Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 27
FÖSTUDÁGUR 6. APRÍL 1990. 35 LífsstOl Okt. N6v. Dos. Jan. F»t>. Mars Apríl Tómatar Vínber Neytendur gera þá kröfu til verslanakeðja að sama verð sé í öllum verslunum. DV kannar grænmetismarkaðinn: Gúrkur lækka enn í verði verð. Lægsta verðið var að finna í Bónus á 399 krónur kílóið en hæsta verðið 658 í Nóatúni og leit sú dýrari talsvert betur út. Græn paprika er frekar smá þessa dagana og víða út- litsgölluð. Rauð paprika er mun girnilegri, enda verðið miklu hærra. Rauð paprika var ódýrust í Hagkaupi á 899 krónur en dýrust í Miklagarði á 1.399 krónur kílóið. íslensk paprika er væntanleg á markað fljótlega eftir páska, enda hefur innflutningur þeg- ar verið stöðvaður. DV afhendir Fjarðarkaupum spar- igrís vikunnar fyrir að vera með lægsta verð á gúrkum og góða sveppi á lægsta verði. Ekki sömu verð í sömu búðum Flestir ganga eflaust út frá því að þegar um margar verslanir undir sama nafni er að ræða sé óhætt í flestum tilvikum að ganga að sama verði á sömu vöru í öllum búðum. Flestar verslanakeðjur kaupa enda inn í miklu magni fyrir allar verslan- ir sínar og reyna þannig að ná hag- stæðum samningum með miðstýrð- um innkaupum. Á þessu virðast vera einhverjar undantekningar hvað varðar græn- meti að minnsta kosti. Þannig er flest grænmeti á hærra verði í Miklagarði við Sund en í Miklagarði við Hring- braut og munar talsvert miklu. Þar tíðkast að verslunarstjóri í hverri verslun geri sjálfstæð innkaup á grænmeti. Þetta er að sjálfsögðu óþolandi fyrir neytendur sem eiga að geta staðið í þeirri trú að sama verð gildi alls staðar. -Pá Enn halda gúrkur áfram að lækka í verði og er ein verslun í könnun vikunnar komin með verð fyrir neð- an 100 krónur. Það eru Fjarðarkaup sem selja nú gúrkur á 98 krónur. Dýrastar voru þær í Grundarkjöri á 245 krónur. Munurinn er því 150%. Verð á gúrkum breytist nær daglega og er það fyrst og fremst mikið fram- boð sem veldur verðhruni. Vaxtar- skilyrði fyrir gúrkur hafa verið góð og því flæðir mikið magn inn á mark- aöinn. í síðustu viku var meðalverð á gúrkum 341 króna en lækkar nú í 149 krónur. Tómatar standa nokkurn veginn í stað milli vikna. Lægsta verðið er í Bónus, 370 krónur kílóið, en hæsta verðið, 545 krónur, í Miklagarði. Munurinn er 47%. Tómatamir eru nær alls staðar rauðir og fallegir en frekar smáir. . Sveppir lækka í veröi milli vikna og munar mest um verölækkun í Miklagarði. Lægsta sveppaverðið var í Fjarðarkaupum, 440 krónur, fyrir hvíta og fallega sveppi. Hæsta verðið var í Nóatúni, 679 krónur, sem þýðir 54% verðmun. í Fjarðarkaup- um var hægt að fá annars flokks sveppi á tilboösverði á 220 krónur. Meðalverð lækkar nokkuð frá síö- ustu viku en það hefur áhrif að á markaðnum eru bæði íslenskir sveppir og erlendir og þeir erlendu mun dýrari. Kartöfluverð helst óbreytt milli vikna og Bónus er enn lægstur með 89 krónur fyrir kílóið í tveggja kílóa pokum. Þó fundum við útlitsgallaðar kartöflur í Miklagarði vestur í bæ og kostuðu þær 64 krónur kílóið í 5 kílóa pokum. Græn vínber hafa lækkaö dálítið í verði og fer meðalverð milli vikna úr 391 krónu í 337 krónur. Ódýrust voru þau í Hagkaup á 250 krónur kílóið sem er gott verð fyrir vínber sem litu sæmilega út og voru mjög bragðgóð. Hæsta verð á vínberjum var 419 krónur í Nóatúni fyrir mjög falleg vínber. Verðmunurinn er 67%. Neytendur Athygli okkar vakti í Fjarðarkaup- um tilboðsverð á grænum og bláum vínberjum sem voru á mörkum þess að vera nothæf en verðið var aðeins 165 krónur kílóið. Græn paprika lækkar milli vikna úr 585 krónum í 530 miðað við meðal- Sparigrís vikunnar: Verslunin FJARÐARKAUP Sértilboð og afsláttur: Barist um bananaverð Talsverðar sviptingar eru nú á bananamarkaðnum og mikið um undirboð sem skila sér í lægra ban- anaverði í verslunum. Orsökin mun vera grimm samkeppni meðal ban- anasala. Bananar voru boðnir á 109 krónur kílóið í Bónus og 126 krónur í Grundarkjöri og 128 í Fjarðar- kaupi. í síðustu viku var algengt verð á banönum 136-150 krónur. Kaup- menn, sem neytendasíðan ræddi við, töldu að bananaverð ætti jafnvel eft- ir að lækka meira á næstu dögum en það getur tæplega haldist lágt lengi því viðurkennt er að heims- markaðsverð á banönum hefur hækkað. Appelsínur eru víða á sæmilegu verði. Hagkaup auglýsir sérstakt til- boð á appelsínum á 106 krónur. Nóa- tún býður appelsínur í tveggja kílóa pokum á 99 krónur. Appelsínur voru á 103 krónur í Fjarðarkaupi. Algengt verð án tilboða er 120-130 krónur. í Grundarkjöri er sérstakt afmælis- tilboð á nokkrum vörum. T.d. kostar pakki af Honey Nut Cheerios þar 249 krónur en er á 290-310 krónur í öðr- um verslunum. Bónus er með sérstök afmælistil- boð í gangi og má nefna að stór kassi af hraunbitum kostar þar 139 krón- ur, sem er spottprís, og tveggja lítra brúsi af Extra uppþvottalegi kostar 116 krónur. Við rákum ennfremur augun í að ýsuflök virðast vera að lækka í verði. Þau voru boðin í Grundarkjöri á 389 krónur sem er mjög gott verö því að undanfórnu hefur verð á ýsuflökum verið 430-475 krónur. -Pá y “fi1 1“ GÚRKUR Grundarkjör FJaróar- kaup 98 245 P PAPRIKA Nóatún Bónus 399 658 SVEPPIR Nóatún r W l- TÓMATAR Mlkllgaröur Bónus 1 1 P 370 545

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.