Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990.
25
gætan leik gegn Keflavík í gærkvöldi og hér
DV-mynd Brynjar Gauti
Titillinn er nú
loks í augsýn
- efidr 71-75 sigur á heimavelli Keflvíkinga
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta var mjög erfiður leikur. Við
náðum góðri byrjun og ætluðum að
halda fengnum hlut. Þá komust þeir
meira inn í leikinn og Keflvíkingar
hefðu alveg eins getað sigrað úr því
sem komið var undir lokin. Það kem-
ur ekkert annað til greina en sigur í
þriðja leiknum á Nesinu á laugardag
og það skal takast að vinna Keflvík-
inga í þriðja skiptið," sagði Guðni
Guðnason, fyrirliði KR í körfuknatt-
leik, eftir að KR hafði sigrað Keflavík
í öðrum úrslitaleik úrvalsdeildar í
Keflavík í gærkvöldi með 71 stigi
gegn 75. KR er því komið í 2-0 og
nægir sigur í þriðja leik liðanna á
morgun til að tryggja sér íslands-
meistaratitilinn í ár.
KR-ingar komu mjög grimmir til
leiks og byrjuðu mjög vel. KR komst
fljótlega í 2-13 eftir 3 mínútur og
héldu fengnu forskoti þar til líða tók
að leikhléi en staðan í leikhléi var
40-44 eftir að Páll Kolbeinsson hafði
skorað 3ja stiga körfu á síðustu sek-
úndum fyrri hálfleiks.
KR-ingar juku forskot sitt í upphafl
síðari hálfleiks og komust í 44-56 og
átti Sovétmaðurinn Anatolí Kouvton
þá mjög góðan leik. Þegar líða tók
að léikslokum haföi Keflvíkingum
tekist að minnka muninn hægt og
bítandi og staðan 71-73 þegar um
mínúta var eftir. Keflvíkingar höfðu
tækifæri á að jafna eða komast yfir
en misstu knöttinn er 29 sekúndur
voru til leiksloka og KR-ingar héldu
knettinum þar til á síðustu sekúnd-
unum að Páll Kolbeinsson tryggði
KR sigurinn, 71—75. KR-ingar fógn-
uðu gífurlega enda staða þeirra góð
eftir sigurinn.
„Við vorum mjög slakir í fyrri hálf-
leik, misstum boltann of oft og skotin
voru léleg. Við náðum aldrei að jafna
leikinn og þess vegna komumst við
aldrei almennilega inn í leikinn. Það
er hrein móðgun að tapa fyrir KR á
heimavefli en það er að duga eða
drepast í næsta leik og sá leikur verð-
ur að vinnast. En því verður ekki
neitað að staða KR-inga er góð,“ sagði
Guðjón Skúlason Keflvíkingur eftir
leikinn gegn KR.
Hjá KR átti Anatolí Kouvton stór-
leik og var óstöðvandi um tíma.
Einnig áttu þeir Guðni Guðnason og
Páll Kolbeinsson góðan leik og þeir
Birgir Mikaelsson og Matthías Ein-
arsson ágæta spretti.
Hjá Keflavík var Sandy Anderson
yfirburðamaður í slöku liði. Aðrir
leikmenn ÍBK voru ávallt skreíi á
eftir KR-ingum.
• Stig ÍBK: Magnús Guðfinnsson
14, Sandy Anderson 13, Sigurður
Ingimundarson 10, Nökvi Már Jóns-
son 10, Guðjón Skúlason 8, Falur
Harðarsson 8, Einar Einarsson 4,
Júlíus Friðriksson 2, og Ingólfur
Haraldsson 2.
• Anatolí Kouvton 23, Guðni
Guðnason 17, Páll Kolbeinsson 13,
Matthías Einarsson 9, Birgir Mika-
elsson 9, Axel' Nikulásson 4.
• Dómarar voru þeir Leifur S.
Garðarsson og Kristján Möller.
Dæmdu þeir vel í fyrri hálfleik en
misstu tökin á erfiðum leik í síðari
hálfleik.
Þorbergi hrósað
- í sænskum blöðum eftir sigur Saab gegn Redbergslid
Eftir hinn óvænta sigur Saab á
Redbergslid í undanúrslitaleik
sænsku úrvalsdeildarinnar í hand-
knattleik, fær Þorbergur Aðalsteins-
son frábæra dóma í sænskum dag-
blöðum. Þar er sagt að í mörgum
leikjum í vetur hafi hann verið slak-
ur og stundum hreint út sagt lélegur,
en gegn Redbergslid hafi hann leikið
stórkostlega vel. Þorbergur skoraði
7 mörk í leiknum.
„Það er í mikilvægum leikjum sem
það kemur fram að hann er pabbinn
í liðinu,“ segir Jan Olsson, fyrirliði
Saab. „Hann vann bikarúrslitaleik-
inn fyrir okkur og nú er hann búinn
að koma okkur í úrslitaleikinn í úr-
valsdeildinni."
í greinum sænsku blaðanna er sagt
að tilvonandi landsliðsþjálfari ís-
lands hafi verið yfirburðamaður á
vellinum í leiknum gegn Redbergslid
og barátta hans og stjórnunarhæfi-
leikar hafi gert út um leikinn. Það
er einnig tekið fram að Þorbergur sé
einn af þeim mönnum sem hafi riflð
• Þorbergur Aöalsteinsson skorar eitt 7 marka sinna gegn Redbergslid.
handknattleikinn hjá Saab upp úr
annarri deild að toppi úrvalsdeildar-
innar og eigi han skilið að enda sinn
feril þar sem sænskur meistari. Sjálf-
ur segir Þorbergur að þetta sé besti
endir sem hann geti hugsað sér, en
að þetta sé ekki búið ennþá. „Ég tel
okkur eiga stóra möguleika á sigri á
móti Drott þar sem við erum með
mun meiri breidd í liðinu en þeir,“
segir Þorbergur Aðalsteinsson.
-SK/GG
wir Ragnheiður?
íslands innanhúss hefst í Eyjum á morgun
andi að sjá hvernig henni tekst upp en
hún mun vera í góðu formi um þessar
mundir og til alls líkleg. Ragnheiður
hefur með námi sínu æft mikið við bestu
hugsanlegu aðstæður og hefur árangur
hennar á háskólamótum í vetur verið
sérlega glæsilegur.
Á móti ytra fyrir skemmstu synti
Ragnheiður 100 yarda bringusund á
1:02,92 mín, sem mun vera undir Norð-
urlandametinu í metrum talið. Fróðlegt
verður að sjá hvort Ragnheiði tekst að
slá núgildandi Norðurlandamet í grein-
inni sem sænska stúlkan Annilie Holms-
tröm setti 1986. Norðurlandamet hennar
í 100 metra bringusundi er 1:09,03 mín
en íslandsmet Ragnheiðar er 1:10,66 mín.
Eðvarð Þór Eðvarðsson, sem er óðum
að komst í sitt gamla form, verður einn-
ig á meðal keppenda í Vestmannaeyjum.
Auk hans munu fleiri sterkir sundmenn
verða á meðal keppenda og má þar nefna
Arnþór Ragnarsson, Bryndísi Olafsdótt-
ur, Magnús Ólafsson og Helgu Sigurðar-
dóttur, sem æft hefur við sama skóla og
Ragnheiður í vetur.
Eins og áður segir hefst mótið á morg-
un, laugardag, og lýkur mánudaginn 9.
apríl. Mótið hefst klukkan 9.30 alla
keppnisdagana með undanrásum.
Skipulag mótsins er eins alla keppnis-
dagana, undanrásum lýkur um hádegi
og úrslit heíjast klukkan 17. Fram-
kvæmd mótsins er í höndum sunddeild-
ar ÍBV og SSÍ.
-JKS
25
metra
laug
K.
—----*
ILvf^vlvivIvi-i
Ám/igwr RAGNHEIÐAR
100 metra bringusund
1985
nmmmt
1986
32*
1987
1989
DV JRJ
• A meðfylgjandi skýringarmynd má glöggt sjá hvernig frammfarir Ragn-
heiðar Runólfsdóttur hafa þróast á síðustu fimm árum í 100 metra bringu-
sundi.
íþróttir
Sport-
stúfar
Boston Celtics vann
öruggan sigur á New
Jersey Nets í NBA-
deildinni í körfuknatt-
leik í fyrrinótt. Charlotte Hornets
vann á útivelii gegn Denver Nug-
gets og framlengja þurfti viður-
eign Milwaukee og Indiana Peac-
ers. Úrslit leikjanna í fyrrinótt
urðu annars þessi:
Boston-New Jersey...125-106
Cleveland-Atlanta...101-95
. Miami-Golden State......114-128
Washington-New York.107-118
Dallas-San Antonio..114-98
Milwaukee-Indiana...121-116
Denver-Charlotte....112-116
Unglingalartdsliðið í
körfu til Mallorca
Unglingalandsliðið í
körfuknattleik heldur
til Palma á Mallorca á
mánudaginn til þátt-
töku á Evrópumóti unglinga-
landsliða, skipað leikmönnum 19
ára og yngri. íslenska liðið er í
riðli með Frökkum, Belgum,'
Spánverjum og Portúgölum.
Leikmenn íslands eru:
Nökkvi Már Jónsson, ÍBK, Birgir
Guðfinnsson, ÍBK, Hjörtur Harð-
arson, ÍBK, Kristinn Friði-iksson,
ÍBK, Jón Arnar Ingvarsson,
Haukum, Georg Birgisson,
Njarövík, Marel Guðlaugsson,
Grindavik, Guðni Hafsteínsson,
Vai, Aðalsteinn Jóhannsson, Val,
Hermann Hauksson, KR, Sigurð-
ur Jónsson, KR, og Öskar Krístj-
ánsson, KR, sem er fyrirliði liðs-
ins. Þjálfari unglingalandsliðsins
er Jón Sigurðsson og honum til
aðstoðar er Torfi Magnússon.
Kristinn Aibertsson dómari mun
fara út með liðinu og dæma fyrir
íslands hönd.
Litla bikarkeppnin
íknattspyrnu
Litla bikarkeppnin í
knattspyrnu hefst með
leik Víðis og ÍBK
fimmtudaginn 12. apríl
og hefst leikurinn ki. 13,30. Liðum
í keppninni er skipt í tvo riðla og
eru þeir þannig skipaðir: A-riðill,
FH, ÍBK, UBK og Víðír. B-riðill
ÍA, Stjaman, Selfoss og Haukar.
Keppnin hefst eins og áöur sagði
12. apríl en lýkur með úrslita-
keppni um sæti 12. maí.
Robson og Beardsley
leika báðir
Nú er ijóst að Bryan
Robson mun leika með
Uði Man. Utd gegn Old-
ham i undanúrslitum
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spymu á sunnudaginn. Robson
hefur ekki getað leikið með liðinu
síðustu þrjá mánuði vegna
meiösla og hann ásamt Neil
Webb, sem Iék sinn fyrsta leik
eftir meiösfl um síðustu helgi,
mun áreiðanlega styrkja United
liðið mikið. Þá mun Peter Beards- '
ley leika með láverpool gegn
Crystal Palace í hinum undanúr-
slitaleiknum en hann hefúr átt
við smávegis meiðsli aö stríða.
Þjálfaranámskeið í
körfuknattleik
Körfuknattleikssam-
band íslands mun
standa fyrir þjálfara-
námskeíði í körfu-
knattleik dagana 24. mai til 29.
maí. Kennarar á námskeiðinu
verða Ralph Klein, landsliðsþjálf-
ari ísrael, og Dr. Laslo Nemeth,
þjálfari KR, og íslenska landsliðs-
ins. Á námskeiðinu verður farið
í gegn um öll helstu atriði þjálf-
unar í körfuknattleik og er ætlað
starfandi körfuknattleiksþjálf-
urnum á íslandi. Allar nánari
upplýsingar um námskeiðið fást
á skrifstofu KKÍ.