar var Sigurlaug Einars- dóttir, b. á Geirbjarnastöðum, Bjarnasonar af Fellsselsætt. Sigurbjörg var dóttir Guömundar, b. á Lómatjörn, Sæmundssonar, hreppstjóra í Gröf í Kaupangssveit, Jónassonar, b. á Stórhamri. Móðir Guðmundar var Ingileif Jónsdóttir, b. í Uppsölum í Svarfaðardal, Jóns- sonar. Móðir Jóns á Uppsölum var Þórunn Björnsdóttir, b. á Mold- haugum, Björnssonar og konu hans, Halldóru Jónsdóttur, prests á Völl- um, Halldórssonar, afa Páls Melsteð amtmanns, ættfóður Melsteðættar- innar. Móðir Ingileifar var Helga Pálsdóttir, b. í Hofsárkoti, Jónsson- ar og konu hans, Guðrúnar Jóns- dóttur, b. á Uppsölum, Arasonar, prests á Tjörn, Þorleifssonar, pró- fasts á Múla, Skaftasonar. Valgarður Egilsson. Móðir Sigurbjargar var Valgerð- ur, dóttir Jóhannesar, b. á Þöngla- bakka og Kussungsstöðum í Fjörð- um, Jónssonar Reykjalíns, prests á Þönglabakka, Jónssonar, Reykja- líns, prests á Ríp, Jónssonar, prests á Breiðabólstað í Vesturhópi, Þor- varðarsonar, föður Friðriks, langafa Ólafs, afa Ólafs Ragnars Grímsson- ar. Móðir Jóns á Þönglabakka var Sigríður Snorradóttir, prests á Hofs- stöðum, Björnssonar, bróður Jóns, langafa Pálínu, móður Hermanns Jónassonar forsætisráðherra. Móð- ir Valgerðar var Guðrún Hallgríms- dóttir, b. á Hóli í Fjörðum, Ólafsson- ar og konu hans, Ingveldar Árna- dóttur, b. á Sveinsströnd, Eyjólfs- sonar, bróður Kristjönu, móður Jóns Sigurðssonar, þingforseta á Gautlöndum, langafa Jóns Sigurðs- sonar ráðherra. Menning Frumraun Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari kom fram á þriðju tónleikum EPTA, Evrópusam- bands píanókennara, sem haldnir voru á Kjarv- alsstöðum síðasthðinn mánudag. Nína Margrét er Reykvíkingur og stundaði nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og Guild- hall School of Music í London, auk City Univers- ity í London. Meðal kennara hennar má nefna Málfríði Konráðsdóttur, Halldór Haraldsson, Tórúist Áskell Másson Edith Picht-Axenfeld, Richard Langham Smith og Philip Jenkins. awwvvíí Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari. Á efnisskrá voru ítalskur konsert eftir J.S. Bach, Sónata í C-dúr Hob XVI/50 eftir Joseph Haydn, Sónata VIII eftir Jónas Tómasson, 1. & 3. þáttur Estampes eftir Debussy og Ballade nr. 3 í As-dúr op. 47 eftir Chopin. Gömlu meistararnir Tónleikarnir hófust á ítalska konsertinum eft- ir Bach sem saminn var fyrir sembal og gefmn út á prenti árið 1735. Þetta einkar fallega verk lék Nína Margrét mjög vel, af næmleika fyrir stígandi og með létt- an tón. Hendingar voru sérlega vel mótaðar. Sónata Haydns í C-dúr Hob. XVI/50 var næst á efnisskránni og var túlkun Nínu Margrétar á þessu verki tvímælalaust hápunktur tórxleik- anna. Klassískur léttleiki, sterk mótun forms, falleg hrynjandi og tæknilegt öryggi einkenndi túlkun hennar á verkinu. Hér sýndi- Nína Margrét afdráttarlaust að hún er efni í stórpían- ista í klassískri og barokkmúsík. Hugleiðing út frá tóni Sónata Jónasar Tómassonar, nr. VIII, tók viö eftir hlé. Þetta verk Jónasar er (að mestu eins og Andante-þátturinn í ítalska konsertinum eft- ir Bach) hugleiðing út frá einum tóni sem liggur eins og rauður þráður í gegnum verkið. Þó er eins og draumurinn sé brotinn upp í áköfum hendingum nokkru aftan við miðbik verksins. Jónas samdi þetta verk árið 1973 og er þetta því meðal fyrri verka hans. Nína Margrét lék verkið vel og af sannfær- ingu. Fyrsti og þriðji þáttur úr Estampes eftir De- bussy fylgdu í kjölfariö. í fyrsta þættinum náði Nína tæplega að lita raddir þáttarins nægilega sjálfstætt en i síðari þættinum náði hún betur þeirri litrænu ljóðrænu sem nauðsynleg er þess- ari tónlist. Ballöðu Chopins, nr. 3 í As-dúr, skorti nokkuð spennu í hrynjandi og þótt ekkert hefði hér skort á tæknilega riákvæmni var heildaryfirbragð flutningsins tæplega nægilega skáldlegt til þess aö verkið fengi notið sín til fullnustu. Þessi frumrauTfNínu Margrétar Grímsdóttur lofar mjög góðu um áframhaldið og verður spennandi að fylgjast með ferli hennar á næstu árum. Ólafur Jón Magnússon. Ólafur Jón Magnússon Ólafur Jón Magnússon verkamað- ur, Hjallavegi 26, Reykjavík, er fimmtugurídag. Ólafur fæddist í Bæ í Króksfirði og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann kynntist öllum almennum bústörfum á búi foreldra sinna og starfaði síðan á unglingsárunum í vegavinnu og víðar. Ólafur tók við búi af bróður sínum í Bæ vorið 1963 og hafði þar búskap til ársins 1971. Þá flutti hann til Reykjavíkur þar sem hann hefur búið síðan. Ólafur hefur stundað almenn verkamanna- störf í Reykjavík. Hann vann fyrst hjá verktakafyrirtækinu Brún hf., síðan Aðalbraut, og loks Hlaðbæ en hann hefur stundað bensínaf- greiðslu hjá Skeljungi sl. sjö ár. Ólafur á sjö systkini og eina fóst- ursystur. Foreldrar Ólafs voru Magnús Ingi- mundarson, f. 6.6.1901, d. 1982, bóndi, hreppstjóri og vegavinnu- verkstjóri í Bæ, og Sigríður Guð- jónsdóttir, f. 19.4.1903, d. 1985, ljós- móðiríBæ. Ólafur tekur á móti gestum eftir klukkan 20.00 á afmælisdaginn á heimili systur sinnar og mágs, Mel- ási 1, Garðabæ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.