Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990. 1T Utlönd möcmL^S10 ■siáMj VINNINGA KR. 18.000.000.- &ano3 DREGIÐ VERÐUR FOSTUDAGINN 6. APRÍL 1990. HAPP DRÆTTI SLYSAVARNAFÉLAGS ISLANDS 188 Pelsaverslunum lokað Eitt þekktasta vöruhús í Evrópu, Harrods í Knightsbridge, tilkynnti í febrúar að pelsadeildinni þar yrði lokað. Tveimur mánuðum áður höfðu Debenhams í Oxford Street lokað. Og þann 1. maí lokar fyrirtæk- ið Cyril Kaye sem rekið hefur stóra verslun á Piccadilly síðan 1950. Eig- andinn, Cyril Kaye, segist hafa gefist upp. Síðustu fimm árin hafi daglega verið kastað fýlusprengjum inn í verslunina, stórar gluggarúður brotnar og rauðri málningu atað á dýrustu pelsana. Hann hafi þurft að ráða stóra og sterka lífverði til að fylgja starfsfólkinu til og frá vinnu og auk þess hafi salan minnkað um 80 prósent síðustu þrjú árin. Cyril Kaye hefur áður verið ofsóttur. Hann er gyðingur og ílúði frá Þýskalandi í seinni heimsstyrjöidinni. Pelsabrennur Viðskiptavinir pelsaverslananna í London eru flestir Japanir, Norður- landabúar og Bandaríkjamenn. Sagt er að þeim líði stundum eins og þeir væru að læðast inn á leynilega krá á bannárunum í Chicago þegar þeir laumast inn í pelsaverslanirnar. Þar þora menn nefnilega ekki lengur að stilla út pelsum í gluggana og láta sér nægja að auglýsa varninginn með skiltum sem lítið ber á. Herskáustu félagarnir í dýravernd- unarsamtökunum LYNX, sem staðið hafa fyrir herferðinni gegn pelsasöl- um, eru flestir ungir en það eru aðal- lega aldraðar, auðugar konur sem styrkja samtökin. Þær arfleiða sum- ar samtökin að aleigu sinni til barátt- unnar gegn tilraunum með dýr og gegn pelsiðnaðinum. Samtökin hafa staðið fyrir pelsa- brennum á þekktum stöðum eins og Trafalgar Square og Piccadilly Circ- us. Hefur fjöldi kvenna og karla af- hent minkapelsa sína og skinn til að láta kasta á bálið. Kóngafólk í kápum Michael prinsessa af Kent er sögð sú eina í bresku konungsfjölskyld- unni sem lætur ekki herferðina á sig fá og gengur enn í pels við opinber tækifæri. Síðustu þrjú árin hafa hvorki Elísabet drottning, Díana prinsessa, drottningarmóðirin, Anne né Margaret verið í pels við opin- berar athafnir. Hvort það er af ótta við aðkast eða af því að þær eru sam- mála LYNX er ekki vitað. Hins vegar þykir víst að þær eigi fulla skápa af pelsum. Thatcher í pels Allir sætta sig þó ekki við mót- mæli dýravemdunarsamtakanna og gagnherferð er nú hafin. Fremst í flokki þeirra sem fyrir henni standa er bresk-bandaríska söngkonan Eartha Kitt. Hún hefur lýst því yfir að hún elski pelsa og muni aldrei brenna sína. Reyndar kveðst hún vera sammála þeim sem segja að vernda þurfi þau dýr sem eru í út- Þegar forsætisráðherrafrú Dana, Anne Marie Vessel Schlúter, var um daginn í London að setja upp ballett- sýningu skildi hún fyrst ekkert í því af hverju hrópuð voru skammaryrði að eftir henni úti á götu. Og það geröi heldur ekki fjöldi vel klæddra nor- rænna kvenna sem í marslok höfðu farið til London til að kíkja á eða kaupa málverk eftir norræna hsta- menn á uppboði hjá Sothebyés og Christieés. Allar áttu þær það sameiginlegt að hafa verið í pelsum og hefðu þær vitað hvað beið þeirra í London hefðu þær skilið pelsana eftir heima. Því maður gengur varla í pels í London í dag án þess að verða fyrir aðkasti. Gífurleg herferð gegn pelsum hefur nefnilega verið þar í gangi undanfar- in ár. rýmingarhættu. Margaret Thatcher forsætisráð- herra er ein þeirra sem ekki lætur herferðina gegn pelssölum hafa áhrif á sig. Þrátt fyrir að Elísabet drottning láti sína pelsa hanga inni í skáp held- ur Thatcher áfram að ganga í pels- um. Og hún harðneitar að ræða hvers vegna. Segir aðeins að þaö komi öðrum ekki við í hverju hún gengur eða gengur ekki. Það kemur líklega engum á óvart að pelsar eru ódýrir núna í London. Oft er hægt að fá þá langt undir inn- kaupsverði hjá þeim pelssölum sem ætla að loka verslunum sínum. Ritzau Elísabet Bretlandsdrottning gengur ekki lengur í pels við opinber tækifæri. Símamynd Reuter Frúr í pelsum fyrir aðkasti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.