Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 9
J m; .p ffiMMrjtffl'í FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990. DV Hiö nýja austur-þýska þing sett: Söguleg stund Útlönd Þúsundir austur-þýskra verka- manna komu saman í Austur-Berlín og öðrum borgum í gær til að krefj- ast þess að austur-þýska markið gildi til jafns við hið vestur-þýska í kjölfar fyrirhugaðrar sameiningar þýsku ríkjanna. Á sama tíma og fjöldafund- ir þessir stóðu yfir fékk Lothar de Maiziere, leiðtogi kristilegra demó- krata í Austur-Þýskalandi, umboð til stjórnarmyndunar. Fyrirhuguð stjórn hans verður sú fyrsta þar í landi í rúm fjörutíu ár sem ekki er undir forsæti kommúnista. Það var söguleg stund þegar fyrsti fundur hins nýja þings Austur- Þýskalands var settur í gær. „Við erum vitni að merkum atburðum," sagði Sabine Bergmann-Pohl en hún var kosin þingforseti í gær. „Okkur hefur verið treyst fyrir hinu við- kvæma blómi lýðræðisins sem lifað hefur af fimmtíu harða vetur.“ Berg- mann-Pohl mun gegna embætti þjóð- höföingja þar til nýtt embætti forseti hefur verið sett á laggirnar og kosið hefur verið til þess. De Maiziere mun leggja fram ráð- herralista sinn fyrir þing fljótlega. Hann mun taka formlega við emb- ætti forsætisráðherra af Hans Modrow þegar nýtt ráðuneyti hlýtur samþykki. Það verður að öllum lík- indum í næstu viku. Stjórnarmynd- unarviðræðum er reyndar ekki lokið en kristilegir, auk tveggja annarra - verkamenn kreQast jafnræöis gjaldmiðla Hinn nýi þingforseti Austur-Þýskalands, Sabine Bergmanna-Pohl, ásamt fyrirhuguðum forsætisráðherra, Lothar de Maiziere. Simamynd Reuter flokka í Bandalagi fyrir Þýskaland, hafa átt í viðræðum við jafnaðar- menn og bandalag frjálsra demó- krata. Kristilegir demókratar, sem fengu alls fjörutiu prósent atkvæða í síðustu kosningum, verða í forsæti samsteypustjórnarinnar. Helsta við- fangsefni hennar verður að stýra landinu í átt til sameiningar við Vest- ur-Þýskaland. Mótmæli verkamanna Reiðir verkamenn þyrptust út á götur austur-þýskra borga í gær til að krefjast þess að geta skipt austur- þýskum mörkum í vestur-þýsk á jafnréttisgrundvelli. Austur-Þjóð- veijar vilja að sama verðgildi verði á gjaldmiðlum ríkjanna, það er að þeir geti fengið eitt vestur-þýskt markt fyrir eitt austur-þýskt. Framsögumenn á íjöldafundunum í gær hvöttu hina fyrirhuguðu stjórn í Austur-Þýskalandi til að þrýsta á jafnræði í gjaldmiðlum í komandi sameiningarviðræðum þýsku ríkj- anna. Margir kröfumanna í gær voru einkum reiðir Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, sem þeir segja að hafi heitið Austur-Þjóðverjum sama verðgildi gjaldmiðla hvað varð- ar sparifé Austur-Þjóðverja, það er einn á móti einum, á meðan hann háði kosningabaráttu fyrir systur- flokk sinn, flokk austur-þýskra kristilegra demókrata. Stjórn Kohls hefur síðan látið í það skína að hún vilji láta meta tvö austur-þýsk mörk á eitt vestur-þýskt, þ.e. tveir á móti einum. Vestur-Þjóðverjar sögðu í gær að sameiningarviðræður um samrým- ingu gjaldmiöla og efnahags hefjist um miðjan þennan mánuð. Þær við- ræður miða að því að samningur hggi fyrir um í næsta mánuði. Reuter 9 Fiug er framt.ffí" Lærið að fljúga hjá fullkomnum flugskóla. + Bjóðum kennslu til einka- og atvinnuflug- mannsprófs. * Fullkomin 2 hreyfla flugvél til blindflugs- kennslu. * Flughermir. Greiðsluskilmálar og fyrirgreiðsla. f Gamla Flugturninum Reykjavikurflugvelli 101 Reykjavik Simi 91-28122 Kt. 651174-0239 ÚRVAL á næsta blaðsölustað Úrval tímarit fyrir alla Samkomulag um viðræður Blökkumannaleiðtoginn Nelson Mandela tilkynnti í gær að hann og de Klerk, forseti Suður-Afríku, hefðu náð samkomulagi um hvenær undir- búningsviöræður miili Afríska þjóð- arráðsins og suður-afrísku stjórnar- innar eiga að fara fram. Sagði Mand- ela að tilkynnt yrði samtímis í Höfða- borg og í Lusaka í Zambíu, aðalstöðv- um Afríska þjóðarráðsins, um fund- artíma. Fyrsti fundur ráðsins og yfirvalda átti að fara fram 11. apríl en blökku- mannaleiðtogar frestuðu honum til að mótmæla ofbeldi lögreglunnar er hún skaut sautján blökkumenn til bana í síðustu viku. De Klerk hefur fallist á að láta fara fram rannsókn vegna fjöldamorðanna og kvaðst hann ætla að fela rannsóEnina í hendur hæstaréttardómara. De Klerk forseti sagði að loknum fundinum með Mandela að blökku- mannaleiðtoginn hefði hafnað boði um sameiginlegan fund þeirra með blaðamönnum. De Klerk sagðist hafa látið í ljósi ónægju sína við Mandela yfir því aö fjórir leiðtogar heima- landa, sem hitta áttu forsetann fyrr um daginn, hefðu ekki mætt. Kvaðst forsetinn viss um að Afríska þjóðar- ráðið hefði á einhvern hátt átt þátt í því. Mandela vísaði því hins vegar á bug og sagði blökkumannaleiðtog- ana hafa tekið þá ákvörðun sjálfa. Mandela kvaðst ekki vera undr- andi á fréttum um valdarán í heima- landinu Venda í gær. Engar blóðsút- hellingar urðu við valdaránið. Leið- togi uppreisnarmanna, sem er einn yfirmanna hersins, sagðist ætla að vera við völd þar til heimalandið hefði verið innlimað á ný í nýja Suð- ur-Afríku þar sem blökkumenn hefðu atkvæðisrétt. Þetta var annað valdaránið í suður-afrísku heima- landi á skömmum tima. Valdarán var framið í heimalandinu Ciskei þann 4. mars síðastliðinn. Reuter Nelson Mandela greinir fréttamönnum frá fundi sínum með de Klerk forseta. Símamynd Reuter Takið foreldrana með á skemmtunina sem Landsamband íslenskra vélsleðaeigenda heldur í brekkunum fyrir ofan Hveradali á morgun, laugardaginn 7. apríl, kl. 13:00. Þið eruð öll velkomin. Takið með ykkur skíði og snjóþotur, förum í vélsleða- og snjóbílaleik, keppum í snjóþotuakstri og sjáum þegar fullorðna fólkið verður dregið á vélsleðum upp í brekkurnar eða (langt) inn á heiðina. Hafið með ykkur nesti og hlý föt og munið að taka pabba og mömmu með. Krakkar! Þetta verður ykkar dagur P.S. Félagar í LÍV, munið eftir Polaris-vélsleðakeppninni hjá Litlu kaffistofunni. YAMAHA PC3LRRI5 M* ri-doo ARCTKCAT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.