Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990. 15 Taugatrekktur fræðimaður MiMll titringur viröist fara um reykvíska hægrimenn eftir að ljóst varð að Alþýðuflokkurinn og Nýr vettvangur mundu gefa borgarbú- um kost á sameiginlegum fram- boðslista í kosningunum í vor. Er það að vonum, enda er hér á ferðinni afl sem full ástæða er til að ætla stóran hlut þegar tahð veröur upp úr kjörkössunum. Fimmtudaginn 22. mars sl. tók DV til að mynda snöggan kipp og slakaði fram bæði leiðara og Dag- farapisth sem hér skulu látnir hggja milli hluta að öðru leyti en því að ég þakka heilshugar fyrir húmorinn í Dagfarapistlinum. Legg ég tfl að höfundur taki þá Árna Bergmann og Hannes Hólm- stein á kné sér enda hefur mig lengi langað tfl að komast gegnum þó ekki væri nema eina grein eftir hvorn þeirra. (Blátt áfram). En það var ekki nóg með að Dag- fari og leiðarahöfundur teldu ástæðu til að bera ótta sinn á torg í umræddu tölublaði DV, heldur birtist þar einnig kjallaragrein eftir Guðmund Magnússon sagnfræð- ing. Skal hún nú tekin tfl umfjöll- unar. Glópska sagnfræðingsins Hinum unga sagnfræðingi úr herbúðum íhaldsins er sýnflega mikið niðri fyrir, fyrst hann reiöir stílvopnið til höggs, því það er KjaUarinn Pjetur Hafstein Lárusson rithöfundur nokkuð óþjált í höndum hans. En til mikils er að vinna. Því er Guð- mundi nokkur vorkunn þótt hann taki sér í hönd þyngra vopn en hann veldur með góðu móti. Eftir að hafa farið nokkrum orð- um um það, hvort íhaldsglópamir ali manninn í skýjum himinsins eður ei lætur hann sig ekki muna um það að telja upp sex vinstri flokka sem bjóða muni fram í kom- andi borgarstjómarkosningum. í því sambandi nefnir hann m.a. Framsóknarflokkinn, Græningja, Kvennahstann og Borgaraflokk- inn. Ég veit ekki betur en framsókn- armenn telji sig miðflokk enda eiga þeir aðfld að fjölþjóðasamtökum slíkra flokka. Græningjar hljóta, eðh málsins samkvæmt að standa utan við hefðbundna skilgreiningu hægri og vinstri flokka og kvenna- listakonur hafa sjálfar marglýst því yfir að þær geri slíkt hið sama. - Hvað Borgaraflokkinn varðar þá rámar mig eitthvað í að hann sé klofningsflokkur úr Sjálfstæðis- flokknum, flokki Guðmundar. En kannski veit sagnfræðingur- inn betur og væri þá gott að hann léti öðru sinni bhka á stflvopn sitt. Aldrei að vita nema ótti hans um bragðlausa kosningabaráttu reyndist þá ástæðulaus, í það minnsta þeim sem ekki sækja í kryddið. Eftir að hafa fjölgað vinstri flokk- unum um fjóra snýr Guðmundur sér að væntanlegu prófkjöri sam- eiginlegs framboðs Alþýðuflokks- ins og Nýs vettvangs. Sér hann í hendi sér að þar muni allt fyrir- fram ráðið og þykir að vonum held- ur lítið fara fyrir lýðræðinu. Hugrenningar hans í þessa veru viröast tfl komnar vegna greinar í Pressunni og mun þar hafa verið um svokallaða fréttaskýringu að ræða. Takið eftir, maður sem vænt- anlega ætlast tfl að orð hans séu tekin alvarlega, ruglar saman frétt og fréttaskýringu. Þessi glópska sagnfræðingsins er shkt einsdæmi að hún verðskuldar að geymast á spjöldum sögunnar. Ekki tilkall til ákveðins sætis Það sem á eftir fylgir er hins veg- ar ekkert einsdæmi í röðum hægri manna. Það er gamla sagan þegar þeir íjalla um stjórnmál á íslandi og slaka sér í leiðinni austur á Volgubakka. Ekki veit ég hvort Stalín gamh Kremiarbóndi hefur í augum Guðmundar endurholdgast í Bjarna P. Magnússyni, Kristínu Á. Ólafsdóttur eða Ólínu Þorvarð- ardóttur. Um hitt get ég frætt Guðmund Magnússon að prófkjör Alþýðu- flokksins og Nýs vettvangs verður opið hverjum þeim sem vih ganga tfl hðs við þessa aðfla. Er þvi ljóst að úrshtin eru ekki undir fáum komin heldur þeim breiða fjölda sem treystir íhaldinu ekki fyrir stjórn borgarinnar. - Það mun sýna sig að þar er um ófáa kjósendur að ræða enda treysti íhaldið sér ekki út í prófkjör vegna komandi kosn- inga. Guðmundi Magnússyni tfl fróð- leiks skal þess getið að þeir fram- bjóðendur til prófkjörs, sem orðað- ir hafa verið við efstu sæti listans, ætlast einfaldlega til þess að kjós- endur geri það upp við eigin sam- visku hvernig þeir veija atkvæðum sínum. Það hefur ekki nokkur maður gert tflkall til ákveðins sætis á væntanlegum framboðslista nema ég og kumpáni minn Ámundi Ámundason. - Þar eð við erum póhtiskir hentistefnumenn krefj- umst við þess aö vera á miðjum hst- anum, þ.e.a.s. í fimmtánda sæti enda sér þaðan jafnt tfl beggja handa. Pjetur Hafstein Lárusson „Það mun sýna sig að það er um ófáa kjósendur að ræða enda treysti íhaldið sér ekki út í prófkjör vegna komandi kosninga.“ Konur gegn klámi og kynferðislegu ofbeldi Nú verð ég því miður að viður- kenna fáfræði mína um klám. Ég veit ekki meira um það en venju- legt fólk á okkar dögum. En hver maður getur dregið ýmsar ályktan- ir af því sem hann sér og heyrir í kringum sig. Klám Konur eru komnar inn á vafa- samar brautir eins og oft hendir andófshópa sem eiga undir högg að sækja. Þær meina aö klám sé búiö til af körlum til að niðurlægja konur. Ég er á annarri skoðun. í fyrsta lagi er klámiðnaðurinn gróðastarfsemi sem vejlir óskap- leguih fjármunum og þegar gróði er annars vegar fara ýmis mannleg gfldi lönd og leið og þarf ekki kyn- skiptingu tfl. Mér fmnst og næsta liklegt að konurflcomi svo og svo mikið nálægt rekstrinum eins og öðrum viðskiptum. í öðru lagi tengist þessi bisness mannlegri náttúru sem er furðuleg og stundum brjáluð. Klámið er nefnflega ekki stílað nema að litlu leyti til fólks með „afbrigðilegar" hvatir heldur tfl okkar ahra. Ná- kvæmlega á sama hátt og ofbeldi og horror í venjulegum kvikmynd- um kitlar okkur öll dálítið, jafnvel þó okkur hrylh stundum við. Eflaust veltir klámið sér þó stundum upp úr reglulegum óþverra svo sem grófu ofbeldi. En er það ekki leikið ofbeldi? Og er það nokkuð verra en annað leikið of- beldi? Ef raunverulegar pyntingar og morð sjást í klámmyndum hljóta það að vera undantekningar eins og aðrir glæpir. Langmest klám er væntanlega bara „venjulegar" uppáferðir, kannski með dálitlum perversjónum í bland. Og er það KjaHarinn Sigurður Þór Guðjónsson rithöfundur meiri smán fyrir konur en karla? Hverjir leika þá í svona sýning- um? Ekki geri ég lítið úr auðmýk- ingu beggja kynja af völdum sjúk- dóma eins og fíkniefnaneysíu. En klámleikendur eru ekki alltaf eöa yfirleitt dópistar eins og látið er að liggja í klámumræðunni. Flestir eru sennilega ósköp venjulegt fólk að vinna sér inn peninga. Og fyrir- sætur í fínum „karlmannablöðum" eru greinielga vel á sig komnar millistéttarpíur. Það neyðir þær enginn tfl að glenna sig. En þær fá það vel borgað og það getur jafnvel komið þeim lengra „áfram“ í lífinu. Svo fá sumar kikk út úr því. Um þaö má lesa í virðulegum kvenna- bókmenntum. Og það er svo sem ekkert ljótt. Mannleg náttúra er bara svona. List og klám Konur þurfa því ekki að berja sér á brjóst. Þær taka fullan þátt í leiknum. Það niöurlægir þær eng- inn nema þær sjálfar og það er enginn sem niðurlægir karla nema þeir sjálfir. Ef konur vilja frelsa sig frá klámi ættu þær að byija á því að taka sjálfar sig í gegn í stað þess að finna sökudólga ahs staðar ann- ars staðar. í DV 23. mars hneykslast þær á erótísku myndlistarsýningunni í Gallerí Borg. Og kalla myndir Jóns Axels Björnssonar klám. Hins veg- ar finnst þeim verk Hörpu Björns- dóttur „öðruvísi" og væntanlega siðlegri en verk karlanna. Penna- teikningar hennar eru þó ekki síð- ur „grófar" en smámyndir Jóns Axels. Þetta minnir á stjórnmála- flokka fyrir kosnignar: Okkar lestir eru dyggðir en ykkar dyggöir eru lestir. Ein konan hélt að erótisk skynj- un kvenna væri alls ekki sjónræn. Gott og vel. En kannski er erótísk skynjun karlmanna einmitt sjón- ræn. Er þá sanngjarnt að úthúða þeim fyrir að vera náttúrulegir? Eiga þeir að vera eins og konur? Reyndar sýna rannsóknir að auga- steinar kvenna sem skoða pornó- myndir víkka ekki síður út en augasteinar karla. Það ánægjuvið- bragð lýgur ekki. En ef til vfll eiga konur erfiöara með að viðurkenna gleði sína. Máski er það félagsleg bæklun. Karlar eru búnir að kúga þær svo mikið gegnum tíðina aö þær eru alveg búnar að vera. Önnur kona taldi sumar mynd- irnar klám af því að þær stuðuðu hana. Þar liggur hundurinn graf- inn! Er þessi klámmania sumra kvenna ekki hreint út sagt sálrænt frávarp: Maður afneitar í eigin fari vissum hugsunum eða kenndum en eignar þær öðrum í staðinn. Sá varnarháttur er algengur í daglegu lífi og veldur hvimleiðum ein- strengingshætti. Þetta listaklám- högg kvennanna minnir helst á herferð Jónasar frá Hriflu gegn „úrkynjaðri" list í gamla daga. Kynferðislegt ofbeldi Þó ég játi fáfræði mína um klám er þekking mín á ýmsu kynferðis- legu ofbeldi skelfilega mikil. Og mér blöskrar skinhelgi kvenna í umræðu þeirra. Fyrir þeim er hún eins konar kvenfrelsisbarátta og fær á sig sterkan áróðursblæ líkt og brölt hagsmunahópa og stjórn- málaflokka og espar því til mót- stöðu. Afleiðingarnar verða hatur og fordómar. Afneitun og skilningsleysi kvenna á karlmönnum, sem beittir eru kynferðislegu ofbeldi, er engu minna en afneitun og skflnings- leysi þjóðfélagsins í heild á kyn- feröislegu ofbeldi gegn konum. Það skeytingarleysi varð tfl þess að konur stofnuðu meðferðarhópa þar sem konur hjálpa konum. Þær segja að karlar verði að hjálpa körl- um. En sú afstaða þyrfti þó ekki að leiöa tfl þeirrar einsýni og fósl- unar um kynferöislegt ofbeldi sem konur ástunda í ræðu og riti. Það er til kynferðislegt ofbeldi kvenna gegn drengjum og karla gegn drengjum og öörum fullorðn- um karlmönnum. Hvar eru fórn- arlömb alræmds kynferðisbrota- manns sem oft er í fréttum? Hér er ekki rúm til að ræða þetta frekar en ég visa til greina minna í DV í fyrra. Þær komu 27. maí, 27. sept- ember og 7. október og í þeim tók ég að mörgu leyti málstað kvenna afdráttarlaust. Verst er þó að þegar fjölmiðlar ræða kynferðislegt of- beldi leita þeir oftast til Guðrúnar Jónsdóttur félagsfræðings. En þröngsýni hennar og taumlaust karlhatur ræður líklega miklu um afneitun margra kvenna á því að karlmenn séu líka fórnarlömb kyn- ferðislegs ofbeldis og að konur beiti slíku ofbeldi. Allt leiðir þetta tfl vanrækslu á drengjum og karl- mönnum sem eiga um sárt að binda. Og enginn þorir að andmæla kon- um einu orði. Eflaust kalla þær mig karlrembusvín, klámhund og öfugugga fyrir þessa grein. Og verði þeim aö góðu. Það er þó skammgóður vermir því þessu kynlega kvennafári mun brátt linna eins og öllu öðru írafári. Þá tekur skynsemin við. Sigurður Þór Guðjónsson „Afneitun og skilningsleysi kvenna á karlmönnum, sem beittir eru kynferð- islegu ofbeldi, er engu minna en afneit- un og skilningsleysi þjóðfélagsins 1 heild á kynferðislegu ofbeldi gegn kon- um.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.