Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990. Álverið: Hlíf felldi samninginn Verkamannafélagið Hlíf felldi ný- gerðan kjarasamning á fundi i gær. Onnur verkalýðsfélög samþykktu samninginn. Verkfalli þeirra félaga hefur verið aflýst. í leynilegri atkvæðagreiðslu á fundi Hlífar sögðu 98 nei, 77 sögðu já og 5 seðlar voru auðir eða ógildir. Deilu Hlífar og Álversins verður vísað til ríkissáttasemjara á ný. -sme Dauðaslys við Nesja- - vallavirkjun Dauðaslys varð við veginn skammt frá Nesjavallavirkjun í gærkvöldi. Ellefu ára gamall drengur varð fyrir vélsleða. Ökumaöurinn, sem er rúm- lega tvítugur, slasaðist en þó ekki alvarlega. Landhelgisgæslunni bars hjálpar- beiðni vegna slyssins í gegnum Gufu- nesradíó um hálfellefuleytið í gær- kvöldi. Var þyrla send af stað og kom hún á slysstað um hálftíma seinna. ** Drengurinn var illa slasaður og lést hann eftir aö komið var með hann á slysadeild Borgarspítalans. Öku- maðurinn var fluttur á sjúkrahús á Selfossi. Mjög skuggsýnt var á slysstað og kom bíll að eftir að ökumaður vél- sleðans hafði farið að sækja hjálp. Bíllinn ók á vélsleðann en frekari slys urðu þó ekki. Slysið við Nesja- vallavirkjun er í rannsókn hjá lög- reglunni á Selfossi. -ÓTT Páskamessa við Blá- fjallaskála Séra Pálmi Matthíasson, prestur í Bústaðasókn, mun messa við Blá- fjallaskála klukkan eitt á páskadag. Mun Pálmi hafa með sér kór Bú- staöakirkju og organistann, Guðna Þ. Guðmundsson. „Ég gerði þetta í átta ár í Hlíðar- fjalli þegar ég var prestur á Akur- eyri, eða þegar það viöraði til þess. Þetta er því ekkert nýtt fyrir mér og sjálfsagt að reyna hér fyrir sunnan,“ sagði Pálmi Matthíasson við DV. Pálmi sagði að þaö væri aldrei að vita hvort útimessurnar yröu fleiri, ‘>*í Bláfjöllum eða annars staðar. -hlh LOKI Heitir það ekki að nálgast guð sinn að messa uppi á fjalli? Ásgeir Friðjónsson, sakadómari í ávana- og fíkniefnamálum: Harkaleg túlkun hjá Hæstarétti „Þetta þykir mér vera harkaleg túlkun hjá Hæstarétti. Þetta eru tvö aðskilin embætti sem starfa í sama húsi og þar með er það upp- talið. Embættislega eru þau aðskil- in,“ sagði Ásgeir Friðjónsson, saka- dómari í ávana- og fíkniefnamál- um, þegar hann var spurður um dóm Hæstaréttar þar sem honum, Ásgeiri, er gert að vikja sæti í hass- máli. Ásgeir segir líka að hann hafí ekki getiö lesiö í kröfugerð lög- var handtekinn strax efth' móttöku er háttaö mannsins það sem Hæstiréttur úr- á efninu. Nú er þetta ákveðna mál ekki frá- skurðaði um. Sömu nótt og fólkið var hand- brugðið öðrum svipuðum málum. Maður og kona sem eru ákærð tekið úrskurðaði fulltrúi við saka- Ásgeir Friðjónsson sagði að óljóst fyrir að hafa keypt hass og flutt til dóm í ávana- og fíkniefnamálum væri hvaða áhrif þessi úrskurður landsins gerðu þá kröfu aö Ásgeir húsleitir og gæsluvarðhald. í dómi Hæstaréttar kemur til með aö hafa viki sæti þar sem þau telja að ætla Hæstaréttar segir að ákærðu hafi á önnur mál í sakadómi í ávana- megi að fíkniefhadeild lögreglunn- ástæðu til aö ætla að ávana- og og fíkniefnamálum. ar vinni undir stjórn Ásgeirs, eða fíkniefnadeild starfi undir stjórn Dóm Hæstarétttar kváðu upp að skiptin þar á milli séu óljós. Það Ásgeirs og að þau hafi ekki getað Hrafn Bragason, Hjörtur Torfason var á árinu 1986 sem hassið var vitað hvernig verkaskiptingu milli og Gunnar M. Guðmundsson. keypt í Amsterdam. Annar ákærðu hans og lögreglunnar í Reykjavik -sme Ungur maður féll um fimm metra niður úr stiga á kranabómu á hafnar- svæði Sambandsins við Holtagarða síðdegis í gær. Maðurinn var að fara út úr stjórnklefa kranans sem er í tíu metra hæð uppi í bómunni. Hann var á leið niður stigann þegar hann féll aftur yfir sig og lenti á grind um tvo metra yfir jörðu. Maðurinn meiddist á baki og hendi og hafði einnig eymsli í hálsi eftir slysið. DV-mynd S Keflavík: Aðsúgur gerður að KR-ingum „Þegar við komum út af leiknum voru fullorðnir menn fyrir utan sem spörkuðu í okkur og kýldu. Það var sparkaö í magann á einum vini mín- um svo hann náði varla andanum og annar var sleginn í framan þann- ig að þaö blæddi úr honum. Svo var yngri strákur en við sleginn og kaf- færður í snjóskafli. Við erum ekki slasaðir en það er rosalegt að lenda í þessu. Þetta er að verða eins og í útlöndum," sagði 13 ára KR-ingur í samtali við DV í morgun. Aðsúgur var gerður að stuðnings- mönnum KR eftir leik KR og ÍBK í körfuknattleik sem fram fór í Kefla- vík í gærkvöld. Mikill hiti var í áhorf- endum og virðast heimamenn hafa tekið ósigri sinna manna heldur illa. Voru rúturnar, sem fluttu KR-ing- ana, barðar utan og áttu í erfiðleik- um með að komast af stað en ekki er vitað til aö þær hafi verið skemmdar. Þá munu dómarar leiks- ins hafa átt í erfiðleikum með að yfir- gefa íþróttahúsið fyrir tapsárum Keflvíkingum. -hlh Fjöldahandtökumar 1 Breiðholti: Tveir í viðbót úrskurð- aðir í gæsluvarðhald Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík fór fram á úrskurð um gæsluvarðhald yfir tveimur piltum í gær vegna máls sem tengist tvíbur- um og handtökum á fjölda manns í Breiðholti vegna fíkniefnamála á sið- ustu vikum. Sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum úrskurðaði piltana, sem eru átján og nítján ára, í gæslu- varðhald til 11. apríl. Bræðumir tveir sitja enn í gæsluvarðhaldi en þeir tengjast sölu og dreifingu á fíkniefnum. Þeir veittust einnig að lögreglu með hnífum þegar þeir voru handteknir í marsmánuði. Fíkniefnadeild lögreglunnar hefur þegar upplýst töluverða dreifingu og sölu á fíkniefnum vegna þessa máls sem tengist á fjórða tug neytenda, kaupenda og seljenda. -ÓTT Veðrið á morgun: Hlýnandi veður Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, víðast gola eða kaldi. Súld eða rigning sunnan- lands og vestan en úrkomulítið norðaustan til. Veður fer hlýn- andi. Hitinn verður aðeins undir frostmarki á Norðvesturlandi en annars staðar yfir frostmarki. Mestur verður hitinn á Suðvest- urlandi. SKUIUIBHAR 25050 SENDIBÍLASTÖÐIN Hf opið um kvöld og helgar BÍLALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.